Morgunblaðið - 23.03.2012, Side 25

Morgunblaðið - 23.03.2012, Side 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2012 Í Morgunblaðinu í gær birtist grein eftir tvo lækna sem skrifuð er í tilefni frumvarps velferð- arráðherra um að hjúkr- unarfræðingar og ljósmæður fái takmarkaða heimild til að ávísa horm- ónatengdum getnaðarvörnum. Læknarnir vor- kenna ráðherra og halda því fram að frum- varpið sé ekki lagt fram á fagleg- um forsendum til að auka gæði heilbrigðisþjónustunnar, heldur eingöngu vegna þrýstings frá fag- félagi hjúkrunarfræðinga! Þetta er merkileg fullyrðing. Ég vissi ekki að velferðarráðherra væri vinnu- maður Félags íslenskra hjúkr- unarfræðinga. Ég þakka læknunum ábendinguna. ELSA B. FRIÐFINNSDÓTTIR, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Velferðar- ráðherra vinnumaður hjúkrunar- fræðinga Eftir Elsu B. Friðfinnsdóttur Elsa B. Friðfinnsdóttir Bréf til blaðsins ✝ Martin Petersenfæddist í Reykjavík 9. júlí 1925. Hann lést á líknardeild Landspít- alans í Kópavogi 16. mars sl. Foreldrar hans voru Sólveig Árnadóttir og Karl Petersen kaup- maður. Eiginkona Martins er Kristín Sigurðardóttur. Börn þeirra eru; Ragn- ar, f. 17. ágúst 1953. Karl, f. 6. júlí 1960, d. 2. apríl 2006, Kristín, f. 31. júlí 1965. Martin ólst upp í foreldrahúsum á Sólvallagötu í Reykjavík. Eftir lát föður síns flutti hann ásamt móður sinni til móðurfor- eldra sinna á Ísafirði. Að skólagöngu lokinni í Landa- kotsskóla og Gagnfræða- skóla Ísafjarðar fór Martin til New York þar sem hann stundaði nám. Að því loknu starfaði hann hjá Loftleiðum og síðar Flugleiðum í 35 ár, síðast sem markaðsstjóri. Síðar rak hann eigið fyr- irtæki og vann sem leið- sögumaður. Jarðarför Martins fer fram frá Langholtskirkju í dag, 23. mars 2012, kl. 13. Góður vinur, mágur og svili, hefur kvatt. Við áttum margar góðar samveru- stundir; fórum í gönguferðir saman, á gönguskíði, spiluðum badminton, borðuð- um saman, spjölluðum og spiluðum bridds, hittumst í fjölskyldubústaðnum á Þingvöllum og áttum þar góðar stundir. Börnin okkar voru alltaf með og milli þeirra var góð vinátta. Þegar veikindin urðu þyngri og hann þurfti umönnun og aðstoð reyndist kona hans, Kristín, honum stoð og stytta, hún var eins og klettur við hlið hans. Það er erfitt að missa ástvin, en gott að dvelja við góðar minningar. Við þökkum Martin góða samfylgd og vináttu og vottum fjölskyldu hans dýpstu samúð. Ragna og Aðalsteinn. Martin Petersen var eiginmaður Krist- ínar móðursystur minnar. Kristín var ein af fallegustu konum Reykjavíkur, sem ung kona, og ég man að sem barni fannst mér Martin vera nokkuð fullorðinn fyrir hana, heilum níu árum eldri. Martin var kletturinn í fjölskyldunni, hann sá vel um sig og sína. Móðir hans bjó hjá þeim hjón- um alla tíð en Karl faðir Martins lést ung- ur, drukknaði, en hann hafði verið sem þýskur ríkisborgari fluttur til Bretlands í fangabúðir á stríðsárunum. Martin var unglingur á þeim tíma og varð vitni að handtökunni. Var það mikið áfall fyrir ungan dreng og móður hans að missa föð- ur og eiginmann á þennan hátt. Ég verð ævinlega þakklát Martin og þeim hjónum fyrir að hafa tekið mig inn á heimili sitt þegar ég flutti að heiman tæpra 18 ára gömul, eftir að hafa búið um þriggja ára