SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Síða 16

SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Síða 16
16 13. nóvember 2011 Ég taldi þetta út, þegar ég varmagaveikur,“ segir HjálmarGíslason þegar blaðamaður sestí sófann og færir til listilega út- saumaða púða. Hann er vel tilhafður og léttur á fæti, brosmildur og býður upp á brjóstsykursmola. Hann er fæddur á hinu viðburðaríka ári 1918, ári frostaveturs, spænsku veikinnar og stríðsloka. Hjálmar Gíslason hefur samið vísur, og þá einna helst gamanvísur og tilefniskvæði, alla sína tíð en vill lítið úr þeim gera og segist aldrei hafa hugsað út í það að gefa út á prenti. Hjálmar ferðaðist líka víða um land eftir seinni heimsstyrjöldina og tróð upp á skemmtunum fyrir landann. Þegar hann er spurður út í æsku sína svarar hann í bundnu máli: „Ég er fæddur á frostavetri fram í sveit í mögrum dal. Svo ekki var von ég yrði betri engan um neitt þó væna skal. Vafalaust fæddur viðsjált barn, vanstilltur, þrár og óbilgjarn. Með foreldrum mínum fimm, sex ára flutti ég svo til Hesteyrar. Þar í sveit eru björg og bára og baráttan erfið norður þar. Sitthvað ég fékk að sýsla þá til sjós og lands, eins og vænta má. Bauðst mér staða sem búðarloka hjá bændum vestur við Dýrafjörð. Kaupmenn þeir vildu undiroka, alls staðar stríð á vorri jörð. Sex ár þarna ég sat um kjurrt, sjöunda árið fór ég burt. Rambaði þá til Reykjavíkur með reytur mínar og konu og börn. Á því taldi samt litlar líkur að leiðin þar yrði framagjörn. Allt fór þar samt á annan veg, svo útkoman reyndist þolanleg. En þá var ég rétt um þrítugsaldur. Þreyttur en nokkuð magasár. ,Samt var ég ennþá ansi kaldur ekki að sama skapi klár. Langaði að verða leikari en líklegast varð ég veikari. Þjóðleikhússtjóra fór ég að finna. Fallega glotti Rósinkrans. Það var víst ýmsu öðru að sinna en afdalastrák í ríki hans. Hann sagði að ég þyrfti að læra list, sko leikarar gengju í skóla fyrst. Guðlaugur vildi að ég gengi í skóla en ég gat það eigi vegna aldurs samt. Byrjaði þá að gapa og góla og gefandi pillur, svona lítinn skammt. Áhrifin reyndust ótrúleg og eftirsóttur var lengi ég. Gekk ég um í gleðisölum gerandi skissur lon og don huldi mig jafnvel herðasjölum héldu mig sumir gleðikvon. Einn vildi fá mig ólmur heim. Endasleppt reyndist þetta geim.“ Hjálmar hóf störf um leið og hann hafði getu til eins og flest börn í sveitunum á þessum tíma. „Maður byrjaði fljótlega að fá að stokka upp línur og beita og vera landmaður þegar verið var að róa til fiskj- ar með línu. Í heyönnum var síðan allt unnið með gömlum verkfærum. Slegið með orfi og ljá og rakað með hrífum og svo var þetta þurrkað á túnunum og það var mikil vinna við það. Það þurfti að taka þetta saman og breiða aftur þar til það var orðið nógu þurrt. Svo var þetta bundið í bagga. Ef það var gott veður þá var þetta hálfþurrt, en ef það var rigning þá var þetta bara blautt og gríðarþungt. Svona gekk þetta,“ segir Hjálmar þegar hann rifjar upp árin á Hesteyri. Hann vaggar sér lítillega í stólnum og þykir ekki mikið til frásagnar sinnar koma á meðan blaða- manni þykja þessir lifnaðarhættir svo framandi og forvitnilegir að hann á í erf- iðleikum með að halda aftur af sér að dæla út úr sér spurningum. Ekki til peningar og því lifað í milliskrift Hjálmar segist hugsa með hlýju til þessa tíma og þó að þetta þætti eflaust hörð lífs- barátta í dag var það ekki upplifun hans. „Það virtist alltaf vera nóg til að borða. Það var náttúrlega fiskurinn. Mig minnir nú að farið hafi verið með flest lömb inn í kaupstað til að kaupa fyrir þau kornmat. Svo voru bara rollur og svona sem var að- allega borðað heima. Það var saltað niður eða reykt. Það var ekki mikið af lambinu sem var slátrað til heimabrúks. Það fór mest til kaupstaðar. Það