SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Síða 37
13. nóvember 2011 37
Það er gaman að sjá hversu mikið úrval er á boðstólum af allskyns íslensk-um vörum nú í vetur. Ég var að hugsa til baka og minnist þess þegar égkom að verkefni fyrir nokkrum árum í Listaháskóla Íslands sem kallaðist„Stefnumót hönnuða og bænda“, þá var ekki hægt að fá sultur á höf-
uðborgarsvæðinu úr villtum berjum og jafnvel ekki úr íslenskum rabarbara. Nú er
hægt að finna sultur, sýróp, saft, mjólkurvörur, hunang og
fleira frá öllum landshlutum í fjölda verslana á höfuðborg-
arsvæðinu. Þetta hlýtur að segja okkur að íslenskir neytendur
vilja vörur úr náttúrunni og tengdar framleiðendum, eins og ég
vil kalla það: „vörur með andlit“. Það fylgir ábyrgð að nota yf-
irlýsingar eins og „Beint frá bónda“ eða „Svæðisbundið“. Mér
finnst sumir veitingamenn og framleiðendur fara frjálslega með
þessar fullyrðingar, ég sá einu sinni auglýsingu í blaði í milli-
landaflugvél frá íslenskum veitingastað „Fresh from a farmers-
market“. Annars staðar í blaðinu var umfjöllun um sama stað-
inn þar sem þeir sögðu sína þekktustu rétti vera túnfisk,
tígrisrækjur og kóngakrabba. Það fær mann til að hugsa hvort
mönnum sé alvara með þessum fullyrðingum. Fyrir fólk eins og
okkur sem tilbúið er að taka á sig krók fyrir gott íslenskt hrá-
efni, tala nú ekki um þá sem leggja áherslu á lífrænt ræktaðar
afurðir, er Lifandi markaður frábær staður að heimsækja. En Lifandi markaður var
áður Maður lifandi en er nú orðinn meiri verslun en þó enn með veitingasölu eins
og áður sem sérhæfir sig í hollustudrykkjum og mat. Nú leggja þeir enn meiri
áherslu á ferskt og unnið lífrænt hráefni. Þar er frábært úrval af íslenskum vörum til
dæmis hreinum kjúklingi, lífrænu íslensku grænmeti og kjötvöru, allskyns íslensk-
um sultum, hunangi og sýrópi. Ég fann Fíflasýróp og Grenisýróp frá Löngumýri á
Skeiðum, sem ég hugsa mér að bera fram með íslenskum ostum úr Dölunum, tví-
bökuðu brauði úr lífrænt ræktuðu spelti sem bakað er á Selfossi og aðalbláberjasultu
að austan. Þar er líka hægt að fá spelt-tortillur, lífrænt snakk, allskonar fræ, is-
lenskt te í úrvali og að sjálfsögðu öll þau vítamín sem við þurfum í skammdeginu.
Í síðustu heimsókn datt ég í lukkupottinn og fann stafapasta sem ég hef leitað að
síðan kreppan skall yfir okkur og ekki nóg með það, ég fann tvær gerðir, bæði líf-
rænt og spelt, það vill nefnilega þannig til að ég lofaði tveim ungum vinum mínum,
þeim Óliver og Viktori, stafasúpu fyrir margt löngu, en þeir eru mér mjög hjart-
fólgnir enda fyrstu börnin sem kölluðu mig afa sem mér finnst
mjög fallegt, en börnunum mínum finnst mjög fyndið þar sem þeir
eru synir æskuvinar míns sem er jafnaldri minn og ég að sjálfsögðu
ekki orðinn afi, þó svo að börnin mín séu orðin ungt fólk.
Vörur með andlit
Matarþankar
Friðrik V
’
Fyrir fólk eins og
okkur sem tilbú-
ið er að taka á
sig krók fyrir gott ís-
lenskt hráefni, tala nú
ekki um þá sem leggja
áherslu á lífrænt rækt-
aðar afurðir, er Lif-
andi markaður frábær
staður að heimsækja.
var að ég fór að gera sósur með fiski og líka passa eld-
unartímann,“ segir hann en fiskur var gjarnan ofeldaður.
„Svo þótti það líka allt að því tímaeyðsla að borða. Ég
var níu ára þegar ég fór í sveit norður á Skaga. Þá sagði
bóndinn við okkur: „Sá sem er lengi að borða er lengi að
vinna.“ Þú sérð hvernig mórallinn var. Núna vitum við
betur.“
Um afmælishelgarnar verða í boði margir þekktustu
réttirnir úr sögu staðarins. Til að gefa hugmynd um hvað
átt er við má nefna af forréttum bakaða snigla með hvít-
laukssmjöri, salat með reyktum laxi og ristaðan smokk-
fisk með karrí, tómat og hvítlauk og humarragú með
koníaksrjóma. Af þekktum aðalréttum má nefna eld-
steikta tindabikkju með vínberjum, kapers og lauk, grill-
aða hámerarsteik með piparsósu, smjörsteiktan kola með
gráðosti og bönunum og kryddlegnar gellur eftir kenjum
kokksins. Kannski verða ekki allir þessi réttir í boði sama
kvöldið en eitt er víst að hina margfrægu súkkulaðiköku
staðarins verður hægt að fá í eftirrétt.
Heitreykt villigæsabringa á eplasalati sem var með söxuðum eplum, bök-
uðum rauðrófum, rauðlauk og ristuðum graskersfræjum.
Grilluð hámerarsteik með byggottó.
Náttúruvörur úr íslenskri ætihvönn
Mikið mál? Minna mál
með SagaPro
www.sagamedica.is
Tíð næturþvaglát eru
heilmikið mál fyrir marga
karlmenn. SagaPro er
náttúruvara úr íslenskri
ætihvönn ætluð þeim sem
eiga við þetta vandamál að
etja. Með SagaPro fækkar
næturferðum á salernið og
þar með færðu betri hvíld.
SagaPro fæst í heilsuvöruverslunum, apótekum,
stórmörkuðum og Fríhöfninni.