Morgunblaðið - 17.01.2012, Síða 30
Litdeplar Gestur virðir fyrir sér eitt
verka Hirst á sýningu hans í London.
Breski myndlistarmaðurinn Damien
Hirst hefur á undanförnum árum
verið stórtækur í sýningarhaldi og
sölu verka; fáir ef nokkrir samtíma-
listamenn hafa þénað jafn vel á list-
sköpun sinni. Um þessar mundir er
Hirst með einkasýningar í öllum ell-
efu galleríum Larry Gagosians, eins
helsta gallerista samtímans. Og á
öllum sýningunum, hvort sem þær
eru í New York, London, París,
Hong Kong eða í Aþenu, má sjá
sama þátt í sköpun listamannsins:
málverk með litríkum hringjum eða
deplum. The Complete Spot Paint-
ings 1986-2011 nefnist sýningaröðin.
Á sýningunum eru um 300 verk, frá
mjög stórum málverkum á striga
niður í örlítil; frá myndum með ein-
um litríkum hring upp í 25.781 eins
millimetra breiða depla í risastóru
verki sem sýnt er á Manhattan.
Hirst lætur aðstoðarfólk sitt yfir-
leitt um að mála og gagnrýndi landi
hans, málarinn David Hockney,
hann fyrir það á dögunum.
Samkvæmt The Guardian hefur
Hirst gengist við því að láta starfs-
fólk sitt sjá um vinnuna við verkin,
enda finnist honum hin líkamlega
vinna við málverkið „leiðinleg“.
Hann bendir þó jafnframt á að löng
hefð sé fyrir aðkomu aðstoðar-
manna að verkum meistaranna.
Óvíst er hver mörg deplaverk
Hirst hefur málað um dagana, sam-
hliða því að sýna dauðar skepnur í
formalíni, fiðrildamálverk, dem-
antahauskúpu og sitthvað annað.
Hirst sýn-
ir í ellefu
galleríum
Um 300 depla-
málverk til sýnis
Umdeildur spænskur myndlistar-
maður, Santiago Sierra, hóf röð
gjörninga í Reykjavík í gær þegar
hann lét vörubíl með flennistóran
skúlptúr sem gerður er úr stöfunum
NO standa fyrir framan Alþingis-
húsið skömmu áður en Alþingi hófst
aftur eftir jólaleyfi þingmanna.
Eftir að skúlptúrinn hafði staðið
við þinghúsið um stund, var bíllinn
fluttur að aðalstöðvum Landsbank-
ans og þar var verkið í einn og hálfan
tíma.
Sierra opnar sýningu í Listasafni
Reykjavíkur á föstudagskvöldið
kemur. Dagsetningin mun ekki vera
tilviljun, því þann dag verða þrjú ár
liðin síðan söguleg mótmæli voru
haldin á Austurvelli þegar þúsundir
manna söfnuðust þar saman.
Dagana fram að opnun sýningar-
innar mun listamaðurinn fram-
kvæma gjörninga sína, þar sem
hann stillir upp NO-skiltinu á vöru-
bílnum, og hefur hann valið marga
staði innan borgarmarkanna fyrir
verkið. Allir tengjast staðirnir ádeilu
hans á kapítalískt markaðshagkerfi
og efnahagshrunið á Íslandi á ein-
hvern hátt. NO-skúlptúrinn er
þriggja metra hár og vegur um eitt
og hálft tonn.
NO, Global Tour-gjörningar
Sierra hér eru hluti af stærra verk-
efni listamannsins sem hefur staðið
yfir víða um heim frá árinu 2009 en
þá birtist þessi neitandi skúlptúr
fyrst í borginni Lucca á Ítalíu. Ferð-
in með hann þá var fest á filmu, líkt
og nú er gert, og var fyrsti hluti
myndar um ferðalagið sýndur á
Kvikmyndahátíðinni í Berlín í fyrra.
Engir sakbitnir leita vinnu
Á sýningunni á verkum Sierra
sem verður opnuð á föstudag verður
í fyrsta sinn sýnt heildarsafn allra
heimildarkvikmynda og myndbanda
hans, 51 talsins, en margar þeirra
eru afar umdeildar og stranglega
bannaðar börnum. Í heild er mynd-
efnið tæplega fimmtíu klukkustund-
ir en verkin eru allt frá einnar mín-
útu löng upp í tvær klukkustundir.