þurfti að kaupa mjöl og sykur og kaffi og einhvern fatnað, druslur á krakkana og skíði og skauta. Maður þekkti ekkert annað. Það voru engir peningar. Það var bara milliskrift í verslunum einhvers staðar eins og í kaupfélögunum á Ísafirði. En það var nú svolítil verslun hjá okkur um tíma þar sem þarna var síldarstöðin Hekla frá 1927-1940 sem Thors-bræður áttu. Þeir voru þarna með bræðslu. Þarna fékk maður íhlaupavinnu. Í dag stendur aðeins eftir reykháfurinn sem er víst orðinn þekktur í einhverri skáldsögu eftir Yrsu Sigurðardóttur. Þarna var híft í land í málum og því var svo sturtað í land, þá var bara handvagn og við þurftum að keyra á honum á bryggjunum og upp í þró. Það var nú dálítið erfitt stundum þegar það var rigning og allt var í grút,“ segir Hjálmar. Fór í kvenfélagið Konu sinni, Margréti Sólveigu Guð- mundsdóttur, kynntist Hjálmar á æsku- slóðum sínum en þau giftu sig á Stað í Að- alvík árið 1944. Hjálmar brosir þegar hann rifjar upp brúðkaupsdaginn sem var um hásumar í júlí. Gestirnir komu þeys- andi á hestum, frúrnar í söðlum og allir í sínu fínasta pússi. Tveimur dögum eftir brúðkaupið fór hann ásamt Margréti til Ísafjarðar og þaðan til Þingeyrar en þau bjuggu saman á Þingeyri í fimm ár áður en þau fluttu suður til Reykjavíkur. Mar- grét féll frá eftir baráttu við krabbamein í júlí síðastliðnum. Hjálmar hefur alla tíð tekið virkan þátt í félagslífinu og eins er hann bjó á Þing- eyri. „Ég fór í kirkjukórinn og kven- félagið,“ segir Hjálmar og hlær. „Nei, ég segi svona, ég var voða mikið með kven- félaginu að skemmta svo að það má eig- inlega segja að ég hafi verið í kvenfélag- inu.“ Þegar hann er spurður út í hvort hann hafi ekki saknað þess að vera á Hesteyri og í Aðalvík segir hann þau hafa verið heppin að hafa verið farin áður en síðustu ábúendur fluttu burt. „Þetta var algjör hömung orðin. Það var ekkert við að vera. Þeir gerðu út litla báta og á stríðs- árunum var farið með allan fisk til Ísa- fjarðar óunninn og í skip sem sigldi til Bretlands til þess að brauðfæða Bretana. Og þá var ekki lengur neinn grundvöllur fyrir lífi í víkinni. Þá urðu þeir að fara með fiskinn beint til Ísafjarðar og það dugði þeim ekki sólarhringurinn, bæði að fara á sjóinn, skila af sér fiskinum og fara svo heim. Það gufaði allt upp. Unga fólkið fór allt suður, margir hverjir til Keflavík- ur í Bretavinnuna. Það komu Bretar fyrst en svo Kanar í Aðalvíkina. Svo fóru þeir. Kaninn fór á Straumnesfjallið. Það var nú einhver vinna við það þegar verið var að byggja þessa kofa sem voru þar og standa þar enn en þegar þeirri vinnu var lokið fór allt fólkið og það síðasta fór 1952.“ Fjóra vetur í skóla Margar sögur hafa farið af Hjálmari sem skemmtikrafti en hann byrjaði að hasla sér völl í þeim geira sem jólasveinn á jóla- trésskemmtunum á heimaslóðum. „Þær voru nú alltaf heldur fátæklegar þessar skemmtanir,“ segir Hjálmar. „En það var alltaf reynt að hafa eina jólatrés- skemmtun fyrir börnin. Ég hélt svo áfram að vera jólasveinn eftir að ég flutti suður og var í því hlutverki í mörg ár.“ Hjálmar tók síðan upp á að fara með gamanvísur á skemmtunum, bæði sem hann samdi sjálfur og eins flutti hann vís- ur eftir aðra. En hvenær skyldi áhugi hans á skáldskap hafa kviknað? „Það hef ég ekki hugmynd um. Ég man voða lítið eftir Skemmti- kraftur í tæpa öld Hjálmar Gíslason er elstu kynslóðinni að góðu kunnur. Hann ruddi veginn fyrir þekktustu skemmtikrafta landsins þar sem hann flutti gamanvísur um allt land. Texti: Signý Gunnarsdóttir signyg@mbl.is Mynd: Kjartan Þorbjörnsson golli@mbl.is Hjálmar Gíslason, örugglega elsti uppi- standari þessa lands, hefur í áraraðir samið vísur um eftirminnileg og gaman- söm atvik sem orðið hafa á vegi hans.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.