SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Blaðsíða 30

SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Blaðsíða 30
30 13. nóvember 2011 L andsfundur Sjálfstæðisflokksins kemur saman eftir tæpa viku. Þar verða m.a. lagðar fram til- lögur svonefndrar framtíðar- nefndar flokksins, sem starfað hefur undir forystu Kristjáns Þórs Júlíussonar alþing- ismanns en skipan þeirrar nefndar var þáttur í viðbrögðum forystumanna Sjálf- stæðisflokksins við skýrslu rannsókn- arnefndar Alþingis. Tillögur framtíð- arnefndarinnar má finna á heimasíðu flokksins. Í stuttu máli sýna tillögur framtíðar- nefndarinnar, að Sjálfstæðisflokkurinn er á réttri leið. Tillögurnar sjálfar og grein- argerð nefndarinnar með þeim sýna, að nefndarmenn gera sér ljóst, að þörf er á róttækum breytingum á starfi Sjálfstæð- isflokksins til þess að mæta kröfum nýrra tíma. Þetta á ekki sízt við um aukna vald- dreifingu innan flokksins, opnara starf og auðveldara aðgengi flokksmanna að því. Tvennt vekur sérstaka athygli. Í fyrsta lagi tillaga um að landsfundi Sjálfstæðis- flokksins geti allir skráðir flokksmenn sótt en ekki einungis þeir, sem til þess eru kjörnir. Slík opnun landsfunda er fagn- aðarefni. Það eru engin rök fyrir því leng- ur að velja lítinn hóp flokksmanna til þess að hafa hið endanlega vald í málefnum flokksins á tveggja ára fresti. Í öðru lagi er lagt til að forystusveit flokksins geti efnt til atkvæðagreiðslu meðal flokksmanna um afstöðu flokksins til einstakra mála, sem ýmist verði bind- andi eða ráðgefandi. Þetta hefur út af fyrir sig ekki verið bannað, þótt þessum vinnu- brögðum hafi hins vegar ekki verið beitt. Og jafnframt að miðstjórn sé skylt að láta slíka atkvæðagreiðslu fara fram ef 1000 flokksmenn skrifi undir áskorun þess efn- is. Þetta er afar mikilvæg tillaga. Auðvitað er það svo, að innan Sjálfstæðisflokksins eru skiptar skoðanir um mörg málefni. Þar má nefna afstöðuna til Evrópusam- bandsins, viðhorf til fiskveiðistjórnunar, náttúruverndarsjónarmið og ýmsilegt fleira. Atkvæðagreiðsla um það hver af- staða Sjálfstæðisflokksins skuli vera í ein- stökum slíkum málum getur gjörbreytt meðferð þeirra. Þannig er líklegt að veg- ferð Sjálfstæðisflokksins í Icesave-málinu hefði orðið önnur ef forysta flokksins hefði leitað ráðgjafar hjá 50 þúsund flokksmönnum um þá afstöðu sem flokk- urinn ætti að taka í því máli. Jafnframt þýðir tillagan um að skylt sé að verða við áskorun 1000 flokksmanna um slíka atkvæðagreiðslu að hún hefði mjög sennilega farið fram sl. vetur eftir að forystumenn Sjálfstæðisflokksins höfðu tekið ákvörðun um að styðja Icesave- samninginn. Líklegra er þó að við þær að- stæður hefði sú ákvörðun ekki verið tekin heldur leitað beint til flokksmanna um álit. Af þessu má ljóst vera, að þær tillögur, sem nú liggja fyrir frá framtíðarnefndinni munu hafa í för með sér, verði þær sam- þykktar á landsfundi, grundvallarbreyt- ingu á starfsháttum Sjálfstæðisflokksins og stuðla að stórauknu lýðræði innan hans. En þar með er ekki sagt að nógu langt sé gengið í þessari tillögugerð. Þar er að vísu að finna tillögur um aukna valddreifingu innan flokksins, sem er af hinu góða. Hins vegar hefði verið æskilegt að framtíðar- nefndin hefði stigið skrefi lengra og lagt til að formaður flokksins og tveir varafor- menn, sem nú er lagt til að verði kjörnir, yrðu kosnir í almennri