Morgunblaðið - 23.03.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2012
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Bakstursofn
124.900 kr. stgr.
(fullt verð: 159.900 kr.)
Einnig fáanlegur í stáli.
ET645EN11
Keramíkhelluborð
99.900 kr. stgr.
(fullt verð: 119.900 kr.)
HB23AB220S
Tækifærisverð
A
T
A
R
N
A
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Það er fátt skemmtilegra en að róla sér, sérstaklega þegar vor er í lofti
eins og er þessa dagana í borginni. Þessir kátu krakkar við Laugarnes-
skóla skemmtu sér í það minnsta konunglega á róluvellinum þegar ljós-
myndari Morgunblaðsins átti þar leið hjá.
Sólin og gleðin skína á róló
Morgunblaðið/Golli
Vorið lék við krakkana í Laugarnesskóla
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Meirihluti reykvískra fyrirtækja –
alveg eins og meirihluti fyrirtækja á
landinu – segir í könnunum að ríkis-
stjórnin og hennar stefna sé ein
helsta hindrunin fyrir vexti í at-
vinnulífinu. Þetta er auðvitað eitt
mikilvægasta og brýnasta málið í
Reykjavíkurborg eins og alls staðar
annars staðar, að atvinnulífið vaxi og
dafni til þess að íbúar geti notið hér
góðra lífskjara,“ segir Hanna Birna
Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjórn, aðspurð um
þá tillögu flokksins að borgarstjórn
skori á ríkisstjórnina að endurskoða
atvinnustefnu sína.
„Þegar skattastefna ríkisvaldsins
er farin að skaða eins mikið og raun
ber vitni teljum við það skyldu
borgaryfirvalda að bregðast við og
mótmæla. Við höfum lagt áherslu á
það á vettvangi borgarstjórnar að
skattar séu hóflegir og lægri en þeir
eru núna, bæði gagnvart almenningi
og atvinnulífinu, til þess að almenn-
ingur hafi fé til ráðstöfunar og til
þess að atvinnulífið geti stuðlað að
hagvexti og hagsæld.
Nú er svo komið að þegar reyk-
vísk fyrirtæki eru spurð hvað helst
þurfi að gerast í atvinnumálum í
borginni er helst beðið um stuðning
borgarstjórnar til að vinna gegn
áherslum og aðgerðum ríkisvaldsins.
Þannig að okkur finnst vandamálið
orðið afar brýnt og svo alvarlegt að
borgarstjórn verði að bregðast við
og verja atvinnulífið og almenning.“
Óttast að málið verði svæft
Hanna Birna heldur áfram og seg-
ir meirihlutann hafa tekið fálega í
þessa tillögu sjálfstæðismanna, þ.e.
að borgarstjórn skori á ríkisvaldið að
endurskoða áherslur sínar í samráði
við atvinnulífið í því skyni að örva
hagvöxt. „Það var ekki stemning fyr-
ir því á vettvangi borgarstjórnar.
Málið var sett í þann farveg að ég er
sannfærð um að það hljóti ekki aðra
meðferð en þá að vera svæft ein-
hvers staðar í kerfinu,“ segir hún.
S. Björn Blöndal, aðstoðarmaður
Jóns Gnarrs borgarstjóra, segir til-
löguna munu verða tekna fyrir.
„Tillagan kom inn á fund borgar-
stjórnar á þriðjudaginn var. Henni
var vísað til borgarráðs. Það er ekki
búið að taka afstöðu til málsins. Ég á
von á því að tillagan verði tekin fyrir
þegar borgarráð kemur saman á
fimmtudaginn kemur,“ segir hann.
Hvorki náðist í borgarstjóra né
Dag B. Eggertsson, formann
borgarráðs.
