SunnudagsMogginn - 27.11.2011, Blaðsíða 31

SunnudagsMogginn - 27.11.2011, Blaðsíða 31
27. nóvember 2011 31 Bræðurnir Rudy og Tom Jor-dache eru eins og svart og hvítt.Annar námfús og prúður, hinnmetnaðarlaus og ódæll. Fyrir þeim liggur því að halda hvor í sína áttina í lífinu. Rudy gengur menntaveginn og verður farsæll kaupsýslumaður en Tom kemst á glapstigu með skelfi- legum afleiðingum. Þrátt fyrir ólíkt upplag og ýmsa árekstra er alltaf sterkur þráður milli bræðranna. Af bræðrum þessum var hermt í einhverri frægustu smáseríu allra tíma í sjónvarpi, Gæfu eða gjörvileika (e. Rich Man, Poor Man), sem sýnd var í Bandaríkjunum árið 1976. Hálfu öðru ári síðar rataði serían í svart/hvít viðtæki okkar Ís- lendinga en sjaldgæft var að sjónvarpsefni kæmi hingað beint af kúnni á þeim tíma. Gæfa eða gjörvileiki sló öll áhorfsmet í Bandaríkjunum, þjóðin sat límd við skjá- inn, og gagnrýnendur héldu vart vatni. Þá var serían tilnefnd til hvorki fleiri né færri en 20 Emmy-verðlauna um vorið. Aðalleikararnir Peter Strauss, sem fór með hlutverk Rudys, og Nick Nolte, sem lék Tom, urðu stjörnur á augabragði og hafa báðir átt farsælan feril í sjónvarpi og kvikmyndum síðan, einkum Nolte. Hinn skapbráði og hverflyndi Tom Jordache lék í höndunum á honum og hefur Nolte leikið ófáar slíkar týpurnar síðan. Á sama hátt náði Strauss frábærum tökum á hin- um milda en staðfasta Rudy, draumi allra tengdamæðra. Gæfa eða gjörvileiki byggðist á sam- nefndri metsölubók eftir Irwin Shaw og voru þættirnir níu talsins, tólf klukku- stundir í það heila. Lenti í klóm Falconettis Jordache-fjölskyldan er þýskir innflytj- endur og þegar sagan hefst við lok seinna stríðs býr hún við kröpp kjör í smábænum Port Phillip, New York. Rudy er staðráðinn í að láta drauma sína rætast og brennandi metnaður- inn rekur á endanum fleyg í samband hans við æskuástina, Julie, sem Susan Blakely lék af leiftrandi sannfæringu. Hennar bíða grimm örlög á botni brennivínsflöskunnar. Ekki voru örlög hins bróðurins, Toms, skemmtilegri. Hann flosnar upp frá námi og vinnur um tíma fyrir sér sem hnefaleikari. Snemma fer hann að leggja lag sitt við vafasama menn í undirheimunum, þeirra á meðal Arthur nokkurn Falconetti, eitt eftirminnileg- asta illmenni sjónvarpssögunnar. Falco- netti var leikinn af mikilli festu af Willi- am Smith. Lýkur samskiptum þeirra með þeim ósköpum að Falconetti ræður Tom bana. Foreldrar bræðranna, Axel og Mary Jordache, koma einnig töluvert við sögu, einkum í upphafi. Axel, sem starfar sem bakari, er faðir af gamla skólanum, gerir engan greinarmun á vodka og vatni og tekur syni sína engum vettlingatökum. Móðirin er undir járnhæl hans. Axel flúði frá Þýskalandi eftir fyrra stríð og hefur aldrei fest rætur í Bandaríkjunum. Hatar landið í raun. Þær tilfinningar lita líf fjöl- skyldunnar alla tíð. Skapgerðarleikarinn Ed Asner leikur Axel af viðurstyggilegri snilld. Dorothy McGuire er Mary. Sett í vítt samhengi Sagan spannar tvo áratugi, lýkur ekki fyrr en 1965, og í bakgrunni eru ýmis hitamál í bandarísku samfélagi, svo sem McCarthyisminn, Kóreustríðið, stúd- entaóeirðirnar og svarta byltingin. Sætti það tíðindum enda óalgengt að „sápu- óperur“ væru settar í svo vítt samhengi á þessum tíma. Þá var sjónum einnig beint að melódrama á borð við hórdóm, valda- baráttu og áfengissýki. Það var fátítt. Smáseríur voru svo að segja óþekkt form í sjónvarpi árið 1976 en nutu gríð- arlegra vinsælda í kjölfar Gæfu eða gjörvileika. Nægir þar að nefna Rætur, Centennial, North and South, Shogun og Lonesome Dove. Nú hefur smáser- íuforminu verið sópað undir teppið, framleiðendur sjónvarpsefnis fara ekki af stað með þætti nema þeir telji að þeir geti ríghaldið áhorfendum árum saman. Höfundar Gæfu eða gjörvileika brugð- ust við vinsældunum með því að gera framhaldsþætti sem frumsýndir voru vestra strax haustið 1976. Gengu þætt- irnir í einn vetur, við nokkuð minni lýð- hylli, og urðu alls 21 talsins. Í það skiptið voru Rudy og Wesley, sonur Toms heit- ins (Gregg Henry), í forgrunni og fengu það erfiða hlutskipti að kljást við forynj- una Falconetti. Í upphafi þáttanna var böndum komið á kauða en síðar sleppur hann úr fangelsi og hyggur á hefndir ... Misskipt er gæfu bræðra 35 árum eftir að þeir voru frumsýndir þykja þættirnir Gæfa eða gjörvileiki enn með því besta sem framleitt hefur verið af leiknu efni fyrir sjónvarp í Bandaríkjunum. Þættirnir um örlög bræðranna Rudy og Tom Jordache nutu einnig mikilla vinsælda hér á landi. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Fjölskyldufaðirinn ógeðfelldi, Axel Jordache (Ed Asner). Bræðurnir Tom og Rudy Jordache á örlagastundu. Peter Strauss, Susan Blakely og Nick Nolte í hlutverkum sínum í Gæfu eða gjörvileika. Illmennið Falconetti (William Smith). Hægt er að nálgast Gæfu eða gjörvileika á DVD-diskum.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.