Morgunblaðið - 21.03.2012, Blaðsíða 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2012
Stjörnuspá
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Eitt leiðir af öðru og fyrr en varir
verður þú hluti af hópi sem þig hefur alltaf
langað til þess að tilheyra. Hálfnað er verk
þá hafið er.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Taktu ekki neinar meiri háttar ákvarð-
anir í fjármálum í dag; þær geta beðið til
morguns. Látið hins vegar í ykkur heyra sé
fólk með yfirgang.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þótt þú hafir margt á þinni könnu
er engin ástæða til þess að láta aðvaranir
annarra sem vind um eyru þjóta. Fáðu að-
stoð, ef það er það sem þarf.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það er allt í sómanum hjá þér um
þessar mundir í vinnunni svo þú getur leyft
þér að slaka svolítið á. Sitthvað bendir til
þess að þú sért í verslunarham.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú veist öðrum betur hvað þér er fyrir
bestu svo vertu óhræddur við að fara þínar
leiðir. Hlustaðu í einlægni og umhyggju-
semi, alveg eins og þú vilt að aðrir hlusti á
þig.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Að taka áhættu í einhverju sem við-
kemur tjáskiptum er snjallara en kann að
virðast í fyrstu. Þú þarft að taka áhættu
vegna þess að þú veist ekki hvernig hlutirnir
eiga eftir að þróast.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Samband sem legið hefur í dvala und-
anfarin misseri verður að nokkurs konar
drifkrafti í lífi þínu. Rómantík? Viðskipti?
Það er undir þér komið.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Lukkan virðist vera í þínu liði í
dag. Taktu til í húsinu og hentu því sem þú
hefur ekki lengur not fyrir.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það færir þér heppni að breyta
áætlunum þínum, ekki síst ef þú lætur hug-
boð ráða gerðum sínum. Ekki fylgja neinum
án þess að íhuga málið.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er ekki allt gull sem glóir og
margt fyrirheitið fer fyrir lítið þegar til kast-
anna kemur. Sestu niður með fjölskyldunni
til að ræða um framtíðarþarfir.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú stendur í þeim sporum að þér
finnst þú hafa gleymt einhverju mikilvægu
en getur ómögulega sagt til um hvað það
er. Dagurinn verður góður þrátt fyrir allt.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það hefur ekkert upp á sig að vera
að skæla út af hlutum sem lítill vandi er að
kippa í liðinn. Reyndu að forðast erfiðar
samræður við fólk með völd í dag.
Guðmundur Stefánsson skrifarhugleiðingu um Hveragerði
og skáldskap:
„Þegar þorp voru að myndast áð-
ur fyrr inni í dreifbýlissveitarfélög-
um varð oft rígur um gangstíga,
götuljós o.fl. í þorpinu, sem sveita-
mönnum þótti ekki réttlátt að þeir
bæru kostnað af. Þegar Hveragerð-
ishreppur var stofnaður hafði verið
nokkur rígur milli Hvergerðinga
og Ölfusinga um þessi mál og að-
skilnaðinn, sem Hvergerðingar
sóttust eftir. Þegar nýstofnuðum
Hveragerðishreppi hafði verið
markað land, var ljóst að hvergi var
hægt að hafa kirkjugarð innann
hreppsins, bæði vegna jarðhitans
og þess, hve grunnur jarðvegurinn
var ofan á hrauninu. Svo bæði þá og
síðan hafa þeir orðið að fara sína
hinstu ferð í Ölfusið, – í kirkjugarð-
inn á Kotströnd. Eftir aðskilnaðinn
orti Gunnar Benediktsson þetta:
Hér er kominn hreppur nýr.
Hann er sagður kostarýr.
Þegar lífs menn brjóta brýr,
bæði segi og skrifa,
er í hreppnum engin mold
í að grafa látið hold.
Hér neyðast menn til að nuddast við að
lifa.
Svo er aftur önnur sveit,
ákaflega kostafeit.
Ég enga fegri augum leit,
um það tala og skrifa.
Þar er þessi þykka mold,
þar má grafa látið hold.
Þar eru menn sem þurfa ekki að lifa.
Ólafur Stefánsson er vísnafróður
með afbrigðum og prjónar við upp-
rifjun Guðmundar:
„Gunnar Ben. og séra Helgi
[Sveinsson] voru næstu nágrannar.
Leiðslukerfi var frumstætt á fyrstu
árum þorpsins. Kona Gunnars sá til
séra Helga þar sem hann var að
reka trétappa í rör í garði þeirra.
Hún lét prestinn hafa þessa vísu:
Drottins þjónn á fjórum fótum
fyrir utan gluggann minn,
leka sá, en ljúfur þagði,
læddi tappa í gatið inn.
Séra Helgi svaraði:
Þótt ég træði tappa í gat,
tel ég saklaust væri
úr því Gunnar einskis mat
ágætt tækifæri.
