Morgunblaðið - 23.03.2012, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 23.03.2012, Qupperneq 44
FÖSTUDAGUR 23. MARS 83. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Vann 459 milljónir í Víkingalottó 2. Lést við vinnu í togaranum 3. Skaut að lögreglu og stökk út 4. Ekki víst að Merah sé á lífi »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Norski rithöfundurinn Merethe Lindstrøm fékk Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2012 fyrir skáldsög- una Dager i stillhetens historie, en verðlaunin voru veitt í gærkvöldi. »37 Ljósmynd/Johannes Jansson Merethe Lindstrøm fékk verðlaunin  Magnús Jens- son heldur hádeg- isfyrirlestur við tónlistardeild LHÍ í Sölvhóli í dag kl. 12-12.45. Í fyr- irlestrinum fjallar hann um hljóðið og hvernig skiln- ingur á því hefur þróað af sér hljóðfæri, byggingar og tónlistarmenninguna alla. Hann hyggst kynna nýjar stillingar, ný hljóðfæri og ný samskiptakerfi. Hádegisfyrirlestur um skilning á hljóði  Breska dagblaðið The Guardian ger- ir mynd Baltasars Kormáks að umtals- efni í útpældum pistli um söguþráð- aruppbyggingu í kvikmyndum í dag. M.a. er Baltasar Kor- máki hrósað fyrir að laga upprunalegu myndina, Reykja- vík-Rotterdam, svo hag- anlega að Holly- wood- stílnum. Contraband til umtals í The Guardian Á laugardag Austan- og suðaustan 5-15 m/s, hvassast syðst. Víða léttskýjað á norðanverðu landinu. Þykknar upp sunnantil og rign- ing þar um kvöldið. Hiti 6-13 stig, hlýjast norðan- og vestanlands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt, 3-13 m/s. Skýjað sunnan- og vestanlands og dálítil væta í fyrstu. Léttir heldur til á Norður- og Austurlandi. Hlýnandi veður, hiti 6 til 12 stig. VEÐUR Íslenska landsliðið í hand- knattleik kvenna vann Sviss, 26:19, í afar þýðing- armiklum leik í undan- keppni EM. Liðið spilaði frá- bæran varnarleik sem lagði grunninn að sigrinum. Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari liðsins, sagði að það gæti nú náð mark- miði sínu, sem er að komast á lokamótið í Hollandi, en þyrfti um leið að halda sér á jörðinni. » 2 Geta nú náð markmiðinu Arnór Atlason, landsliðsmaður í handknattleik og fyrirliði danska meistaraliðsins AG Köbenhavn, hef- ur verið undir læknishendi hér á landi undanfarna daga en hann hef- ur átt í afar þrálátum meiðslum í aftanverðu læri um nokkurra mán- aða skeið. »1 Arnór kom heim til að fá bót meina sinna Ríkjandi Íslandsmeistarar í Skauta- félagi Akureyrar eru á góðri leið með að verja Íslandsmeistaratitil sinn í ís- hokkíi kvenna eftir 5:1-sigur á Birn- inum í Egilshöll í gærkvöldi. SA vann einnig fyrsta leikinn á Akureyri og er því 2:0 yfir í úrslitarimmunni, en vinna þarf þrjá leiki til að vinna tit- ilinn. Næsti leikur verður á heimavelli SA fyrir norðan. »3 SA einum sigri frá því að verja titilinn ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Guðrún Sóley Gestsdóttir gudrunsoley@mbl.is Sundhöll Reykjavíkur fagnar 75 ára afmæli sínu í dag. Saga laugarinnar er um margt merkileg en hún er fyrsta yfirbyggða sundlaug landsins, reist árið 1937. Sundhöllin er hug- arsmíð Guðjóns Samúelssonar, þá- verandi