Morgunblaðið - 30.01.2012, Síða 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 2012
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á eigninni
sjálfri, miðvikudaginn 8. febrúar 2012 kl. 14.30:
Nýibær, leigulóð, Skaftárhreppi, fnr. 225-5520, þingl. eig. og uppboðs-
beiðandi þb. Glæðis ehf.
Sýslumaðurinn í Vík.
Félagslíf
Hekla 6012013019 VI Gimli 6012013019 II° þf.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Bækur
Fornbókabúð á vefnum
30% afsláttur
20. jan. til og með 7.feb.
www.gvendur.is
Gisting
Hvataferðir, fyrirtækjahittingur,
óvissuferðir, ættarmót
Frábær aðstaða fyrir alla hópa.
Líka fjölskyldur. Heitir pottar og grill.
Opið allt árið.
Minniborgir.is
Gisting á góðum stað.
Upplýsingar í síma 868 3592.
Húsnæði íboði
Lokastígur, 101 miðbær/
Vesturbær — Herbergi
Herbergi sem eru lítil, 10 til 15 fer-
metrar með húsgögnum, sameigin-
legt eldhús og þvottahús, þráðlaust
Internet, baðherbergi með sturtu.
Langtímaleiga sem þýðir 6 mánuðir
og lengur, kr. 35.000 til 60.000.
Tveir mánuðir fyrirfram, laust.
Vinsamlegast takið fram í svari við
auglýsingunni frá hvað tíma
húsnæðið óskast og hvað langan
tíma. osbotn@gmail.com
Sími: 861 4142 kl. 8.00 til 16.00.
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
Verslun
Fjarstýrðar þyrlur í úrvali og m.fl.
Erum með fjarstýrðar þyrlur í miklu
úrvali. Netlagerinn slf. Dugguvogi
17-19, 2. hæð. Vefsíða
www.Tactical.is. Einfalt að versla.
Sími: 517-8878.
Óska eftir
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og
endurvinnslu.
Fannar verðlaunagripir, Smiðju-
vegi 6, rauð gata, Kópavogi.
fannar@fannar.is - s. 551 6488.
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
Bókhaldsstofa með áratuga-
reynslu
Bókhald, ársreikningar og öll
skattþjónusta. Sanngjarnt verð.
Trúnaður og gagnkvæmt traust.
Fyrirtæki og samningar ehf.,
Suðurlandsbraut 46,
108 Reykjavík. S. 552 6688.
Þjónusta
Er matur og þyngd vandamál?
Nýir byrjendahópar að hefjast!
„Fráhald í forgang“: Sérstakur
stuðningshópur fyrir þá sem eru að
hrasa í fráhaldi!
Upplýsingar í síma 568-3868,
www.matarfikn.is.
Ýmislegt
Útsala
Sólarlandafarar
Frábær fatnaður í ferðalagið.
Bikiní og fleira.
Meyjarnar, Austurveri,
sími 553 3305.
TILBOÐ - TILBOÐ - TILBOÐ
Teg. 08607 347 Vandaðir kuldaskór
úr leðri fyrir dömur, fóðraðir og með
góðan sóla.
TILBOÐSVERÐ: 9.500.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími: 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
TILBOÐ - STAKAR
STÆRÐIR
A, B, C, D skálar
Til dæmis þessi PUSH UP
AÐEINS KR. 2.500,-
Til dæmis þessi PUSH UP verð ,
AÐEINS KR. 2.500,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18.
Þú mætir - við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
- vertu vinur
Teg. 5606 - Svart
Teg. 7091
Teg. 6036
Teg. 5205
Teg. 7300 - Grátt
Þægilegir og vandaðir dömuskór
úr leðri, skinnfóðraðir og með lágum
hæl. Stærðir: 36 - 42.
Verð: 14.685.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími: 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílar
3 GAMLIR PATROLAR
ÁRG. ‘85 TIL SÖLU
Einn á götunni, 9 manna, skoðaður.
Annar á númerum. Sá þriðji í pörtum
(svört númer).
Upplýsingar í síma 894-0431.
Bílaþjónusta
Hjólbarðar
Kebek vetrardekk tilboð
Hönnuð og testuð í Kanada.
185/65 R 15 12.900 kr.
195/65 R 15 12.900 kr.
205/55 R 16 14.900 kr
215/65 R 16 17.990 kr.
205/50 R 17 17.900 kr.
Kaldasel ehf. hjólbarðaverkstæði
Dalvegi 16 b, Kópavogi,
s. 544 4333.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, 4WD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Góður í vetraraksturinn.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i.
8921451/5574975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '11.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Auris '11.
8637493/5572493.
Það er sárara en tárum taki að
sitja hér og skrifa minningar-
grein um þig, elsku hjartans
barnið mitt, í stað þess að und-
irbúa níu ára afmælið þitt. Oft
hef ég setið við rúmstokk þinn,
strokið þér og þakkað fyrir þá
gæfu og forréttindi að hafa feng-
Íris Linnea
Tryggvadóttir
✝ Íris LinneaTryggvadóttir
fæddist ásamt tví-
burasystur sinni
Idu Anitu á Land-
spítalanum í
Reykjavík 30. jan-
úar 2003. Hún lést
af slysförum í
Bollebygd í Svíþjóð
23. október 2011.
