Morgunblaðið - 30.03.2012, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2012
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Meirihluti félagsmanna í Samtökum
iðnaðarins er andvígur aðild Íslands
að Evrópusambandinu, samkvæmt
nýrri skoðanakönnun sem kynnt var
í gær. Stuðningur við ESB-aðild hef-
ur jafnan verið mikill innan Samtak-
anna og fylgismenn aðildar hafa í
mörgum könnunum verið töluvert
fleiri en andstæðingar.
Nýja könnunin sýnir mikil um-
skipti. Nú mælast 58,7% andvíg aðild
en 27,4% eru henni fylgjandi. Stuðn-
ingur við ESB-aðild hefur aldrei
mælst svo lítill meðal félagsmanna
SI.
Þegar spurt var um afstöðu til
þess að íslensk stjórnvöld drægju
umsókn sína til baka var hlutfallið
nánast jafnt. Andvígir voru 44,4% og
fylgjandi voru 43,5%. Þeir sem voru
mjög andvígir því að draga umsókn-
ina til baka voru 32% en 25,9% voru
mjög fylgjandi.
Tæp 70% myndu segja nei
Væri á hinn bóginn kosið nú er af-
staða meirihlutans skýr; 68,8% fé-
lagsmanna SI kváðust vera á móti
aðild. Af þeim voru 53,1% örugglega
á móti aðild og 15,7% voru sennilega
á móti aðild. Rúmlega 31% voru
fylgjandi aðild, þar af voru 15,1%
örugglega með aðild en 16% senni-
lega með aðild.
Andstaða við aðild var mun meiri á
landsbyggðinni þar sem hún mældist
71% en á höfuðborgarsvæðinu þar
sem hún mældist 51%. Á höfuðborg-
arsvæðinu mæld-
ist stuðningur við
aðild 34% en á
landsbyggðinni
voru 10% fylgj-
andi aðild.
Frá 2000 og
fram til áranna
2006 og 2007 létu
Samtök iðnaðar-
ins kanna hug fé-
lagsmanna til að-
ildar Íslands að ESB árlega. Síðan
liðu fimm ár þangað til næsta könn-
un var gerð, það er að segja sú sem
birt var í gær.
Veikara bakland
Á félagsfundi hjá SI í gærmorgun
ræddi Kristján Vigfússon, stjórn-
málafræðingur og kennari við Há-
skólann Í Reykjavík, um stöðuna í
aðildarviðræðunum. Í samtali við
Morgunblaðið benti hann á að á ár-
unum 2009-2010 hefði hann unnið
rannsóknarverkefni um Evrópumál
fyrir Samtök iðnaðarins og þá var
rætt við marga stjórnendur innan
samtakanna. Á þeim tíma hefði það
verið nokkuð almenn skoðun stjórn-
enda hjá fyrirtækjum innan samtak-
anna að ferlið að upptöku evru í
gegnum Evrópusambandsaðild
myndi auka stöðugleika og leiða til
aga í hagstjórninni. Ennfremur
töldu stjórnendur þá að reynslan af
krónunni sýndi að það væri illa hægt
að gera rekstraráætlanir. Erfitt
væri að meta hvað réði breyttri af-
stöðu félagsmanna SI nú. Hluti skýr-
ingarinnar væri eflaust tengt málum
sem hæst bæru í umræðunni, þ.e.
vandræði með myntsamstarfið og
miklar skuldir einstakra aðildar-
ríkja Evrópusambandsins. Sömu-
leiðis hefðu makríl- og Icesave-deil-
urnar vafalaust haft sín áhrif en
bæði þessi mál eru óleyst. Kristján
sagðist einnig velta því fyrir sér
hvort þessi krafa um stöðugleika
hefði að hluta til komið með gjald-
eyrishöftunum sem gæti að ein-
hverju leyti útskýrt þessa afstöðu-
breytingu. Það væri auðveldara að
gera rekstraráætlanir með krónuna
í höftum. Meðal samtaka atvinnu-
rekenda hefur stuðningur við ESB-
aðild jafnan verið mestur innan SI.
Kristján sagði að ef þessi viðsnún-
ingur SI gagnvart ESB-aðild væri
varanlegur væri ljóst að bakland að-
ildarsinna, innan atvinnulífsins,
hefði veikst.