skeið í Bandaríkjunum ásamt móður minni, stjúpföður og systkinum. Á þeim tíma var Martin einn af stjórnendum Loftleiða og mikils virtur meðal sinna yf- irmanna og samstarfsmanna enda mjög hæfur í sínu starfi, talaði reiprennandi þýsku og ensku, var hæfur samningamað- ur og stjórnandi. Starfsfólkið bar ómælda virðingu fyrir honum. Ég hafði fengið starf á skrifstofu Loftleiða en á þeim tíma óx fyrirtækið ört og vantaði starfsmenn, skrifstofan nýflutt í nýbyggingu á Reykjavíkurflugvelli. Ég fékk því far með Martin í vinnuna á morgnana, þegar hann var ekki á ferðalögum erlendis, með við- komu á leikskólanum Grænuborg þar sem Karl heitinn, sonur hans, var í hálfs dags dvöl. Ég minnist þess hvað mér þótti skemmtilegt og skondið að fylgjast með þeim feðgum ganga inn í leikskólann, hönd í hönd, alveg sama göngulagið hjá báðum þrátt fyrir aldursmun. Kalli var eins og smærri útgáfa af föður sínum. Hann lést langt um aldur fram fyrir sex árum eftir árslanga baráttu við illvígan sjúkdóm og var fjölskyldunni allri mikill harmdauði. Ég á margar fallegar minningar um Martin, bæði frá þessu ári sem ég bjó hjá þeim hjónum í Safamýri 49 og einnig öll- um árunum á eftir, enda samgangur ávallt mikill milli móðursystra minna og fjöl- skyldna þeirra. Martin var vel liðinn af öll- um níu systkinum Kristínar og þeirra fjöl- skyldum, öllum þótti vænt um hann. Hann var þessi fasti klettur í tilveru okkar, sem tengdust honum fjölskylduböndum, alltaf rólegur, yfirvegaður og góðhjartaður. Þótt hann hafi oft verið alvarlegur á svip var hann bæði kátur og glettinn í góðra vina hópi, hafði góðan húmor. Hann var víðlesinn og afar vel að sér, fylgdist vel með erlendum fréttum bæði í sjónvarpi og hafði fasta áskrift af erlendum fréttatíma- ritum. Hann hafði gaman af að ræða heimsmálin alveg fram undir það síðasta og hafði mjög ákveðnar skoðanir á því sem var að gerast bæði hér heima og er- lendis. Martin var vinur vina sinna. Hans verður sárt saknað af fjölskyldu og vinum. Guð blessi minningu Martins Petersen. Ég þakka honum samfylgdina og þá góð- semi og umhyggju sem hann hefur ávallt sýnt mér og minni fjölskyldu. Fjölskyldu hans votta ég innilega samúð mína. Lára Kjartansdóttir. Þegar litið er yfir farinn veg standa eft- ir minningar um þá menn og málefni sem stóðu nærri í lífinu hverju sinni. Þannig er því farið þegar kvaddur er Martin Pet- ersen einn af framkvæmdastjórum Loft- leiða hf. Martin var hógvær, vandaður og vel gerður maður, lét lítið fyrir sér fara, en vissi og þekkti því fleira. Kynni okkar Martins hófust eftir að ég hafði lokið tilskildu umsóknarferli hjá Loftleiðum. Það var árið 1962. Mér var vísað til skrifstofu hans. Þar sat hann við gljáfægt skrifborðið, snyrtilega klæddur sem ávallt og bauð mig velkominn til starfa hjá fyrirtækinu. Hann átti eftir að vera yfirmaður minn næstu 20 árin. Martin rétti mér tvo þykka doðranta sem báðir voru á ensku, annar svonefndur „Operation Manual“ og hinn „Station Ma- nual“. – Lestu þér til um starfsemi Loft- leiða, þá kafla þar sem ég hef merkt sér- staklega. Að því loknu röbbum við saman um það starfssvið sem félagið hyggst fela þér. – Umsjón og eftirlit með farþega- þjónustu Loftleiða í lofti og á viðkomu- stöðum félagsins erlendis og