Morgunblaðið - 30.01.2012, Síða 11
Glæpasagnahöfundur Agatha.
Mýrin Ingvar E. í hlutverki Erlends, aðalpersónu glæpasögunnar Mýrarinnar eftir Arnald Indriðason.
skrifaði undir nafninu Valentínus,
tveggja binda bók árið 1932, Leynd-
ardómar Reykjavíkur. Ólafur við
Faxafen var skáldanafn Ólafs Frið-
rikssonar sem skrifaði bókina Allt í
lagi í Reykjavík árið 1939 og varð hún
mjög fræg. Söngkennarinn Stein-
grímur Sigfússon skrifaði undir nafn-
inu Valur Vestan bókina Rafmagns-
morðið árið 1950. Þessar bækur eru
auðvitað börn síns tíma og voru
kannski ekkert ólíkar þeim sem höfðu
verið þýddar og voru framhaldssögur
í blöðum og tímaritum, en slíkar bók-
menntir þóttu ekki par fínar, sem
gæti verið ástæða þess að þessir
menn skrifuðu undir dulnefni.“
Alistair MacLean fyrir karla
Síðan líður langur tími, eða um
þrjátíu ár þar til næsta bylgja í ís-
lenskum glæpasögum ríður yfir. Þá
eru gefnar út bækur sem búa til jarð-
veginn fyrir glæpasöguna eins og við
þekkjum hana í dag. „Árið 1979
skrifar blaðamaðurinn Gunnar
Gunnarsson yngri bókina Gátan leyst,
og ári síðar bókina Margeir og spaug-
arinn. Báðar þessar bækur bera keim
af bókum sænsku hjónanna Sjöwall
og Wahlöö, en þær voru mjög vinsæl-
ar á þessum tíma, þýddar á íslensku
og gefnar út af virðulegu forlagi, Máli
og menningu. Fram að þeim tíma
höfðu aðallega verið þýddar og gefnar
út spennusögur eftir breska höfunda
eins og Alistair MacLean, sem voru
eiginlega bara fyrir karla, en líka ein-
staka bók eftir Agöthu Christie.“
Það er ekki fyrr en rétt fyrir
aldamótin 2000 sem nýjasta glæpa-
bylgjan ríður yfir hér á landi. „Arn-
aldur gefur út sína fyrstu bók, Syni
duftsins, árið 1997 og strax ári seinna
Dauðarósir. Viktor Arnar Ingólfsson
sendir frá sér bókina Engin spor árið
1998 og hún sló í gegn. Síðan hafa
sprottið upp margir íslenskir glæpa-
sagnahöfundar og fjölmargar glæpa-
sögur koma hér út á hverju ári.“
Í einkaspæjarasögum
glæpadrottninganna
Agöthu Christie og Dor-
othy Sayers, er þrenna
glæpasögunnar til staðar.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 2012
Nokkuð er orðið um að þekktir fata-
hönnuðir og tískuverslanir eins og
t.d. H&M leiði saman hesta sína.
Ný slík lína, „Jason Wu for Target“,
var kynnt í New York á dögunum og
haldin mikil veisla fyrir sérstaka
gesti. Í þessari línu er bæði fatnaður
og fylgihlutir sem tískuunnendur
geta keypt sér á öllu hagstæðara
verði en gengur og gerist með hönn-
un Wus. Almenn sala hefst 5. febrúar
í Target-verslunum og verður örugg-
lega hamagangur í öskjunni.
Hátíska í Target
Reuters
Glens Leikkonan Blake Lively gantast með fatahönnuðinum Jason Wu.
Kynning á línu
Jasons Wus
Partý Fína og fræga fólkið var mætt í sérstakt frumsýningarpartý.
Gínur Þessar eru ekki úr plasti en sáu
um að sýna klæðnað frá Jason Wu.
Velkomin í
Litlatún í Garðabæ
Opið 10-19 alla virka daga og 12-18 laugardaga.
er í Litlatúni. Verið velkomin.