Morgunblaðið - 21.03.2012, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2012
Raðauglýsingar
Félagslíf
I.O.O.F. 7. 192210371/2 F.L.
LILJA 6012032119 I Heims.
I.O.O.F. 9 19203218 III*
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Háaleitisbraut 58-60
Samkoma í kvöld kl. 20.00.
Skyldur gagnvart Guði og
yfirvaldi
Ræðumaður: Kristján Sverrisson
Sálmavinafélagið sér um undir-
leik.
Annað efni: Bæna- og þakkar-
stund.
Allir velkomnir.
Fimmtudagur 22. mars
Fundur kl. 16 hjá Kristniboðs-
félagi kvenna.
Sakkeus: kl. 21, GLS fyrirlestur.
Íslenskur texti - Sýningartími:
u.þ.b. 40 mín.
Kynning og umræður á eftir.
Allar nánari upplýsingar á sik.is.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Veitingastaðir
Humarhlaðborð - Hafið Bláa
Humarhlaðborð - föstudags- og laug-
ardagskvöld - aðeins 35 mín. frá Rvk.
- Frí rúta fyrir hópa, 30 plús. Veitinga-
staðurinn Hafið Bláa - Uppl. í síma
483 1000 - www.hafidblaa.is
Húsnæði óskast
Óska eftir 2ja-3ja herb. íbúð
til leigu á stór-Reykjavíkur-
svæðinu. Langtímaleiga.
Upplýsingar í síma 845 4096.
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Rafvirkjun
Til sölu
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata,
Kópavogi, s. 551-6488
fannar@fannar.is -
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Skattframtöl
Skattframtal 2012
Framtalsþjónusta fyrir einstaklinga
og rekstraraðila. Mikil reynsla -
hagstætt verð.
Uppl. í síma 517-3977.
www.fob.is. netf. info@fob.is.
Þjónusta
Bílamerkingar
Fyrir allar stærðir og gerðir bíla.
Sendið fyrirspurn á
audmerkt@audmerkt.is
Eða skoðið heimasíðu okkar
www.audmerkt.is
Malbikun og malbiks-
viðgerðir
S 551 4000 & 690 8000
www.verktak.is
Málarar
Alhliða málningarþjónusta
Aðeins löggiltir málarar, hagstætt
verð í boði. Upplýsingar í síma:
696 2748, 692 2290.
Ýmislegt
580 7820
BÆKLINGA
prentun
580 7820
Öflugir fjarstýrðir rafmagns- og
bensínbílar í úrvali.
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600.
www.tomstundahusid.is
Finnið okkur á facebook.
Frú Sigurlaug
Mjóddin s. 774-7377
Sundbolir
Tankini
Bikini
Náttföt
Undirföt
Sloppar
Aðhaldsföt
Sundbolir og
Tankini í úrvali
Bæjarlind 1-3, 201 Kóp.
sími 564 0036
www.aquasport.is
Opið frá 10-17.30 virka daga
Nýjar sendingar frá TYR
Stærðir frá 38-54
„Allt til sundiðkunar“
SUNDBOLIRNIR
KOMNIR
Teg. BAHAMAS - Flott snið,
mátast frábærlega í
D,DD,E,F,FF,G,GG,H,HH,J skálum á
kr. 12.900.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugardaga 10-14.
Þú mætir - við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
- vertu vinur
Vandaðir þýskir herraskór í
úrvali:
Teg. 36900 Léttir og þægilegir herra-
skór úr leðri, fóðraðir og með góðan
sóla. Stærðir: 41-47. Verð: 15.885.
Teg: 26901 Léttir og vandaðir herra-
skór úr leðri, fóðraðir og með góðan
sóla. Stærðir: 41-47. Verð: 19.250.
Teg. 25205 STÓRAR STÆRÐIR.
Léttir og vandaðir herrskór úr leðri
með góðan sóla. Stærðir: 42-50.
Verð: 17.650.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími: 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílar
Til sölu Ford Fiesta
Til sölu Ford Fiesta 1,3 beinskiptur,
árg. ´99, ekinn 150 þús. km, 15" ál-
felgur, skoðaður ´13. Verð 290 þús-
und. Uppl. í síma 849 9605.
Toyoa Hiace stuttur, árg. 2000 -
Tilboð 580 þúsund krónur
Til sölu Toyota Hiace. Ekinn 179 þús-
und, beinskiptur, 2,7 bensín, aftur-
drifinn o.fl., dúklagður í flutningsrými.
Þetta er nokkuð snyrtilegur bíll.
Upplýsingar í síma 849 9605.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Ævar Friðriksson
Toyota Auris '11.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i.
8921451/5574975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '11.
8924449/5572940.
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur
og tek að mér ýmis smærri
verkefni
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Einingahús
AKURShús – við allra hæfi –
Íslensk hönnun og framleiðsla
Framleiðum einbýlishús,
frístundahús og gestahús.
Einingahús gefa marga
möguleika og er einnig hægt
að fá þau ósamansett.
Kannaðu málið á
www.akur.is
Trésmiðjan Akur ehf
Smiðjuvöllum 9 | 300 Akranes
Sími 430 6600 | akur@akur.is
stofnað 1959
•
•
•
•
STIGA borðtennisborð
Til afgreiðslu strax.
www.pingpong.is
Suðurlandsbraut 10 (2. h.),
108 Reykjavík. Sími 568 3920.
Tómstundir
Raflagnir, dyrasímar - S. 6630746
Bjóðum hagstætt verð í töfluskipti.