samningum við veitingasala á hinum ýmsu flugvöllum sem Loftleiðir flugu til á þeim tíma. Og þeim fjölgaði ört á þessum árum. Martin gegndi viðamiklu og ábyrgðar- fullu starfi sem markaðs- og sölustjóri Loftleiða. Hann var lykilmaður í hvers konar samningagerðum fyrir félagið hér sem erlendis. Var einnig fulltrúi Íslands, ásamt þáv. flugmálastjóra, Agnari Koefo- ed-Hansen í viðræðum við SAS og IATA og á flestum öðrum fundum í hinum ýmsu löndum, nær og fjær. Martin var sérfræðingur Loftleiða í fargjaldamálum, og gegndi viðamiklu hlutverki í viðræðum við IATA um flug- gjöld milli Reykjavíkur og Evrópuland- anna þegar Loftleiðir svöruðu IATA- lækkuninni með enn meiri lækkun á sín- um fargjöldum árið 1964. Martin var falið viðamikið verkefni í öll- um viðræðum Loftleiða við ríkisstjórn Ís- lands á uppgangsárum félagsins, svo og um lendingarleyfi Íslands í Bandaríkjun- um. Almennt var álitið að lækkun far- gjalda Loftleiða ógnaði hinu víðfeðma neti sem IATA réði yfir á fargjaldasviðinu. En hagur Lofteiða óx og dafnaði eftir því sem árin liðu og var það án efa sterkum og heilsteyptum mönnum innan Loftleiða eins og Martin að þakka. Á engan er hallað þótt fullyrt sé hér að það hafi verið Martin Petersen og Sig- urður Magnússon, blaðafulltrúi Loftleiða, sem áttu heiðurinn af því að koma á hinu vinsæla „Stop over“-kerfi sem Loftleiðir voru frumkvöðlar að og á líklega enn sinn þátt í hinum mikla farþegastraumi til Ís- land, farþega sem nota tækifærið á leið sinni yfir Atlantshafið um Ísland og bæta því við sem áningarstað í nokkra daga. Ekki má gleyma farskrárkerfi Loftleiða sem var mikilvægur hlekkur í þessari starfsemi allri og var þá í mótun undir stjórn Íslaugar Aðalsteinsdóttur. Ég minnist Martins Petersen sem trausts og góðs stjórnanda. Ekki síst minnist ég Martins sem hugljúfrar per- sónu og sannkallaðs sómamanns í þeirra orða fyllstu merkingu. Við Brynhildur sendum Kristínu og fjölskyldu hennar okkar innilegustu sam- úðarkveðju. Geir R. Andersen. Martin Petersen Nú, þegar stefnir í óvissu um hver næsti Forseti Íslands verður, þykir mér lag að koma fram með þá tillögu, að sá næsti velji sér nokk- urs konar lárvið- arskáld til að hafa með sér í för: Til að árétta þá heimsmynd sem við Íslendingar þurfum að varðveita í hugum okk- ar, þar sem sjálfstæði og söguskyn haldast á við varðveislu bókmennta, lista og tilfinningu fyrir náttúru þjóðsagnaarfsins. Þetta var um margt áhersla hjá okkar næstsíðasta forseta, en sá sem nú situr hefur ekki haft geð í sér til að vera að þylja ljóð á almannafæri; hvað þá að biðla til álfa; viljað heldur vera í forystu fyrir breytingaröflum, svo sem meiri viðskiptum við Evrópusambandið, Kína og Indland. Þar skal lóð lagt á útrásarvogina og innrásarvogina svo lengi sem landsmenn þola. Raunar tel ég að farsælt hefði ver- ið ef núverandi forseti og sá síðasti hefðu haft sveigjanleika í sér til að sameina báðar þessar áherslur, þannig að Vigdís hefði getað orðið nokkurs konar lárviðarskáld Ólafs Ragnars Grímssonar. En í ljósi þess að svo varð ekki, þarf einhver að taka af skarið og bjóða sig fram sem slíka varaskeifu. Ég sé fyrir mér að kalla mætti mig til; á tímakaupi, með hæfilegum fyr- irvara til að ég geti fengið frí frá minni launavinnu; til