Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2003, Side 33

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2003, Side 33
Þær myndu trúlega ekki gera mikið gagn í nútímahernaði þessar byssur en þóttu nothæfar á sinni tíð og eru nú til sýnis í Stríðsminjasafni íslands á Reyð- arfirði. Dodge Weapon herbíll Stríðsminjasafnsins, upprunalegur og óbreyttur frá stríðsárunum. Að stíðinu loknu þóttu þessir bílar þarfaþing á slæmum vegum og vegleysum landsins löngu áður en bílbelti og barnastólar tóku að teljast til lögformlegs búnaðar ökutækja. I safninu aðsetur í gömlu verslunarhúsi Örum og Wulfffrá 19. öld, Gömlu búð, þar sem sagan hefur verið sett á svið með einkar myndrænum hætti. Húsið sjálft er hluti af verslunar- og sjóferðasögunni auk þess sem sýningin, sem þar hefur verið sett saman, geymir lifandi lýsingu á at- vinnuháttum fyrri tíma. í fremri hluta sýn- ingarrýmisins hefur verið sett upp verslun eða krambúð eins og verslanir fyrri tíma litu út. Svo raunveruleg er verslunin að halda mætti að hlutirnir væru enn til sölu á verðlagi fyrri tíma. í innri hluta Gömlu búðar er sjóferða- og sjávarútvegssýning sem að hluta er byggð í kringgm árabát, hið hefðbundna fiskiskip fyrri tíma. Á efri hæð safnhússins gefur svo að líta sýningu sem byggð er á munum og tólum er notuð voru til iðnaðar og raunar margvíslegra verka. Þar má meðal annars augum líta tæki til brjóstsykursgerðar, skósmíða og Ijómyndunar að ógleymdri læknastofu og tækjum til tannlækninga. Þar á meðal fót- stignum og vatnslausum tannbor sem fáir myndu trúlega vilja fá upp í sig í dag. Gamla búð stendur á verslunarreit í kaup- staðnum en að sögn Péturs Sörenssonar, starfsmanns Fjarðabyggðar á Eskifirði, er hugmyndin að flytja húsið á sjávarlóð nokkru utar í bænum þar sem sjóbúð stendur fyrir og geymir meðal annars vist- arverqr sjómanna, rúm og hluta af dagleg- um áhöldum þeirra. Með því móti myndi sjóminjasafnið hljóta enn sterki skírskotun mæmm Gamlir bátar hvíla á kambnum við Eskifjörð til hliðar við gömlu sjóbúðina þar sem hugmyndin er að byggja Sjóminjasafnið upp í framtíðinni. til útvegshátta fyrri tíma þar sem þá yrði til einskonar sjósóknarsvæði þar sem ganga mætti á milli staða fortíðarinnar og upplifa atvinnuhættina eins og þeir voru á fyrri dögum. Náttúrugripir og nútímalist Þrjú söfn eru í Neskaupstað. Fyrst má nefna einstakt náttúrugripasafn þar sem finna má fjölbreytt safn fugla, skeldýra og steina. Náttúrugripasafnið er með nokkuð hefðbundnu sniði og byggir á gömlum merg. Annað nýrri safna í Neskaupstað er Sjó- minja- og smiðjusafn Jósafats Hinriksson- ar. Jósafat rak lengi vélsmiðju í Reykjavík og starfaði mikið fyrir sjávarútveginn. Hann var ættaður úr Norðfirði og hafði jafnan sterkar taugar til heimahaganna sem sjá má af því að fjölskylda hans gaf fjölda muna til stofnunar safnsins. Þar má augum líta fjölbreytt val muna sem tengist eldri atvinnuháttum, einkum sjávarútvegi, sjómennsku og sjósókn en einnig smiðju- rekstri. Safninu hefur verið komið fyrir í myndarlegum salarkynnum í Hafnarhús- inu í Neskaupstað. Að síðustu er svo safn Tryggva Ólafsonar myndlistarmanns. Tryggvi er Norðfirðingur en hefur lengst af búið og starfað í Kaupmannahöfn. Hann er af þeirri kynslóð myndlistarmanna er þróaði íslenska myndlistfrá hinu hefð- bundna landslagsmálverki til vfðtækari túlkunar og nýrra forma. í myndum Tryggva, sem eru til sýnis í glæsilegum tveggja hæða sýningarsal í miðbæ Norð- fjarðar, má þó víða líta áhrif frá landsköp- un og landslagi þótt stíll hans hafi þróast í takt við þær formbyltingar sem listasaga síðari hluta 20. aldar hefur að geyma. 33

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.