Morgunblaðið - 08.12.2011, Síða 30
30 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
1 6 7 3 8
7 1 6 4
2 6 1 7
8 3 2
4 9 1
2 4 3
3
9 7 6
8 1 3 9
1 6 7 5
6 3 1
2 7 3 6 5
7 9 1
9 5 8
5 7 9
8
3 7
2
5 2 3
7 9
6 1 5 4
2 8
9 6 4
3 1 5
1 3 6
4 3 9 6 8 1 7 5 2
5 6 1 9 7 2 3 4 8
8 2 7 5 3 4 9 6 1
3 9 4 2 5 7 8 1 6
1 7 8 4 6 3 2 9 5
2 5 6 1 9 8 4 7 3
6 4 5 3 2 9 1 8 7
7 1 3 8 4 5 6 2 9
9 8 2 7 1 6 5 3 4
1 4 5 6 3 9 7 2 8
3 7 9 2 4 8 1 5 6
8 2 6 7 5 1 4 9 3
9 6 7 5 1 4 3 8 2
4 8 2 3 7 6 5 1 9
5 3 1 9 8 2 6 7 4
6 1 3 8 9 5 2 4 7
2 5 8 4 6 7 9 3 1
7 9 4 1 2 3 8 6 5
9 7 3 6 2 1 8 4 5
6 5 8 7 4 9 3 2 1
4 1 2 3 8 5 6 7 9
1 4 9 5 7 8 2 6 3
7 2 6 1 3 4 5 9 8
8 3 5 9 6 2 7 1 4
3 9 1 2 5 7 4 8 6
2 6 4 8 1 3 9 5 7
5 8 7 4 9 6 1 3 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 8. desember,
342. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Þegar sál mín örmagn-
aðist í mér, þá minntist ég Drottins, og
bæn mín kom til þín, í þitt heilaga
musteri. (Jónas 2, 8.)
Á morgun er dagur rauða nefs-ins sem helgaður er fjáröflun í
þágu Unicef og annað kvöld verður
bein útsending á Stöð 2 þar sem
fjöldi manns kemur fram til stuðn-
ings málefninu. Degi rauða nefsins
fylgir grín og glens, en auðvitað er
tilefnið grafalvarlegt. Talið er að 22
þúsund börn láti lífið á hverjum
degi af ástæðum, sem auðvelt ætti
að vera að koma í veg fyrir.
x x x
Heimsforeldrar eru hryggj-arstykkið í starfsemi Unicef.
Framlög þeirra hafa bjargað fjölda
barna og tryggt menntun þeirra.
Unicef hjálpar bágstöddum börnum
um allan heim, allt frá Sierra
Leone til Haítí, og starf samtak-
anna er að mestu víðs fjarri athygli
fjölmiðla. Halldóra Geirharðsdóttir
fór til Haítí í sumar sem sjálf-
boðaliði fyrir Unicef og í fyrra fór
hún til Úganda. Tilgangurinn var
að kynna sér ástandið á þessum
stöðum og miðla reynslu sinni til
Íslendinga. Halldóra er heimsfor-
eldri og í viðtali í Sunnudagsmogg-
anum um helgina lýsti hún því
hvaða þýðingu það hefði fyrir sig:
„Það að vera heimsforeldri er yf-
irlýsing fyrir sálina, stjórnarskrá
fyrir sjálfan sig: Ég vil taka þátt í
að breyta heiminum.“
x x x
Unicef hefur einnig horft tilbarna á Íslandi og fyrr á
árinu kom út skýrslan Staða barna
á Íslandi 2011 á vegum samtak-
anna. Tilgangurinn með skýrslunni
er að búa til mælistiku á velferð
barna á Íslandi, svo vitnað sé í
kynningu, og er farið mjög ræki-
lega yfir sviðið.
x x x
Víkverji er óttaleg kuldaskræfa.Honum finnst snjórinn þó
heillandi og lætur stundum undan
aðdráttarafli hans þótt hann sé
þeim annmörkum háður að falla
ekki nema þegar kalt er í veðri.
Málið er að snjónum fylgir birta,
sem ekki veitir af í skammdeginu,
auk þess sem frostkaldir dagar eru
iðulega sólríkir. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 ágengt, 4 laumu-
spil, 7 kirtil, 8 skapvond, 9
væn, 11 áll, 13 skaða, 14 esp-
ast, 15 heilnæm, 17 fjöldi, 20
elska, 22 þráttar, 23 ís, 24
hlaupa, 25 hafni.
