Morgunblaðið - 23.03.2012, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 23.03.2012, Blaðsíða 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2012 Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Í dag sýnir Bíó Paradís stuttmynd- ina Episode 15 eftir Kitty Von Some- time, höfund The Weird Girls Proj- ect. Myndin eða öllu heldur verkefnið heitir fullu nafni The Weird Girls Project – Episode 15: Beauty is only skin deep. Verkið er síðasta verkefni hennar á Íslandi í bili en Kitty fer til Kína í apríl til að vinna að sambærilegum verkefnum og hún hefur unnið að hér á landi í boði Converse China. Episode 15 er að sögn Kytti ádeila á viðhorf samfélagsins til lýtaað- gerða. „Ég er ekki að segja að lýta- aðgerðir séu alltaf ónauðsynlegar eða eingöngu til að svala hégóma fólks. Það sem ég er að benda á er viðhorf samfélagsins til þeirra. Mér finnst eitthvað að þegar átján og nítján ára stelpur eru að láta stækka á sér brjóstin eða láta setja fyllingu í varirnar og það þykir eðlilegt,“ segir Kitty. Að hennar sögn eru íslenskar konur þær fallegustu í heiminum og lýtaaðgerðir afskræmi íslensku feg- urðina. „Ég átta mig á því að fyrir margar konur snýst þetta um vellíð- an og ég ætla ekki að gera lítið úr því. Ég er ekki að fara fram á laga- setningu eða á nokkurn hátt að reyna að segja fólki til hvernig það Bendir á náttúrulega fegurð kvenna  Kitty Von Some- time deilir hart á lýtaaðgerðir í gegn- um Weird Girls Stuttmynd Kitty Von Sometime fjallar um fegurðina á skemmtilegan og frumlegan hátt í stuttmynd sinni Episode 15 sem frumsýnd er í dag í Bíó Paradís. eigi að haga sínu lífi. Ég er eingöngu að segja mína skoðun á þessu og vona að fólk taki skilaboðin til sín.“ Þá bendir Kitty á að öllum aðgerð- um fylgi einhver áhætta og að henn- ar mati ætti fólk ekki að setja sjálft sig í hættu að óþörfu. „Við erum börn einhverra, foreldrar, ástvinir og kunningjar. Það eru alltaf einhverjir sem elska okkur og þykir vænt um og við eigum ekki að stofna sjálfum okkur í hættu fyrir hégóma.“ Kitty tekur það þó skýrt fram að hún átti sig á því að margir þurfi á lýtaaðgerð að halda, t.d. eftir slys eða veikindi. Í apríl stefnir Kitty til Kína þar sem hún mun vinna að sambæri- legum verkefnum og hér á landi. „Ég mun vinna að og gefa út þrjá Ep- isoda í Kína og vinn þá með íslensku hljómsveitinni SYKUR.“ Kitty segir allt öðruvísi að vinna sambærilegt verk í Kína. „Ég hef tvisvar komið til Kína og ég fann strax að fólk er ekki frjálst í sama ljósi og einstaklingar á Vest- urlöndum. Samfélagið er samt að breytast þó að það gerist hægt.“ Hugmynd Kitty er að nota listina til að ýta undir það að konur í Kína opni sig meira, sæki á vinnumarkað og í nám. „Konur eru að koma út af heimilinu þó að það sé nokkuð nýtt í Kína og ég vil nota listina mína til að benda á að hjálpa ferlinu að ganga hraðar fyrir sig.“ „Þegar tökur hófust spurði ég stelpurnar hverjar myndu vilja vera berar að ofan í tökum. Rúmur helmingur var til í það og í lokin á tökum uppgötvuðu flestar að þær höfðu ekkert að skammast sín fyrir. Við erum ekki öll eins og höfum styrk og veikleika. Við erum ólík, það gefur lífinu gildi. Það væri ekki gaman ef all- ir væru eins,“ segir Kitty Von Sometime spurð um feg- urðina. Fegurðin í fjölbreytni NÁTTÚRULEG FEGURÐ Kitty Von Sometime LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Toppmyndin á Íslandi í dag 40.000 manns DV HHHH FBL HHHH FT HHHH MBL HHHH PRESSAN.IS HHHH KVIKMYNDIR.IS HHHH HHHH „PURE MAGIC“ -H.K. AIN´T IT COOL NEWS MÖGNUÐ ÆVINTÝRAMYND Í 3D HUNGER GAMES Sýnd kl. 4 (800kr.) - 7 - 10 PROJECT X Sýnd kl. 8 - 10 SVARTUR Á LEIK Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:15 JOHN CARTER 3D Sýnd kl. 4 (950kr.) JOURNEY 2 3D Sýnd kl. 4 (950kr.) STERK BYRJUN, MANN ÞYRSTIR Í MEIRA! T.V. - Vikan/Séð og Heyrt HHHH HEIMURINN FYLGIST AGNDOFA MEÐ -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU MBL DVPRESSAN.IS KVIKMYNDIR.IS STERK BYRJUN, MANN ÞYRSTIR Í MEIRA! T.V. - VIKAN/SÉÐ OG HEYRT 43.000 MANNS SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5% HUNGER GAMES KL. 4 - 5 - 8 - 10.20 - 11 12 HUNGER GAMES LÚXUS KL. 5 - 8 - 11 12 ACT OF VALOR KL. 10.35 16 THE VOW KL. 5.30 - 8 L SVARTUR Á LEIK KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS HUNGER GAMES KL. 6 - 9 - 10.30 12 ACT OF VALOR KL. 8 - 10.30 16 THE VOW KL. 5.40 - 8 L SVARTUR Á LEIK KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 LISTAMAÐURINN KL. 5.45 L HUNGER GAMES KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 ACT OF VALOR KL. 10 16 SVARTUR Á LEIK KL. 8 16 THE VOW KL. 6 L

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.