Sveitarstjórnarmál - 21.10.2008, Blaðsíða 18
Mosfellsbær
I Álafosskvosinni hefur myndast lista- og menningarþorp.
vera til staðar og þar á ég einkum við skóla
og leikskóla auk annarra þjónustumannvirkja.
Loks gengur landið til Mosfellsbæjar þegar
lóðarleigusamningar hafa verið gerðir."
Haraldur segir að með þessu sé hægt að
stuðla að verulegri uppbyggingu en mikil
eftirspurn hafi verið eftir lóðum og húsum á
undanförnum árum eins og tölur um fólks-
fjölgun sýni. „Með þessum hætti getum við
unnið að uppbyggingunni án þess að það
komi niður á þeim íbúum sem fyrir eru eða
að framkvæmdirnar ríði sveitarfélaginu að
fullu. Með þessum samningum fáum við jafn-
framt fjármuni til þess að standa straum að
því sem við þurfum að leggja fram til nýrra
þyggingasvæða og bæjarhverfa."
foreldrar vinna flestir fullan vinnudag og fá
einungis fimm til sex vikur í sumarleyfi og við
erum að taka mið af því fyrir þennan aldurs-
hóp," segir Haraldur.
Mosfellsbær fékk sérfræðinga í skólamál-
um og sérfræðinga í hönnun húsnæðis til að
vinna þessa hugmynd með skólayfirvöldum
og undirbúa ákvörðun um hvernig að henni
yrði staðið. „Við þurftum að ákveða skóla-
stefnuna og síðan að hanna mannvirki sem
gætu þjónað henni með góðu móti. Með
öðrum orðum að laga arkitektúrinn að sjálfu
skólastarfinu eins og það er hugsað," segir
hann.
„Þetta er búið að vera skemmtilegt verk-
efni og hefur vakið töluverða athygli. Við
efndum til samkeppni um skólabygginguna
og vinningstillagan er frá hópi sem nefnir sig
Bræðingur. Nú er verið að hanna mannvirkin
en skólinn er þegar tekinn til starfa í færan-
legum kennslustofum sem siðan munu nýtast
til undirbúnings skóla, sem ráðgert er að risi í
Helgafellshverfi. Ef allt gengur að óskum þá
munum við flytja Krikaskólann í nýtt og
glæsilegt húsnæði næsta haust."
Samfelldur vinnudagur
barna og fullorðinna
Haraldur segir að ásamt þessu hafi verið
unnið að því að ná meiri samþættingu á milli
skólastarfs yngri nemenda i fyrsta til fjórða
bekk og þátttöku i íþrótta- og tómstunda-
starfi með það fyrir augum að koma á heils-
dagsskóla eins og Krikaskólakerfið gengur til
að mynda út á. „Mosfellsbær hefur mikinn
metnað i skólamálum og málefnum fjöl-
skyldunnar. Hugmyndin með aukinni sam-
Þrír ungir Mosfellingar á iþróttavellinum.
Skóli frá eins til níu ára
í þremur þeirra hverfa sem nú eru i byggingu
er gert ráð fyrir nýjum skólum, í Krikahverfi,
Leirvogstungu og Helgafellshverfi. Haraldur
segir að þar séu bæjaryfirvöld að útfæra nýja
hugmynd um skóla fyrir börn frá eins árs og
upp í níu ára aldur. „Með þessu erum við að
samtvinna leikskólastigið og grunnskólann
og aðlaga yngsta stig grunnskólans að þörf-
um nútímafjölskyldna. Börn upp í fjórða bekk
fá heilsdagsskóla líkt og tíðkast í leikskólum
og verða tómstundir fléttaðar inn í skóladag-
inn. Þá verður sumarfrí í takt við það sem
þekkist á leikskólum enda finnst mörgum
foreldrum ungra barna erfitt að finna úrræði
fyrir börnin sin í löngum sumarleyfum (skól-
unum. Veruleikinn sem við búum við er sá að
Halldór Kiljan Laxness er án efa þekktastur Mosfellinga. Hann reisti sér hús í landi Laxness um miðja síðustu öld
og nefndi Gljúfrastein. Hann bjó þar allt til slðustu æviára. Húsið er I dag í eigu íslenska rlkisins og starfrækt
sem safn og menningarsetur.
SFS
18
TÖLVUMIÐLUN
www.tolvLimidlun.is