Morgunblaðið - 23.03.2012, Side 11

Morgunblaðið - 23.03.2012, Side 11
Góðir vinir Hér eru þau saman Lína, Tommi og Anna. Axel Bjarkar Sigur- jónsson leikur Tomma og Ásdís Mjöll Halldórsdóttir leikur Önnu. „Ég hef leikið í helgileik í skól- anum mínum og ég hef farið á leik- og söngnámskeið þar sem ég hef verið að leika í leikritum, en þetta er fyrsta alvöruleikritið mitt,“ segir Esther og bætir við að henni finnist ekkert mál að læra og muna text- ann. „Þegar maður fer með sama textann aftur og aftur í nokkrar vikur er maður ekkert lengi að læra þetta. Við krakkarnir sem leikum Línu, Tomma og Önnu vorum ekki nema tvær vikur að ná textanum okkar.“ Fór í áheyrnarprufu En hvernig kom það til að hún fékk hlutverkið? „Mamma sagði mér frá áheyrnarprufunum fyrir leikritið og þar sem mér hefur alltaf þótt gaman í leiklist, þá ákvað ég að prófa. Ég skellti mér í prufu og gerði mitt besta. Reyndar var verið að leita að eldri stelpu en mér í hlutverk Línu og ég vonaðist því bara eftir því að fá aukahlutverk. En svo þótti ég passa svo vel í aðal- hlutverið að ég fékk það og ég varð alveg rosalega glöð. Það er ótrúlega gaman að taka þátt í svona stórri alvöruleiksýningu, en það getur reyndar líka verið svolítið erfitt að þurfa kannski að gera það sama aft- ur og aftur, þá verður maður þreyttur.“ Stress-spenna á frumsýningu Esther segir að frumsýningar- dagurinn hafi verið stór dagur og mikil upplifun. „Þá var ég bæði spennt og stressuð á sama tíma, þá myndaðist svona stress-spenna, ég get eiginlega ekki lýst þessari til- finningu, hún var mjög sérstök. En það var samt ótrúlega gaman.“ Est- her segir hlutverkið ekki krefjast þess að hún sé ofursterk eins og Lína. „Ég þarf ekki að lyfta hesti, því hesturinn okkar er búinn til úr frauðplasti. En við Lína erum víst dálítið líkar, þó að ég sé ekki rauð- hærð eins og hún. Margir segja að ég gæti alveg verið að leika sjálfa mig. Til dæmis þegar ég segi í leik- ritinu að það sé hættulegt að þegja of lengi, það á mjög vel við okkur báðar, eins og margt annað,“ segir Esther og hlær. Hún segist hafa þekkt stelpuna Línu Langsokk vel áður en hún tók að sér hlutverkið. „Ég sá leikrit um Línu þegar ég var lítil og svo á ég disk með lögunum sem ég hlusta mikið á. Ég hef líka horft mikið á sænsku gömlu bíómyndirnar um Línu, sem eru rosalega skemmti- legar,“ segir Esther og hvetur alla til að mæta á sýninguna, hún sé svakalega skemmtileg. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2012 Allar nánari upplýsingar veita Samúel eða Halldór í símum 578-7014 og 578-7008 eða með tölvupósti á samuel@klasiehf.is og halldor@klasiehf.is TIL LEIGU Á BESTA STAÐ - SÍÐUMÚLI 28 Í boði eru eftirtalin rými: 40 m² – 17 m² opið vinnurými og 12 m² skrifstofu- /fundarherbergi. 74 m² – 49 m² opið vinnurými og 12 m² skrifstofu- /fundarherbergi. 133 m² – tvö 32 m² opin vinnurými með möguleika á auka skrifstofu-/fundarherbergi. Góð kaffistofa og salernisaðstaða. 166 m² – þrjú 32 m² opin vinnurými með möguleika á auka skrifstofu-/fundarherbergi. Góð kaffistofa og salernisaðstaða. 206 m² – tvö 32 m² opin vinnurými, eitt 49 m² og 12 m² skrifstofu-/fundarherbergi. Góð kaffistofa og salernisaðstaða. 