Morgunblaðið - 02.12.2011, Síða 2

Morgunblaðið - 02.12.2011, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Stúdentar lögðu blómsveig á leiði Jóns Sigurðs- sonar forseta í Hólavallakirkjugarði í gærmorg- un líkt og venja er á fullveldisdaginn 1. desem- ber, en stúdentar við Háskóla Íslands hafa haldið fullveldisdaginn hátíðlegan allt frá árinu 1922. Voru bæði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, og Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, við- stödd, en talsvert fennti á þá sem viðstaddir voru athöfnina að þessu sinni. hjorturjg@mbl.is Fullveldinu fagnað í vetrarríki Morgunblaðið/Kristinn Stúdentar lögðu blómsveig á leiði Jóns Sigurðssonar venju samkvæmt Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Þremenningarnir, sem voru úr- skurðaðir í gæsluvarðhald í fyrra- dag að ósk embættis sérstaks sak- sóknara vegna Glitnismálsins, hafa allir kært úrskurðinn til Hæsta- réttar. Um er að ræða Lárus Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, Jóhannes Baldursson, fyrr- verandi framkvæmdastjóra mark- aðsviðskipta hjá Glitni, og Inga Rafnar Júlíusson, sem starfaði í verðbréfamiðlun Glitnis. Frestur málsaðila til að skila greinargerðum rennur út í dag, að sögn Ólafs Þórs Haukssonar, sér- staks saksóknara. „Við höfum hald- ið áfram að yfirheyra þá sem yf- irheyrðir voru í gær og einnig hafa nýir aðilar verið kallaðir inn,“ sagði Ólafur Þór í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi. Haldið verður áfram í dag og fleiri kallaðir til yf- irheyrslna. Að sögn Ólafs vita sak- borningar ekki hvaða gögn lög- regla er með í höndunum. „Þeim er ekki kunnugt um það hvernig þessi málatilbúnaður lítur út. Við fórum fram á gæsluvarðhald til að koma í veg fyrir að þeir hefðu tóm til að sammælast um framburðinn eða spilla gögnum.“ Ólafur segir engar húsleitir enn hafa farið fram í tengslum við rannsóknina. Embættið er að ljúka rannsókn á nokkrum málum sem tengjast hruninu og búist er við að ákærur verði gefnar út innan tíðar. „Það eru um það bil tíu hrunsmál sem við erum að reyna að ljúka rann- sókn á fyrir áramót. Við bindum vonir við að það verði komnar nið- urstöður á ákæruvaldsstigi í ein- hverjum þeirra fyrir áramót, þótt það verði kannski færri mál en fleiri. Við erum að vinna að því samhliða þeim aðgerðum sem við stöndum í núna.“ Spurður hvort eitt þessara mála væri Sjóvármálið sagðist Ólafur Þór ekkert geta upplýst hvaða mál væri um að ræða. Ljúka brátt tíu hrunsmálum  Ákærur í hrunsmálum innan skamms  Glitnismennirnir þrír kærðu gæslu- varðhaldið  Áframhaldandi yfirheyrslur  Varðhald til að hindra spillingu gagna Morgunblaðið/Ómar Sérstakur saksóknari Búist er við að brátt verði ákært í tíu málum sem tengjast hruninu. Sérstakur saksóknari » Stefnir að því að ljúka rann- sókn á tíu hrunsmálum á næstu vikum. » Býst við að ákærur verði gefnar út innan tíðar. » Óljóst um hvaða mál er að ræða. „Starrarnir eru hérna allan ársins hring og þeim vegnar bara dável. Þeim frekar fjölgar en hitt og hafa verið að færa út kvíarnar í landinu líka,“ segir Ævar Petersen fuglafræðingur. Hann segir að starrarnir haldi sig einkum í eða í ná- munda við mannabyggðir og sæki í ýmislegt sem til falli hjá mönnunum. „Það er svo mikið að hafa í kringum manninn sem til fellur. Bæði í þéttbýli og við sveitabæi. Það er nú ein ástæðan fyrir því að þeim vegnar vel, að þeir éta bæði ýmislegt sem er dýrakyns og eins gróð- urkyns, alls kyns fræ og þess háttar. Þessir fuglar eru duglegir að bjarga sér,“ segir Ævar og bætir við að starrarnir séu að sama skapi óhræddir við það að nálgast mennina í leit að æti. hjorturjg@mbl.is Duglegir að bjarga sér Morgunblaðið/Ómar Útsvarstekjur Reykjavíkur- borgar í ár eru nokkru hærri en við hafði verið bú- ist. Borgar- fulltrúi segir það sanna að engin þörf hafi verið á hækkun útsvars. Kjartan Magn- ússon, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að endurskoða ætti útsvarsprósent- una á nýjan leik með það fyrir aug- um að lækka hana. „Það lítur út fyrir að skatttekjur borgarinnar verði um 1.600 milljónir umfram fjárhags- áætlun í ár. Nú kemur á daginn það sem við sjálfstæðismenn sögðum, að útsvarshækkanir væru óþarfar,“ segir Kjartan. „Maður sér að víða er vel haldið utan um rekstur borg- arinnar og að núverandi meirihluti nýtur góðs af því að hafa tekið við góðu búi. Þeim hefur tekist vel að viðhalda því,“ segir Kjartan. „Borg- in nær að halda sinni góðu stöðu, en það hefði verið hægt án þess að hækka útsvarið.“ Hann segist þó hafa áhyggjur af rekstri menntasviðs. „Það er ljóst að hagræðingarnar sem stefnt var að þar hafa alls ekki náðst. Það voru öll skólamál í Reykjavík sett í uppnám til að ná fram hagræðingu, en þær fyrirætlanir meirihlutans hafa alger- lega mistekist.“ annalilja@mbl.is Óþarft var að hækka útsvarið Kjartan Magnússon  1.600 millj. meira í útsvar en áætlað var Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur aukist um tvö prósentustig í nóv- ember og mælist nú 38 prósent samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gall- up. Greint var frá niðurstöðunum í kvöldfréttum RÚV. Flokkurinn hef- ur ekki mælst með meiri stuðning síðan í febrúar 2008, nokkru fyrir hrun. Fram kemur að um 22% styðja Samfylkinguna og tæp 15% Framsóknarflokkinn. 13,5 prósent styðja Vinstrihreyfinguna – grænt framboð og hefur flokkurinn ekki mælst með minni stuðning frá því í júlí árið 2007. 2% styðja Hreyf- inguna skv. könnuninni en 10% segjast myndu styðja önnur fram- boð og 15% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa. Fylgisaukning hjá Sjálfstæðisflokki

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.