Morgunblaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2011
Ámánudag spurði Birgir Ár-mannsson alþingismaður Stein-
grím J. Sigfússon fjármálaráðherra
út í það sem fjallað hefði verið um í
fjölmiðlum, að efnahags- og við-
skiptaráðuneytið yrði ef til vill sam-
einað fjármálaráðu-
neyti.
Steingrímur sagðiað „hvernig sem
þessu verður fund-
inn staður innan
stjórnarráðsins til
frambúðar á yfir-
stjórn efnahagsmála
að vera samræmd á
einum stað“.
Í gær svaraði Jó-hanna Sigurðar-
dóttir forsætisráð-
herra fyrirspurn frá
Bjarna Benediktssyni, formanni
Sjálfstæðisflokksins, um breytingar
á ráðuneytum og sagði þá að það
væri algerlega ljóst að þær umræð-
ur sem orðið hefðu á Alþingi og í
fjölmiðlum um málið, „og getgátur
þar að lútandi“, sýndu að „þingmenn
og fjölmiðlar eru komnir fram úr
sjálfum sér í þessu efni“. Nefndi hún
sérstaklega efnahags- og viðskipta-
ráðuneyti í þessu efni.
Svo bætti Jóhanna því við síðar aðefnahagsmálin væru nú þegar
öll á einum stað, þannig að hún taldi
þetta í raun óþarfa umræðu.
Sjónarmið forsætisráðherra ogfjármálaráðherra um fyrir-
komulag efnahagsmála innan stjórn-
arráðsins gætu ekki verið ólíkari.
Þau virðast sammála um það eitt að
þessi málaflokkur megi alls ekki
heyra undir Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, en um allt annað eru þau á
öndverðum meiði.
Svo halda þau því auðvitað líkafram að allt sé með felldu á
stjórnarheimilinu.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Heimiliserjur
STAKSTEINAR
Steingrímur J.
Sigfússon
Veður víða um heim 7.12., kl. 18.00
Reykjavík -6 skýjað
Bolungarvík -2 snjóél
Akureyri -10 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. -9 léttskýjað
Vestmannaeyjar 0 skýjað
Nuuk -7 snjókoma
Þórshöfn 2 skýjað
Ósló -7 heiðskírt
Kaupmannahöfn 2 skúrir
Stokkhólmur 2 skýjað
Helsinki 2 skýjað
Lúxemborg 7 léttskýjað
Brussel 7 léttskýjað
Dublin 5 léttskýjað
Glasgow 2 léttskýjað
London 8 heiðskírt
París 8 skúrir
Amsterdam 7 skýjað
Hamborg 3 skúrir
Berlín 5 skúrir
Vín 5 skúrir
Moskva 0 skýjað
Algarve 15 heiðskírt
Madríd 11 heiðskírt
Barcelona 17 heiðskírt
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 15 léttskýjað
Aþena 13 skýjað
Winnipeg -7 snjóél
Montreal 1 alskýjað
New York 10 alskýjað
Chicago -1 léttskýjað
Orlando 21 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
8. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:03 15:37
ÍSAFJÖRÐUR 11:44 15:06
SIGLUFJÖRÐUR 11:28 14:48
DJÚPIVOGUR 10:41 14:58
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fasteignafélagið Skálabrekka
sendi sveitarstjórn Bláskógabyggð-
ar á síðasta ári hugmyndir um
byggingu hótels og golfvallar í
landi jarð-
arinnar. Ind-
verskur fjárfestir
sem keypt hefur
sig inn í félagið
segir málin í þró-
un með heima-
mönnum og segir
of snemmt að
segja til um hvað
verði byggt eða
hvenær.
Bala Murug-
han Kamallakharan sem búið hefur
hér á landi frá 2005 og er íslenskur
ríkisborgari eignaðist á síðasta ári
meirihluta í Fasteignafélaginu
Skálabrekku sem á samnefnda jörð
í Þingvallasveit. Skálabrekka ligg-
ur að Þingvallavatni, á milli bæj-
anna Kárastaða og Heiðarbæjar.
Sumarbústaðir eru við vatnið en
fram kom í Morgunblaðinu í gær
að uppbygging ferðaþjónustu væri
fyrirhuguð á þeim hluta landsins
sem er óskipulagður, það er að
segja ofan vegar. Kamallakharan
segir að ýmsar hugmyndir séu
uppi um notkun landsins en ekkert
hafi verið ákveðið.
Sjö hótel í Indlandi
Kamallakharan og indverskir
samstarfsmenn hans reka sjö hótel
í Indlandi og hann hefur einnig
unnið að því að byggja upp rekstur
í Bandaríkjunum. Hann vinnur
með fjárfestingafélaginu Auro In-
vestment Partners sem fjárfesti á
síðasta ári í hátæknisprotafyrir-
tækinu CLARA en það var stofnað
af fjórum nemendum í Háskóla Ís-
lands fyrir þremur árum. Kamal-
lakharan er stjórnarformaður
CARA.
Drífa Kristjánsdóttir, oddviti
Bláskógabyggðar, segir að Fast-
eignafélagið Skálabrekka hafi á
síðasta ári kynnt hugmyndir um
uppbyggingu, meðal annars á hót-
eli og golfvelli. Ekki hafi verið tek-
in afstaða til þeirra. Drífa segir að
afstaða sveitarstjórnar til upp-
byggingar ferðaþjónustu á þessum
stað fari algerlega eftir því hvernig
byggingar um sé að ræða. Land-
eigandi þurfi að leggja fram skipu-
lagsuppdrátt og teikningar af fyr-
irhuguðum mannvirkjum til þess
að hægt sé að taka afstöðu til
málsins.
Svæðið ofan vegar er nú skipu-
lagt sem landbúnaðarsvæði.
Sveitarstjórn hefur borist ósk
um að skipta jörðinni og segir
Drífa að það sé mál eigenda og
sveitarstjórn geri ekki athuga-
semdir við það.
Kynntar voru
hugmyndir um
hótel og golfvöll
Hugmyndir um uppbyggingu á Skála-
brekku í þróun með heimamönnum
Indverskur fjárfestir
» Bala Murughan Kamal-
lakharan fæddist á Indlandi
1973. Hann á íslenska eigin-
konu og barn og hefur búið hér
á landi frá 2005.
» Kamallakharan var fram-
kvæmdastjóri þróunar hjá
Glitni banka og var fluttur til
Indlands til að stýra útrás
bankans þar þegar ríkið tók
yfir starfsemi bankans og
lokaði skrifstofunni.
Bala
Kamallakharan
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Magnaða moppuskaftið
Dagar skúringafötunnar eru taldir Alltaf tilbúið til notkunar
Gólfin þorna á augabragði
Fljótlegt og þægilegt
Húsasmiðjan - Pottar og prik Akureyri - Fjarðarkaup - Áfangar Keflavík - Eyjatölvur
Miðstöðin Vestmannaeyjum - Skipavík Stykkishólmi - SR byggingavörur Siglufirði
Rafsjá Sauðárkróki - Nesbakki Neskaupsstað - Vélaleiga Húsavíkur - Óskaþrif Hólmavík
SÖLUAÐILAR:
Ræstivörur ehf - Sími 567 4142 - www.raestivorur.is
00000
Frábær jólagjöf!
Veiðikortið
37 vötn
Eitt kort
6.000 kr.
www.veidikortid.is
FLEIRI VÖTN ÓBREYTTVERÐ