Morgunblaðið - 30.03.2012, Page 11

Morgunblaðið - 30.03.2012, Page 11
Ljósmynd/Björn Anton Einarsson land en það sérhæfir sig í pilsunum. Við gátum valið úr ólíkum ættum, en hver ætt ber sitt fjölskyldu-Klan. Við völdum okkur að vera í ætt sem kallast Royal Stewart,“ segja þeir stoltir og bæta við að mikil fræði séu á bak við pilsin. „Munstrið, línurnar í köflunum og efnismagnið, allt skiptir þetta máli. Okkar pils eru flest átta- „yarda“ en þá eru átta metrar af efni í þeim og dýpt plíseringanna ákveðin eftir því.“ Einskonar veski hangir í belti á framanverðu pilsinu sem heit- ir sporron. „Á íslensku er þetta kall- að pungur og hann þarf að hanga í typpishæð sem er jú misjöfn, eftir því hvernig menn eru vaxnir niður,“ segja þeir Skotavinir sem einvörð- ungu klæðast pilsunum spari. „Auk árlegu ferðarinnar í bústaðinn þá klæðumst við þeim við sérstök til- efni, til dæmis verðum við klárlega í pilsunum í sumar þegar einn okkar giftir sig. Reyndar vorum við einu sinni í pilsunum á landsmóti hesta- manna á Vindheimamelum og það vakti gríðarlega lukku. Þá örsjaldan við skörtum pilsunum á dansleikjum þá tryllir það lýðinn. Konur eiga það til að leita stíft á okkur en reyndar fer það eftir landsvæðum. Við áttum í stökustu vandræðum þegar við fór- um í pilsunum á ball á Selfossi, kon- urnar þar voru svo aðgangsharðar. Stundum verðum við fyrir svo harðri lýðinn og kæta konur Ábrestir F.v. Elvar trommari Ágústsson, Gunnar gítar Sæmundsson, Guð- mundur gítar Bæringsson og Davíð bassi Sæmundsson. Elvar er fluttur til Noregs en í hans stað er kominn Hallgrímur Pálmi Stefánsson. áreitni að við efumst um að við séum sterkara kynið. Þá líður okkur eins og konum. En almennt hafa pilsin góð áhrif á fólk, það opnar sig fyrir okkur og fer á trúnaðarstigið.“ Bannað að vera í nærbuxum Þeir segja að þeim líði mjög vel þegar þeir klæðast í pilsunum. „Þessar árlegu pilsaferðir fela í sér mikið frjálsræði, við yfirgefum fjöl- skyldur okkar og getum einbeitt okkur að því að vera Skotar um stund, skemmtum okkur og öðrum og högum okkur eins og fífl. Eins og lög gera ráð fyrir erum við að sjálf- sögðu aldrei í nærbuxum þegar við klæðumst pilsunum. Sagan segir að Skotar létti gjarnan af sér þvagi þar sem þeir sitja þegar þeir klæðast pilsunum, þeir færa sig bara aðeins fram á skörina og láta gossa. Við vit- um ekki hvort það er rétt, en vissu- lega býður þetta upp á slíkt þó að við höfum ekki tileinkað okkur þessa takta. En það er á allan hátt mjög frelsandi að klæðast Skotapilsi.“ Pílagrímsferð til Skotlands Þeir hafa flestir unnið með Skotum og komist að því að þeir eru mjög gott fólk. Og þeir hafa tileinkað sér nokkra skoska frasa með skosk- um framburði. „Við stefnum á að halda upp á tíu ára afmæli félagsins úti í Skotlandi. Það verður okkar fyrsta pílagrímsför til heimalands pilsanna. Við ætlum að fara til Edin- borg og heimsækja fæðingarstað sjálfstæðishetju Skota, Williams Wallace, en margir þekkja hann úr kvikmyndinni Braveheart. Við ætl- um líka að skoða skosku hálöndin og munum að sjálfsögðu kynna Ísland vel.“ Hljómsveitin Ábrestir Einn meðlimur Skotavina- félagsins Guðmundur, er í hljóm- sveit sem heitir Ábrestir. „Þessi hljómsveit varð til fyrir tólf árum heima í Búðardal og við vorum undir miklum áhrifum frá Botnleðju og Green Day. Við erum aðallega cover- band en erum þó aðeins byrjaðir að vinna í eigin tónlist. Við stílum mest inn á sveitaböll og leggjum upp úr góðri stemningu. Margir hafa mis- skilið nafn hljómsveitarinnar og halda að við heitum sama nafni og mjólkurmaturinn ábrystir. Fyrir vikið segir fólk stundum að það sé að fara á ball með broddinum ef við er- um að spila. En nafnið Ábrestir kemur til af því að við vorum nafn- lausir þegar við áttum að spila á vík- ingahátíð árið 2000 og þetta var allt alveg að bresta á.“ Flottir Fimm af félögunum í síðustu sumarbústaðaferð, f.v. Stefán, Kristinn, Birkir, Víðir og Guðmundur. Vantar þá Óskar, Baldur og Elvar. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2012 Fjórði fræðslufundur Félags ungra jafnréttissinna verður haldinn í Hinu húsinu á morgun, laugardag 31. mars kl. 15:00. Á fundinn koma þau Ingi- björg Elíasdóttir og Hjálmar G. Sig- marsson frá Jafnréttisstofu og fræða fundargesti um störf Jafnréttisstofu og stöðu jafnréttismála á Íslandi. Að venju verður heitt á könnunni og tími fyrir góðar umræður. Fræðslufundir, sem Félag ungra jafnréttissinna stendur fyrir, eru liður í því að fræða félaga um stöðu hinna ýmsu hópa samfélagsins þegar kemur að jafn- réttismálum en markmið félagsins er að fara í vitundarvakningu um jafn- réttismál og berjast gegn neikvæðum staðalmyndum og fordómum gegn ólíkum samfélagshópum. Hópinn má finna á facebook.com/groups/ felagjafnrettissinna/. Endilega … … fræðist um jafnréttismál Félag Frá fundi ungra jafnréttissinna. Allar nánari upplýsingar veita Samúel eða Halldór í símum 578-7014 og 578-7008 eða með tölvupósti á samuel@klasiehf.is og halldor@klasiehf.is TIL LEIGU Á BESTA STAÐ - SÍÐUMÚLI 28 Í boði eru eftirtalin rými: 40 m² – 17 m² opið vinnurými og 12 m² skrifstofu- /fundarherbergi. 74 m² – 49 m² opið vinnurými og 12 m² skrifstofu- /fundarherbergi. 133 m² – tvö 32 m² opin vinnurými með möguleika á auka skrifstofu-/fundarherbergi. Góð kaffistofa og salernisaðstaða. 166 m² – þrjú 32 m² opin vinnurými með möguleika á auka skrifstofu-/fundarherbergi. Góð kaffistofa og salernisaðstaða. 206 m² – tvö 32 m² opin vinnurými, eitt 49 m² og 12 m² skrifstofu-/fundarherbergi. Góð kaffistofa og salernisaðstaða. 332 m² – alls 8-10 rúmgóðar og vandaðar skrifstofur auk móttöku, kaffistofu og fundarherbergis. Húsnæðið hentar mjög vel til framleigu á einstökum skrifstofum og hentar því vel aðila sem gjarnan vill eiga möguleika á að stækka eða minnka við sig. Stækkunarmöguleiki í 540 m². 334 m² – gott opið rými, fjórar aflokaðar skrifstofur auk mötuneytis. Rúmgóð móttaka sem einnig getur hentað sem lítil verslun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.