Morgunblaðið - 31.12.2011, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 31.12.2011, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2011 Beint frá býli Ungur kambód- ískur drengur, Tha Sophat, vakti heimsathygli á árinu. Hann lifir eingöngu á kúamjólk og drekkur beint af spena. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Það sannaðist á árinu að góð-ur barmur er gulli betri.Fyrirsætan Orit Fox, semstátar af stærstu brjóst- unum í Ísrael, slapp með skrekkinn eftir að hún var bitin í barminn af slöngu í myndatöku. Hnátan fékk stífkrampasprautu og náði fullri heilsu. Sömu sögu er ekki að segja af slöngunni en hún drapst úr sílikon- eitrun. Bókin „What Every Man Thinks About Apart From Sex“ sem skart- ar 200 auðum blaðsíðum varð óvænt metsölubók á árinu. Seldist upp hjá Amazon en þar kostaði hún 900 ís- lenskar krónur. Höfundur bók- arinnar segist velta fyrir sér hversu margir karlkyns nemendur leiða hugann að kynlífi þegar kennslu- stund lýkur og þeir hætta að glósa. „Ég er tilbúin að veðja á að svarið er 100%. Eftir margra ára vinnu upp- götvaði ég að karlmenn hugsa ekki um neitt annað en kynlíf,“ sagði höf- undurinn. Blaðamanni sem fjalla átti um fjáröflunarkvöldverð á vegum Joes Bidens, varaforseta Bandaríkjanna, brá heldur betur í brún þegar hon- um var vísað inn í skáp af starfs- manni Bidens. Hann mætti á undan varaforsetanum og greip starfsmað- urinn til þessa óvenjulega ráðs svo hann myndi ekki tala við gesti. Starfsmaðurinn stóð fyrir framan dyrnar þangað til honum þótti öruggt að hleypa blaðamanninum út. Biden bað blaðamanninn afsök- unar. Pítsusendill bjargaði konu Ýmsir voru heppnir á árinu. Þeg- ar kona nokkur, fastakúnni á banda- rískum pítsustað, hafði ekki pantað pítsu í þrjá daga fór pítsusendillinn að óttast um hana og gerði sér ferð til að kanna hvort ekki væri allt með felldu. Kom þá í ljós að konan hafði dottið og náði ekki í síma til að hringja á hjálp. Að sögn lækna er líklegt að pítsusendillinn hafi bjarg- að lífi konunnar með umhyggju sinni. Ítalskur maður, sem fluttur var á sjúkrahús í Napólí eftir að hafa verið skotinn í höfuðið, kom læknum í opna skjöldu þegar hann hnerraði kúlunni út. Hafði kúlunni verið skot- ið í nýárshátíðahöldum en borg- arbúar eiga það til að skjóta af byssum upp í loftið í gleði sinni. Á spítölum sást sitthvað fleira óvenjulegt. Skurðlæknar í suður- hluta Kína fjarlægðu til að mynda 10 sentimetra langt ryðgað hnífs- blað úr höfði karlmanns, sem sagði að hnífurinn hefði verið í höfði sér í fjögur ár. Li Fuyan, sem er þrítugur, hafði þjáðst af höfuðverk, andremmu og öndunarörðugleikum en vissi ekki hver ástæðan var. Hann sagði læknum í borginni Yuxi að ræningi hefði stungið hann með hnífi undir hægri kjálk- ann fyrir fjórum árum. Í ljós kom að hnífsblaðið var enn í höfði Lis án þess að hann hefði vitað af því. Breskir læknar fjar- lægðu filtpenna úr maga 76 ára konu sem varð fyrir því óhappi að gleypa hann fyrir 25 árum. Læknir tók röntgenmyndir af maganum eftir óhappið en fann ekki pennann. Sérfræð- ingur uppgötvaði hann loksins þegar konan leit- aði til hans vegna magaverkja. Flutningabílstjóri frá Nýja- Sjálandi blés upp eins og loftblaðra þegar hann féll niður á þrýstilofts- slöngu sem stakkst inn í rasskinnina á honum. Hann lifði óhappið af og er orðinn jafngóður og áður. Örlagarík yfirvigt Aðrir voru ekki eins heppnir. Rússnesk kona fékk hjartaáfall og lést er hún hafði beðið í tólf tíma eft- ir því að komast yfir landamæri Kína til heimalandsins. Var hún með 52 kg af farangri en heimilt er að vera með 50 kg. Þegar tollverðir hófu að yfirheyra konuna þoldi hjarta hennar ekki áfallið og lést hún skömmu síðar. 