332 m² – alls 8-10 rúmgóðar og vandaðar skrifstofur auk móttöku, kaffistofu og fundarherbergis. Húsnæðið hentar mjög vel til framleigu á einstökum skrifstofum og hentar því vel aðila sem gjarnan vill eiga möguleika á að stækka eða minnka við sig. Stækkunarmöguleiki í 540 m². 334 m² – gott opið rými, fjórar aflokaðar skrifstofur auk mötuneytis. Rúmgóð móttaka sem einnig getur hentað sem lítil verslun. „Við erum orðin þekkt fyrir að vera með góðar og metnaðarfullar leiksýn- ingar hér í Hveragerði og margar þeirra eru barnasýningar. Við höfum sett Dýrin í Hálsaskógi upp tvisvar á tíu ára fresti, Kardimommubæinn, Emil í Kattholti og mörg fleiri. Við höfum fengið gríðarlega margt fólk á þessar sýningar og erum stóránægð með það,“ segir Hjörtur Benedikts- son sem situr í stjórn Leikfélags Hveragerðis og leikur Langsokk skip- stjóra pabba Línu og einnig Adolf sterka í sýningunni sem nú er á fjöl- unum hjá þeim. „Það er búið að vera virkilega gaman að vinna að þessari sýningu, þó að flensan hafi reyndar aðeins verið að stríða okkur. Og það reynir svolít- ið á að hafa svona mörg börn í sýningu, það þarf að kenna þeim og aga þau, en þetta hefur allt saman heppnast ljómandi vel. Hún Esther sem leikur Línu Langsokk er mikið efni í leikara, hún er Lína endurfædd. Hún syngur glimrandi vel og kann alla textana út í gegn.“ Hjörtur segir almennan leiklistaráhuga vera meðal íbúa Hveragerðis, enda hefur leikfélagið starfað í sextíu og fimm ár. „Sumt af því unga fólki sem hefur verið að leika með okkur hefur haldið áfram á leiklistarbraut- inni og núna eru þrír frá okkur í leiklistarnámi í útlöndum. Þetta er því ágæt uppeldisstöð fyrir efnilega leikara, en við þessir gömlu húkum hér í okkar góða félagi og höldum merki þess hátt á lofti.“ Uppeldisstöð fyrir unga leikara LEIKFÉLAG HVERAGERÐIS Hönnunarsýning Sub-zero Couture fer fram í Bláa lóninu í kvöld. Ásamt 66°Norður munu þekktir íslenskir hönnuðir koma fram á sýningunni með fylgihluti, m.a. Mundi, Volki, Kron by KronKron, Vík Prjónsdóttir og Farmers Market. Það er 66°Norður sem stend- ur fyrir sýningunni í samvinnu við Hönnunarmars, Iceland Naturally, Bláa lónið, Icelandair og Reyka Vodka. Sýningin er ein sú stærsta og veg- legasta sem haldin hefur verið hér á landi og mun fjöldi erlendra fjölmiðla- manna mun mæta og fjalla um við- burðinn. Þar á meðal ná nefna blaða- menn og ljósmyndara frá Wallpaper, Elle Interior, Bo Bedre, Dwell, C Maga- zine, FORM, Coolhunting, Daily Mirror, WGSN og Extra TV. Sýningin er hluti af Hönnunarmars og fer fram utandyra í lóninu sjálfu. Sýningin hefst kl. 19 en fyrir áhuga- sama tískuunnendur verður hægt að fylgjast með viðburðinum í beinni á vefsíðunni Liveproject.is. Fatnaður og fylgihlutir Hönnunarsýn- ing í Bláa lóninu Fyrirsæta Emil Þór Guðmundsson sat fyrir í vetrarherferð 66°Norður. Eftir Astrid Lindgren í þýðingu Þórarins Eldjárn. Tónlist eftir Georg Riedel. Leikstjóri Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson. Sýningar: Föstudag, 23. mars, kl. 18.00. Laugardag, 24. mars kl. 14.00. Sunnudag, 25. mars, kl. 14.00. Miðvikudag, 28. mars, kl. 18.00. Föstudag, 30. mars, kl. 18.00. Laugardag, 31. mars kl. 14.00. Miðaverð 2.000 kr. en 1.700 kr. fyrir hópa (15 eða fleiri) Miðapantanir í síma 868 7918. Lína Langsokkur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.