Morgunblaðið - 30.01.2012, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Heyrðu umskiptin
Fáðu heyrnartæki til reynslu
Tímapantanir 534 9600
Heyrn · Hlíðasmári 11
201 Kópavogur · heyrn.isHEYRNARÞJÓNUSTA
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Klæðningin hefur farið af á um 50
metra kafla en ekki á öllum veginum.
Það var aðeins helmingurinn af ann-
arri akreininni sem fór. Nú er búið
að gera við þetta til bráðabirgða með
því að moka upp í kantinn og veginn.
Það verður ekki hægt að malbika
þarna fyrr en það fer að hlýna í apríl
eða maí,“ sagði Bjarni Jón Finnsson,
yfirverkstjóri Vegagerðarinnar í Vík
í Mýrdal, um skemmdir sem urðu á
þjóðveginum á Skeiðarársandi
vegna asahláku um helgina.
„Það var ekki hlaup sem olli þessu.
Vatnselgurinn flæddi yfir veginn.
Ræsin höfðu ekki undan. Það hefur
aðeins einu sinni komið fyrir síðan ég
byrjaði hjá Vegagerðinni árið 1977
að klæðningin fer vegna hláku.
Helgin var að því leyti óvenjuleg.“
Langdregin snjóatíð
Ólafur Eggertsson, bóndi á Þor-
valdseyri undir Eyjafjöllum, segir
langvinn snjóalög hafa tekið upp í
vætutíðinni um helgina.
„Nú er snjórinn farinn og vegur-
inn auður. Hér var úrhellisrigning í
hartnær sólarhring. Löngum kafla
er því lokið. Það er ef til vill ekki svo
snjóþungt en það hefur verið snjór á
jörðu samfellt síðan í desember og út
janúar. Það er óvenjulegt. Ég hef bú-
ið hér alla ævi og man ekki eftir
svona ástandi í seinni tíð. Maður er
satt að segja orðinn hálfleiður á
þessari vestanátt þegar hún er hér.
Hún er aldrei skemmtileg.“
Komu í veg fyrir stórtjón
Ólafur segir viðbúnað koma í veg
fyrir tjón. „Það óx mikið í Svaðbæl-
isánni í umhleypingunum. Í þessum
töluðum orðum eru tvær gröfur að
grafa við brúna og þar er kominn
stærðarinnar haugur. Gröfumenn-
irnir hafa verið að í sólarhring og
eiga lof skilið. Forsenda þess að Suð-
urlandsvegur hefur ekki rofnað er að
vel hefur verið hugsað um að grafa
frá brúnni neðan þjóðvegar. Það hef-
ur varnað tjóni að halda ánni í far-
vegi sínum. Ef hún hefði flætt yfir
bakka sína og á túnin hefði það vald-
ið stórtjóni. Hún er kolsvört askan
sem er mokað upp úr farveginum.
Áin tekur með sér efnið sem lagðist í
hana í gosinu í Eyjafjallajökli,“ sagði
Ólafur um ellefuleytið í gærkvöldi.
Hlýtt var í veðri um allt land um
helgina og fór hitinn í 15,2 stig á
Siglufirði, að því er fram kemur á vef
Veðurstofu Íslands. Úrkoma var
mest á Kvískerjum eða 97,8 mm.
Jökulhlaup varð í Gígjukvísl en
það þótti ekki áhyggjuefni. Þá var
óvissuástandi vegna snjóflóðahættu
aflýst á norðanverðum Vestfjörðum í
gærmorgun.
Umhleypingar
bera fram gosefni
Sólarhringsmokstur við Svaðbælisá
Morgunblaðið/Þorgeir Sigurðsson
Vatnavextir Gröfumenn tryggðu að Svaðbælisá flæddi ekki upp úr farvegi sínum í umhleypingunum um helgina.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Formlegar meirihlutaviðræður eru
enn ekki hafnar í Kópavogi en funda-
höld á milli fulltrúa Samfylkingar-
innar, Vinstri grænna og Sjálfstæð-
isflokksins héldu áfram í gærkvöldi.
Fulltrúarnir ætla að funda með sínu
baklandi í dag en ekki hefur verið
ákveðið um framhald viðræðna.
Flokkarnir funduðu síðast óform-
lega sín á milli á föstudagskvöldið en
á laugardag og fyrrihluta dags í gær
funduðu fulltrúar þeirra hver um sig
með sínu baklandi áður en viðræðum
var haldið áfram um sexleytið í gær-
kvöldi.
Erfitt að vinna hraðar
Fulltrúar flokkanna vildu ekkert
tjá sig efnislega um hvað fór fram á
fundinum eftir að honum lauk á tí-
unda tímanum en voru þó sammála
um að hann hefði verið gagnlegur.
„Þessi fundur var nauðsynlegur
og góður. Það kom margt fram á
honum. Við fórum yfir málin og velt-
um við steinum. Nú fara allir og tala
við sitt bakland á morgun [í dag].
Það er erfitt að vinna þetta hraðar,“
sagði Guðríður Arnardóttir, oddviti
Samfylkingarinnar, í samtali við
Morgunblaðið að fundi loknum.
Hún segist vera bjartsýn á við-
ræðurnar og að þær séu á réttri leið.