Um helgina auglýsti Listasafn
Reykjavíkur eftir að ráða í launað
skammtímaverkefni fyrir listgjörn-
ing Sierra fyrrverandi eða núver-
andi starfsmenn fjármálastofnana
„sem eru sakbitnir vegna hlut-
deildar sinnar í ríkjandi efnahags-
ástandi“. Að sögn Soffíu Karls-
dóttur, markaðs- og kynningarstjóra
Listasafns Reykjavíkur, höfðu engir
sakbitnir fjármálamenn gefið sig
fram ennþá í gær. efi@mbl.is
Gjörningur við Alþingi
Spænski listamaðurinn Santiago Sierra með NO, Global Tour-gjörning við
Alþingi og Landsbankann í gær Fleiri áfangastaðir á næstu dögum
Morgunblaðið/Ómar
Neitun Tröllvaxið „Nei“ Santiagos Sierra birtist á vörubílspalli fyrir framan Alþingishúsið skömmu fyrir þingsetningu í gær.
Morgunblaðið/Ómar
Við Landsbankann Annar viðkomustaður NO-gjörnings Santiagos Sierra
var í Pósthússtræti, fyrir framan höfuðstöðvar Landsbankans.
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 2012
Hún gæti átt góðu
gengi og mikilli
aðsókn að fagna um
nokkurn tíma 33
»
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta kom mér mjög skemmtilega á
óvart,“ segir Rósalind Gísladóttir,
óperusöngkona og söngkennari við
Tónlistarskóla Grindavíkur, sem ný-
verið sigraði í söngkeppninni Barry
Alexander International Vocal Com-
petition (BAVIC). Í sigurlaun fær
hún að syngja einsöng í hinu víð-
fræga tónlistarhúsi Carnegie Hall í
New York 29. janúar nk. „Þetta
verður góð reynsla auk þess sem það
er frábært að fá að syngja í svona
flottu húsi,“ segir Rósalind. Spurð
hvort hún geri sér vonir um að tón-
leikarnir geti reynst henni stökk-
pallur inn í tónlistarheiminn erlendis
segir Rósalind að tíminn einn verði
að leiða það í ljós.
BAVIC-keppnin skiptist í fjóra
flokka og keppti Rósalind í flokki at-
vinnumanna. Að sögn Rósalindar
sendir hver keppandi inn nokkrar
hljóð- og myndupptökur af sér frá
ólíkum tónleikum og eru úrslitin
ákveðin á grundvelli þeirra. „Mér
finnst þetta að því leyti mjög sann-
gjörn keppni að dómnefndin leitast
við að meta hvernig söngvarar
standa sig undir eðlilegum að-
stæðum á tónleikum frekar en undir
keppnispressu og reyna að taka inn í
reikninginn allt sem góður söngvari
þarf að hafa til brunns að bera,“ seg-
ir Rósalind. Alls hlutu sex söngvarar
frá fimm löndum fyrstu verðlaun í
flokki atvinnumanna í keppninni í ár
og koma þeir allir fram á fyrr-
nefndum tónleikum.
Undirbúningur kominn á fullt
Aðspurð segir Rósalind undirbún-
ing tónleikanna standa sem hæst um
þessar mundir. „Maður þarf auðvit-
að að þekkja textann og aðstæður
óperupersónanna vel til þess að geta
túlkað tónlistina sem skyldi. Ég fæ
að syngja 20 mínútna prógramm
sem gerir þrjár til fjórar aríur,“ seg-
ir Rósalind og tekur fram að hún sé
enn ekki alveg búin að velja, en arí-
urnar sem til greina komi séu
dramatískar aríur á borð við O don
fatale sem Eboli syngur í Don Carlo
eftir Verdi, Condotta sem Azucena
syngur í Il Trovatore eftir Verdi sem
og sígaunasöngur Carmenar úr sam-
nefndri óperu eftir Bizet þar sem
meiri glens og gleði er ríkjandi.
„Ég hef í gegnum tíðina mest
sungið Mozart og Rossini, þannig að
ef ég vildi sýna mikla breidd í rödd-
inni þá myndi ég syngja kóloratúrar-
íuna Una voce poco fa sem Rosina
syngur í Rakaranum í Sevilla eftir
Rossini. Ég hef alltaf litið á mig sem
lýrískan mezzósópran, en raddlega
er ég stödd mitt á milli þess að vera
dramatískur mezzósópran og kólor-
atúrmezzósópran. Það gæti því verið
gaman að sýna að ég ráði vel við
hvort tveggja,“ segir Rósalind og
tekur fram að hún sæki um þessar
mundir einkatíma hjá Kristjáni Jó-
hannssyni óperusöngvara. „Hann er
að syngja mig yfir í meira drama og
mér líður mjög vel í því. Það er því
erfitt að velja á milli því þetta er allt
svo skemmtilegt.“
Rósalind Gísladóttir sigraði í BAVIC-söngkeppninni
Fær að sigurlaunum að syngja í Carnegie Hall nú í janúar
Túlkun Rósalind Gísladóttir mezzósópran fær að syngja þrjár til fjórar arí-
ur á tónleikunum í Carnegie Hall sem fram fara 29. janúar nk.
„Þetta verður góð reynsla“