Morgunblaðið - 21.11.2011, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2011
105 Hugmyndin er sú að allt líf Bar-
bie sé ævintýri, takið eftir skónum. Morgunblaðið/Eggert
Vinningshafi
Fjaðrahamur
Zero varð hlut-
skarpastur.
Stíll, hönnunarsamkeppni Samfés
var haldin með pomp og prakt um
helgina en alls tóku 55 félags-
miðstöðvar hvaðanæva af land-
inu þátt í keppninni. Þemað í ár
var ævintýri en það var félags-
miðstöðin Zero frá Flúðum
sem bar sigur úr býtum. Í
öðru sæti var Ecco Félags-
miðstöðin í Kópavogi,
Pegasus í þriðja, Hólma-
sel í fjórða og fimmta
sæti Þrykkjan.
Þetta var í 11. sinn
sem keppnin er haldin en inn-
tak hennar er að hönnunar-
teymi félagsmiðstöðvanna
vinni lokaútfærslu á sýning-
aratriði sem byggist á hár-
greiðslu, förðun og fata-
hönnun sem fellur að þema
keppninnar. Hvert hönnunar-
teymi samanstendur af tveimur
til fjórum unglingum og þar af
einu módeli. Liðin fá takmarkaðan
tíma til að koma hugmynd sinni í
framkvæmd á staðnum en undir-
búningsvinna hefur staðið yfir hjá
mörgum þeirra vikurnar áður en
að keppni kemur.
Markmið keppninnar er að
hvetja unglinga til listsköpunar
innan veggja félagsmiðstöðvanna
og að vekja athygli samfélagsins
á jákvæðum viðfangsefnum ung-
linga á sviði sköpunar og að
skapa aðstæður fyrir unglinga
til að koma hugmyndum sín-
um og verkum á framfæri.
Hönnunarsamkeppni Samfés
Félagsmiðstöðin Zero frá
Flúðum bar sigur úr býtum
Svanhildur Eiríksdóttir
svei@simnet.is
Af hverju segir þú lángar?“spyr Lisa Buhofer ís-lenskukennara sinn HildiHarðardóttur og það er
von hún spyrji. Lisa fékk fyrir
nokkrum árum brennandi áhuga á
að læra íslensku, auglýsti í Morgun-
blaðinu og Hildur Harðardóttir
kennari las auglýsinguna. Hún stóð
á tímamótum, var nýorðin ekkja,
sótti um starfið og fékk. Höf og lönd
skilja þær stöllur ekki að í náminu,
þær nýta sér tæknina og Hildur fer
til heimalands Lisu, Spánar, einu
sinni á ári. Hún er nú nýkomin heim
eftir kennaradvöl í landinu og þær
féllust á að deila þessari reynslu með
blaðamanni.
Lisa er mikil málamanneskja,
að sögn Hildar, og lærði germönsk
mál þegar hún nam við háskólann í
Zürich á 10. áratugnum. Þar var
kennd forn-þýska, gotneska,
engilsaxneska og forn-
íslenska. Auk þess voru
þrjú norræn tungumál í
boði, norska, danska
og sænska og valdi
Lisa sænskuna, þar
sem henni þótti hún
auðveldust í fram-
burði. „Í forn-
íslensku
voru
Eddukvæði lesin og heillaðist
Lisa af þeim. Þó þetta mörg
ár séu liðin síðan hún var í
skólanum, man hún enn eitt
kvæðanna og hefur farið með
það fyrir mig,“ sagði Hildur
í samtali við blaðamann.
Frá sænskunni fór
Lisa hins vegar að
draga sig að ís-
lenskunni vegna
málfræðinnar.
Hún hlær við þegar hún hugsar um
hvað tungumálið var henni erfitt og
segir við kennara sinn: „Hefði ég vit-
að hve erfið íslenskan er, hefði ég
aldrei lagt á þessa braut.“ Það var
hins vegar engin uppgjöf í nemand-
anum og þrátt fyrir stritið fór hana
að langa til að kynnast sögu og
menningu Íslands betur. „Með lestri
Íslendingasagna fékk Lisa hugmynd
um landnámið. Hún fikraði sig nær í
tíma, lærði um lífið undir Dönum og
Íslenskukennsla
án landamæra
Hildur Harðardóttir, kennari á eftirlaunum, heldur fast í ástríðu sína að kenna
og gerðist fyrir nokkrum árum íslenskukennari svissneskrar konu á áttræðisaldri,
sem vildi bæta íslenskunni í tungumálaflóruna sína.
