Morgunblaðið - 30.01.2012, Side 24

Morgunblaðið - 30.01.2012, Side 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 2012 ✝ IngimundurEyjólfsson fæddist í Reykja- vík 28. júní 1951. Hann lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 22. janúar 2012. Foreldrar hans voru Guðrún Ingi- mundardóttir, f. 11. apríl 1929, d. 6. febrúar 1963, og Eyjólfur Arthúrsson, f. 7. febrúar 1926, d. 10. janúar 2010. Systkini Ingimundar eru Arthúr Karl, f. 20. desember 1946, Anna, f. 2. apríl 1948, Felix, f. 5. apríl 1949, Þor- steinn Eyvar, f. 13. júní 1950, d. 7. júlí 1994, Guðrún Gerður, f. 15. mars 1955, Ásta Stein- unn, f. 26. mars 1956, og Ósk- ar, f. 10. janúar 1962. Hinn 11. september 1982 kvæntist Ingi- mundur Valgerði Þ. Jóns- dóttur, f. 2. júlí 1952. Börn þeirra eru Jón Þórir, f. 18. mars 1983, og Elín há- skólanemi, f. 4. júlí 1987. Þau skildu. Eldri dóttir Ingimundar er Vigdís Gígja, list- fræðinemi og tón- listarkennari, f. 5. febrúar 1977, móðir hennar er Elínborg Sig- urgeirsdóttir, f. 10. júlí 1951. Ingimundur lauk gagnfræða- prófi frá Réttarholtsskóla, vann verslunarstörf í mörg ár, eða þar til hann hóf nám í málaraiðn við Iðnskólann í Reykjavík. Hann öðlaðist meistararéttindi 1982 og starf- aði við iðnina í um þrjá ára- tugi. Útför Ingimundar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag, mánudaginn 30. janúar 2012, kl. 13. Hann er fjórði í efstu röð frá vinstri á hópmynd af Breiðavík- urdrengjum, sem nokkrum sinn- um birtist að gefnu tilefni í fjöl- miðlum áratugum eftir að myndin var tekin. Margir þess- ara drengja eru fallnir frá, langt um aldur fram. Og núna Ingó, minn kæri vinur. Hann talaði aldrei um Breiðavíkurdvölina að fyrra bragði, en sagði þó þegar hið svokallaða Breiðavíkurmál var afhjúpað að kannski hefði margt farið á annan veg ef hann hefði fengið lögbundna grunn- menntun eins og flest önnur börn. Mikið meira togaðist ekki upp úr honum um vistina fyrir vestan. Þessi litlu orð, ef og kannski, gefa tilefni til ótal vangaveltna, en hafa vitaskuld enga þýðingu þegar blákaldur raunveruleikinn blasir við. Ingó var óvenjulega fallegt barn og fallegur ungur maður, góð og velviljuð mann- eskja, sem átti jafnan erfitt með að neita nokkrum manni um greiða. Og lán? Ekkert mál. Hann var rausnarlegur, hafði ómælda ánægju af að gefa þeim sem honum þótti vænt um óvæntar gjafir og hafði skömm á nísku og græðgi. Ég gæti hæglega talið upp fleiri mannkosti míns fyrrver- andi eiginmanns og ég gæti líka fjallað um vesenið á honum, eins og ég og börnin okkar, Nonni og Elín, kölluðum það þegar hann datt’íða. Sem á tímabilum var býsna oft og átti hvað mestan þátt í því að við skildum fyrir um tveimur áratugum. Því verður ekki neitað að Ingó fór ekki nógu vel með sig. En það er bara svo miklu betra að geyma góðu minningarnar, sem þrátt fyrir allt eru býsna margar. Þótt hjónabandið færi í vask- inn slitnuðu vináttuböndin aldrei. Við vorum enda hálfgerðir krakkar þegar við kynntumst og oft er það svo að sú vinátta sem til er stofnað í æsku endist út æv- ina. Ég hafði oft áhyggjur af Ingó, sérstaklega hin síðari ár þegar heilsu hans hrakaði og hann þurfti að gangast undir lífs- hættulegan uppskurð í apríl sl. En hann var nagli og það lýsir honum kannski best að þrátt fyr- ir að hann liði óbærilegar kvalir undir það síðasta vék hann frem- ur talinu frá sjálfum sér og að minni líðan, en ég hafði verið að væla yfir smáóhappi, sem ekki var einu sinni orð á gerandi. Og svo gat hann farið að fíflast, rétt eins og í gamla daga. Uppskurðurinn var sagður hafa heppnast vel. En sjúkling- urinn náði sér aldrei og dó. Ef og kannski eru lítil orð en samt svo stór. Ef eftirfylgnin með sjúk- lingnum hefði verið fullnægjandi þá – kannski – hefði Ingó mögu- lega getað átt nokkur ár við bærilega heilsu. Nú er sem ég heyri hann segja: „Æ-i, góða besta, vertu nú ekki alltaf að æsa þig svona.