húsameistara ríkisins. Haf- liði Halldórsson stendur forstöðu- mannsvaktina í Sundhöllinni um þessar mundir, í fjarveru Gísla Jóns- sonar. Alla jafna gegnir Hafliði for- stöðumannshlutverki í Vesturbæj- arlaug, en hún fagnaði fimmtugs- afmæli síðasta haust. Hafliði er því vanur stórafmælisstemningu í elstu laugum Reykjavíkur. Hafliði segir sundhöllina sívinsæla meðal borgarbúa. Hún stendur einn- ig framarlega á ýmsum sviðum, þótt ekki sé hún stærst lauganna á höf- uðborgarsvæðinu. „Til að mynda er klór ekki bætt hér sérstaklega út í vatnið, heldur höfum við vél sem skil- ur að natríum og klóríð – þannig er klórinn beinlínis búinn til í vatninu sjálfu. Reksturinn á lauginni er því mjög umhverfisvænn, og hún er ein af örfáum laugum á landinu sem búa að þessum búnaði,“ segir Hafliði. Allt til alls Byggingin hefur tekið þó nokkrum breytingum í gegnum árin, til að mynda var sú útiaðstaða sem nú stendur gestum til boða ekki hluti af upphaflegu byggingunni. Þannig var heitum pottum og gufubaði utandyra bætt við nokkrum áratugum eftir opnun laugarinnar. Í dag eru pottarnir áningarstaður flestra sundlaugargesta auk stökkbrettanna tveggja. Þeir allra hraustustu bregða sér svo í líkamsræktartækin á bakk- anum. Einnig hefur verið bætt við sólbaðsaðstöðu utandyra sem er vel nýtt á sumrin. Síðast en ekki síst er boðið upp á sundleikfimi á hverjum morgni milli átta og hálfníu. Laugin gegnir ekki einungis hefð- bundnu hlutverki, heldur hefur hún á síðari árum verið nýtt sem tónleika- og kvikmyndahús. Þar eru auk þess reglulega haldnir viðburðir á vegum ÍTR, þar á meðal í tengslum við starf félagsmiðstöðvanna. Einu sinni í viku er svo köfunarkennsla í laug- inni. En hvernig verður svo haldið upp á afmælið? „Við verðum með kökur og kaffi fyrir gesti og gangandi í af- greiðslunni, og svo heldur Eva Ein- arsdóttir, formaður íþrótta- og tóm- stundaráðs, ræðu kl. 12:30,“ segir Hafliði. „Þetta verður huggulegt kaffisamsæti, en laugin verður opin samkvæmt venju.“ Syndandi gestir í 75 ár  Umhverfisvænn rekstur á elstu innilaug landsins Morgunblaðið/Sigurgeir S. Sundkappar Þau voru eldhress, skólasundskrakkarnir í Sundhöllinni í gær er ljósmyndara bar að garði. Bjarni Valtýsson er sundlaug- arvörður í höllinni og hefur starfað sem slíkur í 11 ár. Hann segir nokk- uð jafna aðsókn yfir daginn „Hér er nokkuð mikið að gera. Fasta- gestirnir eru hér á morgnana, svo eru sundnámskeiðin yfir daginn á virkum dögum. Í hádeg- inu og eftir vinnu bætast svo einhverjir gestir við,“ segir Bjarni. Hann nefn- ir líka svokallaða Hún- verja, sem eru mættir á slaginu hálfsjö á hverjum morgni og hanga á hurðarhúninum þar til opnað er. Bjarni segir marga hætta sér á þriggja metra brettið. „Maður sér einn og einn skella svolítið illa í lauginni, en þeir eru fljótir að jafna sig.“ Hann segir almennt ekki þurfa að skipta sér mikið af gest- um, stundum þurfi aðeins að hægja á æstustu krökkunum. „Það er bara eins og krakkar eru.“ Húnverjarnir mættir hálfsjö BJARNI VALTÝSSON HEFUR VERIÐ 11 ÁR Í STARFI SUNDVARÐAR Bjarni Valtýsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.