Lóðrétt | 1 högni, 2 baunin,
3 feiti, 4 kurteis, 5 ganga
þyngslalega, 6 vindhani, 10
eignarjarðar, 12 vin-
gjarnleg, 13 eldstæði, 15 tví-
stígur, 16 hljóðfærið, 18
hnappur, 19 tré, 20 manns-
nafns, 21 skaði.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 holdgrönn, 8 gulan, 9 nötra, 10 agg, 11 arfar, 13 teiti,
15 tyfta, 18 slota, 21 lok, 22 grand, 23 arnar, 24 hlunnfara.
Lóðrétt: 2 orlof, 3 dánar, 4 rangt, 5 netti, 6 ógna, 7 tapi, 12 art,
14 ell, 15 toga, 16 fjall, 17 aldin, 18 skarf, 19 ofnar, 20 aurs.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Skilgreining Hérans.
Norður
♠83
♥G98
♦ÁK75
♣ÁK86
Vestur Austur
♠DG1052 ♠965
♥ÁD ♥7542
♦DG62 ♦1093
♣73 ♣542
Suður
♠ÁK7
♥K1063
♦84
♣DG109
Suður spilar 3G.
Enginn hefur skilgreint þvingun
betur en Hérinn hryggi: „Maður tekur
langlitinn sinn og andstæðingarnir
henda vitlaust af sér“. Ekki er þó alltaf
augljós hagnaður af því að byrja á
langlitnum. Lítum til suðurs, sem fær
út ♠D gegn 3G. Hann dúkkar, drepur
næsta spaða og … ja, hvað?
Bjartsýnn sagnhafi spilar blindum
inn á lauf til að svína svo í hjarta. Svín-
ingin misheppnast, vestur fríar spað-
ann og spilið fer óhjákvæmilega einn
niður. En hvað gerist ef sagnhafi tekur
fjóra slagi á lauf í upphafi? Líkur á því
að vestur „hendi vitlaust af sér“ eru nú
100%. Vestur er ekki svo vitlaus að
henda ♥D, svo líklega fækkar hann við
sig um einn tígul og einn spaða. Og þá
er níundi slagurinn auðsóttur á hjarta.
Furðulega einfalt.
8. desember 1936
Listverslun var opnuð í
Reykjavík og þótti það tíð-
indum sæta. Þar voru seld
verk margra af þekktustu
listamönnum bæjarins. „Það
hefur skort hér að til væri
staður þar sem listamenn
gætu sýnt verk sín og menn
fengið tækifæri til þess að
kaupa þau,“ sagði í Vísi.
8. desember 1961
Músin sem læðist, fyrsta skáld-
saga Guðbergs Bergssonar,
kom út. Guðmundur G. Haga-
lín sagði í Alþýðublaðinu að
Guðbergur væri mikið sagna-
skáld. Í Morgunblaðinu var
bókin sögð athyglisvert byrj-
endaverk.
8. desember 1967
Dýrin í Hálsaskógi, leikrit
Thorbjörns Egner, kom út á
hljómplötu. Síðar kom það á
snældu og loks á geisladisk.
8. desember 1971
Samkomulag var undirritað
milli Íslands og Kína um
stjórnmálasamband ríkjanna.
Sendiráð var opnað í Reykja-
vík árið eftir.
8. desember 2008
Sjö voru handteknir eftir ólæti
í Alþingishúsinu, þegar þrjá-
tíu mótmælendum var mein-
aður aðgangur að þingpöllum.
Morgunblaðið sagði atvikið
ekki eiga sér hliðstæðu. Síðar
voru „níumenningar“ kærðir
fyrir athæfið.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Við ætlum bara að skála fyrir lífinu og tilverunni
hérna í Unuhúsi, ættingjar og nánustu vinir, milli
fimm og sjö,“ segir Gestur Ólafsson, arkitekt og
skipulagsfræðingur í Reykjavík en hann er sjötug-
ur í dag. „Þannig hef ég haldið upp á afmæli, ég er
ekkert í því að leigja Laugardagshöllina! Í þessari
krepputíð er líka um að gera að gæta hófs. Ég er á
því að afmælisbörn eigi frekar að gefa eitthvað af
sér en að fá gjafir. Þess vegna frábið ég mér gjafir
og blóm en ætla í tilefni af þessum áfanga að gefa
Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri tímarit
sem ég gaf út í aldarfjórðung, Arkitektúr, verk-
tækni og skipulag. Þau fá höfundarréttinn og upplagið, ekki veitir af
að veita svolitlu ljósi í þennan dimma dal.“
Gestur segir menn eiga að vera þakklátir fyrir að fá að lifa svona
lengi og eigi að sýna það.
