Morgunblaðið - 17.01.2012, Qupperneq 29
Minnisbók Sigurðar Páls-sonar frá 2007 reyndistein af notalegri lesn-ingum þess árs og hlaut
höfundur Íslensku bókmenntaverð-
launin fyrir. Meðal þess sem gerði þá
bók athyglisverða var endurtekin
áminning skáldsins að ekki væri um
frásögn af atburðum að ræða, heldur
frásögn af minningum, eins vel og
réttilega framsettum og kostur væri.
Sigurður snerti þarna ákveðinn
streng og því rökrétt að taka næsta
slag og rita álíka minnisbók sem úti-
star uppvaxtarárin á Skinnastað í
Norður-Þingeyjarsýslu. Honum
bregst heldur ekki bogalistin frekar
en fyrri daginn; Bernskubók er mikil
indælislesning.
Það verður ekki af Sigurði skafið
að hann kann með málið að fara. Stíll-
inn leikur í höndum hans svo unun er
að lesa. Með því að ljá hversdags-
legum atvikum og aðstæðum
skemmtilega rómantískan blæ lífgar
hann æskuárin við án þess að missa
fótanna í tilfinningaflóði eða tilgerð.
Æska höfundar á Skinnastað var ef-
laust um margt hefðbundin fyrir sinn
tíma, ekki dramatískari en gengur og
gerist. Þó er hún full af hvunndags-
ævintýrum og eftirminnilegum atvik-
um. Upplifa ekki flestir æskuna með
einmitt þessum hætti: Sem viðvar-
andi ævintýri meðan hún er, sem
ómerkilegan barnaskap þegar maður
stálpast og loks sem ævintýri á ný
þegar fram í sækir? Alltént virka
minningabrot Sigurðar hin trúverð-
ugustu og ekki síst þegar hann lýsir
því á angurværan hátt hvernig sveita-
drengurinn þroskast yfir í borg-
arbarn. Hann gerir sér fulla grein
hvaðan hann er og hvar uppruni hans
liggur en á tilteknum tímapunkti er
ekki lengur að neinu að hverfa og
hann sér æskuslóðirnar með augum
aðkomumanns. Þessi umskipti eru
vitaskuld lýsandi fyrir kynslóð Sig-
urðar, þegar byggð í strjálbýli leggst
af í auknum mæli þar eða unga fólkið
sækir óðum í þéttbýlið.
Sigurður horfir dreyminn um öxl
og læðir inn, máli sínu til nokkurs
stuðnings, skemmtilega beittum og
verðskulduðum ádeilupillum á trunt-
una sem nútíminn er, hér og hvar.
Það er ekki laust við að sú tilfinn-
ing sæki að lesanda að höfundur hafi
skrifað Bernskubók fyrir sjálfan sig,
ekki síður en fyrir lesendur. Hvernig
hann rifjar upp þungar eikarborð-
plötur, sauðkindur með nafni, löngu
látna ættingja, sláttutún og staðhætti
innan dyra sem utan er sjálfsagt Sig-
urði jafndýrmætt upprifjunar og það
er lesendum ljúft aflestrar. Hann
segir sjálfur þegar síga tekur á seinni
hluta þessarar úrvalsbókar að allt
sem ekki breytist í texta, það hverfi.
Góðu heilli hefur hann hér með varð-
veitt úrval af óskaplega fínum augna-
blikum sem eitt sinn áttu sér stað og
stund í veröld sem var. Fyrir hlut-
deild í þeim er ekki hægt að vera ann-
að en þakklátur.
Sveitapiltsins minningar
Bernskubók bbbbn
Eftir Sigurð Pálsson.
JPV útgáfa, 2011. 287 bls.
JÓN AGNAR
ÓLASON
BÆKUR
Morgunblaðið/Einar Falur
Sigurður Pálsson „Stíllinn leikur í höndum hans svo unun er að lesa.“
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 2012
Langt fyrir utan ystu skóga
bbbbn
Sönglög eftir ýmsa höfunda í flutningi
Ásgerðar Júníusdóttur messósópran.
Undirleikur: Jónas Sen ásamt Sveit-
inni. Stúdíó Sýrland. Útgáfa: Smekk-
leysa 2010.
Ásgerður Júní-
usdóttir hefur
komið víða fram,
bæði sem söng-
kona og leik-
kona, á síðustu
árum og er því
ekki einhöm í list sinni. Hér syngur
hún söngva þriggja íslenskra tón-
skálda, Bjarkar Guðmundsdóttur,
Gunnars Reynis Sveinssonar og
Magnúsar Blöndal Jóhannssonar.
