SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Blaðsíða 43

SunnudagsMogginn - 13.11.2011, Blaðsíða 43
13. nóvember 2011 43 listamenn, þau hafa einhvers konar skáldlega skynjun. Ég er mikið að fjalla um skynjunina og hvernig hún mótast. Skynjun á ekki minni hlutum en höf- uðskepnunum eins og þær birtast barninu og síðan tungumálinu. Mig minnir það það hafi verið hið magnaða portúgalska skáld, Fernando Pessoa, sem sagði eitthvað á þessa leið: Í lífinu er skynjunin eini raunveruleikinn, í listum er vitund um skynjun eini raun- veruleikinn. Það er mikill munur á þessu. Með þessu ferðalagi aftur í bernskuna má segja að höfundurinn sé að reyna að átta sig á þessari vitund um skynjun. Fyrst fer barnið að nota skynfærin en síðan öðlast það vitund um skynjun. Þá fyrst verður til einhver einstaklingsvit- und. Það er vitundin um náttúruna í sinni víðustu merkingu, um vatnið, eld- inn, loftið, jörðina, og síðan tungumálið. Ekki bara tungumálið heldur þann vefn- að sem býr okkur til, allan texta verald- arinnar.“ Sigurður heldur áfram að ræða um veraldartextann og minnist á nálægð Biblíunnar en hún hafi augljóslega verið fyrirferðarmikil í uppvextinum þar eð faðir hans hafði atvinnu af því að koma textum hennar til skila. „Í okkar menningarheimi er Biblían alls staðar, við vitum ekki alltaf af því. Síðan eru fornbókmenntir okkar und- irliggjandi í landslaginu, raunverulegu og huglægu. Þessir textar og tilfinning fyrir tungumálinu eru afar mikilvæg í per- sónumótuninni.“ Svo fer hann að tala um „skrásetning- arbrjálæðið“. Í Bernskubók kemur fram að Sigurður var rétt farin að skrifa þegar hann var farinn að skrá niður allt mögu- legt og ómögulegt í umhverfinu: veð- urfar, nöfn á öllum kindum á Skinnastað, dagbækur og þeir Arnór Lárus, bróðir hans, skrifuðu greinargerðir um heila uppdiktaða sveit sem var álíka fjölmenn og Axarfjörður. Sigurður fór meira að segja að skrifa líkræður um lifandi sveit- unga, en eyddi þeim áður en nokkur komst að því. „Já, þetta skrásetningarbrjálæði byrj- aði snemma,“ segir hann kíminn. „Ég held það sé ekki bara skaftfellskt, sam- anber Þórbergur Þórðarson frændi minn, heldur séríslenskt. Ég hef á tilfinning- unni að hér á landi sé skrásetningarþrá almennari en annarsstaðar. Enda hefur lestur verið meiri almenningseign lengur hér en í öðrum löndum. Hér voru menn stautfærir og párandi einhverjar stað- reyndir, skrásetningar á eigin lífi.“ Gullsmiður, listmálari, rithöfundur Sigurður fjallar um sjóndeildarhringinn eins og hann blasir við frá Skinnastað, „þennan sjóndeildarhring sem mótaði mig, þennan hring sem býr innra með mér til eilífðar,“ sjóndeild innri augna sinna til æviloka. „Það er langt síðan ég gerði mér grein fyrir því hvað þessi sjóndeildarhringur á Skinnastað hefur mótað mig rosalega sterkt. Þarna eru miklar andstæður. Annarsvegar bullandi gróðursæld, og paradísartenging, og síðan beinlínis vitn- isburður um eyðingarafl Jökulsár á Fjöll- um, sem eru Sandarnir. Þessi díalektík hefur mótað mig. Það er ekki bara að ég kunni þennan sjóndeildarhring utan að, heldur hefur hann skotið afar djúpum rótum í alla sjálfsverund mína.