SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Síða 23

SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Síða 23
13. nóvember 2011 23 Hinn launhelgi glæpur“ er titill þverfaglegs rits um kynferðisbrot gegn börn-um, sem komið er út í ritstjórn Svölu Ísfeld Ólafsdóttur, en Silja BjörkHuldudóttir skrifar úttekt á ritinu í Sunnudagsmoggann í dag.Ekki þarf að orðlengja hversu þarft verk er að taka saman sérfræðiþekk- ingu á ólíkum sviðum sem lúta að þessum málaflokki og víst gagnast það þeim sem hafa velferð og vellíðan barna að leiðarljósi, upplýsir og slær á fordóma. Um leið dregur það úr líkum á því, að hver vinni í sínu horni, án þess að hafa neina heildarsýn yfir málaflokkinn. Á meðal þeirra sem skrifa í ritið er Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, lektor í sálfræði við HR. Hún stóð fyrir rannsóknum í öllum framhaldsskólum landsins haustið 2004 sem náðu til rúmlega 9 þúsund nemenda á aldrinum 16-19 ára eða 67% allra skráðra nemenda á þessum aldri í framhaldsskólum landsins. Og niðurstöðurnar eru sláandi, ríflega fjórðungur eða 27,3% ungmenna í framhaldsskólum á Íslandi hafa upplifað kynferðislegt ofbeldi af ein- hverju tagi áður en þau ná 18 ára aldri og eru stúlkur rúmlega tvöfalt líklegri til þess en drengir. Og rannsóknin hefur hagnýtt gildi fyrir alla foreldra. Þar kemur fram að vissir þættir í umhverfi ungmenna verndi þau gegn slæmum áhrifum ofbeldis: „Þar má meðal annars nefna mikilvæga félagslega þætti sem eru m.a. stuðningur heima fyrir, stuðningur foreldra, það að ganga vel og líða vel í skólanum og stunda skipulagt íþróttastarf. Þau ungmenni sem hafa þessar styrku stoðir í sínu nærumhverfi koma mun betur út. Þau hafa sterkari sjálfs- mynd og eru sökum þessa betur í stakk búin til að vinna úr áfallinu sem kynferðislegt of- beldi er,“ segir Bryndís. Hún tekur fram að ákjósanlegt væri að rannsaka í framhaldinu áhrif ofbeldis á börn í víð- ara samhengi sem, auk kynferðislegs ofbeldis, þyrfti að taka til andlegs ofbeldis, líkamlegs ofbeldis sem og vanrækslu. Eftir hverju erum við að bíða? Það voru engir peningar Það er dásamlegt að lesa frásögn Hjálmars Gíslasonar, sem flutt hefur gamanvísur um allt land í áratugi. Bragirnir eru skemmtilegir, jafnvel þegar hann yrkir um erfiða tíma: Ég er fæddur á frostavetri fram í sveit í mögrum dal. Og það eru erfiðu tímarnir sem hann hugsar til með hlýju – þó að það þætti eflaust hörð lífsbarátta í dag var það ekki upplifun hans, eins og fram kemur í samtalinu við Signýju Gunnarsdóttur. „Það virtist alltaf vera nóg til að borða. Það var náttúrlega fiskurinn,“ segir hann og telur upp lömbin og rollurnar, mjöl og sykur og kaffi, „og einhvern fatnað, druslur á krakkana og skíði og skauta. Maður þekkti ekkert annað. Það voru engir peningar. Það var bara milliskrift í verslunum einhvers staðar eins og í kaupfélögunum á Ísafirði.“ Auðvitað eiga Íslendingar að halda í það viðhorf til lífsins, sem haldið hefur landinu í byggð um aldir, á mun erfiðari tímum en við upplifum nú. Framhjá því verður ekki horft, að lífsgæðin eru almennt meiri en eldri kynslóðir þekktu í sínum ungdómi. Það er gott að vera minntur á það af kjarnafólki eins og Hjálmari, sem þekkir tímana tvenna og þrenna. Mikilvægi stuðnings og íþrótta „Fara á undir fjöll en ekki yfir þau.“ Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, í umræðum um Vaðlaheiðargöng á Bylgjunni. „Ég er trúlega [ ] andlega skyldur labradorhundum sem elska að synda, sækja og éta.“ Þorsteinn Guðmundsson, leikari og grínisti. „Frímínútur eru mesti háskatíminn í skólagöngu barna.