SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Blaðsíða 18

SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Blaðsíða 18
18 13. nóvember 2011 Fyrir sjö árum lést Ido Keinan úrofkælingu þegar hann var aðganga Laugaveginn, hinaþekktu gönguleið á Íslandi. Um mitt sumar skall á stórhríð á þessari fal- legu gönguleið sem liggur yfir virkar eld- fjallastöðvar. Þúsundir ferðamanna alls staðar að úr heiminum sýna minningu þessa ísraelska ævintýramanns virðingu við vörðuna sem honum var reist. „Passaðu þig og vertu í sambandi!“ sagði Tamar Keinan við son sinn á Ben Gurion-flugvellinum. „Mamma, það er ekkert að óttast. Ég er að fara til eins fal- legasta staðar á jörðinni. Ég verð kominn aftur eftir sex vikur, ég mun ná giftingu Nir og Inbar.“ Faðmlag, koss og síðan hverfur Ido inn í mannfjöldann. Frá London flýgur hann síðan til Íslands, grunlaus um örlögin sem bíða hans. Seint um nótt, tveimur dögum seinna bankar bróðir Ido, Eyal upp á hjá Keinan- hjónunum; „Mamma og pabbi, það er Ido. Hann er týndur … en þeir eru að leita að honum. Þeir lofuðu að finna hann.“ Ido var mikið fyrir löng og ævintýraleg ferðalög. Hann fór til Suður-Afríku, Skandinavíu, Víetnam, Bandaríkjanna og fór á skíði í Frakklandi og Sviss, aðeins til að nefna nokkra áfangastaði. Þessi ferða- lög voru möguleg því eftir herþjónustu í ísraelska hernum fékk hann vinnu hjá flugfélaginu El-Al. Sem starfsmaður var hann virtur vegna þekkingar sinnar og mikillar ábyrgðartilfinningar. Hann var aðeins 25 ára og var búinn að skrá sig til náms í grafískri hönnun í London sem átti að hefjast í september árið 2004. En áður en námið hæfist ákvað hann að fara í síðasta langa ferðalagið sitt til Íslands. „Ido talaði endalaust um ferðalagið og hvað hann hlakkaði til að skoða hið fal- lega landslag,“ segja foreldrar hans. Eyal og Nir reyna hvað þau geta að fá upplýsingar um bróður sinn í gegnum síma. Þau tala við íslenska konsúlinn í Ísrael og ísraelska konsúlinn á Íslandi. Þau tala við íslensku lögregluna og jafn- vel við yfirmann Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Fjölskyldan biður um að þyrla sé send, sama hvað það kosti. En það er ekki hægt vegna óveðursins, hins mikla snjóbyls og þoku. Sjötíu leit- armenn eru sendir út í bylinn til að leita að honum. Slysavarnafélagið veit sirka hvar Ido er því hann hefur sjálfur hringt í neyðarnúmerið og kallað eftir hjálp. Í panikki hefur hann líka hringt í systur sína, Ifat, í London: „Ég þarf hjálp. Ég lenti í stórhríð. Það er allt hvítt í kringum mig. Snjórinn er búinn að fela slóðina.“ Ifat reynir að fá lýsingar frá bróður sín- um til að geta sagt til um hvar hinn skelkaði bróðir hennar sé staddur á leið- inni, en símasambandið rofnar. Stuttu eftir miðnætti finna leitarmennirnir líf- lausan líkama hans aðeins nokkur hundruð metra frá skála við Hrafntinnu- sker. Fjölskyldan fær hið hryllilega símtal frá Íslandi. „Þeir fundu hann á fjallinu. Þeir þurfa að fá lýsingu á jakkanum hans, bakpokanum og fötunum.“ Tamar Kein- an hrópar: „Nei, strákurinn minn!“ Móðirin neitar að meðtaka þessar fréttir. „Þetta er svo grimmt. Ó, svo grimmt.“ Ifat flýgur til Íslands frá London til að bera kennsl á líkið. Eyal kemur frá Ísrael til þess. Systkinin þrjú fara síðan saman frá Íslandi til London en eitt þeirra í lík- kistu. Í London er líkkistunni komið til flugfélagsins El-Al. Vinnuveitandi hins látna starfsmanns flugfélagsins flýgur með hann heim þar sem hann mun hvíla. Ido er grafinn í kirkjugarðinum Moshav Avihayil 1. júlí 2004, fimm dögum eftir andlát sitt. Hefði verið hægt að koma í veg fyrir andlát hins ísraelska ferðamanns? „Já,“ segir einn þjóðgarðsvarðanna hjá Ferða- félagi Íslands. Hann segir að um morg- uninn þegar Ido var að fara úr skálanum í Landmannalaugum hafi hann verið var- aður við því að veðrið gæti breyst hratt. Hann hafi líka verið varaður við því að fara svona illa búinn, aðeins í gallabuxum og bol. „Verðirnir reyndu að fá hann til að fara ekki, en hann hlustaði ekki því veðrið var svo gott um morguninn.“ Bróðir Ido mótmælir þessu harðlega. „Samkvæmt tilkynningu frá íslensku lögreglunni minntust verðirnir í Land- mannalaugum þess ekki að hafa séð Ido.“ Hann segir líka að Ido hafi ekki verið í sumarklæðnaði, því lík hans hafi fundist í síðbuxum, grárri úlpu og með hanska. Lögreglan staðfestir þetta með fötin, en hafnar því að Ido hafi ekki verið varaður við ferðinni. Einn lögreglumaðurinn seg- ir: „Ég man að í leitinni minntist einhver lögreglumaðurinn þess að hafa heyrt einn þjóðgarðsvarðanna segja að hann hefði verið varaður við ferðinni.“ Ári eftir fráfallið, ferðaðist fjölskyldan til Íslands til þess að feta í fótspor Ido í orðsins fyllstu merkingu. „Missirinn dró okkur til landsins. Við komum til að reyna að skilja. Til að koma á staðinn þar sem hann dró sinn síðasta andardrátt. Erfitt ferðalag, ferðalag inn í sársaukann, niður á djúp sorgarinnar.“ Nir, Eyal og Ifat fóru ásamt nokkrum úr björg- unarsveitunum sem leituðu hans, gönguleiðina Laugaveginn að fjallaskál- anum við Hrafntinnusker sem var tak- mark gönguferðar hans en hvert hann aldrei komst. Af virðingu við minningu hans er íslenski fáninn þar í hálfa stöng. Á leiðinni kynnist fjölskyldan því hversu fljótt veðrið getur breyst. „Með ótrúlegum hraði kemur mikil þoka. Hit- inn hraðlækkar og þung rigning skellur á. Við upplifum að hluta það sem Ido upplifði.“ Það er sársaukafullt að vera á staðnum sem hann lést á og vita hversu stutt hann átti eftir í skálann. Samt er Skálarnir í Landmannalaugum en þaðan fór Ido Keinan á leið sinni til Höskuldsskála við Hrafn- tinnusker í júlí árið 2004, hvert hann aldrei komst. Í minningu Ido Keinan sem dó á Laugavegi Sá sorglegi atburður átti sér stað árið 2004 að ævintýraferð ísraelsk ungmennis til Íslands breyttist í harmleik. Hollenski blaðamaðurinn Peter Bliek minnist hans hér með orðum. Varðan með minningarskildinum um hinn unga Ísraelsmann.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.