Morgunblaðið - 02.12.2011, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2011
✝ Guðmundur M.Waage fæddist
í Reykjavík 17.
nóvember 1940.
Hann lést á líkn-
ardeild Landspít-
alans í Kópavogi
26. nóvember
2011.
Foreldrar hans
voru hjónin Magn-
ús Guðmundsson
Waage, bifreiða-
stjóri í Reykjavík, f. 5. ágúst
1916, d. 21. apríl 1977, og Jó-
hanna Sveinsdóttir húsfreyja,
f. 1. september 1915, d. 11.
október 1986. Systkini Guð-
mundar eru: Ólafur, f. 7. sept-
ember 1939, d. 6. desember
1986, Árni Már, f. 21. janúar
1942, d. 6. júlí 2001, Ragnheið-
ur Þórunn, f. 29. október 1943,
Edda Hulda, f. 14. febrúar
1946, Ómar, f. 25. október
maður hennar er Sveinn Tjörvi
Viðarsson, f. 16. mars 1985,
Oliver, f. 14. júlí 1995, og
Nökkvi, f. 8. nóvember 1996. 2)
Magnús G. Waage, f. 4. desem-
ber 1969, sambýliskona hans
er Fríða Jóhannsdóttir, f. 20.
júlí 1972. Börn þeirra, Annika,
f. 29. nóvember 2003, og
Freyr, f. 2. apríl 2006. 3) Ey-
rún Hulda G. Waage, f. 8. febr-
úar 1975, dóttir hennar er
Katrín Þöll Sigursteinsdóttir,
f. 31. október 2000. Guð-
mundur kvæntist aftur hinn
28. nóvember 2003 Önnu Berg-
mann Guðbjörnsdóttur, f. 2.
janúar 1940. Börn hennar eru:
Erna, Pétur, Benedikt, Axel og
Ragnhildur.
Guðmundur gekk í Iðnskól-
ann í Reykjavík og útskrifaðist
sem prentmyndasmiður árið
1963. Eftir námið vann hann
hjá Myndamótum og Morg-
unblaðinu til ársins 2005. Síð-
ustu árin bjó Guðmundur í
Hafnarfirði ásamt eiginkonu
sinni.
Útför Guðmundar fer fram
frá Hafnarfjarðarkirkju í dag,
2. desember 2011, kl. 13.
1952, Inga Anna,
f. 14. nóvember
1955, Sigurlaug
Jónína, f. 16. nóv-
ember 1958. Hálf-
bróðir, sam-
mæðra er Jón
Konráð Magn-
ússon, f. 30. des-
ember 1933, d.
24. október 1995.
Guðmundur
kvæntist 31. des-
ember 1966 Katrínu Eyjólfs-
dóttur, f. 19. september 1943,
þau slitu samvistum. Börn
þeirra 1) Sigríður G. Waage,
f. 1. apríl 1965, maður hennar
er Þór Stefánsson, f. 21. des-
ember 1961. Börn þeirra: Al-
exander, f. 10. september
1985, sambýliskona hans er
Brynja Rún Brynjólfsdóttir, f.
8. nóvember 1988, Tinna, f.
27. september 1988, sambýlis-
Með söknuð í hjarta kveðjum
við yndislegan mann. Við eigum
eftir að sakna góðra stunda með
þér, Guðmundur, en erum jafn-
framt þakklát fyrir þær minning-
ar sem við eigum saman og munu
þær lifa áfram í hjörtum okkar.
Þessi tími sem þú og mamma
áttuð saman var stuttur en þú
gafst henni svo mikið og hún var
hamingjusöm með þér og fyrir
það verðum við ævinlega þakklát.
Á þessari stundu er hugur okk-
ar hjá mömmu sem var Guðmundi
sínum stoð og styrkur allt til enda.
Elsku mamma, þú stendur þig vel
á þessum erfiðu tímum, við send-
um þér allar okkar samúðarkveðj-
ur. Einnig sendum við börnum
Guðmundar okkar dýpstu samúð-
arkveðjur.
Erna og Haukur.
Í dag kveðjum við góðan mann
sem við vorum svo heppnar að
kynnast og fá að þekkja í tíu ár.
Guðmundur háði baráttu við ill-
vígan sjúkdóm sem þó hafði betur
að lokum þrátt fyrir að hann hefði
barist hetjulega á móti í þrjú ár.
