Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2003, Page 37

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2003, Page 37
Sameiginleg sýn og sameining sveitarfélaga Fjórðungsþing Vestfirðinga ítrekaði fyrri ályktanir um nauðsyn þess að lögboðnum verkefnum sveitarfé- laga fylgi nægjanlegir tekjustofnar auk áherslu á sameiginlega sýn og sameiningu sveitarfélaga vestra. Þetta kemur fram í ályktunum þingsins, sem haldið var á Reykja- nesi við ísafjarðardjúp 5. og 6. september síðastliðinn. í ályktun- inni er sjónum einkum beint að greiðslum daggjalda vegna rekstrar dvalar- og hjúkrunarheimila, þátttöku ríkisins í greiðslu húsaleigubóta og verkaskiptingu rfkis og sveitarfélaga í þeim efn- um. Einnig segir í ályktuninni að sveitarfélögunum verði bætt það tekjutap sem þau hafa orðið fyrir í kjölfar fjölgunar einkahlutafé- laga en sem kunnugt er greiða einkahlutafélög lægri tekjuskatts- prósentu en einstaklingar. Fjórðungsþingið gagnrýndi niður- greiðslu húsahitunar harðlega og skoraði á iðnaðarráherra að beita sér fyrir breytingum á lögum um húshitunarkostnað frá 8. maí 2002 er tóku gildi á liðnu sumri. Ástæður þessarar gagnrýni og áskorunar eru þær að umrædd lög fela meðal annars í sér að jöfnuður til hitunar húsnæðis þar sem enginn er með skráð lög- heimili er felldur niður og benti þingið á að þetta lagaákvæði væri verulega íþyngjandi fyrir sveitarfélög og ferðaþjónustu á svonefndum köldum svæðum. í ályktunini segir að aukning kostnaðar geti numið allt að 66% af þessum sökum. Byggðastofnun kanni sameiningu sveitarfélaga Fjórðungsþing Vestfirðinga taldi mikilvæg sóknarfæri felast í sér- stöku skipulagi eða framtíðarsýn fyrir landshlutann er byggi á hugmyndafræði um sjálfbæra þróun og nýtingu landshlutans með þeim hætti að eftir verði tekið verði það unnið. Með þessu er ekki átt við lögformlegt svæðaskipulag heldur að mótuð verði sameiginleg sýn sveitarfélaga áVestfjörðum til framtíðar með þessi markmið í huga. Þingið fól stjórn FSV að vinna að stefnu- mótun í samræmi við þessa samþykkt auk þess að óska eftir því við Byggðastofnun að starfsmönnum stofnunarinnar á Vestfjörð- um verði falið að kanna kosti þess og galla að sameina ísafjarðar- bæ, Tálknafjarðarhrepp og Vesturbyggð í eitt sveitarfélag þar sem ein af forsendum sameiningar verði tenging á milli Auðkúlu og Bíldudals með hraðferju ásamt jarðgöngum undir Hrafnseyrar- heiði. Tillögur um skýra verkaskiptingu liggi fyrir Sameiningarmál sveitarfélaga og samgöngumál voru til umræðu á aðalfundi Eyþings ásamt fleiru. Áhersla er lögð á breytta verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og einnig brýna þörf á bættum samgöngum. Aðalfundur Eyþings, sem haldinn var í Ólafsfirði dagana 26. og 27. september sl., lagði áherslu á að tillögur um skýra verkaskipt- ingu ríkis- og sveitarfélaga verði að liggja fyrir áður en tillögur um sameiningu þeirra, sem boðaðar eru í sérstöku sameiningarátaki, verði Iagðar fram. Fundurinn lagði einnig áherslu á að tillögur um breytta tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga, breytingu á Jöfnunar- sjóði og aðlögun að breyttum og nýjum verkefnum sveitarfélag- anna verði auk þess að liggja fyrir áður en gengið verður frá hug- myndum um sameiningu og nýja sveitarfélagaskipan. Hálendisvegir og jarðgöng Samgöngumál settu einnig svip á aðalfund Eyþings. Hvatti fund- urinn samgönguyfirvöld til þess að hefja þegar í stað vinnu við mótun heildstæðrar samgöngustefnu. í ályktun fundarins kemur fram að hálendisvegir séu vel fallnir til þess að stytta vegalengdir og tengja þannig saman landshluta með fljótfarnari hætti en byggðavegir gera auk þess að auðvelda almenningi aðgang að hálendi íslands. Fundurinn átaldi þau vinnubrögð er viðhöfð voru við frestun á byggingu Héðinsfjarðarganga en lagði áherslu á að tímarammi annarra framkvæmda standi eins og gert sé ráð fyrir í samgönguáætlun. Fundurinn taldi einnig nauðsynlegt að Vaðla- heiðargöng verði tekin inn á samgönguáætlun hið fyrsta og hvatti samgönguyfirvöld til þess að láta hefja nauðsynlegar rannsóknir vegna gangagerðar í samvinnu við Greiða leið ehf. Auk þess taldi fundurinn nauðsynlegt að stefnumótun um gjaldtöku fyrir afnot af Vaðlaheiðargöngum liggi fyrir hið fyrsta. Brúarási • 701 Egilsstaðir • Sími 471-2715 Opnunartími: 09.00 til 17.00 • Grunnskóli Tónlistaskóli • Leikskóli ----- 37

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.