SunnudagsMogginn - 27.11.2011, Page 32

SunnudagsMogginn - 27.11.2011, Page 32
32 27. nóvember 2011 Í litlu gulu húsi í litla Skerjafirði leynist lítill æv-intýraheimur. Fríða Jónsdóttir er búsett í Belgíuen rekur markaðinn Hús fiðrildanna í gamla ein-býlishúsinu sínu. Dóttir hennar nýtir efri hæðina en neðri hæð einbýlishússins og bílskúrinn er undirlagt af dýrindis postulíni, skenkum, pelsum, kjólum, stytt- um og öðru djásni. Það er upplifun ein og sér að heim- sækja þetta draumkennda Hús fiðrildinna og ekki skemmir fyrir að á móti gestum tekur hin brosmilda vinkona Fríðu, Þórdís Sigurðardóttir, eða Dísa eins og hún er jafnan kölluð, þannig að viðskiptavinurinn fær meira á tilfinninguna að hann sé að koma í heimsókn frekar en að fara í verslunarferð. „Það var nú þannig að strákurinn minn, Jón Andri Guðmundsson, var nýútskrifaður úr Kvikmyndaskól- anum og hafði lítið að gera þegar Dísa vinkona mín leitaði til hans. Hún var að fara með ABC-skólanum til Nairobi í Kenía og það vantaði kvikmyndagerðarmann til að fara með svo hægt væri að gera mynd fyrir skól- ann. Hann átti að kosta sig sjálfur en var algjörlega peningalaus. Hann var auðvitað alveg rosalega spennt- ur fyrir þessu en ég var örugglega spenntari og fannst ekki spurning um annað en að hann færi. Við myndum bara redda þessu,“ segir Fríða þegar hún rifjar upp að- dragandann að því að einbýlishús hennar breyttist í markað. Fríða er búsett í Belgíu þar sem eiginmaður hennar er við störf þar í landi. Hún nýtti tækifærið í einni heimferð sinni og fyllti tvær ferðatöskur af fal- legum postulínsbollum sem hún keypti á mörkuðum í nágrenni sínu og tók með sér til Íslands. „Ég sendi svo bara póst á vini og vandamenn þegar ég kom heim og lét það berast út að ég væri að selja bollana. Það var svo ótrúlegt hvernig þetta fór en það var hreinlega slegist um bollana, allt seldist upp og sonur minn fékk allan ágóðann sem fór langleiðina upp í Keníaferðina hans. Eftir þetta voru allir að spyrja mig hvenær ég kæmi næst með vörur. Ég flutti næst inn vörur ásamt Tobbu vinkonu minni sem rekur Frúna í Hamborg á Akureyri. Við erum báðar aldar upp í sveitinni undir Eyjafjöllum og kunnum svo vel að meta fallegt postulín, það var svo lítið af því þegar við vorum að alast upp. Fólk hafði síðan svo gaman af þessu smotteríi sem ég var að flytja inn og svo bara vatt þetta upp á sig, “ segir Fríða. Mömmur hjálpa mömmum Jón Andri, sonur Fríðu, og Dísa, vinkona hennar, héldu áætlun og fóru með ABC-skólanum til Kenía. Þar komst Dísa í kynni við konu sem rekur saumaver fyrir mæður sem lifa við afar bágar aðstæður. Dísa hefur haldið samskiptum við þessa konu og flytur inn og sel- ur vörur fyrir hana sem framleiddar eru í saumaverinu. Eins ákváðu þær Fríða og Dísa að nú væru þær í að- stöðu til að hjálpa öðrum og í Húsi fiðrildanna er lítið horn sem þær stöllur kalla Mömmur hjálpa mömmum. Þar gefst viðskiptavinum kostur á að kaupa fallega postulínsbolla sem eru fylltir af belgísku súkkulaði og rennur allur ágóði til uppbyggingar á nýju saumaveri í Kenía. „Þegar ég var lítil stelpa ætlaði ég að vera trú- boði í Afríku. Nú er ég að verða fimmtug og kannski er sá draumur að hluta að rætast núna með bollasölunni. Svo er þetta svo táknrænt líka. Bollarnir komu strákn- um mínum út til Kenía þar sem hann og Dísa kynntust þessum konum og nú seljum við bollana þeim til hjálp- ar. Það skiptir svo miklu máli að hjálpa þessum konum að hjálpa sér sjálfar. Ekki bara að senda þeim peninga til að eiga fyrir mat í eina viku heldur að búa til verk- efni fyrir þær, en það er mikið um þess konar hjálp- arstarf í dag. Í saumaverinu geta þær unnið og með launum sínum fætt sig og klætt og komið börnunum í skóla. Mörg af börnum þessara kvenna eru í ABC- skólanum. Við hvetjum að sjálfsögðu fólk til að kaupa svona bolla og fara með í matarboðið í staðinn fyrir að grípa með sér einn blómvönd, “ segir Fríða. Fríða segir það skipta hana miklu máli að vera ekki bara að selja vörur heldur líka að búa til upplifun fyrir fólk sem sækir hana heim. „Ég hef alltaf haft áhuga á Bílskúrinn er tileinkaður sjöunda áratugnum. Vinkona Fríðu gerir þessa púða og selur. Trúartengdarstyttur eru vinsælar meðal gesta. Fjölbreyttar tækifærisgjafir. Á postulíni til Kenía Fríða Jónsdóttir er búsett í Belgíu en rekur markaðinn Hús fiðrild- anna í gamla einbýlishúsinu sínu. Ævintýrið á rætur sínar að rekja í Keníaferð vinkonu hennar. Texti: Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is Myndir: Kristinn Ingvarsson kring@mbl.is Gestir geta bæði keypt smávörur og húsgögn.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.