Morgunblaðið - 23.03.2012, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2012
Laugavegi 178. Sími 562 1000. www.utivist.is
Nánari upplýsingar á utivist.is eða í síma 562 1000
Höldum Páska í Dalakofanum
Gönguskíðaferð
Jeppaferð
– á eigin jeppum
BAKSVIÐ
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Spilun á póker í gegnum netið nýtur
vaxandi vinsælda hér á landi sem og
annars staðar í heiminum. Nú er svo
komið að tugir íslenskra netpóker-
spilara hafa þessa iðju eina að at-
vinnu. Netspilarar skrá sig á póker-
netsíður þar sem þeir fá eigið
aðgangsnafn. Á hverjum klukkutíma
er fjöldi keppnismóta í gangi og geta
notendur jafnvel verið þátttakendur í
mörgum þeirra í einu. Keppendur
geta valið á milli þess að greiða sér-
stakt þátttökugjald eða spila frítt.
Gjarnan eru lágar upphæðir í boði
fyrir að standa uppi sem sigurvegari
á fríu mótunum. Vinningsféð hækkar
svo eftir því sem þátttökugjaldið er
hærra. Pókerspilarar notast við
kreditkort til þess að kaupa sér inn-
eign á síðunum.
Hægt að fylgjast með öðrum
Davíð Þór Rúnarsson, eigandi veit-
ingastaðanna Gullaldarinnar, Póker-
klúbbsins 53 og Casa, er einn helsti
pókersérfræðingur landsins. Hann
segir þá sem spila á netinu vera sér-
staka tegund pókerspilara. „Þeir búa
í öðrum heimi en aðrir. Ef þú spilar á
netinu og ætlar að græða eitthvað á
því þarftu að sitja við í 10-12 tíma í
beit,“ segir Davíð Þór.
Hann segir netspilun krefjast mik-
illar athygli. Þeir sem séu virkir spili
með hjálp sérstakra pókerforrita á
allt að 36 borðum í einu.
Í netspilun sitja leikmenn fyrir
framan tölvuskjá. Ýmsar leiðir eru
notaðar til þess að fá upplýsingar um
aðra spilara. Hægt er að fara inn á
sérstakar netsíður sem skrá tölfræði
pókerspilara. Þar má fletta upp not-
endanafni andstæðinganna og fá töl-
fræðilegar upplýsingar um það
hvernig þeir eru líklegir til að bregð-
ast við í hinum ýmsu aðstæðum.
Rassinn áfram í buxunum
Dæmi er um mann hér á landi sem
unnið hefur 70 þúsund dollara á árinu
2012 en það jafngildir nærri 8,9 millj-
ónum í íslenskum krónum. Til þess að
nota vinningsféð stofna leikmenn
kreditkort erlendis eða setja sig í
samband við einstaklinga sem eru til-
búnir að kaupa evrur eða dollara fyrir
krónur. Um 5% netspilara koma út í
hagnaði. Margir vilja halda spilun
sinni leyndri opinberlega til þess að
forðast skattgreiðslur. „Að sjálfsögðu
fara sumir illa út úr þessu, en netsíð-
urnar torvelda pókerspilurum að
spila rassinn algjörlega úr buxunum,“
segir Davíð að lokum.
Spila netpóker á 36 borðum í einu
Tugir manna hafa netpóker að atvinnu Íslendingur hefur unnið tæpar níu milljónir á árinu
5% netspilara koma út í hagnaði Sitja við í 10-12 tíma á dag að sögn pókersérfræðings
Morgunblaðið/Jim Smart
Atvinnupóker Nokkrir tugir pókerspilara hafa atvinnu af því að leika póker á netinu. Dæmi eru um að maður hafi
unnið sér inn tæpar níu milljónir með netspilun hér á landi. Enginn skattur er greiddur af vinningsfénu.
Netpókerspilari sem Morgun-
blaðið náði tali af hefur grætt
um 12 milljónir á þeim tveimur
árum sem hann hefur haft
netpóker að atvinnu. Hann er
24 ára gamall og býr hjá for-
eldrum sínum.