“ Margrét Pála Ólafsdóttir skólastjóri og höfundur Hjallastefnunar telur að hægt sé að draga úr einelti í skólum með því að breyta formi frímínútna. „Úps.“ Rick Perry, sem vill verða forseta- efni Repúblikana í Bandaríkjunum, í kappræðum í sjónvarpi, þegar hann gat ekki nefnt eina af alríkisstofnununum þremur sem hann ætlar sjálfur að leggja niður nái hann kjöri. „Ég þoli hann ekki. Hann er lygari.“ Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, um Net- anyahu, forsætisráðherra Ísraels. Ummælin féllu í einkasamtali við Barack Obama Bandaríkjaforseta. Sarkozy gerði sér ekki grein fyrir því að blaðamenn heyrðu í þeim. „Þú þreyttur á honum? Ég þarf að eiga við hann á degi hverjum.“ Obama Bandaríkjaforseti við sama tækifæri. „Ég gæti ekki flekað svona konu enda þótt sæðið úr mér læknaði krabbamein.“ Hinn einlægi en seinheppni karakter Alan Harper í bandarísku gamanþáttunum Two and a Half Men. „Ef það kæmi fram beiðni frá Evrópusambandinu um að fá hann lánaðan mundi ég ekki taka henni illa.“ Össur Skarphéðinsson utan- ríkisráðherra sagði Steingrím J. Sigfússon hafa staðið sig afburðavel við að stýra Íslandi í gegnum efnahagskreppu. Ummæli vikunnar Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Stofnað 1913 Útgefandi: Óskar Magnússon Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal ríkjafræðingar á að þetta sanni kenningu þeirra um að ESB kúgi ekki bara smáríki heldur líka stórríki, sem sýni þar með sterka stöðu smáríkja innan ESB. En nú var fjármálaráðherrum evru- svæðisins sem sagt falið að finna forsætisráðherra handa Ítölum. Það sýnir ótvíræða lýðræðisást sambandsins að hópi manna var falið þetta verk- efni og sérfræðingar benda á að oddamaðurinn í hópnum sé einmitt frá smáríki sem sýni sterka stöðu þeirra innan sambandsins. Fjármálaráð- herrarnir hafa komist að þeirri niðurstöðu að fyrrum samkeppniskommissar í Brussel, Monti, sé heppilegastur í forsætisráðherrastólinn í Róm. Hann sé að vísu Ítali, og þótt það sé galli megi nota það sem dæmi í spuna sambandsins um að iðulega sé tekið tillit til einstakra ríkja innan þess. En öllu skiptir þó að hann var, er og verður kommissar og að hann sé með Delors í opinber- um leynifélagsskap sem stefni að því að ESB verði eitt ríki eins fljótt og verða má. Íslenskir sérfræð- ingar um smáríki benda á að þegar sá draumur hafi ræst þá verði ESB ekkert smáríki og þetta óráðstal efasemdamanna um smáríki skipti þá engu máli lengur fremur en nú, þegar hin miklu áhrif smáríkja innan ESB séu óumdeild. Með Monti verði kominn annar komissar eða komm- issarsígildi í stól sem lýðræðislega kjörnir leið- togar hafa verið að þvælast í fram að þessu með alkunnum afleiðingum. Þeir benda líka á að tengdadóttir fyrrum kommissars í Brussel sé orð- in forsætisráðherra í Danmörku og hún sé að vísu Dani, en samt geri hún allt sem ætlast sé til af henni og láti hvorki þjóðernið, né það að hún hafi komist til valda í kosningum, rugla sig. Sú danska hafi meira að segja þegar sagt Jóhönnu að hún myndi sjá um að koma Íslendingum í ESB og hef- ur því væntanlega undirstrikað í leiðinni að þessi leiðindi sem urðu árin 1944, 1918 og 1904 og fæð- ingarbröltið í Dýrafirði væri í sínum huga fyrir- gefið, gleymt og grafið. Mikið hefur Jóhanna ver- ið fegin að fá loksins að heyra eitthvað sagt af viti. Hún hefur varla getað beðið eftir því að fá að segja Hrannari frá þessu. Það var jú hann sem fattaði fyrstur upp á Dýrafirði. Morgunblaðið/Ómar daga Kafað í Silfru á Þingvöllum

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.