SunnudagsMogginn - 27.11.2011, Page 23

SunnudagsMogginn - 27.11.2011, Page 23
27. nóvember 2011 23 Það var frískandi að fylgjast með kynnum höfunda og nemenda 10. bekkjargrunnskólans í Ólafsvík en um ferðalag höfundanna til Snæfellsness má lesa ímyndríkri frásögn í Sunnudagsmogganum í dag. Og óhjákvæmilega vaknar sú spurning af hverju slík hvatning og umgengni við höfunda er ekki fastur liður í kennslunni – ekki síst þegar horft er til þess hversu slökum ár- angri íslenskir skólakrakkar hafa náð í lestrarkönnunum. Bóklestur eflir árangur í öllum námsgreinum, eykur orðaforða og opnar glugga inn í framandi heima. Eins og nærri má geta voru unglingarnir svolítið hlédrægir er þeir sátu til borðs með Stef- áni Mána, Tobbu Marinós, Vigdísi Grímsdóttur og Þorgrími Þráinssyni, en þeir voru ekkert að snobba fyrir þeim heldur og veittu hreinskilin svör. Þegar talið barst að bóklestri heyrði frekar til undantekninga að mikið væri um bóklestur hjá krökkunum, þó að nokkrir væru stórtækir í þeim efnum. En þeir sögðust lesa ýmislegt annað í staðinn, þar með talið blöðin og netið. Þegar spurt var hvort þeir stunduðu ljóðagerð eða skrifuðu sögur virðist það ekki hluti af náminu sem slíku en kom fyrir að nemendurnir spreyttu sig á því heima fyrir. Þá hlýtur viðtalið við Hörpu Dís Hákonardóttir í blaðinu í dag að vera mikill innblástur, en hún er að senda frá sér sína aðra skáldsögu, þrátt fyrir að vera aðeins átján ára. Harpa Dís hefur skrifað í sex ár meðfram námi, píanóleik og ballettdansi. Það er ýmislegt hægt er ástríðan og viljinn er fyrir hendi! Í viðtalinu kemur fram að hún hefur áhyggjur af því að bóklestur barna og unglinga hafi dregist saman á seinni árum: „Það er hópur barna og unglinga, þeirra á meðal ég, sem þarf alltaf að vera með bók á náttborðinu en síðan er annar hópur sem les sjaldan eða aldrei bók. Á móti kemur að krakk- ar eru sílesandi, á netinu, texta í sjónvarpi og svo framvegis.“ Hún kennir hraðanum í nútímanum um, skemmri tíma taki að sjá myndina en lesa bók- ina, en kemur svo með þarfa ábendingu: „Að mínu áliti liggur ábyrgðin hjá foreldrunum. Þeir eiga að halda bókum að börnunum sínum, ekki síst með því að sýna gott fordæmi og lesa sjálfir. Skólarnir standa sig mjög vel, með lestrarátökum og góðum bókasöfnum.“ Loksins umbætur í Búrma Búrma hefur í tæp 50 ár verið undir járnhæl herforingjastjórnar. Mótmæli hafa verið brotin á bak aftur harðri hendi þar í landi. Búrma var eitt auðugasta land Asíu í upphafi 20. aldar, en er nú eitt fátækasta land álfunnar. Nú blasir hins vegar við betri tíð. Then Shwei herforingi hefur dregið sig í hlé eftir 20 ára valdasetu og ný stjórn boðar umbætur. Verulega hefur verið dregið úr ritskoðun. Aung San Suu Kyi, sem samanlagt hefur setið í stofufangelsi í 15 ár, hef- ur verið látin laus. Hún telur að stjórnvöldum sé alvara með loforðum sínum og ætlar að hella sér út í stjórnmálabaráttuna. Thant Myint-U sagnfræðingur er höfundur nýútkominnar bókar um Búrma og lýsir stöð- unni í Búrma í viðtali í Sunnudagsmogganum í dag. Hann segir að mikið og erfitt starf sé fyr- ir höndum því að gera þurfi umbætur á öllum sviðum þjóðlífsins í Búrma. En hann er von- góður. Vonandi rætast vonir hans. Búrmíska þjóðin á skilið að birti til eftir hálfrar aldar ok. Ábyrgðin hjá foreldrum „Það eina sem ég hugsaði um, og hugsa enn um, er að ég verð að kom- ast til Íslands.“ Gagnrýnandi tímaritsins New York Magazine um Bliss, gjörning Ragnars Kjartanssonar í Abrons Art Center í borginni. „Við verðum að hlúa vel að honum, hann hefur verið óheppinn með meiðsli gegnum tíðina, en það væri frábært að hafa annan eins.“ Neil Warnock, knattspyrnustjóri QPR, en þeg- ar opnað verður fyrir kaup á leikmönnum í janúar mun hann fyrst svipast um eftir tví- burabróður Heiðars Helgusonar. „Fríða vill alltaf vera að kyssa mig á fjöllum.“ Þórður Ingi Marelsson en fjallgöngur eru lífsstíll hjá honum og spúsu hans, Fríði Halldórsdóttur. „Helsti veikleiki hans hefur verið sá að hann hefur þótt leiðinlegur og fyr- irsjáanlegur en það er orðið að helsta styrk hans.