SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Síða 9
13. nóvember 2011 9
Vináttulandsleikir eru eitt það óáhugaverðasta við fót-boltann. Þjálfarar nota oft slíkar viðureignir til þessað prófa sig áfram, gefa leikmönnum tækifæri sem allajafna komast ekki í liðið eða reyna nýjar leikaðferðir.
Vináttuleikir eru tilraunastarfsemi, eðlilega.
Frí er í deildakeppni flestra Evrópulanda um helgina en
vináttulandsleikir þess í stað á dagskrá. Nokkrir voru í gær, fá-
einir í dag og fjöldi eftir helgi. Fótboltafíklar þurfa þó ekki að
örvænta því sérlega áhugaverður leikur fer fram – þótt það sé
æfingaleikur; viðureign Englands og Spánar á Wembley-
leikvanginum í London í dag.
Tvær vinsælustu deildir í heimi í dag eru hin enska og sú
spænska. En knattspyrnuhefðin er gjörólík í löndunum tveimur.
Englendingar eru þekktir fyrir djörfung og dug, fyrir að vera
stórir, sterkir, fljótir og baráttuglaðir. Þeir gefast aldrei upp fyrr
en í rauðan dauðann. Einkenni Spánverja hafa í áránna rás verið
önnur; þeir hafa verið einstaklega leiknir og skemmtilegir á að
horfa en kraftinn hefur oft vantað þegar tekið hefur verið
hressilega á þeim. Þeim var álasað fyrir að þola illa spennuna
sem fylgdi stórmótum; ná ekki að sýna sitt besta þegar á reyndi.
Að vera ekki nógu harðir af sér.
Nú er öldin önnur; á því er enginn vafi að Spánverjar eiga
besta lið heims. Breiddin er svo mikil að sumir þeirra sem verma
varamannabekkinn myndu
ekki bara komast í flest
önnur landslið heldur
styrkja þau.
Það sem virðist fimur
ballettdansari er í raun
nautabani í dul-
argervi, reiðubúinn
að stinga and-
stæðinginn til
bana hvenær sem
er.
Nokkrir Spán-
verjar leika með liðum á
Englandi og hafa staðið sig
framúrskarandi vel. Enginn
betur í vetur en hinn smá-
vaxni David Silva, sem farið
hefur hamförum með topp-
liði Manchester City. Það
segir meira en mörg orð að
hann á ekki víst sæti í
spænska liðinu! Hefur
reyndar mjög lítið leikið
með því síðustu misseri.
Einhver kann að spyrja
hvernig í ósköpunum standi
á því. Þjálfari Spánar getur
spurt á móti: Hvern á ég að
taka úr liðinu í staðinn?
Ekkert svar...
Sem dæmi um gæðin í
hópnum má nefna að
Pepe Reina, einn besti
markvörður heims, er vara-
maður í liði Spánar. Valdes,
markvörður Barcelona,
besta félagsliðs heims, er
þriðji á listanum. David de
Gea, sem stendur í markinu
hjá ensku meisturunum í
Manchester United, er ekki
einu sinni í hópnum. Hann er í landsliði 21 árs og yngri. Þannig
mætti lengi telja.
Í stuttu máli má segja að flestir leikmenn Spánar myndu
styrkja lið Englands, en ólíklegt að nokkur hinna ensku kæmist í
spænska liðið. Samt gæti leikurinn orðið spennandi. Það er hið
skemmtilega við þessa frábæru íþrótt. Aldrei er neitt öruggt.
Davíð gæti sigrað Golíat, en maður veit aldrei...
’
Ekki er víst að
besti leikmaður
ensku úrvals-
deildarinnar komist í
lið Spánar í dag. Það
segir meira en mörg
orð um hvespænska
liðið er gríðarlega
sterkt.
David Silva besti leikmaðurinn í Eng-
landi í vetur með Manchester City.
Kemst hann í lið Spánar í dag?
Reuters
Meira en
bara leikur
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Nautabani í líki ballettdansara
Basarinn, nytjamarkaður Kristniboðssambandsins, er í Austurveri,
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík. Opiðmánudaga til föstudaga kl. 11-18.
Opið á laugardögum í desember. Tekið er ámóti munum á sama stað.
Skrifstofa Kristniboðssambandsins er flutt á Háaleitisbraut 58-60.
Opið hús á kristniboðsdaginn kl. 15-17 og húsblessun í umsjá
sr. Kristjáns Vals Ingólfssonar vígslubiskups kl. 15:30.
Allar nánari upplýsingar á www.sik.is og í síma 533 4900.
Kristniboðsdagurinn
13.nóvember2011
Ítrú, von og kær
lei
ka
Boðunogkærleiksþjónusta
í rúm100ár.
Starfssvæði í Kína,Eþíópíu,Keníu,
JapanogMið-Austurlöndum.
Innlendarkirkjurkomnar
í hendur heimamanna.
StarfKristniboðssambandsinsbyggir á góðumundirbúningi
kristniboða,þekkinguámenningu,hugsunarhætti, tungumáli
heimamannaog siðareglum í starfi.
70grunnskólar, 9 framhaldsskólar
ogháskóli í Pókothéraði,Keníu.
Af götu í skóla, stutt viðbörnHIV
smitaðra, færri stúlkurumskornar.
Áhersla ámenntun
ogheilsugæslu. Lestrarverkefni.
Hér á landi er unnið að boðun, fræðslu, kynningu og vitundarvakningu
með heimsóknum, útgáfu fréttabréfs, vefsíðu, námskeiðum og vikulegum
samkomum.
Fjáröflun svo semminningarspjöld, jólakort, kaffisölur, jólabasar, nytja-
markaðurinn Basarinn, mynt- og frímerkjasöfnun. Við viljum fá frímerkin
á umslögunum ef unnt er. Móttaka á pósthúsum í janúar, en allan ársins
hring í Basarnum, Háaleitisbraut 68, Reykjavík og Litla húsinu,
Strandgötu 13a, Akureyri.
Landsbankinn 117-26-2800
Arion 328-26-2800
Íslandsbanki 515-26-2800
MP banki 701-26-2800
Sparisj. Byr 1195-26-2800
Kennitala 550269-4149
Kristniboðssambandið
BASARINN NYTJAMARKAÐURKRISTNIBOÐSSAMBANDSINSAusturveri, Háaleitisbraut 68
www.sik.is facebook.com/kristnibod
Í 75 ár hefur þjóðkirkjan haldið kristniboðsdag og hvatt til samskota
fyrir starfinu. Einnig er tekið við gjöfum á eftirtalda gjafareikninga: