Morgunblaðið - 17.01.2012, Síða 16
ÍTALÍA
EGYPTALAND
FINNLAND
RÚSSLAND
SOVÉTRÍKIN
KANADA
BRETLAND
ÍTALÍA/SVÍÞJÓÐ
FILIPPSEYJAR
MANNSKÆÐ SJÓSLYS Á FRIÐARTÍMUM
Helstu sjóslys frá Titanic-slysinu - Eigendur eftir löndum
Kanada Bretland
Ítalía
Svíþjóð
Finnland
Rússland
Egyptaland
Estonia
1994 September
Princess of the Stars
2008 Júní
Dona Paz
1987 Des.
Don Juan
1980 Apríl
Al-Salam Bocaccio 98
2006 Febrúar
Salem Express
1991 Desember
Achille Lauro
1994 Desember
Moby Prince
1991 Apríl
The Empress of Ireland
1914 Maí
Titanic
1912 Apríl
Herald of Free Enterprise
1987 Mars
Princess Victoria
1953 Janúar
Andrea Doria (Ítalía)
Stockholm (Svíþjóð)
1956 Júlí*
Principessa Mafalda
1927 Okt.
Novorossiysk
1955 Október
Nakhímov aðmíráll
Pjotr Vasev
1986 Aug**Árekstur milli skipanna tveggja
Heimildir: Reuters, fréttir fjölmiðla
Costa Concordia
2012 13. janúar
4.375
773
300
1.026
464
852
1.012
1.523
193
133
50
608
423 1.000
2
140
6
Tala látinna
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Forstjóri skipafélagsins Costa Cro-
ciere, eiganda skemmtiferðaskipsins
Costa Concordia, sagði í gær að
skipstjóranum hefðu orðið á mistök
áður en skipið sigldi á rif undan
strönd ítölsku eyjunnar Giglio á
föstudagskvöld. Skipstjórinn hefði
breytt stefnu skipsins án heimildar
og siglt of nálægt ströndinni, með
þeim afleiðingum að stórt gat kom á
skrokk skipsins og það lagðist á
hliðina.
Ítalska dagblaðið Corriere della
Sera sagði í gær að skipstjórinn
hefði siglt skipinu nær ströndinni til
að gleðja yfirþjón þess sem er frá
Giglio. Blaðið hafði einnig eftir
sjónarvottum að yfirþjónninn hefði
varað skipstjórann við hættunni
skömmu áður en skipið sigldi á rifið.
„Farðu varlega, við erum mjög ná-
lægt ströndinni,“ sagði hann.
Aðrir fjölmiðlar á Ítalíu sögðu að
skipstjórinn kynni að hafa siglt
skipinu nær eyjunni til að vekja að-
dáun íbúanna og ferðafólks á stærð
skipsins.
„Fyrirtækið ætlar að styðja skip-
stjórann og sjá honum fyrir allri
nauðsynlegri aðstoð, en við verðum
að viðurkenna staðreyndirnar og
getum ekki neitað því að honum
urðu á mistök,“ sagði Pier Luigi
Foschi, forstjóri Costa Crociere.
Hann bætti við að siglingaleið
skemmtiferðaskipsins hefði verið
sett rétt inn í tölvuforrit sem hefði
átt að vara stjórnendur skipsins við
ef það færi af réttri leið. „Sú stað-
reynd að skipið fór af þessari leið er
eingöngu vegna stefnubreytingar
sem yfirmaðurinn gerði án heim-
ildar, samþykkis eða vitneskju
Costa Crociere.“
Neitar sök
Skipstjórinn, Francesco Schett-
ino, var handtekinn á laugardaginn
ásamt stýrimanni. Ítalskir saksókn-
arar segja að mennirnir eigi yfir
höfði sér ákæru fyrir manndráp og
fyrir að hafa yfirgefið skipið áður en
öllum farþegunum var bjargað frá
borði.
Schettino er 52 ára og hefur
starfað fyrir Costa Cruises í tíu ár,
fyrst sem yfirmaður öryggismála og
síðan stýrimaður þar til hann varð
skipstjóri árið 2006. Schettino þræt-
ir fyrir það að honum hafi orðið á
mistök og segir að rifið, sem skipið
sigldi á, hafi ekki verið sýnt á sjó-
korti hans. Hann neitar því einnig
að hann hafi yfirgefið skipið á undan
farþegum. Fréttaveitan AFP hefur
hins vegar eftir saksóknaranum
Francesco Verusio, sem stjórnar
rannsókn málsins, að skipstjórinn
hafi yfirgefið skipið „löngu áður en
síðustu farþegarnir voru fluttir frá
borði“.