að flengjast með forsetanum um allar jarðir sem hans setta hirðskáld, til að lesa upp úr ljóðum mínum, og halda stuttar tölur um hvað ég héldi að horfði til stöðugleika í framtíðinni. Kjarninn í mínum boðskap myndi verða þessi: Við stöndum og föllum með vilja okkar til að vera áfram minnsta sjálfstæða menningarríkið í hinum vestræna heimi; og þar með um leið minnsta vestræna velferðarríkið í hinum ríka hluta heimsins. Því skiptir meiru að við varðveitum sjálfstæði okkar síðustu áratuga með því að beina sjón- um okkar að þeim okk- ar sem sitja eftir heima en þeim sem kjósa að flytja burt, af því þeim líkar ekki lengur við landið eins og það er. Um leið eigum við að reyna að aðlaga sem best þá innflytjendur sem kunna að koma annars staðar frá, að okkar íhaldssömu sögu og tungu og bókmenntum; svo fremi sem þeir hyggjast verða áfram á landinu. Er varðar tæknilegar framfarir og auðsæld vil ég benda á að við höf- um þegar ríflega það sem þurfti til að komast af fyrir mannsaldri síðan, og að bakslag í lífskjörum á stundum getur verið það sem sú tilraun til að vera minnsta sjálfstæða vestræna þjóðin í heimi útheimti á stundum. Það má jafnvel vera að slíkur for- gangur komi niður á menntun, lang- lífi og jafnræði meira en verið hefur, en við verðum að horfa til fortíðar í þeim efnum frekar en til framtíðar. Við getum haft fyrir reglu að stefna að ástandinu eins og það var um síð- ustu aldamót, árið 2000. Er varðar bókmenntirnar, getum við auðgað Íslendingasagnaarfinn fyrir okkur með því að tengja hann meira við hina fornu borgmenningu Evrópu frá Forn-Grikkjum til nú- tímans, og með því að leggja aftur áherslu á ljóða- og kvæðamenn- inguna eins og hún var hér á 20. öld. Og tengja má þetta betur við trú- málin með því að leiða hugann að því sem ásatrúarmenn og þeirra for- verar í Evrópusögunni hafa sótt til náttúrunnar og náttúruvætta. Raunar tel ég að fyrirmynd mín að Lárviðarskáldum sé að láta á sjá, að því leyti að bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum eru þau ekki lengur skipuð ævilangt, heldur bara til ákveðins tíma í senn. Árangurinn verður að vísu lýðræðislegri, en um leið verða handhafarnir minna áber- andi, með þeim afleiðingum að þar fer forgörðum helsta tækifæri nú- tímaríkja til að byggja upp minningu fleiri einstaklinga til framtíðar; sem þjóðskáld. En ég slæ þessu nú fram, í trausti þess að áratugalöng blaðaskrif mín með greinum og ljóðum skipi mér hér á stall sem henti hvað best fyrir slíkt Lárviðarskáld Forseta Íslands. Að venju vil ég hér ljúka máli mínu á ljóði úr eigin ranni. Er það úr tíundu frumsömdu ljóðabók minni, Ævintýraljóðum, er út kom árið 2010. Heitir það: Goðsaga um Ís- land. Að vísu geng ég þar út frá grískri goðsögu, og treysti ég á að félagar mínir í Ásatrúarfélaginu virði nú vel þá sérvisku mína: Þá er Ólympsbræður þrír / þráttuðust í valdastý / þótti þeim sem eyjan Thule/ þegi væri fráleitt búleg. Póseidon sér hana vildi hafa / enda ljóst sem fax á báru hafið. / Seifi fannst að sökum hennar vinda / stöð- ugu, þá himnesk væri kindar. Hades gerðist hógværlega djarfur:/ hæfilegt þar sálir yrðu arfur. / Nið- urstaða þæfinga varð þessi: / Þetta í lög nú Alfaðirinn setti: Seifur skyldi fugla himins hljóta, / Pó- seidon