77 ára gamall maður frá Úkraínu lést eftir að hafa sigrað í kappáti. Maðurinn át 10 fylltar hveitibollur á hálfri mínútu. Sigurlaunin voru einn lítri af sýrðum rjóma. Stuttu eftir að maðurinn tók við sigurlaununum fann hann fyrir miklum magaverk og lést í kjölfarið. Kona var gripin við það að reyna að smygla eiginmanni sínum út úr mexíkósku fangelsi í ferðatösku eftir heimsóknartíma. Tóku verðir eftir að konan virkaði taugaóstyrk þar sem hún dró stóra svarta ferðatösku sem virtist úttroðin. Talsmaður fangelsisins í Quintana Roo-fylki segir að verðir hafi þá fundið fang- ann Juan Ramírez Tijerina í fóst- urstellingunni í ferðatöskunni en hann afplánar tuttugu ára fangels- isdóm fyrir ólöglegan vopnaburð. Karlmann, sem beraði sig framan við fimm konur í spænska bænum Torrevieja, rak í rogastans þegar konurnar réðust á hann og yfirbug- uðu. Þær reyndust vera norskar lög- reglukonur í fríi. Gat skellt á hvoruga Maður á miðjum aldri í Simbabve var dæmdur í 189 ára fangelsi fyrir að stela nautgripum. Er það nýtt met í landinu en lengsti fangels- isdómurinn fyrir nautgripaþjófnað var 47 ár. Dómurinn er þó skilorðs- bundinn að hluta til og gæti mað- urinn því losnað eftir 99 ár. Þrælar tækninnar voru víða á ferð á árinu. Umferðarlögreglumenn í ítölsku borginni Bari trúðu ekki sínum eigin augum þegar þeir mættu öku- manni, sem var með sinn farsímann í hvorri hendi og þar af leiðandi enga hönd á stýri bílsins. Þegar lög- reglumenn báðu manninn um skýr- ingar sagðist hann hafa verið að tala við eiginkonuna þegar móðir hans hringdi og hann hefði auðvitað neyðst til að tala við þær báðar – á hvoruga gat hann skellt. Snjáldra (Facebook) tröllríður nú heiminum. Verður það þó ekki að telj- ast fulllangt gengið að ísraelsk hjón hafi nefnt nýfædda dóttur sína Like? Ekkert orð – eða nafn – var þeim víst ofar í huga. „Like“ var hins vegar Benedikt páfa sextánda og hans nánustu hirð ekki efst í huga þegar í ljós kom að þýðing- arvilla í ítalskri útgáfu bókar sem Páfagarður gefur út og er ætluð ung- mennum gerði það að verkum að svo virtist sem kaþólska kirkjan hefði loks lagt blessun sína yfir getnaðarvarnir. Höfðu fjölmiðlar um allan heim tekið málið upp áður en leiðrétting kom frá Vatíkaninu. Getnaður getur sannarlega dregið dilk á eftir sér. Ítölsk hjón óskuðu eftir aðstoð lögfræðings við fá son þeirra til að flytja að heiman. Son- urinn er 41 árs gamall. Hjónin segja soninn neita að flytja að heiman, en krefjist þess að fötin hans séu þvegin og straujuð og að honum sé gefið að borða á matartímum. Faðirinn segist vera að gefast upp á syninum, móðir hans sé undir miklu álagi og hafi þurft að leita til læknis. Hann segir tímabært að sonurinn flytji að heim- an enda sé hann í ágætu starfi. Og að lokum þetta: Heims- samband kameldýravísindamanna hefur brugðist ókvæða við hug- myndum ástralskra stjórnvalda um að lóga villtum drómedum á þeim forsendum að vindgangur þeirra stuðli að hlýnun jarðar. Segja vís- indamennirnir það ranga og heimskulega hugmynd. Brjóst bönuðu slöngu Blaðamaður kom út úr skápnum, flutningabílstjóri blés upp eins og blaðra, kona reyndi að smygla bónda sínum úr fangelsi og maður hnerraði byssu- kúlu. Enginn hörgull var á furðufréttum á því herr- ans ári 2011. Banvæn brjóst Orit Fox á góðum degi. Götótt Elaine Davidson hefur fundið 1.903 staði á líkamanum til að stinga gat á. Enginn í heiminum hefur gert betur, ef marka má Heimsmetabók Guinness. Reuters Bros í gegnum hárið Staðfest var á árinu að tælenska stúlkan Supatra Sasup- han, kölluð Nat, er loðnasta stúlka í heimi. Hún þjáist af sjaldgæfum sjúkdómi. Reykjavík ALP ehf, .............................................................Vatnsmýrarvegi 10 1912 ehf, .............................................................Klettagörðum 19 7.is ehf, ....................................................................Urriðakvísl 15 Afl - Múr ehf, ............................................................... Laufengi 15 Afreksvörur ehf........................................................, Álfheimum 74 Alefli ehf, ....................................................................