“ Blessuð sé minning Ingós. Valgerður Þ. Jónsdóttir. Pabbi var fyrst og fremst góð- ur, skemmtilegur og traustur vinur. Við kjöftuðum oft langt fram á nótt um allt milli himins og jarðar. Það var svo auðvelt því hann var svo opinn og fordóma- laus maður enda hafði hann marga fjöruna sopið. Hann hafði yndi af að tala um heimspekileg málefni en fór sérstaklega á skrið þegar samræðurnar bárust að AA-samtökunum sem hann hafði dálæti á. Fordómaleysið var ekki eingöngu það sem gerði hann einstakan því pabbi var af- ar gjafmildur og vildi allt fyrir fjölskyldu sína gera. Alltaf þegar ég spurði hann hvort hann vildi gera mér greiða, á hvaða tíma sólarhrings sem var, svaraði hann alltaf: „Já, hvað sem er.“ Hann var alltaf sami prakk- arinn og 1. apríl var eins og jólin fyrir honum. Við hættum ekki að gera prakkarastrik fyrr en hann varð alvarlega veikur og það er ekki langt síðan við hlógum okk- ur máttlaus yfir þeim. Þegar ég var yngri og gerði eitthvað af mér og fékk skammir fyrir frá öðrum glotti hann alltaf og sagði stoltur að ég hefði fengið prakk- araeðlið frá honum. Þegar ég hugsa um það núna er ég svo stolt ef ég líkist honum að ein- hverju leyti. Þau eru ófá ævintýrin sem ég er svo heppin að hafa fengið að upplifa með pabba, mörg hver eiga sér svolítið skrýtinn aðdrag- anda, sem ekki er pláss fyrir að greina frá. Mér er sérstaklega minnisstætt þegar við vorum föst á árabáti úti á miðju stöðuvatni í marga klukkutíma að borða pítsu og þegar við grilluðum kótilettur inni í tjaldi sem mátti engu muna að kviknaði í, auk allra „rallí“- ferðanna okkar á malarvöllum. Allt þetta og miklu meira til gerði hann ekki eingöngu að besta pabba í heimi heldur líka besta vini mínum. Minningarnar um hann eru ljós í lífi mínu. Elín Ingimundardóttir. Elsku Ingó, bróðir minn, já líf- ið er stutt já allt of stutt, ég trúði því að þú myndir ná þér og bara lífið myndi blasa við þér. Við vor- um búin að hugsa okkur að fara í sumarbústað og njóta náttúrunn- ar og bara lífsins alls. Ekki grun- aði mig laugardaginn 21. janúar þegar þú hringdir í mig og baðst mig um að koma, að þetta væri í síðasta skiptið sem við myndum tala saman. En þessi laugardag- ur var sá besti í langan tíma fyrir mig, við fórum yfir nokkur minn- ingabrot eins og gengur, og mik- ið gátum við hlegið þrátt fyrir miklar kvalir sem hrjáðu þig, elsku bróðir. Ég veit að þú varst ekki á leiðinni að fara, þú elsk- aðir börnin þín Nonna og Elínu mikið, og áttir eftir að gera svo margt með þeim. Já, þú varst svo duglegur og þrátt fyrir allt og allt þá varstu ekki að kvarta, sem þú hefðir alveg mátt gera. Að lokum langar mig til að þakka þér fyrir samfylgdina og alla vinsemdina, eitt fallegt ljóð sem á pínulítið við þitt líf, Hug- sjónamaðurinn eftir Oddfríði Sæmundsdóttur frá Elliða. Til verka stórra hann virtist fæddur, vitur, tryggur og laus við prjál, hann hræddist ekki, því hann var græddur svo hreinni lundu og stórri sál. Með unga fullhugans eld í hjarta á afl hins góða hann treysti bezt og lyfta vildi til ljóssins bjarta þeim landsins börnum, er þjáðust mest. Það oft er kaldhæðni örlagana, sem eyðileggur hinn fagra meið, hann skorti gætni og skapgerð manna, er skunda beint hina troðnu leið. Ég leit hann eitt sinn á liðnum árum með lamað fjör eftir storm og él. Mér fannst hann minna á fugl í sárum, sem flugs er varnað og þráir hel. Ég vil þakka þér, Ingó