Borgin skori á stjórnvöld
Sjálfstæðismenn vilja að borgarstjórn mótmæli atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar
Skattbyrðin hindri hagvöxt Meirihlutinn hyggst ræða tillöguna í borgarráði
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
S. Björn
Blöndal
Hitamet gætu verið í hættu um helgina en spáð er hlý-
indum og björtu veðri um mestallt landið. Að sögn Ein-
ars Sveinbjörnssonar veðurfræðings er ekki loku fyrir
það skotið að hitinn á vestan- og suðvestanverðu landinu
geti slagað upp í staðbundin met á laugardag en það sé
einna helst á mánudag sem landshitametið í marsmánuði
gæti verið í hættu á Norðurlandi. Núverandi met í mars
er 18,3 gráður á Sandi í Aðaldal árið 1948.
Einar segir að hlýjast verði á Vestur- og Suðvest-
urlandi í dag og á morgun, um 10-12 stig, með vindgjólu.
Áberandi hlýjast verði hins vegar á mánudag fyrir norð-
an en þá verði vindur enn suðlægari. Atlagan að hitamet-
inu velti hins vegar á því að sól nái að skína og hlýja loftið
nái niður úr þeirri hæð sem það er í.
„Þetta verða talsverð viðbrigði eftir talsverða ótíð
margar undanfarnar vikur. Svona veður á þessum árs-
tíma er hins vegar ekki varanlegt. Það stendur yfir í
nokkra daga og það er um að gera að njóta þess á meðan
það er,“ segir Einar. kjartan@mbl.is
Landshitamet fyrir mars
gæti fallið á mánudag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vorveður Allt stefnir í ágætisvorveður um helgina og
því góðar aðstæður fyrir götulistir á Laugaveginum.
Vor í veðurspákortunum
fyrir landið um helgina
Skattframtölin
hafa skilað sér
betur í ár en
verið hefur und-
anfarin ár. Skilin
eru 4-5% betri
en á sama tíma í
fyrra, að sögn
Skúla Eggerts
Þórðarsonar
ríkisskattstjóra.
Framtalsfrest-
urinn rann út á miðnætti.
Skúli telur að nokkrar ástæður
séu fyrir betri skilum. Tekist hafi
að einfalda framtalsgerðina enn
frekar, þrátt fyrir að vinnan við
álagningu sé flóknari en áður. Þá
hafi verið auglýst með markvissum
hætti.
Margir sótt um frest
Mikill erill hefur verið hjá rík-
isskattstjóra síðustu daga. Margir
framteljendur hringja eða koma til
að biðja um aðstoð. Þannig hafa
um 700 einstaklingar komið á
hverjum degi á skrifstofuna við
Laugaveg. Skúli Eggert segir að
flestir geti gengið frá framtali án
aðstoðar en vilji samt fá leiðbein-
ingar, til öryggis.
Margir hafa sótt um frest þann-
ig að skattskilin koma betur í ljós
eftir 27. mars. Reynslan sýnir að
þá og fyrstu dagana þar á eftir
hafa flestir skilað framtölum sín-
um.
Endurskoðendur og aðrir at-
vinnumenn í framtalsgerð eru síð-
an að skila framtölum jafnóðum en
hafa lengri frest.
helgi@mbl.is
Framtölin
skila sér
mun betur
Skúli Eggert
Þórðarson
700 koma til rík-
isskattstjóra á dag
Sjómaðurinn sem lést í vinnuslysi
um borð í togaranum Sigurbjörgu
ÓF í Ísafjarðardjúpi á miðvikudag
hét Jón Haukur Njálsson.
Hann var 24 ára gamall og búsett-
ur á Ólafsfirði. Hann lætur eftir sig
unnustu og tvö börn. Minningar-
stund var haldin um Jón Hauk í
Ólafsfjarðarkirkju í gærkvöldi.
Slysið er nú til rannsóknar hjá
rannsóknarnefnd sjóslysa. Búist er
við að skýrslutökur af skipverjum
hefjist í næstu viku.
Lést um borð
í Sigurbjörgu