Haraldur Hjálmarsson orti á sín-
um tíma eftir pöntun:
Fanney elskar Halla hold,
hún vill lát’ann barna.
„Meðan gróa grös í mold
og glóir nokkur stjarna.“
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af Hveragerði, kirkju-
garði og leiðslukerfi
Mottumars hefur hitt í mark. Íeinn mánuð breytist ásjóna
fjölda karla með afgerandi hætti.
Sumir líta út eins og forsprakkar
skipulagðrar glæpastarfsemi á Balk-
anskaga, aðrir eins og sýslumenn og
hreppstjórar á Íslandi á átjándu öld
og enn aðrir eins og þýskir lög-
reglumenn. Sumir verða virðulegir
við að láta skegghárin spretta yfir
efri vörinni, en aðrir verða hálf-
hlægilegir og útilokað að taka mark
á þeim. Sama hvað þeir segja og
gera, skeggið tekur alla athyglina.
Nú er mottumarsinn rúmlega hálfn-
aður og þegar hafa rúmlega 15 millj-
ónir króna safnast. Markmið
Krabbameinsfélagsins er hins vegar
að safna 35 milljónum króna þannig
að betur má ef duga skal.
x x x
Víkverji hefur leyft yfirvaraskegg-inu að spretta. Áheitin hafa ekki
beinlínis streymt inn, en Víkverji
telur á sig leggjandi að vera ljótur í
einn mánuð fyrir málstaðinn. Hann
er ekki ókunnugur krabbameini og
veit að allur stuðningur við barátt-
una gegn því skiptir máli.
x x x
Efstur í einstaklingskeppninni ímottumars er Kristján Björn
Tryggvason. Í kynningu hans kemur
fram að hann er stuðningsfulltrúi
hjá Krafti, stuðningsfélagi fyrir fólk,
sem hefur fengið krabbamein, og að-
standendur þeirra. Kristján Björn
fékk heilaæxli fyrir sex árum, sem
nú er horfið eins og kemur fram í
frásögn hans á heimasíðu Krabba-
meinsfélagsins. Hann hefur nú safn-
að rúmlega 650 þúsund krónum og
stefnir að því að ná 800 þúsund krón-
um áður en mottumars er á enda.
x x x
Á vefsíðu Krabbameinsfélagsinskemur fram að árlega greinist á
Íslandi að meðaltali 716 karlar með
krabbamein. „Árlega deyja að með-
altali um 250,“ segir þar. „Þetta eru
synir, bræður, pabbar, afar, vinir og
makar. Þitt framlag skiptir miklu
máli. Við getum haft áhrif, því rann-
sóknir sýna að koma má í veg fyrir
að minnsta kosti 1 af 3 krabbamein-
um með t.a.m. fræðslu og for-
vörnum.“
Víkverji
Orð dagsins: Kærleikurinn er lang-
lyndur, hann er góðviljaður. Kærleik-
urinn öfundar ekki. (I. Kor. 12, 4.)
OG NÚ,
INNGANGURINN AÐ
ÓPERUNNI CARMEN...
SPILAÐUR A MÆJU
IÐRILDI...
ÉG ÞAR
AÐ LÆRA AÐ
LESA
SMÁALETRIÐ
Á
HENNAR
ALRÆMDU
HNJÁSIMBALA!
HVAÐ
ER AÐ
ÞÉR?
LESTIR HUNDAR HOPPA OG
SKOPPA ÞEGAR HÚSBÓNDI
ÞEIRRA KEMUR HEIM
ÉG HE ALDREI SÉÐ EINS
KALDHÆÐIÐ HOPP OG SKOPP
HELGA,
HVAÐ ER Í
MATINN?
NAUTASTEIK
MEÐ
KARTÖLUMÚS
OG MAÍS-
BAUNUM
HRÓLUR ELSKAR
NAUTASTEIKINA
MÍNA
HVERNIG GEKK
STENUMÓTIÐ HJÁ
ÞÉR OG SPÁKONUNNI?
KANNASTU VIÐ ÞAÐ ÞEGAR
ÞÚ ERT Á STENUMÓTI OG
HIN MANNESKJAN KLÁRAR
SETNINGARNAR ÞÍNAR YRIR
ÞIG?
ÞAÐ ER
GÓÐS VITI
EN HÚN
BYRJAR LÍKA
SETNINGARNAR
MÍNAR
ÚPS!
G
re
tt
ir
S
m
áf
ól
k
H
ró
lf
ur
hr
æ
ði
le
gi
Fe
rd
in
an
d
G
æ
sa
m
am
m
a
og
G
rí
m
ur
Svarið við spurningu dagsins
HVAÐ ER Í MATINN?
Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar@fylgifiskar.is - fylgifiskar.is
Tilbúnir fiskréttir · Ferskur fiskur
Heitur matur í hádeginu · Veisluþjónusta