Sveitarstjórnarmál - 21.10.2008, Page 11
Frístundahús í Eyjafirði.
Lögheimili í frístundabyggð
í dómi Hæstaréttar í máli 474/2004 var kveðið á um að Bláskógabyggð
hefði ekki verið heimilt að synja tiltekinni fjölskyldu um skráningu
lögheimilis (frístundahúsi. Grundvöllur niðurstöðunnar var sá að ekki
var að finna í lögum ákvæði sem takmarkað gætu rétt einstaklings til
að skrá lögheimili sitt (frístundahúsi enda hefði hann þar raunveru-
lega búsetu (skilningi lögheimilislaga. Dómurinn vakti hörð viðbrögð
sveitarfélaga og eigenda frístundahúsa enda hefði að óbreyttu verið
litið framhjá rétti þeirra fjölmörgu sem reist hafa sér sumarhús á þar til
skipulögðum svæðum auk þess sem föst búseta í frístundabyggðum
kallaði á verulega aukna þjónustu og kostnað fyrir sveitarfélögin. í
kjölfar dóms Hæstaréttar voru gerðar breytingar á lögheimilislögum
og skipulags- og byggingarlögum með það að markmiði að koma í
veg fyrir að hægt væri að skrá lögheimili (frístundabyggð. Og er nú
óheimilt að skrá lögheimili í frístundabyggð.
Upplýsingafundir og samráð
Með lögum um frístundabyggð og leigu lóða undir frístundahús var
lögfest ákvæði um samráð sveitarstjórna og félaga í frístundabyggð. (
ákvæðinu felst að óski a.m.k. helmingur félaga í frístundabyggð (
sveitarfélagi eftir því að haldinn verði fundur til að veita upplýsingar
um sameiginleg hagsmunamál frístundabyggðanna og sveitarfélags-
ins, skuli sveitarstjórn bjóðast til að halda slíkan fund með fulltrúum
allra félaga í sveitarfélaginu.
Sveitarstjórn þarf þó ekki að bjóðast til að halda slíkan fund oftar
en einu sinni á ári. ( ákvæði laganna felst að félög í frístundabyggð
geta tilnefnt fulltrúa til þess að mæta fyrir sína hönd á fund með sveit-
arfélaginu. Fulltrúar félagsins geta þá miðlað þeim upplýsingum sem
fram koma til sinna félagsmanna. Ekki er gert ráð fyrir því að um opna
fundi fyrir alla eigendur sumarhúsa í sveitarfélaginu sé að ræða.
Nokkur sveitarfélög halda nú þegar reglulega fundi þar sem sumar-
húsaeigendur geta komið á framfæri athugasemdum sínum auk þess
sem fulltrúi sveitarfélagsins gerir grein fyrir þeim málum sem snerta
sumarhúsaeigendur hverju sinni. Hefur það fyrirkomulag gefist vel og
almenn ánægja ríkt með slíka fundi.
Þess má vænta að nýmæli laga um frístundabyggð og leigu lóða
undir frístundahús muni mælast vel fyrir hjá frístundahúsaeigendum
sem og sveitarstjórnarmönnum og sé til þess fallið að auka og bæta
samskipti þessara aðila.
Þjónustugáttin veitir þjónustu á netinu
allan sólarhringinn, alla daga ársins.
50sveitarfélög
hafa valið kerfi frá
©neSystems
meðal sveitarfélaga sem nota OneSystems lausnir:
Aðgangsstýrð þjónustugátt og ferlar á
vefnum fyrir íbúa sveitarfélaga og
fyrirtækja gerir íbúum og viðskiptavinum
kleift að senda inn erindi og fygljast með
umsóknar- eða afgreiðsluferli sinna mála,
hvenær og hvar sem er á vefnum.
Álftanes Árborg Bolungarvík Fljótsdalshéraö Rangárþing Vesturbyggð
éystra
H
Microsoft | Partner Program
Hafnafjörður Hornafjörður Kópavogur Mosfellsbær Vogar Skagafjörður
C Twindows £' Windows Server ^jOffice
OneSystems bjóða heildarlausn
í skjalamálum sveitarfélaga og þjónustu við íbúa
OneSystems
sími: +354 660 8551 | fax: +354 588 1057
www.onesystems.is | one@onesystems.is