SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Side 15

SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Side 15
13. nóvember 2011 15 garður, þar sem einkum eru sýndar ljósmyndir, póstkort og myndir sem tengjast svæðinu. Safnstjórinn setur síðan á hverju ári upp sýningu þar sem safneignin er tengd samtímalistinni og nú bauð hún mér að sýna leiðrétt- ingar. Hugmyndin er að sýna hvernig gamlar ljósmyndin eða gömul póstkort geta öðlast framhaldslíf.“ Og Sigurði Árna var líka boðið að finna póstkort og ljósmyndir í safneigninni að vinna með. „Ég átti tvo stórkostlega daga í kjallara safnsins og fékk að skoða allt sem mér datt í hug. Ég fann nokkrar ljós- myndir sem ég er núna að vinna með og ef vel tekst til verða þau verk á sýningunni í janúar.“ Ekki er allt upptalið hvað væntanlegar sýningar varðar, því í apríl sýnir hann í Listasafninu á Korsíku. Sigurður Árni var þar með vinnustofu í boði safnsins fyrir átta ár- um og alltaf stóð til að hann sýndi þar í kjölfarið; nú er komið að því. Safnið á nokkur verk eftir hann og átti líka eitt verkanna sem hann sýndi á Feneyjatvíæringnum, en það skemmdist í bruna fyrir nokkrum árum, ásamt um eitt hundrað öðrum verkum, þegar listaverkageymsla safnsins brann. En talið berst aftur að heimi verka Sigurðar Árna, að leiknum sem svo oft birtist í þeim, um hvað geti falist í tvívíðum fleti. Listamaðurinn vinnur með hugmyndir um rými sem geta ekki verið til, sjónblekkingu og skugga af fyrirmyndum sem eru ekki alltaf til staðar. „Allt þetta má rekja til ákveðinna bollalegginga um það hvað sé málverk. Það hefur verið sagt að myndlistarmenn séu bara með eina hugmynd og spurningin er hvað maður getur teygt þessa hugmynd langt,“ segir hann og glottir. „Þetta er eins og töfrateningur sem maður veltir fram og til baka og alltaf koma nýir vinklar … Skuggarnir hafa skipt miklu máli í verkum mínum, það eru þeir sem leiða mig áfram núna og búa til nýja fleti en ég veit ekki hvað varpar þessum skuggum.“ Sigurður Árni Sigurðsson í vinnustofu sinni í Reykjavík. Hann aftekur fyrir að teljast til franskra listamanna þótt hann sýni einkum þar í landi. Morgunblaðið/Einar Falur Ónefnt málverk, 150 x 150 cm, sem verður á væntanlegri sýningu Sigurðar Árna í Galerie Domi Nostrae í Lyon. Vatnslitamyndir þekja sífellt meira veggrými í vinnustofunni sem Sigurður Árni hefur yfir að ráða í miðborg Parísar. „Það er gríðarlegur munur að vera á svæðinu,“ segir hann um að vinna nærri galleríum sínum í Frakklandi. ’ Það er gríðarlegur munur að vera á svæðinu – galleristanum mínum finnst ekki koma til greina að ég fari aftur að vinna alfarið hér á landi. Það er líka góð tilfinning að sjá fram á nokkrar sýningar næstu tvö árin, það er mjög hvetjandi, vinnulega séð.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.