Ekki hafi verið settur neinn tíma-
rammi um hvenær viðræðunum eigi
að vera lokið.
„Það er of snemmt að segja til um
það,“ segir hún.
Hver með sínar áherslu
Ármann Kr. Ólafsson, oddviti
sjálfstæðismanna, segir að það velti
á því hversu vel gangi hjá flokkunum
að vinna heimavinnuna innan eigin
raða hvenær viðræðunum verði
haldið áfram.
„Flokkarnir mættu hver með sín-
ar áherslur. Sums staðar skildi tals-
vert mikið á milli, annars staðar var
lítið sem skildi á milli og í enn öðrum
tilfellum voru þeir með sömu
áhersluatriðin,“ segir Ármann sem
vill ekkert tjá sig efnislega um fund-
inn í gærkvöldi.
Enn er ekki hægt að tala um form-
legar viðræður um myndun meiri-
hluta á milli flokkanna þriggja að
sögn Ármanns en fólk sé að reyna að
nálgast hvað annað og það sé gert af
fullum heilindum.
„Við skildum þannig að skiptum
að þetta væri ekki óvinnandi vegur
að brúa þetta bil,“ segir hann.
Viðræðurnar
enn ekki orðn-
ar formlegar
Ræða framhaldið í baklandinu í dag
Ekki óvinnandi vegur að brúa bilið
Ræða um meirihluta
» Meirihluti Samfylkingar,
Vinstri grænna, L-listans og
Næstbesta flokksins sprakk
þegar fulltrúi síðastnefnda
flokksins sleit samstarfinu um
miðjan mánuðinn.
» Ágreiningur var um hvernig
staðið var að uppsögn Guð-
rúnar Pálsdóttur bæjarstjóra.
» Bæjarstjórn Kópavogs er
skipuð ellefu bæjarfulltrúum.
Saman hafa sjálfstæðismenn,
Samfylking og VG átta bæj-
arfulltrúa.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Sjópróf vegna togarans Hallgríms
SI-77 sem sökk í sjónum fyrir utan
Noreg á miðvikudag eru hafin. Að
sögn Inga Tryggvasonar, formanns
rannsóknarnefndar sjóslysa, er þeg-
ar byrjað að afla gagna hér heima
um skipið. Meirihluti gagnanna sé
hins vegar í Noregi hjá björgunar-
aðilum og á nefndin enn eftir að fá
þau í hendur.
Ekki hefur enn verið rætt við
skipverjann sem bjargað var en
hann kom til landsins á föstudag.
Ingi segist vonast til þess að sjópróf-
inu verði að mestu leyti lokið í næsta
mánuði.
Samkvæmt upplýsingum frá
björgunarmiðstöð Suður-Noregs
sem hafði umsjón með björgunar-
aðgerðunum á miðvikudag hefur
allri leit að skipinu og líkum sjó-
mannanna þriggja sem fórust verið
hætt. Þá berst ekki lengur neyð-
armerki frá slysstaðnum.
Bíða gagna frá
björgunaraðilum
Sigurður Ægisson
Bryggja Hallgrímur SI-77 í höfn.
Sigurður Sigmundsson, gröfu-
maður hjá Suðurverki, hefur
ásamt félögum sínum haft í
nógu að snúast síðustu miss-
eri vegna vatnavaxta í Svað-
bælisá í sandinum undir Eyja-
fjöllum.
„Ég byrjaði að setja nýja
garða við ána eftir eðjuflóðið
frá jöklinum fyrir tveim árum.
Síðan er ég búinn að vera
þarna meira og minna. Það
koma iðulega hlaup í ána. Þá
er allt undir, túnin, lendurnar,
þjóðvegurinn og brúin sem við
erum að reyna að verja... Ætli
ég hafi ekki byrjað klukkan
hálfþrjú í nótt [fyrrinótt].“
– En ertu hræddur, einn á
gröfunni við ána í myrkrinu?
„Nei, nei. Það held ég ekki.
Það er að vísu svolítið
óhugnanlegt að fást við hana
um miðjan vetur í náttmyrkri.
Hún er stundum óhugnaleg
áin. En ég er ekki lífhræddur,“
sagði Sigurður Sigmundsson.
Óhugnaður
við mokstur
í náttmyrkri
ANNIR HJÁ GRÖFUMANNI
Ung kona sem ekið var á við Hörpu
í miðborg Reykjavíkur á sjöunda
tímanum í gærkvöldi virtist hafa
sloppið vel og var líkleg til út-
skriftar þegar rætt var við lækni á
slysadeild Landspítalans á ellefta
tímanum í gærkvöldi.
Að sögn lögreglu voru tildrög
slyssins óljós en farið var með kon-
una á slysadeild Landspítalans.
Slapp vel úr bílslysi
við Hörpu
Tilkynnt var um reyk frá íbúð á
Rauðarárstíg á sjöunda tímanum í
gærkvöldi. Þegar slökkvilið höfuð-
borgarsvæðisins kom á vettvang
reyndist pottur hafa gleymst á
eldavél en íbúðin var mannlaus.
Samkvæmt upplýsingum frá
slökkviliðinu virtist ekki hafa orðið
mikið tjón.
Pottur gleymdist á
eldavél