Morgunblaðið - 23.03.2012, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 23.03.2012, Blaðsíða 36
Farsæll ferill Rúríar (f. 1951)spannar hartnær fjóraáratugi og nú hefur veriðefnt til löngu tímabærrar yfirlitssýningar á verkum hennar í öllum sölum Listasafns Íslands. Í glænýrri og verulega bitastæðri bók um feril Rúríar (Rúrí, 2011) er skrá yfir 500 verk, sem sýnir glögglega að yfirlitssýning á umfangsmiklum og fjölbreyttum verkum hennar verður óhjákvæmilega ágripskennd en á sýningunni eru „aðeins“ um 100 verk. Gjörningar og uppákomur eru stór hluti verkanna og aðeins hægt að sýna heimildir um þá, m.a. í formi ljósmynda (sem öðlast þá sjálfstætt gildi). Sama má segja um tímabundn- ar innsetningar og staðbundin verk í opinberu rými; ljósmyndir, líkön og teikningar gefa verkin til kynna. Við inngang safnsins sést líkan af útilistaverkinu Regnbogi – rétt eins og verkið sjálft er eitt fyrsta kenni- leiti sem fólk sér við komuna til landsins, hjá Flugstöð Leifs Eiríks- sonar. Þetta verk er líklega það verk Rúríar sem flestir hér á landi þekkja. Margir eru einnig kunnugir myndum af gjörningnum Gullinn bíll frá 1974 þar sem gyllt glæsikerra er mölvuð í spað en þær eru einmitt til sýnis í sal 2 á jarðhæð safnsins. Þar getur að líta yfirlit eldri verka, m.a. verkið Vegur (1970), snemmbúna „upplif- unar“-innsetningu í ætt við það sem margir listamenn fást við um þessar mundir. Verkið tengist hugtökum á borð við náttúru, sjálfsmynd, skynj- un og tíma – hugtökum sem síðan hafa legið eins og rauðir þræðir um verk Rúríar. Gjörningar og heim- spekilegir þankar eru áberandi ein- kenni á verkunum í sal 2 sem flest eru frá 8. áratugnum. Rúrí er þannig í senn íhugul og pólitískur aðgerða- sinni: sterk réttlætiskennd og ádeila á samfélagsþróunina brýst út í tákn- rænu andófi gegn auðvaldi, efn- ishyggju, her- og markaðsvæðingu í gjörningum á borð við Gullinn bíl og Tillögu um breytingu á íslenska þjóð- búningnum til að laga hann að nú- tíma þjóðfélagsháttum (1974). Til- lagan er til sýnis á efri hæð safnsins þar sem í klæðum fatagínu eru brædd saman einkenni þjóðbúnings- ins og bandarísk áhrif. Verkin hafa sannarlega staðist tímans tönn og eiga erindi sem aldrei fyrr. Áherslan er á tilvistarlega íhugun í sal 1 þar sem sýnd eru verk frá 9. og 10. áratug síðustu aldar, þ.á m. „metraverkin“ svokölluðu, gerð úr tommustokkum, og verk unnin með blandaðri tækni eins og t.d. hið ljóð- ræna verk Gárur. Verkin hverfast um tíma; minningar og forgengileika, og um skynjun og afstöðu mannsins til heimsins: tilhneigingu hans til að staðsetja sig í honum og ná utan um hann – og rökvæða þar með óreið- una. Rúrí varpar fram spurningum um hvort unnt sé að mæla hið ómæl- anlega, og um eðli mælikvarðanna: hvað er rúmmetri, fermetri eða fimmtíu metrar annað en brot úr vit- und, rétt eins og áhorfandinn í hinu „stærðfræðilega“ samhengi salarins. Þegar komið er undir lok 10. ára- tugarins eiga samfélagsleg málefni hug Rúríar allan en þess má geta að í samstarfi Listasafns Íslands og Listaháskóla Íslands í Laugarnesi hefur þar verið opnuð sýning á inn- setningarverkinu Paradís? Hvenær? (1998) þar sem Rúrí fjallar um fórn- arlömb stríðsátaka. Í sal 4 á efri hæð Listasafnsins eru umhverfismál í brennidepli. Þar er hið magnaða verk Archive – Endangered Waters sem Rúrí sýndi sem fulltrúi þjóðarinnar á Feneyjatvíæringnum árið 2003. Hverfulleikinn svífur hér yfir vötn- um með myndum af hálfgagnsæjum, hverfandi og horfnum fossum Ís- lands. Verkið er skjalaskápur úr járni þar sem varðveittar eru myndir og upptökur af hljóðum vatnsaflsins (sem sums staðar hafa þagnað fyrir fullt og allt). Hver foss á sína „skúffu“ með áletruðu nafni og þegar sýningargesturinn opnar hana (með nokkru átaki) hverfur hann um stund á vit fossins, um leið og fossinn þrengir sér inn í