Þrátt fyrir mikla verki og vanlíð-
an, sérstaklega síðasta árið, mátti
ekki sjá það á honum Guðmundi.
Alltaf leit hann glæsilega út og bar
sig vel þrátt fyrir mikil veikindi.
Það er okkur í fersku minni
þegar við hittum Guðmund fyrst,
og skildum um leið af hverju
amma okkar hafði fallið fyrir þess-
um vinalega, rólega og yfirvegaða
manni. Hann var svo góður við
elsku ömmu okkar þannig að hún
blómstraði, hún átti það svo inni-
lega skilið að eignast mann sem
hugsaði um hana og var góður við
hana. Þau voru mjög samrýmd og
það voru ófá skiptin sem maður
keyrði um Hafnarfjörð og sá þau
á rúntinum niður Strandgötuna.
Þau deildu ýmsum áhugamál-
um eins og að búa til glæsileg
glerlistaverk. Þau áttu það einnig
sameiginlegt að vilja eiga fallegt
og snyrtilegt heimili og Guðmundi
fannst það ekki leiðinlegt að hafa
mikið af fallegum munum og
blómum í kringum sig. Alltaf var
gott að koma heim til þeirra á
Hvammabrautina, þau voru mikl-
ir gestgjafar og voru stundirnar
sem við áttum hjá þeim afar
ánægjulegar. Það var ósjaldan
sem Guðmundur bauð upp á heitt
súkkulaði og vöfflur með rjóma.
Það var líka yndislegt að fara
austur á Laugarvatn til þeirra í
fallega húsið og garðinn þeirra
þar.
Elsku Guðmundur, það er erf-
itt að trúa því að þú sért nú farinn,
þín er sárt saknað en við erum
jafnframt þakklátar fyrir að hafa
fengið að njóta samverustunda
mér þér þó að fleiri hefðu mátt
vera. Við trúum því að þú sért nú
kominn á betri stað, laus við verki
og vanlíðan og vakir yfir ömmu
okkar og passir hana þar sem þú
ert.
Elsku amma, við viljum votta
þér okkar dýpstu samúð. Þú ert
búin að standa eins og klettur við
hlið Guðmundar í veikindum hans
og hefur staðið þig eins og hetja.
Þú ert í bænum okkar og hugs-
unum og við biðjum til drottins að
vaka yfir þér á þessum erfiðu
stundum. Einnig viljum við senda
samúðarkveðjur til barna, tengda-
barna og barnabarna Guðmundar.
Anna, María og Hildur.
Þá er komið að kveðjustund-
inni, elsku Guðmundur, þú háðir
hetjulega baráttu við krabbamein
sem þú þurftir að glíma við í þrjú
ár og verður kvaddur í dag í hinsta
sinn. Það er mikið tómarúm í
hjarta mínu og þín verður sárt
saknað en ég geymi allar góðu
minningarnar sem við áttum sam-
an.
Með þessum fátæklegu orðum
kveð ég þig með þakklæti fyrir all-
ar okkur stundir.
Ég þakka Guði löngu liðinn dag
sem lét mig eignast þig að ævivin.
Og öll þau blóm sem uxu á þinni leið
með ilm og fegurð hresstu
og glöddu mig.
Og birtan sem þú breiddir yfir allt
sló bjarma á lífið allt í kringum þig.
Svo líða dagar, ár og ævitíð
og ýmsum blikum slær á loftin blá.
Í sorg og gleði alltaf varstu eins
og enginn skuggi féll á þína brá.
Svo brast á élið, langt og kólgukalt
og krafan mikla um allt sem gjalda má.
Og fljótið niðar enn sem áður fyrr
og ennþá flúðin strýkur næman
streng.
Við blæþýtt ljóð, um blóm og sumaryl
og bjarta kyrrð – í minningu um þig.
(Oddný Kristjánsdóttir.)
Anna Bergmann
Guðbjörnsdóttir.
Kveðja frá Morgunblaðinu
Guðmundur Waage vann alla
sína starfsævi hjá Morgunblaðinu
og Myndamótum þar áður, sem
var prentmyndagerð í nánum
tengslum við Morgunblaðið og síð-
ustu árin í eigu þess. Hann hóf
störf í Myndamótum 1963 og vann
hjá Morgunblaðinu til ársins 2005.
