Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2003, Side 20

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2003, Side 20
Rangarþing eystra Engar neikvæðar raddir Ágúst Ingi Ólafsson hefur verið sveitarstjóri Rangarþings eystra frá því sveitarfélagið tók til starfa. Hann segir engar neikvæðar raddir hafa komið fram vegna sameiningarinnar eða starfsemi hins nýja sveitarfélags. Rangárþing eystra var myndað eftir samein- ingu sex sveitarfélaga á vordögum 2002. Þessi sveitarfélög voru Austur-Eyjafjalla- hreppur, Austur-Landeyjahreppur, Fljótshlíð- arhreppur, Hvolhreppur, Vestur-Eyjafjalla- hreppur og Vestur-Landeyjahreppur. Sveitar- félagið nær frá Jökulsá í austri til Eystri Rangár í vestri og tók formlega til starfa að loknum sveitarstjórnarkosningunum 9. júní 2002. Fyrsta desember á síðasta ári voru 1.655 íbúar í Rangarþingi eystra. Hátt í helmingur þeirra, eða rúmlega 800 manns, bjó áður í Hvolhreppi en hinn helmingur- inn í fimm dreifbýlishreppum. Hinn gamli Hvolhreppur eða Hvolsvöllur er eina þétt- býlið í Rangaárþingi eystra að öðru leyti en að vísir að þéttbýli er í Skógum undir Eyja- fjöllum. Aðrar byggðir eru dreifðar þar sem atvinnulíf byggist einkum á landbúnaði en frítímabyggðir og ferðaþjónusta hafa farið vaxandi á undanförnum árum. Ákveðið að starfrækja skólana áfram Ágúst Ingi Ólafsson, sveitarstjóri á Hvols- velli, segir að sameiningin hafi gengið vel fyrir sig en tímabilið fram að næstu sveitarstjórnarkosningum verði notað til þess að móta sveitarfélagið sem eina heild. Dæmi um arf frá fyrra fyrirkomulagi megi nefna að sex félagsheimili eru í Rangarþingi eystra og fjórir grunnskólar. Ágúst Ingi segir að hugmyndir séu um að skapa verkaskiptingu á milli félagsheimil- anna en nýting þeirra sé misjöfn og fari að nokkru eftir íbúafjölda í nágrenni hvers þeirra um sig. Hann segir að ákveðið hafi verið strax í upphafi sameiningar- ferlisins að starfrækja alla grunnskólana að minnsta kosti fyrst um sinn en vinna fremur að samstarfi þeirra og samein- ingu eftir því hver íbúaþróun- in verði. Þrír efstu bekkir grunnskólans sækja skóla í Hvolsskóla á Hvollsvelli en yngri nemendur af öðrum skólasvæðum hafa einnig farið þangað í nokkrum mæli og fjöldi þeirra einkum ráðist af stærð árganga. Á síðasta vetri sótti til dæmis fimmti til sjöundi bekkur úr Austur-Landeyjum Hvols- skóla. „Þessir þrír skólar eru allir litlir en Hvolsskóli hefur verið að stækka nokkuð á kostnað þeirra. Engin ákvörðun liggur þó fyrir um að leggja þessa skóla niður. Það mun fyrst og fremst ráðast af fjölda nemenda á næstu árum," segir Ágúst Ingi og telur vandann við að sameina allt grunnskólastarfið á Hvolsvelli einkum felast í vegalengdum innan sveitarfélagsins en nær 60 kílómetrar eru á milli enda þess til austurs og vesturs. Hliðarvegum sé einnig víða ábótavant þótt leiðin um hring- veginn sé mjög greið. „Sá vandi sem að okkur snýr er annars vegar að starfrækja mjög fámenna skóla úti í dreifbýlinu en hins vegar að annast skóla- akstur þegar börn þurfa að dvelja mjög lengi í skólabílnum á hverjum degi. Nú er verið að reka skóla með á bilinu 15 til 20 nemendur en alls eru rúmlega 50 nemend- ur í þessum þremur skólum." Ágúst Ingi segir að úrbætur í vegamálum myndu auð- velda sameiningu grunnskólans á einum stað. Hins vegar hafi verið erfitt að fá fjár- muni til að lagfæra þessa vegi eins og nauðsynlegt sé. „Við reynum þó eftir föng- um að skipuleggja skólaaksturinn þannig að börnin þurfi að vera sem styst í skólabílnum á hverjum degi." Þessa dagana er verið að undirbúa nýbyggingu við skólann á Hvolsvelli. Hún er þó ekki einvörðungu til þess að taka við nemendum fámennari skólanna í sveitarfélaginu vegna þess að Hvolsskóli hefur búið við þrengsli á undanförnum árum og þurft að notast við lausar kennslustofur af þeim sökum. Með nýrri byggingu á skólalóðinni er ætlunin að taka þann húsakost úr notkun. Auk grunnskólanna rekur Rangar- þing eystra tvo leikskóla; ann- an á Hvolsvelli en hinn á Seljalandi undir Eyjafjöllum þar sem einn hinna fjögurra grunnskóla sveitarfélagsins er einnig til staðar. Ferðaþjónustan að sækja sig í veðrið íbúafjöldi hefur verið nokkuð stöðugur í Rangarþingi eystra að undanförnu. Ágúst lngi segir ekki mikla tilflutninga á fólki innan sveitarfélagsins og að íbúum Hvolsvallar hafi ekki fjölgað að neinu ráði á kostnað þeirra byggða sem mynduðu gömlu sveitarfélögin. Hann segir þennan Ágúst Ingi Ólafsson sveitarstjóri. „Sá vandi sem að okkur snýr er annars vegar að starfrækja mjög fámenna skóla úti í dreifbýlinu en hins vegar að annast skólaakstur þegar börn þurfa að dvelja mjög lengi í skólabílnum á hverjum degi." 20 -----

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.