“ Anton Losada, prófessor í stjórnmálafræði við Há- skóla Santiago de Compostela, um Mariano Rajoy, næsta forsætisráðherra Spánar. „Á þessum tímapunkti var löng- unin eftir barni ennþá meiri og þess vegna var þessi ákvörðun tekin.“ Ólína G. Viðarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, sem leggur skóna á hilluna í bili til að eignast sitt fyrsta barn. „Það vilja allir vera í fanginu á móður sinni.“ Skúli Mogensen, aðaleigandi WOW Air, en sé vörumerkinu snúið við fæst MOM, eða móðir. „Ég er gangandi auglýsing fyrir landið heima hjá mér.“ Bruce Dickinson, flugmaður og söngvari Iron Maiden, er mikill aðdáandi Ís- lands. Hann íhugar nú að bjarga Astraeus sem flaug fyrir Ice- land Express. „Strákurinn setur mig í núið.“ Herbert Guðmundsson um samstarfið við son sinn, Svan, í tónlistinni. Ummæli vikunnar Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Stofnað 1913 Útgefandi: Óskar Magnússon Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal esson hvatti hann hins vegar til þess að lesa bók- ina, hann gæti áreiðanlega fengið hana lánaða á almenningsbókasafni, ef hann kærði sig ekki um kaupa hana. Þegar leið að fundarlokum kvaddi sér hljóðs Guðmundur Jónsson sagnfræðiprófessor. Hann gekk að pallborði, þreif þar hljóðnema af frum- mælendum, tók sér stöðu á miðju gólfi og hóf ræðuhöld gegn mér þar sem ég sat á fremsta áheyrendabekk. Hann kvað mig umfram allt pólitískan erindreka en ekki fræðimann. Mér hefði orðið stórlega á í fyrri verkum mínum, eins og alþjóð vissi, og nú væri ég að reyna að fá upp- reist æru með hinni nýju bók minni, sem væri umfram allt pólitískt verk, þótt hann hefði ekki lesið hana. Það væri ekki hlutverk Sagnfræðinga- félagsins að veita mér slíka uppreist æru svo að félagið hefði ekki átt að bjóða mér að halda fram- sögu fyrir skömmu á fundi sínum um misnotkun sögunnar því að það væru einmitt menn eins og ég sem misnotuðu söguna. Guðmundi var mikið niðri fyrir, á meðan hann flutti reiðilestur sinn. Skalf hann allur og titraði og andlitið gekk í bylgjum, jafnframt því sem hann fölnaði og roðnaði á víxl. Ekki hækkaði hann þó róminn svo að heitið gæti. Allan tímann starði hann á mig með uppglennt augu svo að helst minnti á sak- sóknara í réttarhöldum í Moskvu, lafhræddan við Stalín, að lesa yfir sakborningi. Dauðaþögn var í salnum, á meðan Guðmundur talaði, og fóru ef- laust sumir hjá sér en aðrir kímdu á laun og ein- hverjum hefur sennilega ekki þótt neitt ofmælt sem hann sagði. Ég bað þegar um orðið, þegar sagnfræðipró- fessorinn þagnaði, og svaraði á þessa leið: Það er leitt að þú skulir hvorki hafa lesið bók mína, Guðmundur, þótt þú teljir þig geta flokkað hana til pólitískra verka, né sótt fyrirlestur minn á dögunum, þótt þú fordæmir hann. Í fyrirlestri mínum hjá Sagnfræðingafélaginu fór ég meðal annars yfir það hvað ég hefði lært af gagnrýninni á fyrsta bindi ævisögu minnar um Halldór Kiljan Laxness. Það er að einn texti má ekki vera of ná- lægur öðrum texta úr heimild, þótt ég hefði að vísu verið þar í góðri trú, því að ég hefði lesið mikið lof um það hvernig Laxness sjálfur hefði tekið texta og notað, til dæmis dagbækur Magn- úsar Hjaltasonar í Ljósvíkingnum og frásagnir Ralphs Fox í smásögunni „Temúdsjín snýr heim“. Hitt, sem ég hefði lært, hefði verið að vitna oftar og betur í ýmis smáatriði sem fræðimenn hefðu fundið inni á söfnum enda væri sjálfsagt að sýna þeim virðingu og yrðu ekki margir aðrir til þess. Sú gagnrýni sem beint hefði verið að fyrsta verki ævisögu Laxness hefði ekki heldur komið fram gegn öðru og þriðja bindinu. Síðan sneri ég mér að Guðmundi Jónssyni og spurði: Þetta hef ég nú lært af mínum mistökum. Hvað hefur þú lært af þínum? Þá sleit fundarstjóri fundi.“ Það mátti bersýnilega ekki seinna vera. nfræðinga Morgunblaðið/Ómar

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.