Þarabakka 3 Altex ehf (Margaretha), ................................................Kringlunni 7 Alþjóðlegar bifreiðatryggingar á Íslandi, ....................Borgartúni 35 Antikmunir sf., ......................................................... Klapparstíg 40 Arctic trucks Ísland ehf, ................................................. Kletthálsi 3 Arev, .........................................................................Bankastræti 5 Athygli ehf, ................................................................... Síðumúla 1 Austurátt ehf, ..........................................................Austurstræti 12 Austurhöfn-TR ehf, ................................................. Tryggvagötu 17 Álafoss ehf, ...........................................................Bakkastöðum 15 Áman, ........................................................................Háteigsvegi 1 Árni Reynisson ehf, ...................................................Laugavegi 170 Ás, vinnustofa, .......................................................... Brautarholti 6 Ástund ehf, .......................................................... Háaleitisbraut 68 B Ingvarsson ehf, ...................................................... Bíldshöfða 18 B.K. Flutningar, ...................................................... Krosshömrum 2 Bakkus, ................................................................. Tryggvagötu 22 Bandalag háskólamanna, ............................................ Borgartúni 6 Bar 11, ....................................................................Hverfisgötu 18 Barnaverndarstofa, ................................................... Borgartúni 21 Batik ehf, .................................................................. Bíldshöfða 16 BÁ Múrverk ehf, ......................................................... Viðarrima 59 BBA Legal ehf, ............................................................. Höfðatúni 2 BDO ehf-Endurskoðun og ráðgjöf, ..................... Köllunarklettsvegi 1 Beggja hagur ehf, ...............................................Suðurlandsbraut 6 Bifreiðabyggingar sf., ..................................................... Ármúla 34 Bifreiðastjórafélagið Frami,......................................Fellsmúla 24-26 Bifreiðastjórafélagið Sleipnir, ..........................................Mörkinni 6 Bifreiðaverkstæðið ÁS ehf, ........................................Hyrjarhöfða 2 Bindindissamtökin IOGT, .......................................... Brautarholti 4a Bílasala Guðfinns, ....................................................... Stórhöfða 15 Bílrúðan ehf, .............................................................Grettisgötu 87 Björgun ehf, ............................................................ Sævarhöfða 33 Björnsbakarí ehf, .................................... Klapparstíg 3 v/Skúlagötu Bláfugl ehf, ................................................................... Lynghálsi 4 Blikksmiðurinn hf, ......................................................Malarhöfða 8 Bootcamp ehf, .....................................................Suðurlandsbraut 6 Borgarleiðir ehf, ..................................................... Hafnarstræti 17 Bókaútgáfan Hólar ehf, ................................................. Hagasel 14 Bókhaldsstofa Haraldar, .....................................Suðurlandsbraut 12 Bónus, skrifstofur, ...................................................... Skútuvogi 13 Brúnegg ehf, ........................................................... Brautarholti 10 BSRB, ........................................................................Grettisgötu 89 Búr ehf, ........................................................................ Bæjarflöt 2 Bygginarfélag Gylfa og Gunnars hf., .......................... Borgartúni 31 Cabin ehf, .................................................................Borgartúni 32 Cetus ehf, ..................................................................Höfðabakka 9 Classik rock, ..................................................................... Ármúla 5 Danás ehf, .................................................................Laugavegi 24 Danfoss hf., .................................................................. Skútuvogi 6 Danica sjávarafurðir ehf, ............................................Suðurgötu 10 Dan-Inn ehf, ............................................................ Skútuvogi 13a DHL á Íslandi, .......................................................... Sundabakka 2 DHS ehf, ..................................................................Hverfisgötu 26 Diplo ehf, ......................................................................Krókhálsi 4 DJG Málningarþjónusta ehf, ...................................Krummahólum 2 E.F. Ben ehf, .........................................................Dugguvogi 17-19 E.T. Einar og Tryggvi ehf, .......................................Klettagörðum 11 Efnalaugin Hreinn Hólagarði, ..................................... Lóuhólum 2-6 Efnamóttakan hf., .............................................................Gufunesi Eico ehf, ....................................................................... Skútuvogi 6 Eignamiðlunin ehf, ...................................................... Síðumúla 21 Einn grænn ehf, ................................................. Langholtsvegi 109 ENNEMM ehf, .......................................................... Brautarholti 10 Erluís ehf, .......................................................................Fákafeni 9 Eyfeld ehf, .................................................................Laugavegi 65 Eyrir Invest ehf, .................................................. Skólavörðustíg 13 Faxaflóahafnir,........................................................ Tryggvagötu 17 Félag flugmálastarfsmanna ríkisins, Flugturni, .. Reykjavíkurflugvelli Fiskafurðir-umboðssala ehf, ......................................... Fiskislóð 5-9 Fiskmarkaðurinn ehf, .................................................Aðalstræti 12 Fljótavík ehf, ................................................................ Deildarási 7 Forum lögmenn, ............................................... Aðalstræti 6 5. hæð Gallerí Fold, ......................................................Rauðarárstíg 12-14 Garri ehf, ...................................................................... Lynghálsi 2 Gastec ehf, ................................................................ Bíldshöfða 14 GB tjónaviðgerðir ehf, ...................................................Draghálsi 8 Ginger slf, ................................................................... Síðumúla 17 Gissur og Pálmi ehf, .................................................Álfabakka 14a Gjögur hf., ...................................................................Kringlunni 7 Gjörvi ehf, .............................................................. Grandagarði 18 Grant Thornton endurskoðun, ............................Suðurlandsbraut 20 Gróðrarstöðin Lambhagi ehf, .............. Vesturlandsvegi v/Lambhaga Guðmundur Jónasson ehf, ......................................... Borgartúni 34 Gull- og silfursmiðjan Erna ehf, ....................................... Skipholti 3 Gæðabakstur ehf, .......................................................... Lynghálsi 7 Hagi ehf - HILTI, .......................................................Malarhöfða 2a Haninn ehf, .......................................................Suðurlandsbraut 46 Hágæðabón ehf, .........................................................Viðarhöfða 2 Háskólabíó, ..................................................................... Hagatorgi Heilsusport ehf, .............................................................Skeifunni 4 Heitar Íslenskar samlokur ehf, ..................................... Krókhálsi 5a Hilmar D. Ólafsson ehf, ........................................ Langholtsvegi 13 Hjá Dóra ehf, .......................................................... Þönglabakka 1 Hjá Jóa Fel-brauð/kökulist ehf, ...............................Kleppsvegi 152 Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs,.......................................Gylfaflöt 3 Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns, .......................................... Hátúni 2a Hlað sf, ..................................................................... Bíldshöfða 12 Hótel Óðinsvé hf, ............................................................