rými hans. Hér er öðrum þræði á ferðinni ádeila á rök- leg flokkunarkerfi og framgöngu mannsins í beislun náttúruaflanna. En verkið er líka óður til náttúrunn- ar og menningar í skauti hennar: í nafngiftum fossanna, í tungumálinu, búa verðmætar minningar. Áhorf- andinn/áheyrandinn verður því fyrir margs konar huglægum og skynræn- um áhrifum, því að kraftur náttúr- unnar vekur í senn undrun og tilfinn- ingu fyrir ógn – sem tengist ekki síst mannlegri athafnasemi. Söfnunarstefið, hverfulleikinn og mishugnanleg arfleifð einkenna verkin tvö í sal 3. Í verkinu Safn hef- ur Rúrí sankað að sér ýmsum göml- um hlutum, svo sem filmum, tækjum, verkfærum, pappír – brotum úr menningarheimum – og gert tilraun til að flokka þau kerfisbundið ofan í kistur. Verkið kallast á við hinn áhrifaríka gjörning Tileinkun (2006), sem sýndur er á skjá. Þar safnar listamaðurinn með táknrænum hætti saman jarðneskum leifum kvenna sem létu lífið ofan í strigapoka í Drekkingarhyl á 17. og 18. öld, og safnar um leið saman vondum minn- ingum sem tengjast helgasta stað þjóðarinnar. Börum fórnarlamb- anna, sem notaðar voru við gjörning- inn, hefur verið raðað á gólf þjóð- listasafnsins – og þar með knýr Rúrí safngesti til að taka siðferðilega af- stöðu til sögunnar og gilda í samtím- anum. Hér er á ferðinni vönduð og út- hugsuð sýning. Í ljósi takmarkaðs rýmis Listasafnsins, hefur ýmsum áhrifamiklum innsetningum verið sleppt í því augnamiði að draga fram helstu áherslur og tímabil á ferli list- mannsins – með þunga sem endur- ómar í senn ástríðuna í listsköpun Rúríar og mikilvægi hennar í list- rænu tilliti. Regnbogi og aðrar mælistikur Afstaða Í gjörningi sínum Tileinkun (2006) safnar Rúrí með táknrænum hætti saman jarðneskum leifum kvenna sem létu lífið ofan í strigapoka í Drekking- arhyl á 17. og 18. öld. Að mati gagnrýnanda knýr listakonan með verki sínu safngesti til að taka siðferðilega afstöðu til sögunnar og gilda í samtímanum. Rúrí – Yfirlitssýning bbbbm Til 5. maí 2012. Opið þri.-sun. kl. 11-17. Aðgangur 1.000 kr. Eldri borgarar, ör- yrkjar og hópar 10+: 500 kr. Yngri en 18 ára: ókeypis. Sýningarstjóri: Christian Schoen. Listasafn Íslands. ANNA JÓA MYNDLIST 36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2012 Í tilefni af útgáfu sviðslistahópsins 16 elskenda á skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun HÍ vann fyrir hópinn boðar hann til málþings í samvinnu við Listaháskóla Íslands á morgun milli kl. 14 og 17. Málþingið er haldið í húsnæði LHÍ við Sölv- hólsgötu. Tveir frummælendur taka til máls, Auður Magndís Leiknisdóttir frá Félagsvísindastofnun HÍ, sem kynna mun helstu niðurstöður rann- sóknarinnar og Magnús Þór Þor- bergsson, fagstjóri námsbraut- arinnar Fræði og framkvæmd í LHÍ, sem talar um vangaveltur sín- ar um langanir, smekk og unnendur sannrar leiklistar. Að framsögum loknum verða pallborðsumræður undir yfirskriftinni „Til hvers búum við til leikhús?“ þar sem þátt taka auk Auðar og Magnúsar þau Ari Matthíasson framkvæmdastjóri Þjóðleihússins, Friðgeir Einarsson frá 16 elskendum, Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri Borgarleik- hússins, Salka Guðmundsdóttir leik- skáld og leiklistargagnrýnandi Víð- sjár, og Steinunn Knútsdóttir deildarstjóri leiklistar- og dans- deildar LHÍ. Sýning ársins, sem 16 elskendur sýna um þessar mundir, byggist á fyrrgreindri rannsókn. Hægt er að kaupa rannsóknarskýrsluna, sem hönnuðurinn Björn Snorri Rosdahl setti upp, á sýningum sem og á mál- þinginu. Sýningum lýkur 1. apríl nk. Hvað vilja áhorfendur? Best Í Sýningu ársins er reynt að fullkomna leikhúsupplifun áhorfenda þannig að þeir fái aðeins að sjá það sem fellur að smekk hvers og eins.  16 elskendur standa fyrir málþingi um afstöðu landsmanna til leikhússins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.