SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Qupperneq 24

SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Qupperneq 24
24 13. nóvember 2011 Bókin Nútímaheimilið í mótun – fagurbætur,funksjónalismi og norræn áhrif á íslenska hönn-un 1900-1970 var að koma út hjá Háskólaútgáf-unni. Bókin er eftir Arndísi S. Árnadóttur og er jafnframt doktorsritgerð hennar við sagnfræði og heim- spekideild Háskóla Íslands. Arndís hefur jafnframt lagt stund á nám í listasögu og innanhússhönnun, er með BA- próf í bókasafns- og upplýsingafræði og MA-próf í hönn- unarsögu tuttugustu aldar. Eins og titillinn gefur til kynna fjallar bókin um hönnun á tuttugustu öldinni, fram að árinu 1970. Sjötti og sjöundi áratugurinn verður okkur að sér- stöku umtalsefni enda áhugaverðir áratugir í innan- húshönnun. Norræn hönnun frá þessum tíma nýtur mikilla vinsælda enn í dag. „Breytingar sem urðu á heimilisbrag á sjötta og sjöunda áratugnum snérust um að móta ný rými frekar en að skreyta heimilin,“ skrifar Arndís í bókinni. „Fyrir þá sem aðhylltust nútímalega híbýlahætti á eftirstríðsárunum varð módernisminn lífsstíll og viðhorf þeirra til alls sem snerti heimilið og daglegra lífshátta bar þess merki. Sögulegum eftirlíkingum, útskurði, háglansandi við og ofhlöðnu skreyti við húsgagnagerð var hafnað á afgerandi hátt, skrif- ar Arndís ennfremur. Mikil vinna liggur að baki gerð bókarinnar og eins og með svo margt var hvað mesta vinnan að velja úr en þetta er að mestu órannsakað svið hér á landi. „Ég vonast til þess að þetta sé einhvers konar grundvallarrannsókn,“ segir Arn- dís. „Ég nota myndefni til að styðja við mínar tilgátur og líka auglýsingaefni. Hvað sjötta og sjöunda áratuginn varðar var ég svo heppin að geta líka notað viðtöl,“ segir hún. Við heimildavinnu komst hún einnig yfir upprunalega bæklinga frá húsgangafyrirtækjunum. „Margt af þessu efni tengist annarri grein og það er grafísk hönnun,“ segir hún þannig að þessir bæklingar eru merkilegir fyrir margar sak- ir. „Þegar kemur fram á sjötta áratuginn hefur mikið breyst í heiminum. Það er verið að byggja upp eftir stríðið og komið mikið af nýjum efnum til að vinna úr húsgögn. Mód- ernisminn er allsráðandi og svo er mikil umræða um iðn- hönnun, sem í dag er kölluð vöruhönnun,“ segir Arndís og útskýrir að alveg fram að sjötta áratugnum hafi verið talað um listiðnað á Íslandi í staðinn fyrir hönnun. Húsgagnaverkstæðin blómstra „Á þessum tíma voru höft á Íslandi, bæði innflutningshöft og gjaldeyrishöft, og í skjóli þessa blómstra húsgagnaverk- stæðin. Þetta verður vinsælt fag fyrir ungt fólk og það verður til öflug stétt húsgangasmiða. Sumir fara utan og læra þá að teikna og hanna. Flestir fara til Norðurlandanna og reyna fyrir sér að teikna fyrir framleiðslu, koma sér fyrir á verkstæðum eða stofna sín eigin fyrirtæki,“ segir hún en margir störfuðu líka sjálfstætt. Hún tekur fyrir hvernig Íslendingum gekk að koma sér á framfæri erlendis. „Íslendingar gera sér grein fyrir því að norræn hönnun er að slá í gegn á al- þjóðavettvangi og við erum ekki með,“ segir hún en í þeim tilgangi var stofnað hérlendis listiðnaðarfélag, Ís- lenzk listiðn. „Frumkvöðull að stofnun félagsins var Lúðvíg Guðmundsson, þáverandi skólastjóri Myndlista- og handíðaskólans. Hann fékk til sín dágóðan hóp fólks sem hafði áhuga á listiðnaði og á því að koma honum á framfæri. Hann kom Íslendingum á nokkrar sýningar á sjötta áratugnum, sem skipti sköpum,“ segir Arndís en hérna heima voru líka haldnar sýningar. Hér á hægri síðu eru myndir frá Iðnsýningunni 1952, sem endurspegla breytingarnar í híbýlaháttum Íslendinga. Sýn- ingin var vel heppnuð og slíkar sýningar „voru ekki aðeins nauðsynlegar til að efna iðnaðarframleiðslu þjóða, heldur ekki síður afl til að styrkja þjóðarvitund og samkennd íbúanna“. Það gekk eftir í þetta skiptið ef marka má gestafjöldann en sýninguna heimsótti helmingur allra landsmanna, eða rúmlega 73 þúsund gestir þann mánuð sem hún stóð yfir. Arndís skrifar að Arndís S. Árnadóttir er margfróð um íslenska húsgagnahönnun og var að senda frá sér bókina Nú- tímaheimilið í mótun. Hún hefur sérstaklega rannsakað norræn áhrif á íslenska hönnun. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Arndís tekur sig vel út umkringd íslenskri húsgagnahönnun í Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ. Morgunblaðið/Ómar Gæruskinnsstóll frá því um 1960 framleiddur af húsgagnagerð Sindra en þennan stól þekkja margir. Listiðnaður verður hönnun Hönnun Morgunblaðið/Golli

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.