Þórsgötu 1 Hundahótelið, .......................................................................Leirum HS pípulagnir ehf, ....................................................... Hraunbæ 78 HU - veitingar, .........................................................Vegamótastíg 4 Húsafl sf, .......................................................................... Nethyl 2 Húsafriðunarnefnd ríkisins, .........................................Suðurgötu 39 Hvellur G. Tómasson ehf, ..............................................Súðarvogi 6 Höfðakaffi ehf, .........................................................Vagnhöfða 11 Iceland seafood international, ........................... Köllunarklettsvegi 2 Icelandic Fish & Chips ehf, ........................................ Tryggvagötu 8 Icelandic group, .........................................................Borgartúni 27 Ingileifur Jónsson ehf, ................................................. Funahöfða 6 Init ehf, ...................................................................Grensásvegi 50 Innanríkisráðuneytið, ............................................... Skuggasundi 3 ÍAV þjónusta ehf, .......................................................Höfðabakka 9 Ísbúð Vesturbæjar ehf, ..................................................Hagamel 67 Íslensk-ameríska verslunarfélagið hf, ......................... Tunguhálsi 11 J & L ehf, ...................................................................Laugavegi 26 JP Lögmenn ehf, ............................................................ Lágmúla 5 Kemis ehf, ................................................Breiðhöfða 15, box 9351 Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma, ...........................Suðurhlíð Kjörgarður, ............................................................... Laugarvegi 59 Klakki ehf, .................................................................. Síðumúla 28 Klettur - sala og þjónusta ehf, ............................ Klettagörðum 8-10 Klif ehf, ................................................................. Grandagarði 13 Knattspyrnusamband Íslands, ........................................... Laugardal KOM almannatengsl, ...................................................... Höfðatorgi KRAUM ehf, ...............................................................Aðalstræti 10 Landsnet hf, ...................................................................Gylfaflöt 9 Laundromat Reykjavík ehf, ........................................Austurstræti 9 Leðurverkstæðið sf, ........................................................Víðimel 35 LP-verk ehf, ..............................................................Kleppsvegi 48 Lyftur ehf, ............................................................... Ljósheimum 20 Lögmannsskrifstofan Fortis ehf, ....................................Laugavegi 7 Markaðsráð kindakjöts, ..........................Bændahöllinni v/Hagatorg Martec ehf , ................................................................ Blönduhlíð 2 Matthías ehf, .............................................................. Vesturfold 40 Málarakompaníið ehf, ................................................ Fornastekk 3 Menntaskólinn við Hamrahlíð, ................................... Hamrahlíð 10 Menntaskólinn við Sund, ...........................................Gnoðarvogi 43 Múlakaffi, ......................................................................Hallarmúla Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, ..................................... Hátúni 12b Nesradíó ehf, .............................................................. Síðumúla 19 Nethönnun ehf, .................................................................. Ármúla Nói-Síríus hf, .............................................................. Hesthálsi 2-4 Nýherji hf, ................................................................Borgartúni 27 Orr ehf, ...................................................................Bankastræti 11 Ósal ehf, .................................................................. Tangarhöfða 4 Park ehf, ........................................................................Fosshálsi 9 Pelsinn, Kirkjuhvoll sf, ................................................. Kirkjutorgi 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.