Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 21.10.2008, Síða 14

Sveitarstjórnarmál - 21.10.2008, Síða 14
Sveitamennt Kristín Njálsdóttir skrifar um Sveitamennt ( byrjun ársins 2007 tók nýr fræðslu- sjóður til starfa, Sveitamennt SGS og LN, starfsmenntunarsjóður starfsmanna sveitarfélaga á landsbyggðinni innan aðildarfélaga Starfsgreinasambands íslands. Sveitamennt tók formlega til starfa 1. janúar 2007 og byggir á gr. 13.4.3 um starfsmennt- unarsjóð í kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga (LN) og Starfsgreinasambands Islands (SGS). Hér er um álíka fræðslusjóð að ræða og Rikismennt SGS sem stofnað var til i kjarasamningi ríkisins við Starfsgreinasam- band íslands. Einnig eru Landsmennt og Starfsafl mjög sambærilegir sjóðir en þeir hafa verið starfræktir sl. sjö ár skv. kjarasamn- ingi Starfsgreinasambands íslands og Sam- taka atvinnulífsins annars vegar og Flóabanda- lagsins og Samtaka atvinnulífsins hins vegar. Þjónustusamningur við Landsmennt Ákveðið var að gera þjónustusamning við skrifstofu Landsmenntar um rekstur og um- sjón með starfseminni þannig að skrifstofa Sveitamenntar er sú sama og Landsmenntar að Skeifunni 8 í Reykjavík. Þá er rekstur Ríkis- menntar einnig staðsettur á sama stað en aðildarfélög þessara þriggja sjóða eru þau sömu, þ.e. aðildarfélög Starfsgreinasambands Islands á landsbyggðinni. Samningsaðilar eru sammála um mikilvægi starfsmenntunar. Aukin hæfni og starfstengd menntun félags- manna aðildarfélaga Starfsgreinasambands- ins, sem starfa hjá sveitarfélögunum, eru nauðsynlegir þættir vegna sífellt fjölbreyttari verkefna. Þvl er markmið sjóðsins annars vegar að auka möguleika sveitarfélaga og stofnana þeirra á að þróa starfssvið sitt þannig að það samræmist þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra á hverjum tlma og efla starfsmenntun starfsmanna með það fyrir augum að þeir verði færari til að takast á við sífellt fjölbreyttari verkefni. Tvær deildir Sveitamennt skiptist I tvær deildir og sinnir hlutverki sínu með eftirfarandi hætti: Sveit- arfélagadeild sinnir hlutverki slnu með því að veita styrki til fræðsluverkefna á sviði starfs- menntunar sem eru I samræmi við markmið sveitarfélaga, sem I sjóðinn greiða, stéttar- félaga sem að sjóðnum standa eða verk- efna sem sjóðstjórn skipuleggur. Auk þess styrkir deildin verkefni sem aðilar semja um I kjarasamningi. Einstaklingsdeild veitir styrki til einstak- linga, félagsmanna aðildarfélaganna til þess að þeir eigi kost á að sækja nám/námskeið með vinnu án verulegs kostnaðar. Sá háttur er hafður á afgreiðslu einstak- lingsstyrkja að hver félagsmaður getur sótt um styrk til síns verkalýðsfélags sem metur umsóknina og afgreiðir styrkinn eftir starfs- reglum Sveitamenntar. Verkalýðsfélagið sæk- ir slðan um endurgreiðslu til sjóðsins. Þannig eru það verkalýðsfélögin sem sjá alfarið um afgreiðslu einstaklingsstyrkjanna enda I mestri nálægð við sína félagsmenn. Þær umsóknir sem berast til sveitarfélagadeildar sjóðsins eru sendar á skrifstofu sjóðsins og afgreiddar af stjórn sjóðsins sem kemur saman að lágmarki einu sinni I mánuði. Farið vel af stað Það er óhætt að segja að starfsemi Sveita- menntar hafi farið mjög vel af stað. Strax og sjóðurinn varð til fóru stéttarfélögin að af- greiða styrki úr honum til félagsmanna sinna en lögðu út fyrir þeim fyrsta hálfa árið. Öll aðildarfélögin stóðu saman að þvl að gefa Kristín Njálsdóttir, forstöðumaður Sveítamenntar. sjóðnum frest til þess að endurgreiða styrk- ina til hvers félags um sig þangað til nægi- legt fjármagn hafði safnast í hann og var þá miðað við að fyrsta endurgreiðsla til félag- anna færi fram í júní 2007. Þá tók stjórn sjóðsins þá ákvörðun að opna ekki fyrir um- sóknir í sveitarfélagadeild sjóðsins fyrr en 1. september 2007. Þessi tilhögun var bráð- nauðsynleg til þess að sjóðurinn gæti vaxið og þannig skapað ákveðinn höfuðstól til að byggja á. Um 20% hafa þegar nýtt sér sjóðinn Eftirspurn eftir styrkjum til fræðslu var mikil Styrkir til fræðsluverkefna og einstaklinga endi Nánari upplýsingar og einföld ráð u www.urvinnslusjodur.is/endurvinns Það er í þínum höndum að ákveí endurvinnslu. Vel gæti reynst að byr þú venst hugmyndinni. í öllum sveil þeirra taka við pappa, pappír og pla 14 aUwtuap SGRPA P '

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.