Morgunblaðið - 23.03.2012, Page 32

Morgunblaðið - 23.03.2012, Page 32
32 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2012 Valgerður Sverrisdóttir, bóndi á Lómatjörn í Grýtubakka-hverfi og fyrrverandi alþingismaður, er 62 ára í dag. Húnætlar að halda daginn hátíðlegan með fjölskyldunni. „Auð- vitað gerir maður sér dagamun. Eiginmaðurinn, yngsta dóttir mín og kærasti hennar ætla að elda fyrir mig ljúffengan kvöldverð. Það eitt og sér að sleppa við að standa yfir pottunum er nóg ástæða til að hlakka til,“ segir Valgerður. Hún er fædd og uppalin á Lómatjörn í Grýtubakkahverfi og hef- ur alltaf búið þar, þrátt fyrir setu á Alþingi í Reykjavík. Valgerður hætti þingstörfum árið 2009 en hefur ennþá nóg á sinni könnu. „Ásamt því að vera með búskap er ég formaður samstarfsráðs um þróunarsamvinnu sem er á vegum utanríkisráðuneytis. Ég er líka formaður félags eldri borgara í sveitarfélaginu mínu, þótt mörgum finnist það fyndið.“ Þá vinnur hún að svokölluðu Garðarshólma- verkefni á Húsavík sem felst í því að byggja þekkingar- og menn- ingarsetur á sjálfbærri þróun. Valgerður segir fyrst og fremst mikilvægt að njóta sam- verustunda með fjölskyldunni og vera dugleg að gera eitthvað ánægjulegt. „Ég varð amma fyrir stuttu og á von á öðru barna- barni fljótlega. Ég nýt mín til að mynda vel í því skemmtilega hlut- verki.“ Valgerður Sverrisdóttir er 62 ára í dag Morgunblaðið/Golli Með fjölskyldunni Valgerður Sverrisdóttir fagnar afmælinu á Lómatjörn. Þar mun hún njóta dagsins með fjölskyldunni. Fjölskyldan eldar matinn í sveitinni V algeir fæddist í Fremri- Hlíð í Vopnafjarð- arhreppi í Vopnafirði og ólst þar upp í foreldra- húsum við öll almenn sveitastörf þess tíma en foreldrar hans voru með kýr til heimilisnota en annars sauðfé. Valgeir naut barnaskólamennt- unar við farskóla sveitarinnar sem oft var haldinn í Ytri-Hlíð sem var næsti bær við heimili hans. Valgeir stundaði síðar nám við Héraðsskólann á Laugum í Suður- Þingeyjarsýslu og lærði síðan bók- band við Iðnskólann á Akureyri. Fimmtán ár hjá Pósti og síma Valgeir stundaði bústörf á búi for- eldra sinnar fram til 1952. Hann hóf þá störf hjá Pósti og síma á Vopna- firði og starfaði þar á árunum 1952- 57 auk þess sem hann vann nokkuð við bókband fyrir ýmsa aðila. Hann flutti til Reykjavíkur 1957 þar sem hann sinnti afgreiðslu á böggladeild Póstshússins á árunum Valgeir Sigurðsson 85 ára Morgunblaðið/Sigurgeir S. Bókamaður Valgeir og Sigríður fyrir framan bókaskápinn í stofunni. Í íbúðinni eru fleiri veggir þaktir bókum. Spjallað um heima og geima Blaðamaðurinn Valgeir var blaðamaður á Tímanum um skeið. Hér er hann á tali við Hrólf heitinn Ingólfsson sem þá var bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. 80 ára Óli er fæddur í Húsavík í Kirkjubólshreppi í Stranda- sýslu, og ólst þar upp. Hann vann að mestu almenn landbún- aðarstörf fram til 1957. Þá flutti hann til Reykjavíkur, hóf nám í rennismíði hjá Agli Vilhjálmssyni hf, lauk sveinprófi og varð síðar rennismíðameistari. Eftir námið vann Óli á renniverkstæði Egils Vilhjálmssonar hf til 1984 en þá keypti hann verkstæðið ásamt starfsfélögum sínum. Verkstæðið fékk þá heitið Vélaverkstæðið Egill hf. og var Óli formaður eignafélagsins allan tímann, í tuttugu ár. Þá sat hann í stjórn Félags járniðnaðarmanna um árbil frá 1979. Fjölskylda Óli kvæntist 28.12. 1963 Guðbjörgu Vilhjálms- dóttur, f. 31.5. 1942, húsmóður. Dætur Óla og Guðbjargar: Guðrún Heiður, f. 16.4. 1965, deildarstjóri en maður hennar er Guðmundur Hallgrímsson verkfræðingur og eiga þau tvö börn; Ragnheið- ur Kristín, f. 7.9. 1967, húsmóðir og á tvo syni; Stefanía Lilja, f. 7.9. 1967, deild- arstjóri en maður hennar er Ingvi Ingólfsson, húsgagnameistari og eiga þau tvo syni. Systkini Óla Grímur Stefáns sem er látinn; Sigfríður, Agnar og Ragnheiður. Foreldrar Óla Runólfur Sigurðsson, oddviti í Húsavík og k.h., Stefanía G. Gríms- dóttir húsfreyja. Óli S. Runólfsson „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar verður einnig sagt frá öðrum merkum við- burðum í lífi fólks, svo sem hjónaböndum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta á net- fangið islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Sími 568 1090 - www.bilson.is - bilson@bilson.is Opnunartímar: Mánudagur til fimmtudags kl. 8-17, föstudagur kl. 8-16 GÆÐAVOTTAÐ BÍLAVERKSTÆÐI • Sérhæft og vottað þjónustuverkstæði fyrir VW og Skoda. • Hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með úttekt frá BSI á Íslandi. • Starfsleyfi til endurskoðunar frá Umferðarstofu. • Forvarnarverðlaun VÍS 2010. ÞJÓNUSTA SEM ÞÚ GETUR TREYST

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.