Morgunblaðið - 23.03.2012, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 23.03.2012, Qupperneq 38
Þýsk kvikmyndahátíð stendur nú yfir í Bíó Paradísog kennir þar ýmissa grasa. Þar á meðal ermyndin Milli vita sem frumsýnd var á kvik-myndahátíðinni í Cannes á síðastliðnu ári. Mynd- in segir frá Frank (Milan Peschel), fjölskylduföður sem greinist með heilaæxli. Við tekur erfið barátta sem reynir bæði á Frank og eiginkonu hans, Simone (Steffi Kühnert). Myndatakan er afar hæg og flest skot hennar fá að njóta sín í talsverða stund á skjánum. Frásögnin er mjög raunsæ og er myndin hvorki saga hetjudáða né kraftaverka. Í hvert sinn sem köldum söguþræðinum er gefið lítið bros er honum kippt aftur niður á jörðina með ælu, niðurgangi eða öðrum fylgikvillum heilaæxlis. Ófegraður raunveruleikinn verður hálf niðurdrepandi og fær áhorfandann til að sökkva með niður í þunglyndi fjölskyldunnar sem á í hlut. Myndin er afar sannfærandi og skemmtilegum aðferð- um beitt til að fanga angist Franks. Til að mynda persónu- gerir hann heilaæxli sitt auk þess sem hann heldur úti myndbandsdagbók sem gefur myndinni heimild- armyndalegan blæ. Að því undanskildu er hún fremur hefðbundin í frásagnarformi. Persónur myndarinnar eru mjög sannfærandi og leikur mjög góður. Það er ótrúlegt hvað lítið aukahlutverk getur gefið mynd aukið gildi en sú var raunin með föður Franks, Ernst Lange (Otto Mellies). Gamansöm jafnt sem angurvær innkoma hans var gulls ígildi. Þó svo myndin sé mjög langt frá því að vera upplífg- andi þá situr hún fast eftir í huga undirritaðs að loknu áhorfi. Bíó Paradís: Þýsk Kvikmyndahátíð Leikstjórn: Andreas Dresen. Handrit: Andreas Dresen. Aðal- hlutverk: Steffi Kühnert og Milan Peschel. 95 mín. Þýskaland, 2011. DAVÍÐ MÁR STEFÁNSSON KVIKMYNDIR Angist Fjölskyldufaðirinn Frank glímir við heilaæxli. Ófegruð endalok Milli Vita (Halt auf freier Strecke) bbbmn 38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2012 Alocola Alocola-kvintettinn frá Hornafirði skipa þeir Björn Rúnarsson, trommuleik- ari, Þorkell Ragnar Grétarsson gítarleikari, Birkir Þór Hauksson bassaleik- ari, Marteinn Eiríksson trompetleikari og Ármann Örn Friðriksson hljóm- borðsleikari. Þeir eru allir fimmtán nema Björn sem er sextán. Alocola spilar blöndu djassrokks, þyngri rokks og kósýrokks eins og þeir lýsa því. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Hljómsveitakeppnin Músíktilraunir hefst í kvöld í Austurbæ, en þá keppa tólf hljómsveitir um sæti í úrslitum að viku liðinni. Undankeppnin verður háð á fjórum kvöldum, í kvöld, laug- ardagskvöld, sunnudagskvöld og mánudagskvöld, og hefst keppni kl. 19 hvert kvöld. Úrslitin verða síðan haldin laugardaginn 31. mars næst- komandi. Tilraunirnar voru fyrst haldnar 1982 og hafa því verið haldnar í rúm þrjátíu ár. Í ár eru tilraunirnar haldnar í 30. sinn því keppnin féll niður 1984 vegna verkfalls kennara. Sigursveit síðustu Músíktilrauna var raftónlistartríóið Samaris. Hefð er fyrir því að helstu verð- laun Músíktilrauna séu hljóðvers- tímar með upptökumanni, en einnig eru veitt verðlaun fyrir hljóðfæra- leik og texta. Fyrir fyrsta sætið fást 20 tímar í Sundlauginni ásamt hljóð- manni, 2. sæti gefur upptökuhelgi í Island Studios í Vestmannaeyjum ásamt hljóðmanni og gistingu og 3. sætið 20 tíma Stúdíó Ljónshjarta ásamt hljóðmanni. Að auki fær sig- ursveitin gjafabréf frá Icelandair og Daedra Hafnfirska hljómsveitin Daedra spilar framsækna en aðgengilega tónlist. Sveitina skipa Jón Þór Sigurleifsson gítarleikari, Þyri Ragnheiður Björg- vinsdóttir söngkona, Anton Freyr Andreasen Röver trommuleikari, Drífa Örvarsdóttir fiðluleikari, Lilja Hlín Pétursdóttir hljómborðsleikari og Hreinn Logi Steinþórsson bassaleikari. Þau eru á aldrinum frá 19 til 23 ára. Glundroði Frá Selfossi kemur Glundroði þeirra Alexanders Freys Olgeirssonar rafgít- ar-, kassagítar- og harmonikku- og píanóleikara og söngvara, Antons Guð- jónssonar rafgítar-, kassagítar- og banjóleikara og söngvara, Skúla Gísla- sonar trommu- og slagverksleikara, Gunnars Guðna Harðarsonar fiðlu- og bassaleikara og söngvara og Arons Geirs Ottósonar bassa-, banjó-, rafgítar- og kassagítarleikara. Meðalaldur þeirrar félaga er í kringum tuttugu ár og þeir spila þjóðlagarokk með gleði og von í hjarta. Þrítugustu tilraunirnar Músíktilraunir 2012 Z-Brautir og gluggatjöld Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is Úrval - gæði - þjónusta Allt fyrir gluggana á einum stað Mælum, sérsmíðum og setjum upp Nýstárlega íslensk hönnun og smíði Laugavegi 13 · 101 ReykjavíkSími 561 6660 · gullkunst.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.