Að minnsta kosti sex manns biðu
bana í slysinu og fimmtán til við-
bótar var enn saknað í gær. Yfir
4.200 manns frá 60 löndum voru í
skipinu, þar af um þriðjungur Ítalir
og einnig margir Þjóðverjar og
Frakkar. Slysið varð skömmu eftir
að skipið lagði af stað í sjö daga
siglingu um Miðjarðarhaf.
Hættulegar aðgerðir
Sergio Ortelli, bæjarstjóri Giglio,
kvaðst vera vongóður um að fleiri
fyndust á lífi í skipinu. „Fólk getur
lifað þar í nokkra daga til viðbótar,“
hefur AFP eftir honum.
Gera þurfti hlé á björgunarað-
gerðunum í gær vegna hvassviðris.
Björgunarmennirnir segja að leitin
sé mjög hættuleg vegna þess að þil-
förin hallist um nær 90 gráður, auk
þess sem hætta sé á að skipið renni
af rifinu og sökkvi alveg.
„Vistfræðileg tímasprengja“
Ortelli sagði að í skipinu væru
tæp 2.400 tonn af olíu og óttast er
að hún leki í sjóinn og valdi miklum
umhverfisspjöllum. „Þetta er vist-
fræðileg tímasprengja,“ sagði hann.
Umhverfisráðherra Ítalíu, Cor-
rado Clino, tók í sama streng og
sagði að mikil hætta væri á alvar-
legum olíuleka. „Tankar skipsins
eru fullir af olíu, þetta er þung dísil-
olía sem gæti sokkið á sjávarbotn-
inn og það myndi verða stórslys.“
Talsmaður Carnival Corp, móður-
félags Costa Crociere, sagði að
áætlað væri að tjónið af völdum
slyssins næmi sem svarar 10 til 12
milljörðum króna.
Breytti stefnu skipsins
og sigldi of nálægt landi
Hætta talin á umhverfisspjöllum vegna olíuleka úr skemmtiferðaskipinu
Reuters
Handtekinn Skipstjóranum Francesco Schettino fylgt í lögreglubíl í
Grosseto á Ítalíu. Hann á yfir höfði sér ákæru fyrir manndráp.
16 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 2012
Almenningur hefur verið beðinn
um að taka þátt í leitinni að reiki-
stjörnum þar sem líf kann að þríf-
ast. Sjálfboðaliðar geta farið á vef-
síðuna planethunters.org til að sjá
myndir af 150.000 stjörnum sem
geimsjónaukinn Kepler hefur tekið.
„Við vitum að fólk mun finna plán-
etur sem tölvum sést yfir,“ hefur
fréttavefur breska ríkisútvarpsins
eftir Chris Lintott, geimvísinda-
manni við Oxford-háskóla. Sjón-
aukinn var tekinn í notkun árið
2009 og hefur m.a. fundið plánet-
una Kepler 22b, sem líkist jörðinni
hvað stærð og hitastig varðar og er
í um 600 ljósára fjarlægð.
Reuters
Kepler 22b Þannig kann plánetan líf-
vænlega mögulega að líta út.
Óskað eftir
sjálfboðaliðum
í stjörnuleit
GEIMVÍSINDI
Jon Huntsman,
fyrrverandi
ríkisstjóri Utah
og sendiherra í
Kína, tilkynnti í
gær að hann
hefði ákveðið að
draga sig í hlé í
forkosningum
repúblikana og
styðja Mitt Rom-
ney sem þykir sigurstranglegastur.
Skömmu áður hafði stærsta dag-
blað Suður-Karólínu lýst yfir stuðn-
ingi við Huntsman, en kosið verður
þar á laugardaginn kemur.
Jon Huntsman
styður Mitt Romney
Jon Huntsman
BANDARÍKIN
Indverjar reyna að hemja naut á
nautatamningarhátíð í bænum
Madurai. Hátíðin er haldin árlega
og er liður í uppskeruhátíð, sem
nefnist Pongal, í indverska sam-
bandsríkinu Tamil Nadu.
Tarfarnir tamdir á uppskeruhátíð
Reuters
Norðmenn fluttu út meira af eldis-
laxi á liðnu ári en nokkru sinni fyrr,
að því er fram kemur á fréttavef
norska ríkisútvarpsins. Norðmenn
fluttu út 840.000 tonn af laxi á
árinu, en það jafngildir tólf millj-
ónum máltíða á hverjum degi í eitt
ár, að sögn vefjarins. Norskir sér-
fræðingar spá því að útflutningur-
inn aukist í ár vegna mikillar eftir-
spurnar á nýjum mörkuðum.
Metútflutningur
á eldislaxi
NOREGUR
á þriðjudögum
ÚT ÚR SKÁPNUM
- Gnnlaugur Bragi.
„Kærastan
var sú fyrsta
sem ég
sagði frá
samkyn-
hneigð minni“