Morgunblaðið - 30.01.2012, Side 7
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 2012
Landsbankinn landsbankinn.is 410 4040
Sjóðurinn fjárfestir í dreifðu safni
skuldabréfa, hlutabréfa og hlut-
deildarskírteina. Grunnfjárfesting
sjóðsins er í verðbréfum með
ábyrgð ríkisins. Þannig verður
áhættan meiri en í hreinum ríkis-
skuldabréfasjóðum og vænt ávöxtun
til lengri tíma hærri.
Reglubundinn sparnaður
Með reglubundnum sparnaði
í sjóðum getur þú byggt upp
eignasafn með áskrift frá 5.000 kr.
á mánuði. Enginn munur er á kaup-
og sölugengi í áskrift. Sparnað í
sjóðum má alltaf innleysa.
Eignabréf – Eignasamsetning 01.01.2012
Eignasamsetning ræðst af fjárfestingarstefnu og markaðsaðstæðum hverju sinni.
Fjárfestingarstefnu má finna í útboðslýsingu á landsbankinn.is.
Fyrirvari: Eignabréf er fjárfestingarsjóður samkvæmt
lögum nr. 128/2011 og lýtur eftirliti Fjármálaeftirlitsins.
Landsvaki hf. er rekstrarfélag sjóðsins og Landsbankinn
hf. vörslufélag hans. Áhætta fylgir ávallt fjárfestingu
í sjóðum þar sem gengi þeirra getur bæði hækkað og
lækkað. Ávöxtun í fortíð gefur ekki vísbendingu um
framtíðarávöxtun. Nánari upplýsingar um sjóðinn má
finna í útboðslýsingu eða útdrætti úr henni á landsvaki.is
eða landsbankinn.is. Fjárfestum er bent á að kynna sér
útboðslýsinguna áður en fjárfest er í sjóðnum, en þar er
meðal annars ítarleg umfjöllun um fjárfestingarstefnu
sjóðsins og áhættu sem felst í fjárfestingu í honum.
Eignabréf er nýr blandaður fjárfestingarsjóður
sem hentar vel fyrir reglubundinn sparnað.
Sjóðurinn hentar vel í langtímasparnað fyrir
einstaklinga sem vilja ávaxta hluta af sparnaði
sínum í öðrum verðbréfum en ríkisskuldabréfum.
Komdu við í næsta útibúi, hringdu í 410 4040 eða sendu okkur póst
á fjarmalaradgjof@landsbankinn.is.
Nýr kostur
í sparnaði
Skuldabréf, víxlar
og aðrar kröfur með
ríkisábyrgð
83%
Hlutabréf9%
Reiðufé7%
Innlán hjá fjármála-
fyrirtækjum
1%
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Lítið hótel sem var opnað í gömlu
skólahúsnæði í Mýrdal í fyrrasum-
ar hefur fengið sérlega lofsamleg
ummæli hjá gestum. Það hefur
dregið aðra gesti að. Útlitið fyrir
þetta ár er gott.
„Það hafði lengi blundað með
okkur að vera með lítið hótel í
háum gæðaflokki,“ segir Margrét
Birgisdóttir sem rekur Volcano
hotel í Ketilsstaðaskóla með manni
sínum, Jóhanni Vigni Hróbjarts-
syni, bróður hans og mágkonu,
Einari Hróbjartssyni rafvirkja og
Þyri Gunnarsdóttur ferðamála-
fræðingi. Öll stunda þau aðra
vinnu. Margrét rekur til að mynda
snyrtistofu í Vík. Vegna áhuga síns
á ferðaþjónustu fór hún í ferða-
málanám við Háskólann á Hólum í
fyrravetur.
Byrjuðu á jeppaferðum
Hugmynd Jóhanns og Margrétar
gekk út á það að þjóna gestum vel,
meðal annars með því að bjóða upp
á jeppaferðir. Áður en til þess kom
að þau keyptu Ketilsstaðaskóla
voru þau búin að kaupa ofurjeppa
og ætluðu að byrja á ferðunum. Jó-
hann segir að þótt fjöldi herbergja
í gistiheimilum og hótelum í Mýr-
dal hafi margfaldast á undan-
förnum árum hafi afþreying fyrir
gestina ekki fylgt með.