Gestur er sjálfur Vestfirðingur að uppruna en eiginkonan, Guð-
björg Garðarsdóttir, er úr Reykjavík. Þau eiga eina dóttur saman og
auk þess alls þrjá syni úr fyrri samböndum og „glás af barnabörnum“.
Hann vonar að allir mæti en viðurkennir að hið fornfræga Unuhús,
sem er yfir 100 ára gamalt, taki ekki marga gesti í einu. kjon@mbl.is
Gestur Ólafsson er 70 ára í dag
Skálað fyrir tilverunni
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
8. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 5.03 3,6 11.18 1,0 17.20 3,4 23.25 0,9 11.03 15.37
Ísafjörður 0.51 0,5 7.05 1,9 13.26 0,6 19.19 1,7 11.44 15.06
Siglufjörður 2.47 0,3 9.04 1,1 15.21 0,2 21.41 1,0 11.28 14.48
Djúpivogur 2.16 1,9 8.34 0,6 14.28 1,6 20.28 0,5 10.41 14.58
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Hrútur Þú nýtur meiri athygli nú en venju-
lega. Vinir þínir sýna þér hlýju og þú sérð að
hamingjan felst í því að kunna að meta það
sem þú átt.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þín bíða svo mörg verkefni að það er
engu líkara en þú eigir ekki að fá að líta upp í
allan dag. Til að halda sönsum er gott að fara
í göngutúr.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þið eigið ekki að hika við að skipta
um skoðun, þegar nýjar upplýsingar koma
fram og breyta viðteknum sannindum. Lík-
amleg vinna er góð.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þrátt fyrir að þú sért að reyna að
koma þér í betra form er erfitt að standast
sætindin – en þú getur það. Beindu athygl-
inni að hinu smáa – í því felast lífsgæðin.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Taktu þátt í umræðunni, en mundu að ef
þú vilt ná eyrum annarra þarft þú að vanda
framkomu þína og málfar. Leyfðu einhverjum
sem þekkir leiðina að sýna þér hvað ber að
forðast.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þér lætur betur að láta verkin tala en
að setja upp langar orðræður um hlutina.
Samskipti skapa ekki bara frið, heldur felast í
þeim bestu augnablik lífsins.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það getur reynst mikil kúnst að segja
nei, þegar það á við. Þú ferð í óvænt ferðalag
snemma á næsta ári.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú vekur á þér athygli í dag
hvort sem þú ætlar þér það eða ekki. Nú
kemur sér vel að eiga gott samstarfsfólk.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Hvaðeina sem viðkemur æðri
menntun, útgáfumálum og fjölmiðlum geng-
ur vel í dag. Þú vilt alls ekki láta segja þér fyr-
ir verkum.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Lykillinn að velgengni er að koma
fram með eitthvað nýtt. Skipuleggðu tíma
þinn eins vel og kostur er.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er hætt við að þú lofir upp í
ermina á þér í vinnunni. Taktu þér tíma til að
hlusta á fjölskyldumeðlimi og veittu þeim
stuðning.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Gættu þess að bregðast ekki of hart
við minniháttar málum. Fólk sem áður gætti
sín á þér, gefur þér nú tækifæri.
Stjörnuspá
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Rf6 4. Rg5 d5
5. exd5 Ra5 6. Bb5+ Bd7 7. De2 Be7 8.
Rc3 O-O 9. O-O Bg4 10. Dxe5 a6 11.
Be2 Bd6 12. De3 He8 13. Dd3 Bxe2 14.
Rxe2 He5 15. f4 Hxd5 16. Df3 Bc5+ 17.
Kh1 Rc6 18. d3 Dd7 19. Rc3 Rd4 20.
Dd1 Hf5 21. Rce4 Bb6 22. c3 Re6 23.
Rxf6+ Hxf6 24. Re4 Hf5 25. Rg3 Hd5
26. f5 Rf8 27. d4 c5 28. Dg4 Kh8
Staðan kom upp í Evrópukeppni
taflfélaga sem lauk fyrir nokkru í Ro-
gaska Slatina í Slóveníu. Stórmeist-
arinn Mateusz Bartel (2627) frá Pól-
landi hafði hvítt gegn kollega sínum
Borki Predojevic (2643) frá Bosníu.
29. Bh6! f6 30. Rh5! gxh6 31. Rxf6 Df7
32. Rxd5 Dxd5 33. Hae1 Df7 34. f6
cxd4 35. He7 Dg6 36. Df3 Bd8 37.
Dxb7 dxc3 38. Dxa8 og svartur gafst
upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.