Morgunblaðið - 23.03.2012, Page 21

Morgunblaðið - 23.03.2012, Page 21
AFP Eftir áhlaupið Sérsveitarmenn frönsku lögreglunnar hverfa af vett- vangi eftir að hafa fellt raðmorðingj- ann Mohamed Merah í Toulouse. FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2012 Yfirvöld í bandaríska landhernum rannsaka nú hvort sálfræðingar hafi ýtt til hliðar greiningu á áfalla- streitu hermanna til að spara fé. Áhyggjur af sálrænu álagi her- manna hafa vaknað eftir að liðþjálf- inn Robert Bales myrti 16 óbreytta borgara í Afganistan. Ráðist var í rannsóknina eftir að í ljós kom að sálfræðingar við her- stöðina Lewis-McCord í Wash- ington-ríki hefðu breytt mati um 40% hermanna, sem greindir höfðu verið með áfallastreitu. Bales var í þeirri herstöð, en ekki er vitað hvort hann var í þessum hópi. BANDARÍKIN AP Áfallastreita? Robert Bales liðþjálfi myrti 16 óbreytta borgara í Afganistan. Rannsaka hvort mati á áfallastreitu hafi verið breytt Kínversk stjórnvöld hafa skyldað lögmenn til þess að lýsa yfir holl- ustu við kommúnistaflokkinn í nýrri tilskipun. Mannréttinda- lögfræðingar í Kína eru æfir og segja tilskipunina ganga í berhögg við reglur réttarríkisins. Lögmenn, sem sækja um að fá réttindi í fyrsta sinn eða endurnýja þau, þurfa að lofa hollustu við flokk og sósíalisma, að því er segir í til- kynningu á heimasíðu kínverska dómsmálaráðuneytisins. Sumir lögmenn hafa gagnrýnt tilskipunina, en aðrir vilja ekkert segja af ótta við að vera refsað. KÍNA Lögmenn lýsi yfir hollustu við flokkinn Að minnsta kosti 32 þúsund hús skemmdust í jarðskjálftanum í suðurhluta Mexíkó á þriðju- dag. Aðeins 13 manns slösuðust í skjálftanum, sem mældist 7,4 stig á Richter. Mest var eyði- leggingin í Guerrero-ríki þar sem skjálftinn átti upptök sín. Þar skemmdust 30 þúsund hús. 40 eftir- skjálftar fylgdu skjálftanum. MEXÍKÓ Tjón á 32.000 hús- um í jarðskjálfta Maður stendur við brak úr kirkju. Úrval fríuppskrifta er á vef okkar istex.is Hlý og falleg í skólann Síðumúla 16 ~ 108 Reykjavík ~ Sími: 580 3900 ~ fastus.is Fastus til framtíðar Bjóðum öflugar og endingargóðar vélar frá Electrolux og Primus. Hafðu samband við söluráðgjafa okkar og við aðstoðum þig við að finna hagkvæmustu lausnina. ÞVOTTAVÉLAR, ÞURRKARAR, STRAU- OG BROTVÉLAR Nicolas Sarkozy, forseti Frakk- lands, hét því eftir að raðmorðing- inn Mohamed Merah var felldur í gær að láta til skarar skríða gegn öfgasinnum. Hann sagði í sjón- varpsávarpi að hann vildi að koma lögum yfir þá, sem reglulega fara inn á vefsíður herskárra múslíma eða til útlanda í þjálfun. Hann kvaðst einnig ætla að biðja yfir- völd að rannsaka útbreiðslu öfga- hyggju í frönskum fangelsum. Marine Le-Pen forsetaframbjóð- andi, sem hefur beint spjótum sín- um að múslímskum innflytjendum í kosningabaráttunni, beið ekki boðanna að saka stjórnvöld um linkind gagnvart grundvallar- hættu. Talsmaður Francois Hollande, forsetaframbjóðanda sósíalista, sagði að eftirlitskerfið í Frakklandi hefði brugðist, en bætti við að að- gerðirnar, sem Sarkozy hefði boð- að, myndu ekki leysa vandamál samfélagsins. Francois Heisbourg, sér- fræðingur um öryggismál, sagði að spyrja yrði hví Merah og bróðir hans hefðu ekki verið undir eftirliti þar sem yfirvöldum hefði verið kunnugt um þá. „Það er fullkomlega mannlegt að skjátlast. Í mínum huga var ljóst að ónæmi okkar fyrir árásum myndi ekki endast til eilífðar,“ sagði Heisbourg og rifjaði upp að síðast hefði hryðjuverk verið fram- ið í Frakklandi 1996. „Það hlaut að koma að því að hryðjuverkamaður slyppi í gegnum netið, en auðvitað afsakar það ekki mögulegan dóm- greindarbrest.“ Sarkozy boðar hertar aðgerðir GAGNRÝNENDUR SEGJA EFTIRLIT HAFA BRUGÐIST Sarkozy ávarpar Frakka í gær. Ástralskur út- lagi, sem í sjö ár hafði snúið á lög- regluna, náðist loks í gær þar sem hann hafði komið sér fyrir í afskekktum kofa. Malcolm Nad- en hafði verið á flótta frá því hann hvarf af heimili afa síns og ömmu árið 2005. Nokkrum dögum síðar fannst Kristy Schole, 24 ára tveggja barna móðir, látin í svefn- herbergi hans. Hún hafði verið kyrkt. Einnig var lýst eftir honum fyrir að hafa nauðgað 15 ára stúlku og vegna hvarfs 24 ára gamallar frænku hans. Bitinn af lögregluhundum Naden var handtekinn skömmu eftir miðnætti á einkajörð á strjál- býlu svæði í Nýju Suður-Wales eftir að lögregla hafði fengið ábendingu. Engum skotum var hleypt af þegar hann var handtek- inn. Naden var með bit eftir lög- regluhunda á fótum eftir handtök- una. Naden vann við að flá og úr- beina í sláturhúsi. Hann er sagður meistari í að láta fyrirberast í óbyggðum Ástralíu. Áður en hann hvarf dvaldi hann bak við luktar dyr og las biblíuna, alfræðiorða- bækur og leiðarvísa um að lifa af í óbyggðum. Sagt er að hann hafi haft góða þekkingu á landinu. Hann hafi bú- ið sér skjól uppi á hæðum og hól- um til að hafa sem besta yfirsýn, lifað á náttúrunni og þess á milli brotist inn í afskekkt heimili til að stela vopnum og vistum. Naden var dreginn fyrir dómara í gær og ákærður fyrir morð, nauðgun og tilraun til að myrða lögregluþjón. Útlagi bak við lás og slá Malcolm Naden.  Faldi sig í óbyggð- um Ástralíu í sjö ár

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.