bróðir minn, fyrir að vera til fyrir mig. Þín elskandi systir Gerður. Ingimundur, eða Ingó eins og við kölluðum hann var skemmti- legur félagi og bróðir. Dauði hans er ótímabær þó svo að hann sé hvíld frá miklum þrautum, hver veit en ég er sannfærð um að honum verður vel tekið á nýj- um stað. Ég man ekki eftir öðru en gríni og glensi hjá Ingó. Hann var húmoristi og lífskúnstner. Hann vann í fyrstu tískuvöru- versluninni fyrir táninga í Reykjavík, hjá Gulla í Karnabæ og átti það vel við hann því hann hafði góðan smekk, alltaf flottur í tauinu. Heimili hans og Völlu bar þess vitni að þau kynnu að meta fallega hluti. Ingó lærði málaraiðn og fékk seinna meistararéttindi og var hann listrænn og góður fagmað- ur. Ingó elskaði að vera nálægt börnunum sínum, þeim Nonna og Elínu, og upplifði æskuna gegnum þau, þau voru honum líf- ið. Valla og fjölskylda hennar reyndust Ingó sannir vinir og studdu hann í gegnum þykkt og þunnt. Við misstum móður okkar ung og tel ég að Elín, móðir Völlu, hafi nánast gengið honum í móðurstað. Ingó átti marga vini sem sýndu honum vináttu sína í verki og studdu hann í veikindum auk þess sem hann naut mikils stuðn- ings Ástu systur. Hann var drengur góður og átti ást okkar alla. Það hefði verið gaman að eld- ast áfram með Ingó en hann spil- aði, tefldi og fékk sér ársmiða á tónleika Sinfóníunnar. Hann var of veikur á síðasta ári til að stunda tónleikana en hann naut þess að fara úr málaragallanum í fínna pússið og hitta fólk. Ingó fékk stóran skammt af mótlæti sem byrjaði strax á unga aldri en fékk á móti sinn skammt af hamingju og elskaði og virti mikils börnin sín og vini Elínar og Nonna. Í sumar var Ingó staddur á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi þar sem hann átti góða vini og naut stuðnings þeirra oftar en einu sinni. Við Símon heimsóttum hann þar og áttum með honum góðar stundir þó hann væri veik- burða. Rétt fyrir jólin var nánasta fjölskylda min saman komin til í kaffi þegar Ingó kom í heimsókn. Okkur þótti öllum gott að hitta hann, sérstaklega þar sem hann virtist bjartsýnn á framtíðina og var léttur og kátur eins og hann átti að sér að vera og engum gat dottið í hug að hans biði svo fljótt að kveðja þennan heim. Guð blessi og styrki börnin þín, Elínu, Nonna og Vigdísi og vaki yfir framtíð þeirra og Völlu. Hvíl í friði, elsku bróðir og mágur. Anna systir og Símon. Í örfáum orðum langar mig til að minnast fyrrverandi mágs míns og vinar Ingimundar Eyj- ólfssonar. Ég sá Ingó í fyrsta sinn þegar ég var 14 ára og fór að forvitnast um hvaða drengur það væri eig- inlega sem Valla systir mín var farin að leggja lag sitt við. Hann vann þá í Faco á Laugaveginum og ákvað ég að búa mér til eitt- hvert erindi þangað. En þar sem þetta var nú herrafataverslun fann ég ekki upp á neinu öðru en að spyrja eftir regnkápum. Hann sagði mér að það væru engar til sem myndu passa á mig, en mér þótti nú vissara að máta á meðan ég alveg „drullufeimin“ virti pilt- inn fyrir mér. Í gegnum tíðina rifjaði Ingó þetta oft upp og hló mikið því hann hafði vorkennt þessari „umkomulausu stúlku“ svo mikið. Fljótlega eftir þetta var hann kominn inn í fjölskyldu mína og hefur átt þar heima síðan og skipti í því sambandi engu máli að þau Valla skildu. Með Ingó og móður minni tókst mikill vin- skapur og ekki síst þegar hún var orðin gömul. Hann var alveg einstaklega góður við hana og fyrir það vil ég þakka honum. Hann heimsótti hana oft og kom þá iðulega við í bakaríinu og keypti með kaffinu og rabbaði við hana um alla heima og geima. Á föstudögum tókum við oft í spil, þegar fleiri litu inn til hennar. Ingó var glæsilegur maður á