nú sjávarfangs fá njóta, / en myrkur Hades sálirnar þó mega / mannanna er síðar kæmu, eiga. Lárviðarskáld Forseta Íslands? Eftir Tryggva V. Líndal »Ég sé fyrir mér að kalla mætti mig til; á tímakaupi, með hæfileg- um fyrirvara til að ég geti fengið frí frá minni launavinnu; til að flengj- ast með forsetanum um allar jarðir sem hans setta hirðskáld, til að lesa upp úr ljóðum mín- um... Tryggvi V. Líndal Höfundur er skáld og mannfræð- ingur. Ætti fólk að tortryggja Kínverja eitthvað sérstaklega? Allir þeir Kín- verjar sem ég hef umgengist á lífs- leiðinni, hérlendis sem erlendis, hafa verið alveg yndislegt fólk – svo af ber. En er eitthvað að marka það? Maður hefur nú heyrt hitt og þetta, lesið margt og séð ýmislegt í sjón- varpi. Svo virðast anzi margir Ís- lendingar næstum fjandsamlegir í þeirra garð. Merkismaðurinn Nubo hinn kín- verski var nýlega tilbúinn að festa kaup á gríðarjörðinni Grímsstöðum á Fjöllum, fyrst hún var falboðin og mun hafa verið í rúman áratug að sögn, án þess að nokkurt tilboð bær- ist frá íslenskum/evrópskum aðilum. Nubo, maður sem hefur ekki bara komist á báða póla jarðarinnar, heldur líka sjö hæstu fjallstindana – auk alls skáldskaparins sem hann hefur látið frá sér fara, virðist sér- legur snillingur og áhugi hans á landinu í raun heiður fyrir okkur Ís- lendinga. Hann sér ugglaust ótelj- andi möguleika, verandi kínverskur brautryðjandi á heimsmælikvarða og hafandi fjármagn til staðar. Fyrirætlanir þær sem Nubo kynnti sýnast ríma prýðilega við um- hverfisstefnu stjórnvalda þetta kjör- tímabilið en fráleitt finnst mér að fetta fingur út í búsetu hans utan EES-svæðisins, þótt farið væri að lögum. Rétt er auðvitað og skylt að fara að þeim, þótt nýta hefði mátt undanþáguna í þessu stórmáli. Vís- ast vill Nubo sjálfur fara að lögum, en spyrja má hvort eitthvað sé bogið við téð lög? Getur verið að illa sofnir alþing- ismenn í tímaþröng, hafi rétt fyrir einhver þingslitin, fest í gildi lög sem fara þarf sem fyrst að taka til endur- skoðunar, ekki síst suma „bandorm- ana“? Núverandi ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur (en hún var eitt sinn að vísu flugfreyja – og ég bið fólk að gleyma sem fyrst, vegna allra stór- kostlegu flugfreyjanna almennt) er einna síst til þess fallin að leiða þetta stórmál til lykta, þótt örlað hafi á sínu hverju af viti úr ranni Samfylk- ingarinnar. (Enginn er alvitlaus). Verra er að Vinstri grænir virðast vera einangrunarsinnar. Ég get ein- ungis ráðlagt þeim, auk annarra tor- trygginna manna, að takast á hend- ur ferðalag til Bandaríkjanna – helst til tíu ríkja eða svo. Vesturströndin er að mínu mati álitlegust, einkum Oregon- og Wash- ington-ríki, þótt fróðari menn reki ferlið allt til Vancouver í Kanada sem kvað vera toppurinn í Norður- Ameríku. Ég allavega elska Kan- adabúa sem koma núorðið í stórum stíl til landsins. Þeir þurfa engan kinnroða að bera í samanburðinum við Bandaríkjamenn, sýnist mér leigubílstjóranum í alþjóðlegu höf- uðborginni Reykjavík. Veri allt þetta fólk velkomið og vel skyldi að því búið. Rétt eins og Kínverjunum vinum okkar. PÁLL PÁLMAR DANÍELSSON leigubílstjóri. Hverjir eru á móti Kína? Frá Páli Pálmari Daníelssyni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.