“ - Drengurinn var rétt kominn til vits þegar hann ákvað hvað hann vildi verða og það var alltaf þrennt: gullsmiður, list- málari og rithöfundur. „Já, svo langt sem ég man var það ætl- unarverkið. Fimm ára man ég fyrst eftir þessu. Hvernig það mótaðist er mér hul- ið. Þetta þrennt varð mantra, byrjaði alltaf á gullsmið! Þetta var alltaf svarið þegar ég var spurður hvað ég ætlaði að verða. Það var ekki fyrr en séra Sig- urbjörn Einarsson læddi nýrri spurningu inn, hvort ég ætlaði að verða prestur eins og pabbi, sem ég fór að efast. Eða sá eftir því að hafa ekki gripið öngulinn sem hann rétti mér.“ Í fjölskyldu Sigurðar voru málarar nærtækar fyrirmyndir, en gullsmiður eða rithöfundur? „Ef barn þarf að hafa einhverjar fyr- irmyndir til að láta sér detta svona í hug, þá var listmálarinn tiltölulega augljós fyrirmynd. Jón Þorleifsson bróðir pabba var listmálari og í móðurætt var Þórarinn B. Þorláksson bróðir afa. Þar fyrir utan var Sveinn Þórarinsson úr næstu sveit og úr hinni sveitinni Kristján Friðriksson og málverk eftir báða voru heima. Rithöfundur? Ég vissi af Þórbergi frænda mínum, en ég vissi reyndar ekki af Helga Hálfdanarsyni í móðurætt, þó hann væri á Húsavík. Það var ekki fyrr en hann stoppaði mig á götu og ávarpaði mig: Sæll frændi! Ég er ekkert tiltak- anlega vel að mér í ættfræði. Gullsmiður? Hef ekki hugmynd. Kannski var það það vegna þess að ég heillaðist sem barn af víravirki, af gulli sem var búið að vinna svona rosalega eins og í skautbúningi mömmu. Á táningsárunum reyndi að hugsa sem minnst um þetta. Í menntaskóla byrjaði ég að yrkja ljóð en það hafði ég hafði aldrei gert áður, ég skrifaði aldrei ljóð í bersku minni. Einungis prósa, heilu bálkana, og svolítið af leikritum. Síðar var það meðvituð ákvörðun að læra leik- húsfræði því ég vildi skrifa fyrir leikhús. Þá var þessi sirkus farinn af stað.“ Náttúran getur allt Bókinni lýkur þegar Sigurður heldur til Reykjavíkur og sest þar á skólabekk, 14 ára gamall. Þar urðu afgerandi skil - hann steig inn í annan heim. „Og mig langaði ekki aftur norður,“ segir hann. „Ég fór einn suður í Haga- skóla, bjó reyndar í sama húsi og bróðir minn og var með herbergi hjá tengd- arforeldrum hans þannig að ég ver ekki aleinn í veröldinni, en foreldrar mínir voru ennþá fyrir norðan þar til ég var á síðasta ári í Menntaskólanum. Þá strax og ég kom hingað til Reykjavíkur var ég í raun farinn þaðan, þó ég væri heima á sumrin. Síðan hef ég aldrei búið í sveit.“ En sveitin er með honum. „Nákvæmlega. Mér nægir að labba út í garð í Hlíðunum til að tengja mig við náttúruna – einhvern veginn þekki ég hana svo vel, finn svo sterk hughrif, kannski bara frá einu tré, það getur nægt til þess að ég verði hrærður.“ Sigurður segir að sem skáld hafi nátt- úran sem hann kynntist sem barn fylgt honum, borgarskáldinu, „hún hverfur ekki,“ segir hann. „Þessi tengsl við náttúruna hafa alltaf verið til staðar, virðingin fyrir nátt- úrunni, enda veit ég hvað hún getur auð- veldlega drepið mann.“ Þar vísar hann í frásögn af því þegar hann sem drengur var nánast orðinn úti. „Það er mjög sterk skynjun að næstum verða úti í norðaustan báli, á ekkert óhóflega langri leið neðan úr fjárhúsum og heim. Veðrið brestur á með ólýsanlegu afli, hótar að drepa þig. Náttúran getur allt.“ ’ Það er mjög sterk skynjun að næstum verða úti í norð- austan báli, á ekkert óhóf- lega langri leið neðan úr fjárhúsum og heim. „Þessi tengsl við náttúruna hafa alltaf verið til staðar, virðingin fyrir náttúrunni, enda veit ég hvað hún getur auðveldlega drepið mann,“ segir Sigurður. Morgunblaðið/Einar Falur

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.