Morgunblaðið - 23.03.2012, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 23.03.2012, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2012 FYRIR ALVÖRU KARLMENN Fæst á hársnyrtistofum Ekki er seinna vænna fyrir Stein-grím J. og félaga að undirbúa hugmyndafræðilega endurreisn Vinstri grænna eftir að hafa horfið frá öll- um helstu stefnu- málum sínum frá síð- ustu kosningum.    Nú hefur veriðákveðið að leita til upprunans og í því skyni hefur verið sett- ur á fót leshringur á vegum Vinstri grænna um marx- lenínisma.    Þetta er vitaskuldmikilvægt innlegg í íslensk stjórnmál líðandi stundar enda ekki fullvíst að stefna ríkisstjórnarinnar í atvinnu- og efnahagsmálum dugi til lengdar til að halda atvinnustigi og hagvexti í skefjum.    Á næsta kjörtímabili er ákveðinhætta á að úr fari að rætast ef ekkert verður að gert og þá er gott að geta leitað í smiðju manna sem bera ábyrgð á mestu manngerðu hörmungum sögunnar.    Víst má telja, þó að leshringurinnsé á vegum Vinstri grænna, að leitað verði til helsta aðdáanda Len- íns hér á landi, Lúðvíks Geirssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um samlestur.    Þá er sjálfsagt fyrir Steingrím J.og félaga að hafa í huga, þegar flokksmenn hafa lokið við að stauta sig í gegnum verk fyrrnefndra for- ingja, að í Seðlabankanum eru í for- ystu menn sem gætu lagt gott til mála ef víkka þyrfti út lesefnið.    Ástæðulaust er fyrir VG að horfaframhjá kenningum virtra fræði- manna á borð við Maó og Trotskí. Steingrímur J. Sigfússon Hugmyndafræðileg endurreisn VG STAKSTEINAR Karl Marx Veður víða um heim 22.3., kl. 18.00 Reykjavík 8 rigning Bolungarvík 1 slydda Akureyri 2 súld Kirkjubæjarkl. 7 rigning Vestmannaeyjar 8 súld Nuuk -3 léttskýjað Þórshöfn 8 þoka Ósló 13 heiðskírt Kaupmannahöfn 8 heiðskírt Stokkhólmur 13 heiðskírt Helsinki 8 skýjað Lúxemborg 18 heiðskírt Brussel 18 heiðskírt Dublin 11 skýjað Glasgow 13 heiðskírt London 15 heiðskírt París 20 heiðskírt Amsterdam 17 heiðskírt Hamborg 15 heiðskírt Berlín 16 heiðskírt Vín 18 léttskýjað Moskva 2 heiðskírt Algarve 18 heiðskírt Madríd 13 léttskýjað Barcelona 15 léttskýjað Mallorca 17 léttskýjað Róm 20 léttskýjað Aþena 17 heiðskírt Winnipeg 12 skýjað Montreal 20 léttskýjað New York 17 heiðskírt Chicago 24 skýjað Orlando 27 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 23. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:16 19:53 ÍSAFJÖRÐUR 7:19 19:59 SIGLUFJÖRÐUR 7:02 19:43 DJÚPIVOGUR 6:45 19:23 Nokkur páskaegg nr. 1 frá Nóa Siríusi með enskum málshætti innanborðs laumuðu sér í verslanir hérlendis. Finnur Geirsson, forstjóri Nóa Siríus, segir að það sé alls ekki meiningin að fara að innleiða ensku á íslenskum markaði. Þau mistök hafi átt sér stað í framleiðslunni að páskaegg sem voru ætluð fyrir Bandaríkjamarkað, og innihéldu því málshætti á ensku, blönduðust saman við eggin fyrir ís- lenskan markað með fyrrgreindum af- leiðingum. „Þetta gerðist einu sinni með páskaegg nr. 1 og voru mistök sem við leiðréttum fljótlega. Það var mjög takmarkað magn sem fór út með enskum málsháttum,“ segir Finnur. Nói Siríus hefur síðustu ár flutt lítið magn af páskaeggjum út til Banda- ríkjanna, og er það eina landið sem egg eru flutt út til auk þess sem fyrir- tækið sendir páskaegg til Íslendinga- félaga víða um heim. „Við höfum verið að selja súkkulaði í vaxandi mæli í Whole Foods verslunum í Bandaríkj- unum og það fylgir með reytingur af páskaeggjum á þessum árstíma,“ seg- ir Finnur. Spurður hvort Nói Siríus leiti á ný mið í málsháttunum í ár svarar Finnur að það sé ekki, þar á bæ séu menn mjög íhaldssamir í málsháttamálum. Finnur segir að aðeins hafi verið hringt í fyrirtækið vegna ensku máls- háttanna. „Menn voru eðlilega ekkert hressir með þetta en því miður gerðist þetta fyrir mistök.“ ingveldur@mbl.is Málsháttur á ensku í íslensku páskaeggi  Nokkur páskaegg ætluð fyrir Bandaríkjamarkað fóru í verslanir hér Enska Málsháttur sem kom úr páskaeggi nr. 1 frá Nóa Siríus fyrir skömmu. LÍFS-tölt hefst kl. 10 Ranghermt var í frétt í Morgun- blaðinu í gær, að töltmót, svonefnt LÍFS-tölt, hæfist klukkan 14 á laugardag í reiðhöll Harðar í Mos- fellsbæ. Rétt er að mótið er sett formlega kl. 14 en keppnin hefst klukkan 10 um morguninn. Er beðist velvirðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT Finnur Árnason, forstjóri Haga, segir mikilvægt að fá á hreint hvort nýfallinn dómur í Hæstarétti í máli einstaklinga eigi einnig við um fyrirtæki og því hafi Hagar ákveðið að höfða mál á hendur Arion banka. Finnur bendir á að tvö gengis- tryggð lán Haga hafi að fullu verið gerð upp í október 2009. Eftir að Hæstiréttur hafi komist að þeirri niðurstöðu að gengistryggð lán væru ólögleg hefði Arion banki metið stöðuna á ný og vegna endur- útreiknings bankans hefði hann greitt Högum rúmlega 514 millj- ónir króna í desember 2011. Í kjölfar niðurstöðu dóms Hæsta- réttar í máli vegna vaxta af gengis- tryggðum lánum, sem kveðinn var upp um miðjan febrúar, er það niðurstaða lögfræðiálits KPMG ehf. að Hagar eigi rúmra 824 milljóna króna kröfu til viðbótar við greiðsl- una í desember sl. á bankann vegna fyrrnefndra lána, miðað við 29. febrúar 2012. Prófmál í uppsigl- ingu hjá Högum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.