Morgunblaðið - 21.11.2011, Qupperneq 11
Skrautleg Sagan um Lísu í Undralandi er sannkallað ævintýri. Ísdrottning Byggð á persónu úr
Narníu, grimm en tignarleg um leið.
Stíll Fjölmargar félagsmiðstöðvar tóku þátt í keppninni um helgina.
Casa Chica Þetta er útsýnið úr húsi Hildar sem hún hefur til umráða meðan á kennaradvölinni stendur á Spáni.
síðan um 20. öldina með lestri nú-
tímabókmennta. Okkar tímum
kynnist hún svo með lestri bóka eftir
núlifandi höfunda.“
Eftir að Lisa heimsótti Ísland
ásamt hópi eldri borgara frá Sviss
árið 2005 komst hún í kynni við nú-
tímaíslenskuna og langaði að fá
kennslu í framburðinum. Það var þá
sem hún ákvað að auglýsa eftir ís-
lenskukennara og eftir að Hildur
hafði svarað kallinu var ljóst að
kennarinn og nemandinn áttu margt
sameiginlegt. Það sem hefur komið
þeim að mestu notum í náminu er
sameiginlegur áhugi á bóklestri og
hann hefur Hildur mikið nýtt í nám-
inu. Hildur hefur auk þess áratuga
reynslu af kennslu, í íslensku, ensku
og á tölvur.
Lásu saman Laxdælu
„Áður en ég fór að fara til
Spánar, höfðum við skrifast á á ís-
lensku og þar komst ég að raun um
að Lisa var mjög fær í ritmálinu.
Svo fórum við að lesa saman, t.d.
Laxdælu og sögur eftir Viktor Arn-
ar Ingólfsson og Kristínu Mörju
Baldursdóttur. Eftir lestur hverrar
bókar ræðum við þær okkar á
milli.“ Hildur segir Lisu hafa verið
ótrúlega fljóta að ná framburð-
inum, enda tungumál lengi verið
hennar ástríða. Hún talar sviss-
nesk-þýsku, sem er forn háþýska,
þýsku, ensku, frönsku og spænsku
og les sænsku, ítölsku, frönsku og
þýsku, auk íslenskunnar. Í íslensk-
unni stendur málfræðin henni næst
og því er henni oft meira í mun að
hafa hana rétta heldur en fram-
burðinn. „Í byrjun skildi hún ekki
orð af því sem ég var að segja!
Þetta er bara ekki sama málið og
stendur hér í bókunum, sagði hún.
Af hverju segir þú lángar?“
Hildur fer til Spánar einu sinni
á ári og er nýkomin heim úr
kennaradvöl þessa árs. Á milli
heimsóknanna skrifast þær Lisa á,
oftast á íslensku en einnig á ensku.
„Á Spáni er hefðbundin kennsla um
einn og hálfan tíma á morgnana og
síðan aftur síðdegis. Lisa er farin að
skilja mig miklu betur og því nota
ég oft íslenskuna, þó svo að hún
svari á ensku. Við ræðum mikið um
bækurnar sem við lesum saman,
Lisa segir mér frá söguþræðinum
og við skiptumst á skoðunum. Ég
spyr hana líka að því hvaða bók-
menntir hún sæki helst í, á hvaða
tungumáli hún kjósi að lesa og eftir
hvaða höfunda. Það skal viðurkenn-
ast að stundum dettum við niður í
enskuna, sérstaklega þegar um-
ræðuefnið er flókið,“ sagði Hildur
að lokum.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2011
Í kvöld er komið að hinum ómót-
stæðilega Harrison Ford í hlutverki
Indiana Jones að birtast aftur á hvíta
tjaldinu í Mánudagsbíói í Háskólabíó.
Sýnd verður kvikmyndin Indiana
Jones and the Temple of Doom en
myndin er önnur í röðinni um æv-
intýri fornleifafræðingsins Indiana
Jones í leikstjórn Stevens Spielbergs.
Myndinni var mjög vel tekið og er
talin ein af bestu ævintýramyndum
níunda áratugarins. Myndin var hins
vegar gagnrýnd fyrir að bregða upp
rangri mynd af hindúatrú á Indlandi
og var hún bönnuð þarlendis um
tíma.
Myndin hlaut á sínum tíma Ósk-
arsverðlaunin fyrir bestu sjónrænu
brellurnar og fékk einnig tilnefningu
fyrir besta frumsamda lagið. Hér
gefst einstakt tækifæri til að sjá In-
diana Jones á hvíta tjaldinu.
Mánudagsbíó
Leikarinn Harrison Ford hefur elst ágætlega og er ekki hættur að vera töffari.
Ævintýri Indiana Jones
Það er skemmtilegt að sjá litríka og glæsilega
tísku hvaðanæva úr heiminum. Þessi fyrirsæta
sýnir hér það nýjasta úr smiðju malasíska
hönnuðarins Hajaba en þessi lína kallast
Shades of Qipao. Fyrisætan var ein fjöl-
margra sem sýndu fatnað á svokallaðri Ori-
ental Charm-tískusýningu í Kúala Lúmpúr á
dögunum. Hajaba er frumkvöðull í tískufatn-
aði í Malasíu sem samræmist kröfum um
klæðaburð kvenna þar í landi. Hajaba hef-
ur hannað frá árinu 2008 og rekur nú ell-
efu verslanir víða um Malasíu. Fatnaður-
inn er hugsaður fyrir nútímakonuna sem
er mikið á ferðinni þannig að hann er
þægilegur en glæsilegur um leið og gerð-
ur úr hágæðaefnum. Sannarlega litrík og
glæsileg tíska úr smiðju Hajaba.
Tíska
Reuters
Hönnuðurinn Hajaba áberandi
frumkvöðull í Malasíu
Ársfundur Úrvinnslusjóðs
Ársfundur Úrvinnslusjóðs verður haldinn
á Grand Hótel, 4. hæð, Háteigi A, þriðju-
daginn 22. nóvember kl. 13:30
• Formaður stjórnar setur fundinn
• Ávarp umhverfisráðherra
• Ávarp formanns stjórnar Úrvinnslusjóðs
• Ársreikningur 2010 kynntur
• Yfirlit yfir starfsemi Úrvinnslusjóðs
• Umræður
Dagskrá
Fundargögn munu liggja frammi á fundarstað
Stjórn Úrvinnslusjóðs