,,Ef ég skipti þessu í mán-
aðartímabil þá græði ég í 90%
tilfella. Ef ég spila nægilega
mikið og er duglegur get ég
grætt svona milljón á mánuði.
Ég er hins vegar oft mjög latur
og læt mér nægja 100-300
þúsund. Stundum græði ég vel
fyrstu vikuna og nenni ekki að
spila meira þann mánuðinn.“
Hann lítur ekki á vinninga
sem neitt stórmál. „Það er allt-
af gaman að fá smápening í
bankann. En fyrst og fremst lít
ég þetta sem vinnu. Þegar ég
er duglegur þá spila ég um 30
tíma á viku og ekkert um helg-
ar.“
Hann byrjaði að spila póker
17 ára gamall og hefur því spil-
að póker í 7-8 ár. Lengstum
hefur hann verið í foreldra-
húsum en bjó þó í hálft ár með
þremur öðrum netspilurum
sem allir höfðu atvinnu af
þessu. „Einn okkar græddi
ekki. Hann var á sléttu yfir
þann tíma sem við bjuggum
saman.“
Hann spilar yfirleitt á um 20
borðum í einu og notar ekki
sérstök hjálparforrit.
Hann viðurkennir að hann lifi
lúxuslífi og þrátt fyrir allt vinn-
ingsféð á hann ekki krónu sem
hann hefur lagt til hliðar. „Ég
lifi mánuð fyrir mánuð. Ef ég
væri agaðri gæti ég grætt mun
meira. Í þessu sem öðru er
mjög mikilvægt að halda rútínu
og lifa heilbrigðu lífi.“
Aðspurður hvernig hann
nálgast vinningsféð segir hann.
„Annaðhvort selur maður
dollara í gegnum facebook eða
tekur þetta út í gegnum síður
eins og paypal sem er í raun
nokkurs konar kreditkorta-
reikningur.“
Græddi 12
milljónir á
tveimur árum
ATVINNUPÓKERSPILARI
SPILAR UM 30 TÍMA Á VIKU
Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar, sem sér um
greiðslumiðlun fyrir öll íslensk greiðslukort, segir að í
sjálfu sér sé einfalt mál að loka fyrir greiðslur til er-
lendra spilavefja. Viðurkenndir spilavefir hafi tiltekið
starfsnúmer og hægt sé að búa svo um hnútana að ekki sé
hægt að nota íslensk greiðslukort í viðskiptum við þá.
„Tæknilega séð er þetta tiltölulega lítið mál,“ segir Hauk-
ur. Bann við að spila fjárhættuspil á erlendum vefsíðum
sé í gildi bæði í Bandaríkjunum og Noregi og þar sé þessi
háttur hafður á. Til skamms tíma gátu Íslendingar held-
ur ekki keypt vörur á tónlistarvefnum Itunes og þá var
sambærilegum aðgerðum beitt.
En þótt það sé tæknilega auðvelt að koma slíkum
hindrunum á er ekki þar með sagt að þær dugi til að
koma í veg fyrir spilamennskuna. Haukur bendir á að
það sé ákaflega einfalt mál að komast framhjá þessari
hindrun. Á vefnum sé fjöldinn allur af óvönduðum spila-
vefjum sem hvorki séu vottaðir né sæti þeir eftirlit. Þeir
sem vilji spila á þeim, framhjá greiðslubanni eins og lýst
er hér að ofan, geti t.a.m. látið líta svo út að þeir séu að
kaupa vörur eða áskrift að tímaritum, þegar þeir eru í
raun að kaupa inneign á spilavefjum. Slíkt sé ekki hægt á
viðurkenndum spilavefjum. Spilafíklar séu í enn meiri
hættu á þessum óvönduðu vefjum, m.a. vegna þess að
engin trygging sé fyrir því að spilarar fái hugsanlega
vinninga greidda eða að farið sé eftir leikreglunum, fyrir
utan að á þeim sé hætta á að beitt sé óvandaðri meðulum
til að leiða spilara lengra inn á ógæfubrautina. Haukur
segist skilja vel hugsunina að baki því að leggja til bann
við viðskiptum við erlenda spilavefi. „En því miður mun
þetta ekki virka,“ segir hann. „Ástandið verður bara
verra.“
Greiði skatt eins og af öðrum tekjum
Vinningar í þartilbærum happdrættum, lottói o.þ.h.
sem rekin eru í góðgerðaskyni eru undanþegnir skatt-
skyldu en aðrir vinningar og ágóði sem menn kunna að
hafa af öðrum fjárhættuspilum, s.s. á erlendum vefsíðum,
eru skattskyldir líkt og allar aðrar tekjur, að sögn Skúla
Eggerts Þórðarsonar, ríkisskattstjóra. „Það er auðvitað
ekki ætlast til þess að menn geri grein fyrir einhverjum
smápeningum, einhverjum þúsundköllum, en almenna
reglan er sú að þetta er skattskylt og það eru engar und-
anþágur frá því,“ segir hann. Líti menn á spilamennsk-
una sem atvinnurekstur eiga sjónarmið um yfirfæranlegt
tap við, að sögn Skúla. Geri þeir það þurfi þeir jafnframt
að uppfylla önnur skilyrði s.s. reikna sér laun og greiða
tryggingargjald af þeim launaþætti. runarp@mbl.is
Lítið mál að stöðva greiðslur
Ágóði af fjárhættuspilum á erlendum vefjum skattskyldur
Andri Karl
andri@mbl.is
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í
gær tvo karlmenn til fjögurra ára og
átján mánaða fangelsisrefsingar fyrir
þátttöku í skotárás í Bryggjuhverfinu
í Reykjavík 18. nóvember í fyrra.
Þriðji maðurinn sem var með í för var
sýknaður. Mönnunum sem voru
dæmdir er einnig gert að greiða öðru
fórnarlambi sínu 600 þúsund krónur í
miskabætur. Hitt dró bótakröfu sína
til baka.
Mennirnir Kristján Halldór Jens-
son og Tómas Pálsson Eyþórsson
voru ákærðir fyrir tilraun til mann-
dráps með því að hafa farið saman á
bifreið á bifreiðastæði að Tangar-
bryggju þar sem þeir höfðu mælt sér
mót við mann vegna ágreinings um
fjárskuld. Kristján Halldór skaut úr
haglabyssu einu skoti í áttina að bíl
mannsins – félagi hans var farþegi –
en hæfði ekki. Þegar svo maðurinn ók
á brott veittu mennirnir honum eft-
irför og skaut Kristján Halldór öðru
skoti út um glugga bifreiðarinnar.
Talin ófyrirleitin háttsemi
Dómurinn taldi ósannað að fjar-
lægðin sem Kristján skaut úr hefði
verið sú sama og í ákæru greindi, og
að færið hefði getað verið lengra.
Jafnframt þótti ósannað að högl
hefðu borist inn í bifreiðina. „Sam-
kvæmt framansögðu telst ekki nægi-
lega sýnt fram á að [Kristján] hafi
beitt skotvopninu með þeim hætti að
mennirnir sem í bifreiðinni voru hefði
getað beðið bana af, eða að ásetning-
ur hafi staðið til þess.“ Var hann – og
Tómas – því sýknaður af tilraun til
manndráps.
Engu að síður taldi dómurinn að
háttsemin, þ.e. að skjóta tvívegis á
bifreiðina, hefði verið ófyrirleitin.
„Hlaut hann að sjá það fyrir, að með
því stofnaði hann lífi og heilsu mann-
anna tveggja sem í bifreiðinni voru í
augljósan háska.“
Kristján var sakfelldur fyrir svo-
nefnt hættubrot, þ.e. að stofna lífi eða
heilsu annarra í augljósan háska og
dæmdur í fjögurra ára fangelsi. Tóm-
as var hins vegar dæmdur í átján
mánaða fangelsi fyrir hlutdeild í
brotinu, en hann átti frumkvæðið að
fundinum, ók bílnum og veitti því
fórnarlömbunum eftirför.
Fjögur ár fyrir skotárás
Tveir karlmenn sakfelldir fyrir skotárás í Bryggjuhverfinu
Sýknaðir af manndrápstilraun en sakfelldir fyrir hættubrot