kosningu, sem allir 50 þúsund flokksmenn gætu tekið þátt í. Úr þessu er hægt að bæta á landsfund- inum sjálfum með breytingartillögum við tillögur framtíðarnefndarinnar og æski- legt að á það verði látið reyna á landsfund- inum hvort stuðningur er við slíka breyt- ingu. Núverandi fyrirkomulag á kjöri for- manns og varaformanns Sjálfstæðisflokks er orðið hálfrar aldar gamalt. Það var tekið upp á landsfundi 1961, þegar Bjarni heit- inn Benediktsson var kjörinn formaður flokksins í fyrsta sinn. Síðan hefur þjóðfé- lagið tekið miklum breytingum. Það væri í samræmi við kröfur tíðarandans um aukið lýðræði og tillögur framtíðarnefndarinnar sjálfrar um opinn landsfund, að Sjálfstæð- isflokkurinn tæki ákvörðun um þessa grundvallarbreytingu á skipulagi sínu. En hvað sem því líður er stefnt í rétta átt í hinu innra starfi flokksins. Hins vegar er æskilegt að þau viðhorf, sem fram koma í tillögum framtíðarnefndarinnar um opn- ara starf innan flokksins og aukin áhrif al- mennra flokksmanna endurspeglist einnig í samþykktum flokksins um málefni lands og þjóðar. Þar er spurning um beint lýðræði í meg- inmálum stóra málið. Taki landsfundur Sjálfstæðisflokksins nú ákvörðun um að taka hugmyndina um beint lýðræði upp á sína arma og hefja baráttu fyrir því að þjóðin sjálf taki allar meginákvarðanir í eigin málum í þjóðaratkvæðagreiðslum mundi hann taka af öll tvímæli um að flokkurinn hefði tekið forystu í uppbygg- ingu hins nýja Íslands, sem þjóðin þráir en hefur reynzt býsna erfitt að ná til. Þetta er ekki erfið ákvörðun fyrir lands- fund Sjálfstæðisflokksins að taka. Þvert á móti. Þetta er sá flokkur, sem frá stofnun sinni hefur barizt fyrir lýðræði og verið í fremstu víglínu í baráttunni hér innan- lands við þau þjóðfélagsöfl, sem gengið höfðu erlendu valdi á hönd og vildu af- nema lýðræðið. Um það snerist barátta sósíalista á 20. öldinni og í þeirri baráttu stóð Sjálfstæðisflokkurinn eins og óhagg- anlegur klettur allan tímann þegar önnur þjóðfélagsöfl sveigðu af leið með ýmsum hætti. Þarf Sjálfstæðisflokkurinn frekari hvatningar við? Er ekki augljóst að framtíð flokksins byggist að verulegu leyti á því að hann hefji á loft fána hins beina lýðræðis? Er ekki sjálfsagt að stíga skrefið til fulls? Er eftir nokkru að bíða? Með ákvörðun um stuðning við beint lýðræði mundi Sjálfstæðisflokkurinn skapa sér gífurlega sterka sóknarstöðu fyrir næstu alþingiskosningar. Sjálfstæðisflokkur á réttri leið – en á að ganga lengra Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Á þessum degi, þann 13. nóvember árið 1982,fór fram boxkeppni í Las Vegas sem átti eftirað hafa alvarlegar afleiðingar fyrir bæði box-arana sem kepptu og íþróttina sjálfa. Ray Mancini var heimsmeistari í léttvigt og búið var að finna keppanda til að skora hann á hólm. Suður-kóreski box- arinn Duk Koo Kim öðlaðist þann heiður að berjast við Mancini. Þessi íþróttaleikur átti eftir að leiða til andláts þriggja manna og breyta keppninni til frambúðar. Duk Koo Kim var með hreina sigurför að baki en hann hafði unnið 12 sigra í hringnum og ekki tapað einum einasta slag þegar hann mætti Mancini. En að margra mati var hann samt ekki sá hæfasti og hefði hugsanlega aldrei átt að leyfa honum að berjast við heimsmeistarann. Hann var nokkrum kílóum of þungur og þurfti að létta sig með harkalegum hætti rétt fyrir keppnina til að standast