Kennir því hér ýmissa áhrifa, dæg-
urtónlist, djass, lagræna og óm-
stríður kallast hér á. Útsetningar
eru í höfuðatriðum í höndum Jón-
asar Sen og Péturs Grétarssonar
og má segja að í þeim sé ákveðinn
þráður, sem sameinar þessa ólíku
áhrifaþætti og gefur þeim heildar-
svip. Ásgerður hefur ákaflega blæ-
brigðaríka og fallega rödd, sem að
hentar þessari tónlist ákaflega vel.
Gaman er til dæmis að heyra
Bjarkar-lögin í nýrri mynd frá
hennar hendi. Sveitina að baki
skipa síðan Jónas Sen, Pétur Grét-
arsson, Þórður Högnason, Kjartan
Valdemarsson og Óskar Guð-
jónsson, sem allir standa sig með
mikilli prýði að vanda. Upptökur
og hönnun umslags eru til sóma,
sem gerir þennan hljómdisk hinn
eigulegasta.
Sönglög Sigursveins D.
Kristinssonar bbbbn
Sönglög eftir Sigursvein D. Krist-
insson. Flytjendur: Sigrún Valgerður
Gestsdóttir söngur, Kristinn Örn Krist-
insson píanó, Einar Jóhannesson klar-
inett. Víðistaðakirkja. Útgáfa: Smekk-
leysa 2011.
Sigursveinn D.
Kristinsson var
ef til vill flestum
kunnur vegna
Tónskólans, sem
hann stofnaði
með stuðningi fé-
laga sinna árið 1964 og starfar enn.
Hann var mikill verkalýðssinni og
var stofnun skólans og einnig
Lúðrasveitar verkalýðsins hluti af
lífssýn hans að bætt lífskjör fælust
ekki eingöngu í efnislegum gæðum.
Færri þekkja til Sigursveins sem
tónskálds en eftir hann liggja
fjöldamörg sönglög og útsetningar
þjóðlaga. Hér er komin heildar-
útgáfa þessara laga, sem er mikill
fengur unnendum íslenskrar söng-
listar og mikill sómi af. Listamenn-
irnir Sigrún, Kristinn og Einar
flytja okkur tónlist Sigursveins af
næmi og smekkvísi. Hér kennir
ýmissa grasa. Sum laganna eru
söngvænni eins og til dæmis bar-
áttulagið Fylgd við texta Guð-
mundar Böðvarssonar. Önnur eru
ómstríðari en gegnumgangandi eru
sterk áhrif íslenskrar þjóðlaga-
hefðar. Upptökur fóru fram í Víði-
staðakirkju, sem af þessu að dæma
hentar vel til slíkra verka. Allur
umbúnaður og frágangur safnsins
er hinn glæsilegasti, meðal annars
með ítarlegu æviágripi Sigursveins
og öllum textum, bæði á íslensku
og ensku.
SNORRI
VALSSON
TÓNLIST
Íslensk sönglög
Morgunblaðið/Kristinn
Söngkonan „Ásgerður hefur ákaflega blæbrigðaríka og fallega rödd, sem
að hentar þessari tónlist ákaflega vel,“ segir í umfjölluninni.
Fanný og Alexander (Stóra sviðið)
Mið 18/1 kl. 20:00 aukas Mið 15/2 kl. 20:00 7.k Fim 8/3 kl. 20:00
Sun 22/1 kl. 20:00 aukas Fim 16/2 kl. 20:00 8.k Fös 9/3 kl. 20:00
Mið 25/1 kl. 20:00 4.k Fös 17/2 kl. 20:00 9.k Lau 17/3 kl. 20:00
Fim 26/1 kl. 20:00 aukas Fim 23/2 kl. 20:00 aukas Fös 23/3 kl. 20:00
Sun 29/1 kl. 20:00 aukas Fös 24/2 kl. 20:00 10.k Lau 31/3 kl. 20:00
Sun 5/2 kl. 20:00 5.k Lau 25/2 kl. 20:00 aukas Sun 1/4 kl. 20:00
Fim 9/2 kl. 20:00 6.k Fim 1/3 kl. 20:00 11.k
Fös 10/2 kl. 20:00 aukas Fös 2/3 kl. 20:00 12.k
Hin stórbrotna fjölskyldusaga loks á svið
Galdrakarlinn í Oz (Stóra sviðið)
Lau 21/1 kl. 14:00 Lau 4/2 kl. 14:00 Lau 18/2 kl. 14:00
Sun 22/1 kl. 14:00 Sun 5/2 kl. 14:00 Sun 19/2 kl. 14:00
Lau 28/1 kl. 14:00 Lau 11/2 kl. 14:00 Lau 25/2 kl. 14:00
Sun 29/1 kl. 14:00 Sun 12/2 kl. 14:00 Sun 26/2 kl. 14:00
Einn vinsælasti fjölskyldusöngleikur allra tíma
Kirsuberjagarðurinn (Stóra sviðið)
Fim 19/1 kl. 20:00 Fös 20/1 kl. 19:00 Fös 27/1 kl. 19:00 lokas
Síðustu sýningar í janúar!