Útför Írisar Lin-
neu fór fram frá
Bollebygdskirkju í Svíþjóð 10.
nóvember 2011.
ið að eignast þvílík-
an snilling eins og
þig. Þú, ásamt Idu
tvíburasystur þinni
og eldri systrum
Sögu og Teklu, hafið
fyllt líf mitt af ham-
ingju og stolti. Þú
mátt vita það, elsku
pabbarósin mín, að
ég er óendanlega
þakklátur fyrir að
hafa fengið að eiga
þessi tæpu níu ár með þér og þó
að hjarta mitt sé nú kramið þá
vildi ég frekar hafa átt þig og
misst en aldrei fengið að kynnast
þér.
Þessir þrír mánuðir sem liðnir
eru frá þessu hræðilega slysi
hafa verið þungbærir, sárastur
er missir þinn. Að þú skulir ekki
hafa fengið að vera lengur á með-
al okkar, fengið að þroska alla
þína ótrúlegu hæfileika og njóta
ávaxtanna af þeim. Þú sem elsk-
aðir lífið og hlakkaðir ætíð til
næsta dags. Það er sama hvar er
borið niður alls staðar voru hæfi-
leikar þínir ómældir. Námið var
leikur einn, í íþróttum hafðir þú
einstaka hæfileika og hafðir þeg-
ar vakið mikla athygli á knatt-
spyrnuvellinum, það eru td. ekki
margir átta ára krakkar sem
setja knöttinn viðstöðulaust í
skeytin eða skora með skoti úr
eigin vítateigi yfir allan völlinn
eins og þú gerðir á þína fyrsta
fótboltamóti.
En fyrst og fremst varstu svo
einstaklega kærleiksríkur og
gegnheill einstaklingur. Hugsað-
ir fyrst og fremst um að gleðja
aðra og ekki síst að verja þá sem
minna mega sín. Eða eins og einn
skólafélagi þinn sagði í kirkjunni
daginn eftir slysið: „Þú sem varst
svo réttlát og heiðarleg, af hverju
fannst ekkert réttlæti fyrir þig?“
Fegurstu ástarorð megna ekki að
lýsa ást minni á þér og sterkustu
lýsingarorð yfir sorgina megna
heldur ekki að lýsa þeirri sorg
sem nú nístir mitt hjarta. Sagt er
að sorgin sé skuggi kærleikans,
þeim mun meira sem maður elsk-
ar þeim mun stærri verður
skugginn þegar maður syrgir.
Núna er ég staddur í dimmum
dal, það er nánast almyrkvi. Mað-
ur á erfitt með að trúa því að það
birti að nýju en heldur í þá von að
sársaukinn linist. Að með tíman-
um geti maður glaðst yfir öllum
þeim góðu og fallegu minningum
sem ég á um þig. Að ég öðlist
styrk til að nýta mér allt það góða
sem þú gafst mér á þeim stutta
tíma sem þér var gefinn.
Allar samúðarkveðjur og hlý-
hugur sem okkur fjölskyldunni
hefur verið sýndur á þessum erf-
iðu tímum hefur verið ómetan-
legt smyrsl á sárin, fyrir það ber
að þakka. Lífið verður aldrei eins
og það var en vonandi tekst okk-
ur að læra að lifa með sorginni og
skapa verðugt líf að nýju. Ég
leyfi mér að vona að við sjáumst
að nýju, elsku gleðigjafinn minn,
þangað til mun ég gera það sem í
mínu valdi stendur til að halda
minningu þinni á lofti.
Þinn að eilífu elskandi pabbi.
Tryggvi Leifur Óttarsson.
Jæja frú Sigríður, eins og þú
varst svo oft kölluð síðasta sumar
en mér fannst eðlilegra að kalla
þig ömmu Siggu. Ég kunni þó ekki
alltaf við það þar sem ég á í raun
löglega ekkert í þér. Ég vildi að ég
gæti talið upp allar skemmtilegu
sögurnar þar sem þú varst í aðal-
hlutverki en þær eru svo margar
og yrðu líklega sumar hverjar rit-
Sigríður
Sigurðardóttir
✝ Sigríður Sig-urðardóttir
fæddist í Króki í
Suðursveit 27. nóv-
ember 1919. Hún
lést á Dvalarheim-
ilinu Hrafnistu í
Reykjavík 11. jan-
úar 2012.
Útför Sigríðar
fór fram frá Graf-
arvogskirkju 27.
janúar 2012.
skoðaðar í jafn fínni
opnu sem þessari.
Þú varst nefnilega
svo yndisleg og ég
efast um að þú vitir
hversu mikla gleði
þú færðir öðrum í
kringum þig. Þú átt-
ir svo auðvelt með að
sjá björtu og spaugi-
legu hliðarnar á líf-
inu.
En nú er komið að
kveðjustund. Við áttum mörg
samtölin, sem oftar en ekki sner-
ust um eitt barnabarna þinna. Eitt
sinn töluðum við saman um þessi
tímamót svo ég veit að þú myndir
ekki vilja að ég röflaði mikið leng-
ur. Ég kveð þig nú, mín kæra, með
þakklæti í hjarta, ég skal líta eftir
Kristu þinni.
Þín vinkona,
Thelma Hafþórsdóttir Byrd.