allar reglur. Ray „Boom Boom“ Mancini var ítalskur Bandaríkja- maður sem fékk bæði ættarnafnið og viðurnefnið frá föður sínum sem var líka boxari, Lenny Mancini sem var kallaður Lenny „Boom Boom“ Mancini. Lenny hafði verið einn efnilegasti boxari heimsins þegar hann var ungur maður og þótti líklegur til að keppa um heims- meistaratitilinn þegar seinni heimsstyrjöldin skall á. Lenny særðist það illa í stríðinu að hann gat aldrei keppt í boxi af fullum krafti. Þess í stað lagði hann mikla áherslu á boxuppeldi sonar síns Ray og varð hann að stórhættulegum boxara. Það var í maí árið 1982 sem hann fékk að skora heimsmeistarann Arturo Frias á hólm. Frias hafði byrjað fyrstu loturnar betur, náð góð- um vinstri handar höggum á Mancini. Í þriðju lotu rifn- aði önnur augabrúnin á Mancini þannig að það blæddi úr. En dómarinn leyfði leiknum að halda áfram. Á Mancini rann eitthvað æði og áður en menn vissu af var hann kominn með yfirhöndina og lét höggin dynja á Frias. Hann barði Frias nokkrum sinnum í gólfið en það var ekki fyrr en lota kom þar sem Frias svaraði ekki með svo miklu sem einu höggi að dómarinn stoppaði leikinn og Mancini var dæmdur sigur og fékk heimsmeistaratit- ilinn. Fyrsta vörn Mancinis var gegn fyrrverandi heims- meistara að nafni Ernesto Espana og rotaði Mancini hann í sjöttu lotu. Næsta vörn hans var á þessum degi árið 1982 gegn Duk Koo Kim. Kim byrjaði betur og virtist sneggri til að byrja með. Höggin frá Kim rifu eyra Mancini og augað varð bólgið og blátt. Vinstri hönd Mancini átti eftir að bólgna svo mikið eftir keppnina að hún náði tvöfaldri venju- legri stærð. En þegar á leið keppnina náði Mancini al- gjörum yfirburðum og hvert höggið á fætur öðru skall á höfði Kim. Í 14. lotunni náði Mancini síðan svo öflugu hægri handar höggi á kjaftinn á Kim að hann hentist út í kaðlana og þaðan í gólfið. Dómarinn dæmdi Mancini sigur og þótt Kim gæti skriðið sjálfur á lappir þá varð hann fljótt rænulaus og lést á spítala fimm dögum seinna. Móðir hans kom til Las Vegas til að vera með honum áður en vélunum var kippt úr sambandi. Hún fór síðan með líkið til Suður-Kóreu þar sem hann var jarðaður. Mancini mætti í jarðarförina, ennþá í sjokki. En þremur mánuðum síðar framdi móðir Kims sjálfsmorð með því að taka inn skordýraeitur. Mikil fjölmiðlaumfjöllun var um þennan harmleik í hringnum í Las Vegas og þar kom meðal annars fram að Kim var ekki vanur svona mörgum lotum og hafði aldrei keppt lengur en 12 lotur. Dómarinn var gagnrýndur fyr- ir að hafa ekki stöðvað bardagann fyrr. Richard Green, dómari leiksins, átti síðan eftir að fremja sjálfsmorð níu mánuðum seinna. Mikið þunglyndi hrjáði Mancini eftir þetta og segja flestir boxíþróttamenn að hann hafi aldrei eftir þetta verið neitt „Boom Boom“. Í framhaldinu var lotum í boxinu fækkað úr fimmtán í tólf og mun strangari heilsuskoðun var tekin upp. borkur@mbl.is Blóðbað í boxinu Ray Mancini fyrrverandi heimsmeistari í boxi en hann hélt titlinum frá árinu 1982 til 1984. Hér eru Ray Mancini og Duk Koo Kim að slást í bardaganum örlagaríka í Las Vegas árið 1982. Á þessum degi 13. nóvember 1982 ’ Suður-kóreski boxarinn Duk Koo Kim öðlaðist þann heiður að berjast við Mancini. Þessi íþróttaleikur átti eftir að leiða til andláts þriggja manna og breyta keppninni til frambúðar.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.