Úttekt á raflögnum í eldra húsnæði,
án endurgjalds.
Straumblik ehf.
löggilltur rafverktaki
straumblik@gmail.com
fara í mjaðmaaðgerð komin vel á
sjötugsaldur og seinna lærbrotn-
aði hún í tvígang en alltaf náði hún
sér upp eftir veikindin, en það var
Alsheimer-sjúkdómurinn sem
herjaði á hana síðustu æviárin.
Það var erfitt að horfa upp hana
fjarlægjast okkur, en samt sem
áður var alltaf stutt í brosið henn-
ar. Ég vil þakka starfsfólkinu á
Skjóli fyrir góða umönnun á dán-
arbeði hennar þar sem hún endaði
sitt æviskeið. Fjölskyldan geymir
ljúfar og góðar minningar um ynd-
islega manneskju.
Hjördís Gréta Traustadóttir.
Elsku amma Silla nú er komið
að kveðjustund og ég vil þakka þér
fyrir allar góðu minningarnar
sem þú hefur gefið mér og mun ég
geyma þær ávallt. Í minningu
minni varstu ákaflega litrík og
skemmtileg kona, þú varst engri
lík. Ég man eftir dömulegri konu
sem var alltaf svo smart og ég var
stolt af að kalla ömmu mína. Þú
áttir auðvelt með að njóta lífsins
og notaðir hvert tækifæri til að
upplifa það sem lífið hefur að
bjóða. Ferðalögin voru mörg,
bæði erlendis og hér heima, í fé-
lagsskap fjölskyldu og góðra vina.
Síðustu ár hefur þú dvalið á
hjúkrunarheimilinu Skjóli og tek-
ist á við löng og erfið veikindi en
nú kveður þú okkur og ég veit að
margir af þínum nánustu munu
taka vel á móti þér elsku amma.
Takk fyrir umhyggjuna,
gleðina og kærleikann.
Kveðja,
Vigdís og Sigurjón.
Amma Silla hefur fundið frið-
inn, um það er ég sannfærð. Hún
var orðin 96 ára gömul og hætt að
njóta þeirra lífsgæða sem allt of
margir telja sjálfsögð. Hún átti til
að gantast með að allir væru farnir
á undan henni, enginn kæmi í jarð-
arförina, en öllu gríni fylgir alvara
og ég held að ömmu hafi að vissu
leyti verið alvara. Eiginmann, vini,
vinkonur, systkini, barnabarn,
tengdason og fjölmargt annað
samferðafólk lifði hún. Ég kýs því
að fagna að amma hafi nú slegist í
hópinn með öllu því góða fólki sem
hún var farin að sakna svo mjög.
Amma var merkileg kona, hún
aðlagaðist vel nýjum straumum
og stefnum langt fram eftir aldri
og á hennar ævi hefur tækninni
fleytt fram og breytt lifnaðar-
háttum fólks. Hún var til dæmis
fljót að tileinka sér örbylgjuelda-
mennsku. Amma var orkugjafi og
öllum leið vel í kringum hana,
röggsöm, lífsglöð og mikil ferða-
fuða. Allir dáðust að því hvað
amma var veraldarvön miðað við
sinn aldurshóp. Sólarlandaferðir,
Karabíska hafið og ferðir á
Heilsustofnun NLFÍ voru fastir
liðir. Amma skilur eftir sig stóran
hóp afkomenda og hún á vísan
stað í hjörtum þeirra allra. Ég
mun ávallt sjá ömmu sem fyrir-
mynd og henni kann ég þakkir
fyrir svo margt í gegnum árin,
sér í lagi þegar ég var yngri.
Amma ég geymi þig alltaf í hjarta
mér.
Loks beygði þreytan þína dáð,
hið þýða fjör og augnaráð;
sú þraut var hörð – en hljóður nú
í hinsta draumi brosir þú.
(Jóhannes úr Kötlum.)
Þín,
Áslaug.
Í dag er borin til grafar yndisleg
manneskja, hún amma Silla.
Amma var lífsglöð kona, alltaf vel
til fara og sannkölluð lady. Hún
var framkvæmdamikil, var ekki
fyrr komin í heimsókn en húsið
fylltist af matar- og bökunarilm.
Enginn bakaði pönnsur eins og
amma, þó að engin væri uppskrift-
in. Það var ósjaldan sem hún dreif
sig í að baka kleinur, skonsur, flat-
kökur eða dýrindis tertur og þrátt
fyrir að vera fædd 1916 bakaði
amma kökur í örbylgjuofni sem er
gott dæmi um hversu vel hún
nýtti sér tæknina. Amma elskaði
að ferðast og fór í óteljandi utan-
landsferðir, sigldi í Karíbahafinu,
sleikti sólina við Miðjarðarhafið
og ferðaðist um Ísland þvert og
endilangt. Þegar við hjónakornin
þeystum um vegi landsins var hún
snögg að slást í för með okkur
meðan hún hafði heilsu til og
heimsækja vini og vandamenn út
á landi. Hún var frábær ferða-
félagi, með smurt nesti og góða
skapið ávallt með. Amma Silla, við
minnumst þín með gleði í hjarta
og andi þinn verður ávallt með í
för hvert sem leið okkar liggur.
Kristín og Agnar.
Sigurborg Ólafsdóttir
Fleiri minningargreinar
um Sigurborgu Ólafsdótt-
ur bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.