sínum yngri árum, hafði húmor- inn í lagi og hafði gaman af að ræða málin, hann var stríðnis- púki og reyndi oft að láta mig hlaupa apríl og tókst það þó- nokkrum sinnum. Valla og Ingó eignuðust tvö börn þau Nonna og Elínu en fyr- ir átti Ingó Vigdísi Gígju og var hann börnum sínum góður vinur. Síðustu ár átti Ingó við mikil veikindi að stríða og var síðasta ár átakanlega erfitt, en hann sýndi ótrúlegan dugnað og var undir það síðasta vongóður um að nú færi allt að snúast í rétta átt, en sú varð því miður ekki raunin og komið er að kveðju- stund. Þú þreyttur varst orðinn og þrekið smátt, um þrautir og baráttu ræddir fátt og kveiðst ekki komandi degi. (Hugrún.) Ég votta Nonna, Elínu, Vig- dísi og Völlu mína dýpstu samúð. Arngunnur Regína Jónsdóttir. Heimurinn varð fátækari við andlát Ingimundar Eyjólfssonar, fyrrverandi mágs míns. Lífsljós hans slokknaði að kvöldi hins 22. janúar eftir langvarandi og þungbær veikindi. Við kynntumst fyrst sumarið 1971, þegar við – maðurinn minn og ég – komum til Íslands í frí, en þá voru Ingó og Valla systir farin að vera saman. Fallegra par hafði ég aldrei séð. Þótt nokkur aldursmunur væri á okkur pör- unum, tókst með okkur góður vinskapur, sem hélzt fram til síð- asta dags. Þá og eftir það áttum við ævinlega góðar stundir sam- an, þegar við komum til Íslands, eða þau heimsóttu okkur í Þýzkalandi. Það var farið í bíl- túra um næsta nágrenni Reykja- víkur, í útilegu í Skorradal, í mjög eftirminnilega helgarferð til Úlfljótsvatns og fleira má telja. Þegar þau komu til okkar sýndum við þeim fallegustu stað- ina í nágrenni Iserlohn, sem var heimaborg okkar þá. Sumarið 1981 komu þau sem oftar til okk- ar, og þá fórum við í stórkostlegt og ógleymanlegt ferðalag á bíln- um til Parísar, München og Vín- arborgar. Sú ferð var og verður lengi í minnum höfð. Eitt merki þess, hve sambandið á milli okk- ar var gott, var, að Ingó og Rein- hold, maðurinn minn, áttu hinar líflegustu samræður – þótt hvor- ugur talaði mál hins! Ingó var góður drengur, vel gefinn, greiðvikinn, hjálpsamur, skemmtilegur og með gott skop- skyn, Stundum átti hann það til að gera prakkarastrik, sem þó voru ætíð meinlaus. Það var þægilegt að vera í návist hans og aldrei leiðinlegt. Fjarlægðarinn- ar vegna sáumst við ekki mjög oft, en vinátta er ekki spurning um nálægð eða fjarlægð. Þau Valla skildu, en tengsl Ingó við fjölskylduna rofnuðu ekki fyrir því. Hann var einn af fjölskyldunni eftir sem áður. Sambandið við börnin þeirra Völlu, Nonna og Elínu var mjög náið og kært alla tíð. Einkum langar mig til að nefna órjúfan- lega vináttu á milli hans og mömmu okkar systranna. Hann var henni eins og sonur, vildi allt fyrir hana gera og heimsótti hana eins oft og hann mögulega gat á meðan hún lifði. Orðtækið segir „Maður kemur í manns stað“. En það kemur enginn í stað ástvinar eða vinar, sem hefur verið hluti af lífi manns, og sem svo hverfur þaðan fyrir fullt og allt. En hann lifir áfram í hjarta okkar, og minn- ingarnar getur enginn tekið frá okkur. Samt sem áður gerum við okkur varla grein fyrir því, að við eigum ekki eftir að hittast aftur, þegar við komum til Íslands í framtíðinni. Síðustu árin átti Ingó við mik- ið heilsuleysi að stríða. Hann hafði sterkan lífsvilja, en að lok- um sigraði maðurinn með ljáinn. Hann hefði svo sannarlega átt skilið að fá að njóta fleiri og betri lífdaga, en örlögunum verður ekki ráðið. Við samhryggjumst innilega börnunum hans, Nonna og Elínu, systur minni, Völlu, sem horfðu vanmátta upp á þján- ingar hans síðustu mánuðina, og öllum, sem þótti vænt um hann. Við kveðjum hann með söknuði. Elín J. Jónsdóttir Richter. Ingimundur