Iðnaðurinn snýst gegn ESB-aðild
Ný skoðanakönnun sýnir að meirihluti félaga í Samtökum iðnaðarins er nú andvígur aðild að ESB
Tæplega 70% myndu kjósa gegn aðild nú Klofin í afstöðu til þess hvort draga eigi umsókn til baka
„Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) aðild
Íslands að Evrópusambandinu?“
Mjöghlynnt(ur) Frekar hlynnt(ur) Mjögandvíg(ur) Frekar andvíg(ur) Hvorki né
Ágúst
2000
Júl-ág.
2001
Feb.
2003
Feb.
2004
Feb.
2005
Feb.-mars
2006
Feb.-mars
2007
Jan.-feb.
2012
15,8% 17,8% 10,7% 11,3% 16,8% 14,1% 15,7% 12,8%
29,2%
39,9%
23,8%
31,5%
32,0% 30,7% 27,7%
14,5%
23,8% 12,2%
19,5% 13,8%
15,9% 21,3% 17,2%
14,0%
18,1% 16,5%
25,0% 23,2%
19,7% 17,6% 22,4%
22,8%
13,1% 13,5% 21,0% 20,2% 15,5% 16,3% 16,9% 35,9%
Heimild: Capacent
„Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að taka upp Evru
sem gjaldmiðil á Íslandi í stað íslensku krónunnar?“
Hlynnt(ur) Andvíg(ur) Hvorki né
Feb.
2004
Feb.
2005
Feb.-mars
2006
Jan.-feb.
2012
55,3% 60,5% 61,1%
36,5%
7,8%
9,9% 12,8%
18,4%
36,9% 29,6% 26,1% 45,0%
Heimild: Capacent
Kristján
Vigfússon
Fleiri andstæðingar
» Úrtak könnunarinnar var
593 félagsmenn í Samtökum
iðnaðarins. Fjöldi svarenda
var 374 en 219 svöruðu ekki.
Svarhlutfall var 63,1%.
» Mesta andstaðan var með-
al félagsmanna í mat-
vælaiðnaði (74%) en minnst
meðal þeirra sem starfa í
flokknum hugverk og tækni
(25%). Innan síðastnefnda
hópsins var meirihluti fyrir
aðild (56%) en andstæðingar
voru í meirihluta í öllum öðr-
um hópum.
Hugsanlegt er að Samskip hafi gert
mistök þegar boðið var í rekstur
Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs
næstu tvö árin. Eru stjórnendur
fyrirtækisins að fara yfir málið, með
starfsmönnum Vegagerðarinnar. Sú
vinna þarf að ganga fljótt fyrir sig
því nýr rekstraraðili á að taka við
rekstri skipsins 1. maí næstkom-
andi.
Samskip ráku Herjólf í fimm ár
en Eimskip hefur annast reksturinn
í rúman áratug. Samskip höfðu
áhuga á að taka reksturinn aftur yf-
ir og buðust til að gera það í tvö ár
fyrir rúmar 600 milljónir. Er það
230 milljónum undir áætlun Vega-
gerðarinnar. Ef Samskip geta staðið
við boðið er þetta langhagstæðasta
niðurstaðan fyrir Vegagerðina og
ríkissjóð.
Nokkur frávikstilboð bárust þar
sem boðið var upp á önnur skip með
Herjólfi til að auka möguleika á
siglingum til Landeyjahafnar. Sam-
kvæmt upplýsingum Vegagerðar-
innar virðast þau öll háð fyrirvörum
og því að líkindum óheimilt að taka
þau til greina.
Eimskip næstlægst
Aðaltilboð Eimskips hljóðaði upp
á 859 milljónir sem er 3% yfir áætl-
un og tilboð Sæferða var enn hærra.
Starfsmenn Vegagerðarinnar
fara yfir öll tilboðin, ekki aðeins til-
boð lægstbjóðanda, til að flýta fyrir
samningum. helgi@mbl.is
Skoða öll tilboð í
rekstur Vest-
mannaeyjaferju
Samskip saumfara sitt tilboð
Samgöngur milli lands og Eyja Eimskip hafa annast rekstur Herjólfs í
rúman áratug, en Samskip buðu lægst lægst í útboði Vegagerðarinnar.
Þú velur
og draumasófinn þinn er klár
GERÐ (yfir 90 mismunandi útfærslur)
STÆRÐ (engin takmörk)
ÁKLÆÐI (yfir 2000 tegundir)
Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum
Íslensk
framleiðsla
Mósel
30% afsláttur af völdum sófum
H Ú S G Ö G N
Basel
Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík | Sími: 557 9510 | Netfang: patti@patti.is | vefsíða: patti.is
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl. 9-18
Laugardaga kl.11-16
Sunnudaga lokað