Starfsævi Guðmundar hjá Morg-
unblaðinu spannar þannig yfir
fjörutíu ár af tæplega hundrað ára
sögu blaðsins. Það er langur tími
og sjaldgæft núorðið að menn
helgi starfskrafta sína einu fyrir-
tæki með slíkum hætti. Allan
þennan tíma var Guðmundur trúr
og samviskusamur starfsmaður,
ljúfur í öllum samskiptum og gott
til hans að leita, góður fagmaður
sem ætíð skilaði vönduðu verki.
Þeir bræður, Guðmundur og Árni,
sem einnig vann hjá Myndamót-
um og Morgunblaðinu um langt
árabil, settu sterkan svip á vinnu-
staðinn og gerðu hann betri og
skemmtilegri.
Við fyrrum samstarfsmenn
Guðmundar minnumst góðs fé-
laga og vinar og sendum fjöl-
skyldu hans innilegar samúðar-
kveðjur.
Guðbrandur Magnússon.
Guðmundur M.
Waage
HINSTA KVEÐJA
Tárin eru dýrmætar daggir,
perlur úr lind minninganna.
Minninga sem tjá kærleika og ást,
væntumþykju og þakklæti
fyrir liðna tíma.
Minninga sem þú einn átt
og enginn getur afmáð
eða frá þér tekið.
(Sigurbjörn Þorkelson.)
Með kveðju,
Steinar, Elísabet
og Ragnhildur Dagbjört.
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
2 8 5 3 9
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
1 8 2 4 2 3 5 4 1 5 5 0 9 8 6 5 3 3 9 5
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
9788 31241 39419 44529 55457 64617
10516 33005 41042 47188 57205 75883
V i n n i n g u r
Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur)
2 8 2 6 9 8 7 2 1 9 5 5 7 2 8 7 0 1 3 9 4 1 4 5 0 4 4 6 5 8 7 0 0 7 0 3 8 9
3 1 4 5 1 0 0 4 3 1 9 6 3 0 2 9 3 6 0 3 9 6 8 9 5 2 1 8 9 5 9 4 7 7 7 1 7 6 7
3 2 1 7 1 1 2 5 0 2 1 5 0 0 3 0 1 3 4 4 0 6 3 9 5 2 7 6 2 5 9 8 3 1 7 4 9 9 1
4 0 4 1 1 2 6 0 7 2 2 6 3 9 3 0 5 8 6 4 1 2 8 3 5 4 2 7 4 6 1 5 0 0 7 5 0 9 4
4 1 8 6 1 3 7 4 6 2 4 2 0 5 3 1 1 2 3 4 2 1 6 1 5 5 8 1 9 6 1 8 4 9 7 5 2 8 8
4 3 8 1 1 3 7 6 1 2 5 1 7 1 3 2 1 7 9 4 4 0 6 2 5 6 4 4 0 6 5 1 0 9 7 5 4 6 3
4 9 3 6 1 6 7 4 8 2 5 2 0 5 3 5 6 5 9 4 5 8 1 4 5 6 5 3 1 6 5 7 5 3 7 5 9 4 7
7 3 5 8 1 7 4 4 9 2 6 6 1 2 3 5 7 4 7 4 6 1 3 4 5 7 7 0 4 6 6 7 3 3 7 8 9 6 3
7 6 1 1 1 8 6 9 2 2 7 1 9 7 3 6 8 0 0 4 8 0 0 8 5 7 8 7 8 6 6 9 3 1 7 9 4 1 8
9 4 1 8 1 9 3 7 3 2 8 0 0 7 3 7 3 1 6 4 8 2 3 5 5 8 0 2 8 6 7 5 4 2 7 9 6 3 1
V i n n i n g u r
Kr. 9.000 Kr. 18.000 (tvöfaldur)
3 1 6 9 3 1 7 1 5 9 5 7 2 9 0 9 6 3 9 7 2 6 5 0 9 2 8 6 2 6 3 6 7 1 8 3 8
7 9 0 9 6 9 5 1 6 0 2 6 2 9 2 0 7 4 0 7 1 8 5 1 0 8 6 6 2 8 7 3 7 2 6 3 4