Eyjólfsson – Ingó – er allur, sextugur að aldri. Leiðir okkar lágu saman þegar hann varð kærasti Völlu vinkonu minnar á tánings- árunum. Hann var enginn smá- töffari, engilfríður og spengileg- ur með sítt, dökkt hár. Á þessum árum var tískan á Íslandi að breytast svo um munaði – fyrirmyndirnar eink- um sóttar til Bretlands þar sem Bítlarnir og Rollingarnir voru í öndvegi. Ingó var boðberi nýju tískunnar, í litskrúðugum föt- um og háhæluðum bítlaskóm og vann m.a.s. í Karnabæ, Mekka tískunnar. Valla kolféll fyrir honum og þau rugluðu saman reytum sínum fyrir tví- tugt. Ingó lauk námi í málaraiðn og þau unnu bæði hörðum höndum, komu undir sig fótunum og byggðu sér einbýlishús í Kópavoginum. Saman eignuðust þau tvö mannvænleg börn, Jón Þóri og Elínu. Þótt atvik höguðu því þannig að til hjónaskilnaðar kom milli Völlu og Ingós voru þau áfram bundin sterkum bönd- um og leiðir skildi aldrei. Ingó átti öðru vísi uppvöxt og erfiðari en við vinkonurnar. Hann missti móður sína barn að aldri og sá um sig sjálfur frá tán- ingsárum. Hann var forkur dug- legur en háði harðvítuga baráttu við Bakkus stóran hluta ævinn- ar. Sú barátta setti mark sitt á hann, heilsu hans og hamingju. Að leiðarlokum er mér þó enn efst í huga glæsilegi og góði pilturinn sem Valla giftist og sá einstaklega góði og ljúfi faðir sem hann reyndist börnunum sínum. Veit ég að þau syrgja hann sárt. Þeim og Völlu vinkonu og öðrum aðstandend- um Ingós sendi ég samúðar- kveðjur. Helga Jónsdóttir. Kynni okkar Ingimundar Eyj- ólfssonar ná áratugi aftur í tím- ann. Konurnar, sem síðar urðu eiginkonur okkar, voru bernsku- vinkonur og Valgerður Þ. Jóns- dóttir, kona Ingimundar, sem jafnan var kallaður Ingó af þeim sem hann þekktu, gekk á heimili okkar Helgu Jónsdóttur ætíð undir nafninu Valla vinkona. Þær stöllur eru enn vinkonur. Gegn- um þau kynni kynntist ég svo Ingó og þau kynni hafa haldist alla tíð síðan – í vel á fjórða tug ára. Ingó þótti á unglingsárum nokkur töffari, en var kannski bara ódæll unglingur, að minnsta kosti var hann um skeið einn Breiðavíkurdrengjana svoköll- uðu. Fimmtán ára hvarf hann úr heimahúsum og sá úr því um sig sjálfur. Ef til vill var atlætið heima fyrir ekki af því tagi, að viðunandi væri. Svo fór að ástir tókust með þeim Völlu, síðan sambúð og hjónaband. Framan af varð ekki annað séð en að framtíðin blasti við þeim Ingó. Þau eignuðust tvö börn, pilt og stúlku, og reistu sér hús í Kópavogi í grennd við bernskuslóðir þeirra vinkvenna beggja, enda kunni Ingó vel til verka í þeim efnum. Með harð- fylgi tókst honum að afla sér iðn- menntunar, gerðist málari og vann alla starfsævi sína við þá iðn og fórst það einkar vel úr hendi. En svo fór að hjónabandið entist ekki og leiðir skildi. Síðustu ár ævi sinnar var Ingó oft þungt haldinn vegna veikinda og undir lokin var sýnt hvert stefndi. En hann var æðrulaus og ekki kvartsár maður. Dagfars- prúður var hann og hverjum manni ljúfari, viðmótsþýðari og hjálpsamari, og ástríkari föður var erfitt að ímynda sér. Börnin hans lögðu því á hann mikla elsku vegna óbrigðullar um- hyggju, ástúðar og hlýju. Slíkar minningar er gott að eiga um föður sinn. Ingó! Far vel, vinur. Helgi Hörður Jónsson. Ingimundur Eyjólfsson ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Valdemar Gunnarsson mjólkurfræðingur, Kjarnagötu 14, Akureyri, lést hinn 27. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Brit Mari Gunnarsson, Kristín Irene Valdemarsdóttir, Jón Marinó Sævarsson, Bryndís Elfa Valdemarsdóttir, Jón Birgir Gunnlaugsson, Berglind Mari Valdemarsdóttir, Sverrir Ásgeirsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.