Síðan gafst þeim tækifæri til að
kaupa húsið sem áður þjónaði
sveitinni sem skóli og félagsheimili.
Jóhann rekur smíðafyrirtæki og
innréttaði hótelið ásamt Einari
bróður sínum, eftir hugmyndum
Margrétar. Ekki þarf að spyrja um
ástæður nafngiftarinnar. Volcano
hotel er undir Mýrdalsjökli, í ná-
grenni við þekktar eldstöðvar.
Í hótelinu eru sjö tiltölulega stór
gistiherbergi auk rúmgóðrar setu-
og veitingastofu.
Þau eiga enn eftir að ljúka við
frágang utanhúss og útisvæðis.
Það hefur lítið komið að sök í vetur
þar sem allt hefur verið á kafi í
snjó.
Verða að fá að borða
Eigendurnir höfðu náð að kynna
hótelið nokkru áður en opnað var í
byrjun júlí og það bjargaði þeim í
sumar því lítil lausaumferð virtist
vera. Þau selja einnig sjálf á net-
inu. Nokkrar sérlega jákvæðar um-
sagnir á bókunarsíðunni Trip Advi-
sor hjálpuðu þeim síðan þegar kom
fram á haust og út á það hafa þau
fengið nokkur viðskipti í vetur. Að
vísu þarf ekki mikið því hótelið er
ekki stórt. Gestir sem tjáðu sig töl-
uðu sérstaklega um viðmót gest-
gjafanna.
Ekki var ætlunin að hafa veit-
ingasölu en þegar öllum veitinga-
stöðunum í Mýrdalnum var lokað í
haust urðu þau að bjarga gestum
sínum og bjóða upp á kvöldverð.
„Við byrjuðum smátt því gestirnir
verða að fá að borða. Við getum
ekki vísað þeim neitt annað. Þetta
hefur gengið ótrúlega vel,“ segir
Margrét.
Spjalla við þá sem vilja
Þegar vel gengur liggur beint
við að spyrja hvort ekki eigi að
stækka. Svarið er nei, að minnsta
kosti ekki í bili. „Við viljum hafa
þetta lítið, eins og það er. Það eru
nógu margir í fjöldatúrisma. Við
viljum frekar veita persónulega
þjónustu og fá gestina til að dvelja
lengur,“ segir Jóhann. Hann segir
að jeppaferðirnir séu liður í því.
„Við erum alltaf tilbúin að spjalla
við þá gesti sem það vilja og svör-
um öllum þeim spurningum sem
við getum.“
Jóhann og Margrét búa með
sonum sínum á hótelinu. „Þetta
gerir okkur kleift að hafa opið allt
árið og strákarnir okkar hafa tekið
þessu með umburðarlyndi. Ef hót-
elið verður fullt allt árið gæti þó
þurft að endurskoða þetta fyr-
irkomulag,“ segir Margrét.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Volcano hotel Margrét Birgisdóttir og Jóhann Vignir Hróbjartsson búa og
vinna á hótelinu í Ketilsstaðaskóla, sem hefur fengið jákvæð ummæli gesta.
Umtalið dregur
að fleiri gesti
Nýjasta hótelið í Mýrdal gengur vel
Elda sjálf til að geta haft opið í vetur
Mikilvægt að auka afþreyingu
Svartur sandur er víða
á gólfum og sums
staðar á veggjum Volc-
ano hotel. Hann kemur
af Mýrdalssandi og er
afrakstur verkefnis
sem Jóhann Vignir
vinnur að með félaga
sínum í Vík.
Fyrirtækið Mýrdalssandur ehf.
selur efni til sandblásturs, hrá-
efni í steinteppi og
fleiri framleiðsluvörur.
Nú hefur verið gerð-
ur samstarfssamningur
við svissneskt fyr-
irtæki um að íslenska
sandinn þar. Svarti
sandurinn eins og sá
sem tekinn er af Mýr-
dalssandi verður ekki gripinn
upp af götunni í Evrópu.
Flytja út svartan sand
SAMSTARFSSAMNINGUR VIÐ SVISSNESKT FYRIRTÆKI