8 0 1 9 8 6 6 1 6 4 6 9 2 9 9 4 8 4 1 1 1 1 5 1 6 4 7 6 3 0 8 9 7 2 9 9 5
1 7 2 6 9 9 1 3 1 7 1 3 6 2 9 9 5 1 4 1 1 1 8 5 1 8 2 3 6 3 3 3 5 7 3 2 9 9
1 8 7 0 9 9 1 6 1 7 5 4 6 3 0 3 1 8 4 1 1 6 8 5 2 4 4 7 6 3 3 9 6 7 3 7 3 6
2 2 0 1 9 9 9 8 1 7 8 9 8 3 0 4 6 7 4 1 2 4 8 5 2 6 4 9 6 3 8 5 6 7 3 8 5 4
2 2 9 0 1 0 0 4 8 1 8 7 9 4 3 0 7 4 9 4 1 4 2 1 5 3 0 1 7 6 3 9 6 4 7 4 1 4 9
2 3 7 1 1 0 2 7 6 1 8 9 1 5 3 1 0 0 4 4 2 8 6 1 5 3 1 0 1 6 4 1 3 3 7 5 9 4 9
2 3 8 8 1 0 7 6 6 1 9 1 9 0 3 1 1 9 5 4 3 3 2 9 5 3 7 5 8 6 4 2 1 3 7 5 9 7 5
3 1 1 4 1 0 8 0 1 2 0 2 5 3 3 1 8 0 1 4 4 1 2 3 5 3 8 9 3 6 4 2 7 9 7 6 1 8 0
3 3 2 7 1 1 2 4 7 2 0 2 8 1 3 1 8 5 9 4 4 6 5 8 5 4 1 7 0 6 4 7 0 0 7 6 2 6 9
4 0 0 2 1 1 6 6 0 2 0 3 4 9 3 1 9 8 3 4 5 0 8 2 5 4 1 7 8 6 4 8 1 5 7 6 3 6 5
4 2 3 3 1 1 7 9 8 2 1 0 7 7 3 2 0 9 4 4 5 1 2 3 5 4 2 1 5 6 4 8 5 2 7 6 4 0 5
4 3 8 3 1 1 8 0 3 2 1 4 7 5 3 2 5 5 3 4 5 3 5 1 5 4 9 0 9 6 5 5 1 6 7 6 5 8 1
4 4 9 6 1 1 9 6 1 2 1 5 2 0 3 2 5 5 4 4 5 7 0 2 5 5 0 1 1 6 6 4 0 5 7 7 0 2 2
4 6 6 8 1 2 1 1 9 2 1 9 7 6 3 2 6 8 7 4 5 7 8 9 5 5 5 1 2 6 6 8 9 4 7 7 3 4 5
5 2 3 9 1 2 2 5 0 2 3 1 0 2 3 3 0 1 1 4 6 2 8 1 5 5 8 3 0 6 6 9 6 6 7 7 5 8 6
5 2 4 5 1 2 5 5 2 2 3 8 8 2 3 3 1 5 9 4 6 6 0 6 5 6 6 1 6 6 7 0 2 4 7 7 8 8 3
5 7 4 6 1 2 6 5 4 2 3 9 0 1 3 3 3 1 0 4 6 7 8 6 5 6 9 8 1 6 7 1 8 5 7 7 9 5 5
6 0 5 4 1 2 7 3 2 2 4 2 8 4 3 4 0 1 2 4 7 1 3 3 5 7 6 3 8 6 7 2 4 6 7 8 2 1 8
6 1 7 9 1 2 8 2 8 2 4 3 2 9 3 5 8 5 6 4 7 2 8 0 5 7 9 8 6 6 7 3 4 6 7 8 3 2 6
6 2 7 8 1 2 9 0 6 2 4 9 6 9 3 5 9 4 3 4 7 7 6 7 5 8 3 2 9 6 8 0 2 2 7 8 5 7 4
6 5 5 3 1 3 1 3 2 2 5 0 9 5 3 6 3 5 3 4 7 9 4 4 5 8 5 5 1 6 9 0 0 7 7 8 7 3 4
6 5 6 8 1 3 6 6 7 2 5 3 5 9 3 6 4 4 3 4 8 0 0 6 5 9 0 2 6 6 9 0 3 5 7 9 0 9 8
6 6 0 2 1 3 8 3 5 2 5 8 6 2 3 6 9 5 5 4 8 0 1 8 5 9 1 0 9 6 9 0 8 7 7 9 2 6 2
6 7 1 0 1 3 9 3 6 2 6 1 2 8 3 6 9 6 9 4 8 1 2 7 5 9 4 9 6 6 9 7 8 4 7 9 4 0 1
6 9 5 1 1 4 2 5 2 2 6 4 3 2 3 6 9 9 7 4 8 4 7 4 6 0 5 9 8 7 0 0 7 4
7 2 8 8 1 4 3 7 3 2 7 4 6 7 3 7 0 2 9 4 8 6 2 8 6 0 9 0 7 7 0 5 2 5
7 8 1 1 1 4 4 4 9 2 7 7 0 4 3 7 1 0 4 4 9 6 1 6 6 1 0 2 7 7 0 7 5 4
8 2 9 5 1 4 9 8 0 2 7 7 4 6 3 8 3 0 0 4 9 9 1 7 6 1 2 7 6 7 1 0 5 0
8 5 2 3 1 5 4 0 1 2 7 7 7 7 3 8 4 9 4 4 9 9 7 2 6 2 0 6 6 7 1 5 8 7
9 0 2 0 1 5 5 3 9 2 8 2 6 9 3 9 2 3 1 5 0 5 6 8 6 2 0 7 8 7 1 6 8 5
Næstu útdrættir fara fram 8. des, 15. des, 22. des & 29. des 2011
Heimasíða á Interneti: www.das.is
Óska eftir
Kaupi gamla mynt og seðla
