Morgunblaðið - 21.11.2011, Page 32
MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 325. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Demi Moore er tvíkynhneigð
2. Bjarni sigraði
3. Kallar Hawn sjálfhverfa
4. Umferðarslys á Sæbraut
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sýning Borgarleikhússins, Jesús
litli, var sýnd í Principal-leikhúsinu í
Vitoria á Spáni á laugardag sem hluti
af Alþjóðlegu Vitoria-leiklistarhátíð-
inni. Uppselt var í 1.000 manna leik-
húsinu og áhorfendur fögnuðu ákaft.
Leikritið Jesús litli
slær í gegn á Spáni
Sópransöng-
konan og Íslands-
vinurinn Kiri Te
Kanawa mun
halda tónleika í
Hörpu 5. febrúar
næstkomandi og
hefst sala að-
göngumiða klukk-
an 12:00 í dag.
Kiri varð heimsfræg þegar hún söng
við brúðkaup Karls Bretaprins og
Díönu Spencer. Hún syngur nú í Met-
ropolitan-óperunni í New York.
Miðasala hefst í dag
á Kiri Te Kanawa
Sýningargestir urðu dálítið rugl-
aðir í ríminu á opnun sýningar Snorra
Ásmundssonar á Akureyri á föstudag
því verkin voru ólík og ekki gerð af
honum sjálfum. Hann
var auk þess ekki
viðstaddur. Ellefu
ólíkir listamenn
unnu verkin að
beiðni Snorra,
m.a. Steingrímur
Eyfjörð, Sara
Björnsdóttir og
Mundi vondi.
Gestir á sýningu
Snorra ringlaðir
Á þriðjudag Gengur í austan 13-20 m/s sunnanlands með rign-
ingu og eða slyddu. Mun hægari breytileg átt síðdegis.
Á miðvikudag Vestlæg eða breytileg átt, 5-10 en allt að 15 með
suðurströndinni. Skúrir eða él í flestum landshlutum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan 10-20 vestast en annars 5-10. Skúr-
ir eða slydduél sunnan- og vestanlands en skýjað með köflum
norðaustantil. Hiti yfirleitt 2 til 8 stig.
VEÐUR
Landsliðsmarkvörðurinn í
handknattleik, Aron Rafn
Eðvarðsson, fór á kostum
og varði 20 skot í marki
Hauka þegar Hafnarfjarðar-
liðið vann HK, 22:21, í loka-
leik 8. umferðar N1-deildar
karla á Ásvöllum síðdeg-
is í gær. Þar með komust
Aron Freyr og félagar
upp að hlið Fram í efsta
sæti deildarinnar með 14
stig úr átta leikjum. » 2
Aron Rafn átti
stórleik
„Það er ekkert leiðinlegt að skora,
það er bara svo einfalt. Það er gaman
þegar vel gengur og maður nýtur
þess að sjálfsögðu,“
segir Heiðar Helguson
sem heldur áfram
að raða inn
mörkum fyrir
QPR í ensku úr-
valsdeildinni
að skora. Bylm-
ingshögg frá
andstæðing-
unum breyta
þar engu um
eins og fram
kemur í viðtali
við Heiðar. »4
„Það er ekkert leið-
inlegt að skora“
Diego Björn Valencia úr Víkingi
varð þrefaldur Íslandsmeistari í ku-
mite á Íslandsmótinu í karate um
helgina. Telma Rut Frímannsdóttir
úr Aftureldingu varð tvöfaldur
meistari, bæði í sínum flokki og í
opnum flokki annað árið í röð.
Henni er ýmislegt fleira til lista lagt
í íþróttunum en Telma æfir einnig
handbolta með góðum árangri. »2
Diego og Telma
meistarar í kumite
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ylfa Kristín K. Árnadóttir
ylfa@mbl.is
„Ekki nota þetta upptökutæki á mig,
þú sogar úr mér röddina,“ segir Ar-
on Máni við blaðamann þegar hann
dregur upptökutæki úr tösku sinni í
frístundaheimilinu Frostheimum.
Aron er einn tíu krakka á aldrinum
8-9 ára í fréttaklúbbi Frostheima
sem vinna nú hörðum höndum að því
að skrifa fréttir í fréttablaðið Frost-
Fréttir sem verður gefið út í byrjun
desember.