Íslenskukennarinn
Hildur Harðardóttir.
Það er gott að geta nuddað auman
háls, herðar og höfuð eftir langan og
strangan vinnudag. Svo ekki sé talað
um ef einhver annar býðst til að vera
svo góð/ur að nudda þig. Það er
hægt að ná góðum árangri með því
að nudda sjálfan sig reglulega og sjá
þannig til þess að ekki fari allt al-
gjörlega í hnút. Fyrir þá sem vilja
læra að nudda heima fyrir er sniðugt
að kíkja á vefsíðuna www.howto-
massage.org. Þar er hægt að lesa sér
til um og horfa á myndbönd t.d. af
höfuð- og andlitsnuddi. Þetta getur
reynst ágætis leið til að byrja en inn á
milli er jú einna best að fara til nudd-
ara og láta hann um að nudda úr
manni streituna.
Létt axla- og hálsnudd er gott að
gera sjálfur í sturtunni á morgnana
og rúlla til höfðinu og teygja á í leið-
inni. Fyrir þá sem sitja við tölvu allan
daginn er mikilvægt að rétta reglu-
lega úr sér og svo er hægt að nota
nuddbolta eða jafnvel nuddmottu á
bakið á stólnum til að koma blóðinu
aðeins af stað. Heima fyrir er svo
hægt að nota góða nuddolíu og biðja
kannski betri helminginn um gott
nudd að loknum löngum degi. Það er
bæði rómantískt og notalegt að eiga
slíka stund í skammdeginu.
Vefsíðan www.howtomassage.org
Morgunblaðið/Golli
Slökun Það er ótrúlega afslappandi að láta nudda andlit sitt og herðar.
Gott nudd á hverjum degi
Samtök lífrænna neytenda sýna
heimildarmyndina One Man, One
Cow, One Planet í kvöld klukkan
20.30 í Norræna húsinu. Þessi ein-
staka, margverðlaunaða heimild-
armynd fjallar um lífeflda ræktun og
hvers vegna hún sé lausnin við
vandamálum hins iðnvædda landbún-
aðar.
Í myndinni er fylgst með lífefldri
ræktun (bíódýnamískri) á Indlandi
sem eyðir ekki jarðveginum en nærir
hann. Þar geta gamall maður og fata
af taði reynst lausnin í mörgum til-
fellum. Þessi kvikmynd er einstök
leið til að kynnast lífefldri ræktun en
aðgangur er ókeypis og eru allir vel-
komnir á meðan húsrúm leyfir.
Samtök lífrænna neytenda voru
stofnuð formlega í Norræna húsinu í
mars síðastliðnum. Tilgangur þeirra
er að stuðla að aukinni framleiðslu
og neyslu vottaðra lífrænna vara á Ís-
landi með velferð almennings, búfjár
og umhverfisins að leiðarljósi. Nánari
upplýsingar má nálgast á vefsíðu
samtakanna.
Endilega …
… kynnið ykkur
lífeflda ræktun
Morgunblaðið/Eggert
Fróðleg One Man, One Cow, One Planet.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Nemandi og kennari Lisa Buhofer auglýsti eftir íslenskukennara.
Tekið verður á móti umsóknum
vegna jólaaðstoðar á eftirfarandi
tímum að Hátúni 12b
Þriðjudaginn 22. nóv. kl. 10-14
Þriðjudaginn 29. nóv. kl. 10-14
Fimmtudaginn 1. des. kl. 10-14
Þriðjudaginn 6. des. kl. 10-14
Fimmtudaginn 8. des. kl. 10-14
www.birkiaska.is
Birkilauf- Betulic
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi
líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra.
Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).