Kaupi gömul mynt- og seðlasöfn.
Geri tilboð á staðnum. Gull- og silfur-
peningar. S. 821 5991, Sigurður.
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata,
Kópavogi. fannar@fannar.is
s. 551-6488.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Málarar
Málarar Alhliðamálningarþjónusta.
Getum bætt við okkur verkefnum, til-
boð eða tímavinna. Vönduð vinnu-
brögð, hagstæð verð í boði og góðir
greiðsluskilmálar.
Sími 823 8547 og 659 9676.
Arne Jacobsen Svana sófasett
Til sölu er sófi og tveir stólar úr
koníaksbrúnu leðri. Keypt í Epal 2004,
mjög lítið notað. Nánari upplýsingar
í síma 898 2244.
Tómstundir
Fjarstýrðar innanhússþyrlur og
margt fl.
Mikið úrval af fjarstýrðum innanhúss-
þyrlum á góðu verði. Netlagerinn slf.
Verslun í Dugguvogi 17-19, 2. hæð.
Sími 517-8878. Vefsíða Tactical.is
Frí heimsending til jóla.
Bækur
Gvendur dúllari
Fornbókabúð á vefnum
www.gvendur.is
Dýrahald
Ættbókarfærðir labradorhvolpar
Er með yndislega labradorhvolpa,
virkilega fallegir og vandað got. Eru
7 vikna. Upplýsingar í s. 846 4483.
Gisting
Gisting allt árið í notalegum
bústöðum
Heitir pottar og notalegheit.
Þú átt það skilið að slappa af fyrir
jólin. Fjölskyldur og hópar.
Minniborgir.is
Gisting á góðum stað.
Upplýsingar í síma 868 3592.
Heilsa
Vilt þú bæta heilsuna þína?
Auka orkuna eða koma þér í form?
Prófaðu Herbalife!
Hafðu samband:
774 2924, Baldur.
Hljóðfæri
Þjóðlagagítarpakki:
kr:22.900,- Gítar, poki, ól, auka
strengir, stilliflauta og kennslu-
forrit.
Gítarinn ehf, Stórhöfði 27
S:552 2125
www.gitarinn.is,
gitarinn@gitarinn.is
Húsgögn
Bílar
Bílalíf • Kletthálsi 2 • www.bilalif.is
bílasala
...í bílum erum við sterkir!
☎ 562 1717
Skráðu bílinn
þinn frítt hjá
bilalif.is
Nýr Landrover Defender 110
Crew Cab S.
Diesel. Ódýrasti jeppinn í þessum
flokki á landinu í dag. Tryggðu þér bíl
á verði sem sést ekki í framtíðinni.
Listaverð um 9,5 milljónir. Okkar verð
6.490 þús.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 - sími 577 3344.
Opið 12-18 virka daga.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
mbl.is
V i n n i n g a s k r á
31. útdráttur 1. desember 2011
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru
vinsamlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi lið-
ur, "Senda inn minning-
argrein", valinn úr felliglugg-
anum. Einnig er hægt að slá
inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Minningargreinar