Sveitarstjórnarmál - 01.10.2003, Side 28
Viðtal mánaðarins
Stutt á mið, í flug og í borg
Ólafur Þór Ólafsson, bæjarfulltrúi í Sandgerðisbæ, segir atvinnumálin brenna á Sandgerðinum og
íbúum Reykjaness. Ýmis tækifæri séu þó fyrir hendi í kjölfari þeirra breytinga er orðið hafa og leynast
kunna í framtíðinni.
Ólafur Þór Ólafsson, stjórnmálafræðingur
og íþrótta- og tómstundafulltrúi Sandgerðis-
bæjar, tók sæti í bæjarstjórn þar að loknum
síðustu sveitarstjórnarkosningum. Hann seg-
ir að stjórnmálaáhugi hafi fylgt sér lengi auk
þess sem að hann hafi starfað hjá bæjarfé-
laginu frá árinu 1996. Ólafur Þór erVest-
firðingur að ætt og uppruna en fjölskylda
hans fluttist suður þegar hann var ungur að
árum. Ólafur segir margt líkt með aðstæð-
um í Sandgerðisbæ og í byggðum vestra.
Atvinnulífið byggist að miklu leyti á útgerð
þar sem tilfærsla í sjávarútvegi hafi tekið
toll af aflaheimildum. Aðeins um tíundi
hlutinn sé eftir frá því að þær voru mestar
og nú séu spurningar um hversu lengi
Bandaríkjaher verði stór vinnuveitandi á
svæðinu.
„Kaffibollapælingar"
í bæjarmálum
Ólafur Þór segir að í aðdraganda sveitar-
stjórnarkosninganna vorið 2002 hafi nokkrir
í Sandgerðisbæ tekið að ræða um að stefndi
í fremur litlausa og kraftlitla kosningabar-
áttu og líkur yrðu á óbreyttri bæjarstjórn.
„Við urðum sammála yfir kaffibollunum að
það væri ekki viðunandi og tæpast líklegt til
þess að fá fram umræður og
íbúana til þess að velta bæjar-
málunum fyrir sér. Okkur
fannst líka óeðlilegt að þeir
sömu fjölluðu um málefni
sveitarfélagsins kjörtímabil eftir
kjörtímabil og nauðsynlegt
væri að fylgja málinu eftir með
framboði til bæjarstjórnar.
Yngra fólkinu fannst einnig að
hinir kjörnu fulltrúar væru
nokkuð einsleitur hópur og
orðnir svolítið fjarlægir. Út frá
þessari hugmynd og einnig -------------------------------
þeirri að betur mætti vinna að
nokkrum málum kviknaði hugmynd um að setja saman fram-
boðslista sem fékk heitið Sandgerðislistinn." Þetta er ekki
flokkspólitískur listi og Ólafur Þór segir að fólk sem hafi stutt
hann hafi síðan unnið fyrir hina ýmsu stjórnmálaflokka f Alþing-
Ólafur Þór Ólafsson, bæjarfulltrúi f Sandgeröisbæ.
„Ég var elstur íþessum hópi og eftil vill var þaö
ástæöa þess að ég fékk þaö hlutverk aö leiöa list-
Hún var dálítið skondin staðan sem kom upp í
sumar að íslenskir vinstrimenn og Bandaríkjastjórn
iskosningunum árið eftir. Þátttakan í þessu
bæjarmálaframboði hafi þannig ýtt ungu
fólki af stað til þess að taka þátt í stjórn-
málastarfi. Ólafur Þór segir að hugmynda-
fræðin hafi fyrst orðið til en síðan farið að
huga að fólki til þess að manna framboðs-
listann og hvort hljómgrunnur væri fyrir því
sem hann kallar „kaffibollapælingar" í bæj-
armálum.
Elstur í hópnum
„Ég var elstur í þessum hópi og ef til vill var
það ástæða þess að ég fékk það hlutverk að
leiða listann. En eftir að ákvörðunin um
famboð lá fyrir sigldum við inn í ákaflega
skemmtilega og einnig lærdómsríka kosn-
ingabaráttu sem skilaði okkur einum manni
í bæjarstjórn." Ólafur Þór segir að umræðan
í aðdraganda kosninganna hafi verið mjög
lífleg og allir frambjóðendur, hvar á lista
sem þeir voru, hafi tekið þátt í henni og trú-
lega lagt meira til kosningabaráttunnar en
þeir hefðu gert hefði Sandgerðislistans ekki
notið við. „Við náðum að koma ýmsum
sjónarmiðum á framfæri og þótt Sandgerðis-
listinn starfi í minnihluta í bæjarstjórninni
þá höfum við tekið þetta hlutverk alvarlega.
Við höfum haldið tvo opna fundi þar sem
við lögðum áherslu á að fá
fólk til þess að koma og skipt-
ast á skoðunum um málefni
bæjarfélagsins."
skyldu orðin nánast sammála í hermálinu. En þessi
staða, hversu skondin sem hún kann að vera í Ijósi
sögunnar, hlýtur að vekja okkur til vitundar og
umhugsunar um að við verðum að huga að at-
vinnumálum í Ijósi þess að störfum á vegum varn-
arliðsins muni fækka.
Stóru vinnustaðirnir
hafa horfið
Um 1.400 manns búa í Sand-
gerðisbæ. Ólafur Þór segir
samfélagið eiga í nokkurri til-
vistarkreppu vegna þess að
það byggist einkum á sjávarút-
------------------------------ vegi. „Atvinnumálin voru mik-
ið til umræðu í kosningabar-
áttunni og hafa einnig verið rædd á meðal okkar frá því við urð-
um aðilar að bæjarstjórninni. Við höfum rætt um á hvern hátt
sveitarfélagið geti komið að því að byggja það upp og tryggja.
AflaheimiIdir í Sandgerði voru allt að 11 þúsund tonn í
28 ------