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið)
Lau 21/1 kl. 19:00 Fös 3/2 kl. 20:00
Lau 28/1 kl. 20:00 Lau 18/2 kl. 20:00
Gríman: Áhorfendasýning ársins 2011
Eldhaf (Nýja sviðið)
Fim 26/1 kl. 20:00 frums Fös 10/2 kl. 20:00 aukas Fös 24/2 kl. 20:00 12.k
Sun 29/1 kl. 20:00 aukas Lau 11/2 kl. 20:00 7.k Lau 25/2 kl. 20:00 aukas
Mið 1/2 kl. 20:00 2.k Sun 12/2 kl. 20:00 aukas Sun 26/2 kl. 20:00 aukas
Fim 2/2 kl. 20:00 3.k Mið 15/2 kl. 20:00 8.k Mið 29/2 kl. 20:00 13.k
Lau 4/2 kl. 20:00 aukas Fim 16/2 kl. 20:00 aukas Fim 1/3 kl. 20:00 14.k
Sun 5/2 kl. 20:00 4.k Fös 17/2 kl. 20:00 9.k Fös 2/3 kl. 20:00 15.k
Mið 8/2 kl. 20:00 5.k Sun 19/2 kl. 20:00 10.k Sun 4/3 kl. 20:00 16.k
Fim 9/2 kl. 20:00 6.k Fim 23/2 kl. 20:00 11.k
Magnað og spennuþrungið leikrit
Axlar - Björn (Litla sviðið)
Mið 18/1 kl. 20:00 3.k Lau 4/2 kl. 20:00 aukas Lau 18/2 kl. 20:00 9.k
Sun 22/1 kl. 20:00 4.k Sun 5/2 kl. 20:00 7.k Sun 19/2 kl. 20:00
Mið 25/1 kl. 20:00 5.k Lau 11/2 kl. 20:00 8.k Lau 25/2 kl. 20:00
Fim 26/1 kl. 20:00 6.k Sun 12/2 kl. 20:00 aukas Sun 26/2 kl. 20:00
Nýtt verk úr smiðju Vesturports
Nýdönsk í nánd (Litla sviðið)
Fös 20/1 kl. 22:00 5.k Lau 21/1 kl. 22:00 lokas
Aftur á svið - aðeins þessar sýningar
Saga Þjóðar (Litla svið)
Fös 27/1 kl. 20:00 Fim 2/2 kl. 20:00 Fim 9/2 kl. 20:00
Lau 28/1 kl. 20:00 Fös 3/2 kl. 20:00 Fös 10/2 kl. 20:00
Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum
Heimsljós (Stóra sviðið)
Lau 21/1 kl. 19:30 8.sýn Lau 4/2 kl. 19:30 12.sýn Lau 18/2 kl. 19:30 14.sýn
Sun 22/1 kl. 19:30 9.sýn Sun 5/2 kl. 19:30 13.sýn Sun 19/2 kl. 19:30 15.sýn
Lau 28/1 kl. 19:30 10.sýn Lau 11/2 kl. 19:30 1.auka Lau 25/2 kl. 19:30 16.sýn
Sun 29/1 kl. 19:30 11.sýn Sun 12/2 kl. 19:30 2.auka Sun 26/2 kl. 19:30 17.sýn
Frumsýnt annan í jólum 2011
Svartur hundur prestsins (Kassinn)
Fim 19/1 kl. 19:30 AUKAS. Lau 21/1 kl. 19:30 síð.sýn. Lau 28/1 kl. 19:30 AUKAS.
Fös 20/1 kl. 19:30 37.s Fös 27/1 kl. 19:30 AUKAS.
Sýningum lýkur í janúar!
Hreinsun (Stóra sviðið)
Fös 20/1 kl. 19:30 AUKAS.
Sýningum lýkur í janúar!
Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu (Kúlan)
Sun 22/1 kl. 13:30 10.sýn Sun 29/1 kl. 15:00 13.sýn Sun 12/2 kl. 13:30
Sun 22/1 kl. 15:00 11.sýn Sun 5/2 kl. 13:30 Sun 12/2 kl. 15:00
Sun 29/1 kl. 13:30 12.sýn Sun 5/2 kl. 15:00
Hjartnæm og fjörmikil sýning
Miðasala sími: 571 5900
ALVÖRUMENN
“Hér er valinn maður í hverju rúmi...
Leikurinn er upp á fimm stjörnur.”
-Elísabet Brekkan, Fréttablaðið.
- harpa alþýðunnar
FÖS 20/01
L AU 21 /01
FÖS 27/01
KL . 20:00 NÝ SÝNING
KL . 22:00 NÝ SÝNING
KL . 20:00 NÝ SÝNING
GLEÐILEGT NÝTT
LEIKHÚSÁR