Í blaðinu mun kenna ýmissa
grasa. Þar verður m.a. bóka- og
kvikmyndagagnrýni, myndir sem
krakkarnir taka sjálfir af starfinu á
frístundaheimilinu, uppskriftahorn
og brandarahorn, auk þess sem
krakkarnir taka viðtöl við starfs-
menn Frostheima. Miðað við við-
brögð Arons Mána má telja ólíklegt
að krakkarnir hafi notað upp-
tökutæki í viðtölunum.
Erfitt að skamma nafnlaus börn
Í blaðinu verður sögð saga mann-
réttinda og verður þar farið yfir
samning Sameinuðu þjóðanna um
réttindi barnsins eða Barnasáttmál-
ann, eins og hann er oftast kallaður.
Sáttmálinn átti 22 ára afmæli í gær
og í tilefni af því var síðasta vika
helguð honum og krakkarnir lærðu
um réttindi sín.
Spurð hvaða réttindi sé talað um í
Barnasáttmálanum hika krakkarnir
aðeins en Álfdís Freyja er með það á
hreinu: „Ég á rétt á mínu eigin
nafni, rétt á að segja hvað mér
finnst, rétt á að vera eins mikið með
foreldrum mínum og ég get og ég á
rétt á að leika mér,“ segir hún og að-
spurðir viðurkenna krakkarnir að
það sé dálítið skrýtið ef sumir bera
ekkert nafn. Einar Skúli segir að
það hljóti að vera erfitt fyrir kenn-
ara að kalla á nemendur og skamma
þá ef þeir heiti ekki neitt. Þá þurfi
kennararnir eflaust að bregða á það
ráð að benda mikið.
Frekar leikarar en blaðamenn
Krakkarnir segjast hafa lært að
þegar þeir taka viðtöl eigi þeir ekki
að spyrja já- og nei-spurninga held-
ur spyrja af hverju, því þá fái þeir
betri svör. Blaðamaður freistast til
að spyrja hvort þeim hafi ekki þótt
gaman að taka viðtöl og hvort þeir
geti hugsað sér að verða blaðamenn
þegar þeir verða fullorðnir. Nær all-
ir segja „nei“ hátt og snjallt og ein-
hver segir m.a.s. „aldrei í lífinu!“
Það sé ýmislegt annað sem þau vilji
gera, t.d. verða leikarar eða atvinnu-
tónlistarmenn. Hrafn Abraham
sagði að hann gæti þó kannski hugs-
að sér að verða íþróttafréttamaður.
Gefa út fjörugar FrostFréttir
Viðtöl, brand-
arar og Barna-
sáttmálinn
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Fréttaklúbburinn Alísa, Álfdís Freyja, Benedikt Ingi, Birkir Blær, Einar Skúli, Gylfi, Helgi Níels og Karólína Snót
sýna stolt blaðamannaskírteinin sem þau bjuggu til sjálf. Á myndina vantar Hrafn Abraham og Sólveigu Kristínu.
Barnasáttmálinn var samþykktur á
allsherjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna 20. nóvember 1989 og öðl-
aðist gildi á Íslandi hinn 27. nóv-
ember 1992.
Samningurinn felur í sér alþjóð-
lega viðurkenningu á að börn séu
hópur sem þarfnist sérstakrar
verndar umfram hina fullorðnu og
að réttinda þeirra hafi ekki verið
nægilega gætt í þeim mannrétt-
indasamningum sem áður hafa
verið gerðir. Jafnframt felst í hon-
um viðurkenning á því að börn séu
sjálfstæðir einstaklingar með eig-
in réttindi, þau eigi sjálfstæð rétt-
indi – óháð réttindum hinna full-
orðnu. Sáttmálinn kveður m.a. á
um vernd tiltekinna grundvallar-
mannréttinda barna, svo sem rétt-
arins til lífs, friðhelgi fjölskyldu-
og einkalífs, félaga-, skoðana-,
tjáningar- og trúfrelsis.
Heimild barn.is.
Verndar grundvallarmannréttindi
BARNASÁTTMÁLINN